Morgunblaðið - 17.01.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
23
Sungið um hetudáðir og aldan stigin I Bíóhöllinni, en þar verða sýningar á
Sjóræningjunum, hinum vinsæla söngleik Gilberts og Sullivans, alla helgina.
nafni skúrkurinn Samúel í Sjóræn-
ingjunum frá Pensance.
Næst er átt orð við Pálínu Fann-
ey Skúladóttur, „nítján ára nátt-
úrutalent", eins og Unnur hafði
orðað það. En Pálína leikur eitt að-
alhlutverkið, Mabel, unga og sak-
lausa herforingjadóttur, sem fellur
fyrir töfrum sjóræningja.
„Ég er austan af Fljótsdalshér-
aði, en kom hingað vegna tónlist-
arbrautarinnar við Fjölbrauta-
skólann," segir hún. „Nú bý ég hér
á Skaganum með kærastanum
mínum, en hann er reyndar með í
sýningunni líka. Ég hef lært mikið
af því að taka þátt í þessari sýn-
ingu, það er mikið mál að geta
hreyft sig og sungið um leið og ég
er orðin miklu öruggari en ég var,“
segir Pálina, en er ekki frá því, að
hún sé svolítið eirðarlaus og mat-
arlystin Htil, svona síðustu dagana
fyrir frumsýningu.
Síðasti viðmælandinn er Hörður
Jónsson, Strandamaður, ættaður
frá Stóru-Ávík, trésmiður að at-
vinnu og útgerðarmaður þegar færi
gefst.
Hörður er barítón og leikur
tveim skjöldum í sýningunni. Kem-
ur fram bæði sem sjóræningi og
lögregluþjónn, en kveðst kunna
betur við sig í hlutverki hins síðar-
nefnda. Hann er reyndar ekki
óvanur því að koma fram, söng með
karlakórnum Svani, meðan sá var
og hét, og hefur auk þess sungið og
spilað á árshátíðum og þorrablót-
um við góðan orðstír. En Hörður
kveðst hafa miklar mætur á Meg-
asi, Dylan og fleiri góðum
mönnum.
„Nú er maður svona aðeins að
skipuleggja röddina og það er
hreint ágætt að fá tækifæri til þess
hér. Það er líka spennandi að sjá í
fyrsta sinn hvernig leikstjóri vinn-
ur svona sýningu og mikill lærdóm-
ur,“ segir Hörður og er þar með
rokinn heim til sín í næsta hús, að
útbúa glænýja ýsu í soðið handa
þeim Unni og Andrési.
En ýsan sú táknar sögulegar
sættir í leikhópnum og máltíðin,
sem Morminblaðsfólk tók þátt í, er
ef til vill táknræn fyrir þá lífs- og
leikgleði, sem er akkeri góðra
áhugamannaleikhúsa.
Söngstjóranum mun nefnilega
hafa þótt Strandamaðurinn dorga
nokkuð drjúgt eftir ýsunni þegar
hann hefði átt að vera á æfingum í
Bíóhöllinni og átt það til, að fara
ófögrum orðum um sjósókn við-
komandi „sjóræningja".
En eins og alkunna er, þá verður
Strandamönnum sjaldan orðfall.
Að lokinni sérlega fengsælli sjóferð
setti Hörður saman bálk einn mik-
inn sér til málsbóta og flutti á æf-
ingu. En Þar sagði meðal annars:
Ég man það vel ég mætti seint,
þó man ég ekki alveg hreint,
hvort uppi í rúmi eða úti á sjó,
ég ýsur sæll og glaður dró.
Síðan var bætt um betur, söku-
dólgurinn úr djúpinu settur á fat
og snæddur, söngstjórinn fyrirgaf
seinlegar mætingar og svo var æft
fram á rauða nótt...
H.H.S.
Hafnarfjörður:
Togarar BÚH til
veiða og fisk-
vinnslufólk til starfa
Á FUNDI útgerðarráðs Bæjarútgerð-
ar Hafnarfjarðar síðastliðið mánu-
dagskvöld var ákveðið að togarar
fyrirtækisins færu til veiða að og
kalla starfsfólk í fiskvinnslu til vinnu
þann 28. janúar næstkomandi, en
starfsemi fyrirtækisins hefur að lang-
mestu legið niðri frá 6. október síð-
astliðnum, vegna erfiðrar rekstrar-
stöðu.
Togarinn Maí fer til veiða á
morgu-n, Júní á þriðjudag og Apríl
fljótlega í kjölfarið. Togararnir
Maí og Júní hafa verið að veiðum
undanfarna mánuði, þrátt fyrir að
starfsemin hafi að mestu legið
niðri, en þeir hafa selt afla erlend-
is. Hins vegar þarf að manna tog-
arann Apríl. Um eitt hundrað
manns verða kallaðir til vinnu í
fiskvinnslu fyrirtækisins þann 28.
janúar þegar fyrirhugað er að Maí
komi til heimahafnar úr veiðiferð
sinni.
Viö kynnum
NIDARBERGENE
W ^
" Laban
Seigmenn
TROIKA GULLBR0D
súkkulaði með súkkulaði með
marsipani, brúnu kremi' marsipanfyllingu
og hlaupi. -jgp,
5-MINUTT
súkkulaðihúðað kex,
KLIN KOKOS
súkkulaði með
kókosfyllingu
BRAVO N0TT
súkkulaði með heilum
hnetum
STRATOS SPESIAL TRÖFFEL
mjólkursúkkulaði súkkulaði með
A. kremfyllingu, jl
ristuðum heifli
LAKRIsfeáíFER
LABAN SEIGMENN
sykurhúðað hlaup
KARANAM
súkkuladjkúl
karamejlufyl
BARNETIMEN
ip með blandað barnasælgæti
lakkrísbát:
SYRLIGE DROPS BRINGEBÆR
brjóstsykur með brjóstsykur með
ávaxtabragði bringeberjabragði
CANDY
fylltur brjóstsykur
EKTE KAMFER
brjóstsykur með
k a m f ó r ubijjaðrr^f
...og miklu ódýrara.”
Heildsölubirgðir: imnzr-
sími 82700