Morgunblaðið - 17.01.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
7
200 manns koma fram
á skemmtun til styrkt-
ar Eþíópíusöfnuninni
FORSVARSMENN skemmtunar
til styrktar Eþíópíusöfnun Hjálpar-
. stofnunar kirkjunnar, telja að um
200 manns taki þátt í fjölbreyttri
skemmtidagskrá sem ýmsir kunnir
listamenn hafa sett saman og flutt
verður í Háskólabíói í kvöld.
Að sögn Guðmundar Einarsson-
ar, framkv.stj. Hjálparstofnunar
kirkjunnar, kom frumkvæðið frá
listamönnunum sjálfum og gefa
þeir allt vinnuframlag sitt og
kunni hann þeim þakkir fyrir
Meðal þeirra sem fram koma er
kór Melaskólans, sem mun flytja
lag eftir Magnús Pétursson er
hann hlaut viðurkenningu fyrir í
alþjóða texta- og lagasamkeppni í
tilefni barnaárs 1979. Söngflokk-
urinn Raddbandið skipaður nem-
endum úr söngskólanum undir
stjórn Jóns Kristins Cortes, mun
taka lagið.
Big band FÍH leikur nokkur lög,
stjórnandi Björn R. Einarsson.
Ennfremur mun Karlakór Reykja-
víkur taka lagið undir stjórn Páls
P. Pálssonar og Friðbjörn G.
Jónsson syngur nokkur lög við
undirleik hljómsveitar.
Auk þessa mun íslenski dans-
flokkurinn sýna tvo stutta þætti,
“Vetrarnótt“ og “Draumsýn". Jón-
as Þórir mun leika á stærsta
rafmagnsorgel landsins nokkur
lög. Einnig munu koma fram
Ómar Ragnarsson og Haukur
Heiðar Ingólfsson.
Sinfóníuhljómsveit íslands flyt-
ur blandaða dagskrá og slær á
létta strengi. Sigurður Björnsson
og Sieglinde Kahlmann synja dú-
etta úr óperum, stjórnandi er Páll
P. Pálsson. Skemmtuninni mun
Ijúka með fjöldasöng.
Er ljóst hvað
hrjáði Egil í elli?
í nýútkomnu tímariti, Skírni,
leiðir prófessor Þórður Harðarson
rök að því að Egill Skallagrímsson
hafi verið haldinn beinasjúkdómi
Pagets, osteitis deformas, kennd-
um við breskan lækni.
Sjúkdómurinn lýsir sér í því
að beinvefir sýkjast. Bein geta
bognað og afmyndast í fyrstu, en
síðan tekur óeðlileg beinmyndun
við, einkum á höfuðkúpuna. Af-
leiðingin getur orðið heyrnar-
leysi og blinda, auk þess sem
sjúklingurinn á erfitt með allar
hreyfingar.
Sjúkdómsgreinig Þórðar bygg-
ir á lýsingum af Agli í ellinni í
lok Egilssögu. Þar er Agli lýst
sem manni sem á erfitt um gang
og þjáist af fótkulda auk þess að
vera nær blindur og heyrnar-
laus. Beinin voru meiri en ann-
arra manna og höfuðkúpan
ótrúleg, eða eins og segir í lok
Egilssögu þegar lýst er upp-
greftri á beinum Egils: „Var
hausinn undarlega mikill, en
hitt þótti þó meir frá líkendum,
hve þungur var. Hausinn var all-
ur báróttur utan svo sem hörpu-
skel.“
Ævintýrið
um Alísu í
Undralandi
FJÖLVI hefur gefið út bókina Alís í
Undralandi eftir Lewis Carroll með
myndskreytingum Jenny Thorne og í
þýðingu Ingunnar E. Thorarensen.
í formála rekur Þorsteinn Thor-
arensen, hvernig ævintýrið um Al-
ísu í Undralandi varð til og segir
deili á höfundi þess, sem réttu
nafni hét Charles Lutwidge Dodg-
son og var stærðfræðikennari við
Oxford-háskóla.
Ævintýrið um Alísu í undralandi
átti upphaf sitt í róðrarferð sem
Dodgson fór í 1862 með þremur
dætrum háskólarektors Krists-
skóla í Oxford, þar sem Dodgson
nam guðfræði. I þessari bátsferð
hóf hann að segja þeim ævintýri og
aðalsöguhetja þess var ein telpn-
anna, Alís, sem þá var 10 ára, og
það var hún, sem síðar fékk Dodg-
son til skrifa ævintýrið niður. Það
handrit er nú varðveitt í British
Museum. Handrit þetta spurðist til
Macmillan-útgáfunnar í London,
sem eftir nokkra eftirgangsmuni
fékk það til útgáfu, en höfundurinn
Schauff-reið-
hjóli stolið
NÝJU Schauff-reiðhjóli var stolið um
11 leytið sl. mánudagskvöld fyrir
utan húsið Bræðraborgarstíg 49.
Hjólið er blátt að lit.
Þeir, sem geta gefið upplýsingar
um hjólið, eru vinsamlegast beðnir
að hringja í síma 16937 eða til lög-
regiunnar.
neitaði að hans rétta nafn kæmi
fram. Alís í undralandi kom svo út
1865.
Útgáfa Fjölva er 120 blaðsíður og
birtir hún söguna óstytta og með
öllum ljóðum. Bókin er gefin út í
samstarfi við Mondadori-útgáfuna
á Ítalíu.
Jafntefli
í Moskvu
EINVÍGIÐ endalausa um heims-
meistaratitilinn hélt áfram í gær í
Moskvu. Kasparov hafði hvítt og
enn einu sinni tefldu þeir drottn-
ingarbragð, Tartakower-afbrigðið.
Skákin tefldist eins og skákir
númer 38 og 39 fram að 15. leik
svarts, en þá brá Karpov út af.
Staðan, sem upp kom, var að áliti
sérfræðinga í Moskvu talin gefa
áskorandanum von um varanlegt
frumkvæði, en Karpov byggði upp
örugga varnarstöðu. Jafntefli var
samið eftir 26 leiki.
Staðan er því enn 5—1 fyrir
heimsmeistarann, Karpov.
Kór Melaskólans ásamt stjórnendum, Jónasi Þóri og Helgu Gunnarsdóttur.
ri AMC Jeep 3000
EINSTAKT TÆKIFÆRI SEM
EKKI BÝÐST AFTUR
Viö höldum útsölu á varahlutum til þess aö ryma
fyrir nyjum lager sem væntanlegur er á næstunni.
Nú bjóöast ótrúleg verö á orginal hlutum, tækifæri sem
þú skalt ekki láta ganga þér úr greipum.
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
SMIÐJUVECI 18, SÍMI 79130