Morgunblaðið - 17.01.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
15
RLR fékk 4392 mál
til rannsóknar í fyrra
„Á SÍÐASTLIÐNU ári bárust Rannsóknariögreglu ríkisins 4392
mál til rannsóknar. Þaö er 470 málum fleira en 1983 og er
aukningin rétt um 12%,“ sagði Hallvarður Einvarösson, rann-
sóknarlögregiustjóri ríkisins, í samtali við blm. Mbl. „Auðvitað
segja tölur ekki alla söguna. Mál til rannsóknar eru ákaflega
misjöfn að umfangi. Mörg mál krefjast mikillar vinnu fjölda
manna, sérfræðiþekkingar og eru tímafrek, en önnur eru lítil að
umfangi eins og gengur,“ sagði Hallvarður.
„Áberandi aukning hefur verið í
fjórum málaflokkum. Þjófnuðum
fjölgaði mjög — á síðastliðnu ári
komu til rannsóknar alls 2465
þjófnaðarmál og er aukningin rúm
45% frá árinu áður. Þá fjölgaði
málum til rannsóknar vegna
skjalafals og skattabrota og það
færist í vöxt að fólk, sem gerst
hefur sekt um innbrot og fölsun-
armál, hafi komið við sögu fíkni-
efnamála og nægir í því sambandi
að benda á fógetamálið svokall-
aða. Af þeim 28 einstaklingum,
sem ítrekað voru úrskurðaðir í
gæzluvarðhald á síðastliðnu ári,
höfðu 23 komið við sögu fíkniefna-
rnála," sagði Hallvarður.
„Af skjalafölsunarbrotum eru
langflest ávísanamisferli, en einn-
ig komu mörg mál vegna fölsunar
skuldabréfa til rannsóknar. Fjár-
svikamálum fækkaði á síðastliðnu
ári, en skýringing er fyrst og
fremst sú að 1983 varð gífurleg
aukning á fjársvikamálum. Árið
1982 komu 347 fjársvikamál til
rannsóknar, 620 1983 og 568 á síð-
astliðnu ári. Einni tegund mála
hefur fækkað mjög eftir holskeflu
sem yfir gekk, en það eru svik í
bifreiðaviðskiptum," sagði Erla
Jónsdóttir, deildarstjóri hjá RLR.
Af stærstu málaflokkum, sem
til rannsóknar komu, má nefna:
Skjalafals, 360 mál, aukning frá
1983 er tæp 47%. Þjófnaður og
innbrot 1348 mál, aukning 42,5%
frá fyrra ári. Annar þjófnaður
1117, aukning tæp 3%. Fjárdrátt-
ur 88 mál, aukning rúm 14%.
Skilasvik 44 mál, aukning 37%.
Eignaspjöll 13, aukning 24%. Brot
gegn lögum um tollheimtu og toll-
eftirlit 18. Brot gegn ýmsum sér-
refsilögum 104, en á þeim vett-
vangi varð aukningin rúm 28%.
Blaðamaður spurði Hallvarð
hvort fjölgað hefði í starfsliði
RLR vegna stöðugrar aukningar á
málafjölda allar götur síðan RLR
var stofnuð 1977, fyrst og fremst
með tilkomu nýrra málaflokka.
„Nei, mannfjöldi RLR hefur verið
óbreyttur allar götur frá stofnun
RLR. Stöðug aukning hefur verið
á málum til meðferðar og við höf-
um fengið nýja málaflokka til
meðferðar vegna setningar nýrra
laga og breytinga á lögum,“ sagði
Hallvarður Einvarðsson.
Hún Gunna litla
er hörkukerting og
það er Ijósritunar-
vélin sem hún
heldur á líka.
Við höfum kallað MITA DC-111 Ijósritunarvélina
LITLA RISANN í MITA fjölskyldunni því eins og aðrir úr
þeirri fjölskyldu er hún viljug, fljótvirk, vandvirk
og í alla staði áreiðanlegur starfskraftur.
Síðast en ekki síst fellur aldrei úr heill dagur hjá
LITLA RISANUM vegna okkar frábæru viðgerðarþjónustu.
*•* '
Visr3
DC111
mfdas
FJOLVAL HF.
Klapparstíg 16
Sími 26659
Söluumboð
ISKRIFSTOFU HUSGOGN
HALLARMÚLA 2. SÍMt 83509
Ný sending
Dagkjólar, kvöldkjólar,
jakkar, sundbolir,
hálsfestar, eyrnalokkar.
TÖLVU-
NÁMSKEIÐ
Á NÆSTUNNI
helgarnámskeiö í notkun hinnar vinsælu
einkatölvu frá IBM.
Tími: 26. og 27. janúar kl. 10—12 og 13—17.
Töflureiknirinn
Multiplan
3ja daga námskeiö í töflureikninum Multiplan.
Tími: 21., 22. og 24. janúar kl. 13—17.
Námskeiö þetta er þarfaþing fyrir fjármálastjóra og
aöra sem semja fjárhags- og rekstraráætlanir fyrir
fyrirtæki.
Heimilistölvur
Gleðifrétt fyrir alla smátölvueigendur
Námskeið í notkun Commodore, BBC,
Sinclair Spectrum, Oric, Spectravideo,
Amstrad og fleiri heimilistölva. Þátttakend-
ur mæti meö sína eigin tölvu. Tölvufræöslan
útvegar sjónvörp.
Tími: 28., 29., 30. og 31. janúar kl. 18—20.
Tölvunámskeið
fyrir fullorðna
Fjölbreytt byrjendanámskeiö fyrir þá sem
ekki hafa átt þess kost aö læra um tölvur í
skóla. Kennd eru undirstööuatriöi í notkun
tölva, forritun í BASIC, ritvinnsla meö tölvu,
töflureiknir o.fl.
Tími: 22., 24., 29. og 31. janúar kl. 18—21.
Innritun í símum
687590 og 686790