Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 24
24______
Brazilía:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
Kjöri Neves
fagnað um gjör-
vallt landið
Krasilíu, Brazilíu, 16. janúar. AP.
TAN('REIK) Neves, sem á þriðjudag var kjörinn fyrsti borgaralegi forseti
landsins í tvo áratugi, bað landa sína um hjálp til að gera Brazilíu að
„fyrirmyndarríki". Hann kvað fyrsta verk sitt verða að kalla saman þing til
að semja nýja stjórnarskrá.
„Við skulum sameinast um
þetta verkefni," sagði Neves við
fagnandi mannfjölda, í ræðu sem
hann flutti eftir að hann hafði
verið kjörinn til að gegna forseta-
embættinu næstu sex ár. Hefst
kjörtímabil hans 15. mars nk.
Neves, sem verið hefur borgar-
fulltrúi, þingmaður, ríkisstjóri og
forsætisráðherra, fékk 480 kjör-
mannaatkvæði í þessu óbeina for-
setakjöri, sem haldið var sam-
kvæmt tilskipun herforingja-
stjórnarinnar. Hinn frambjóðand-
inn, Paulo Maluf, þingmaður úr
flokki Jafnaðarmanna, fékk 180
atkvæði.
Kosningaúrslitunum var fagnað
víða um landið. Flugeldum var
skotið á loft, bílflautur þeyttar og
sambabumbur barðar.
Skoðanakannanir hafa sýnt, að
jafnvel þótt Brazilíumenn, sem
eru um 134 milljónir talsins, hafi
langað til að kjósa forsetann bein-
Ummæli Time
ærumeiðandi
New Vork, 16. janúar. AP.
KVIÐDÓMUR í New York kvað í
dag upp þann úrskurð, að þau um-
mæli í bandaríska vikuritinu Time,
að Ariel Sharon; fyrrverandi varn-
armálaráðherra Israels, hefði vísvit-
andi látið hersveitir kristinna manna
í Líbanon fremja fjöldamorð á
óbreyttum Palestínumönnum árið
1982, væru ærumeiðandi.
Niðurstaðan þykir sigur fyrir
Sharon, en kviðdómurinn á þó enn
eftir að taka afstöðu til þess hvort
vikuritið hafi birt ummælin gegn
betri vitund, eða hvort það hafi
talið sig hafa fyrir þeim óyggjandi
heimildir.
um kosningum í blóra við vilja
herforingjastjórnarinnar, nýtur
kjör Neves stuðnings yfirgnæf-
andi meirihluta þjóðarinnar.
Veður
víða um heim
tægst Hasst
Akureyri 3 léttskýjað
Amsterdam -15 +5 skýjaó
Aþena 3 10 skýjaó
Barcelona 2 mistur.
Berlín -13 -7 skýjaó
Briissel -12 -9 heiöskirt
Chicago +20 -10 skýjaó
Dublin -3 3 snjókoma
Feneyjar 0 frostregn
Frankfurt -6 snjókoma
Genf +9 -5 skýjað
Helsinki -7 +6 skýjaó
Hong Kong 14 17 skýjaó
Jerúsalem 6 16 skýjaó
Kaupm.höfn -4 -1 heióskírt
Las Palmas 18 léttskýjað
Lissabon 1 8 skýjaó
London -6 -2 skýjaó
Los Angeles 6 21 heióskirt
Luxemborg 7 heióskirt
Malaga 9 léttskýjaó
Maltorka 7 skýjaó
Miami 14 23 skýjað
Montreal -23 -16heióskirt
Moskva -10 -8 skýjaö
New York +7 2 snjókoma
Osló -10 +7 heióskírt
París -13 -6 skýjað
Peking -11 0 heióskírt
Reykjavik 4 léttskýjaó
Rio de Janeiro 19 32 skýjaó
Rómaborg 3 18 rígning
Stokkhólmur -8 -5 skýjað
Sydney 21 28 skýjaó
Tókýó 1 14 skýjaó
Vinarborg +7 -8 heiðskírt
Þórshöfn 4 súld
Snjór og harðindi hrjá Suður-Texas
Undanfarið hafa fannkyngi og harðindi hrjáð íbúa í Suður-Texas. Þessi mynd var tekin á hraðbraut við
borgina San Antonio og sýnir vegartálma sem settir hafa verið upp til að koma í veg fyrir að ökumenn
önuðu út í ófærðina. Þá var San Antonio-borg, sem vönust er sólskini og blíðu, hálflömuð eftir stórviðri
sem gekk yfir og hafði ekki komið verra í heila öld.
Kuldakastið í Evrópu:
Neyðarástand
á Norður-Ítalíu
Mílanó, 16. janúar. AP.
ÞÚSUNDIR hermanna voru kvaddir til að vinna að snjóruðningi á Ítalíu í
dag, en síöustu daga hefur þar fallið mesti snjór í 40 ár. Hefur neyðarástandi
verið lýst víðs vegar á Norður-Ítalíu.
Snjór tók að falla í Mílanó og
Tórínó á sunnudag og er nær
ófært í borgunum tveimur í dag.
Vörubílar komast hægt áfram á
hraðbrautum á Norður Ítalíu og
mikil röskun er á ferðum járn-
brautarlesta, en af þeim sögum
óttast menn matvæla- og olíuskort
ef breytingar verða ekki á veðrinu.
Aðeins þrjár lestir af hverjum
10 voru í ferðum til og frá Mílanó
í dag og mikil seinkun er á áætlun
þeirra. Snjókeðjur seldust upp í
borginni og verð á ávöxtum og
grænmeti hefur rokið upp úr öllu
valdi vegna veðursins og tjóns á
uppskeru í frostunum frá áramót-
um.
Mikil bílaþvaga myndaðist á
hraðbrautinni milli Feneyja og
Trieste við Bologna eftir árekstur
á ísilögðum veginum, en fregnir
fara ekki af manntjóni. Allir vegir
yfir Dólómítafjöllin eru lokaðir
vegna snjóa og í alpahéruðunum
er mikil snjóflóðahætta þar sem
150 sentimetra djúpur nýfallinn
snjór hefur hrannast upp, ofan á
fastara snjólagi. Mörg fjallaþorp
eru einangruð. Alþjóðaflugvellirn-
ir í Mílanó, Linate og Malpensa
voru lokaðir þriðja daginn í röð
vegna fannfergis, en tekist hefur
að opna að nýju flugvellina í Tór-
ínó og Genúa.
Tekið er að hlýna á Mið- og
Suður-Ítalíu og var úrhellisrign-
ing í Rómaborg í dag, en þar snjó-
aði mikið í síðustu viku.
Afganistan:
Slökkviliðsmenn í Briissel berjast við elda í kjölfar gassprengingarinnar, sem þar varð í gær.
Mikil sprenging í Brussel
Brus-sel. 16. janúar. AP.
ÞRIGGJA ára gamalt barn og
kona létu lífið þegar sprenging
af völdum gasleka varð í íbúð-
arhverfi í norðausturhluta
Brussel í nótt. Átta aðrir slösuð-
ust, en enginn þeirra er í lífs-
hættu.
Fjögur íbúðarhús hrundu til
grunna í sprengingunni og
eldur kviknaði í tveimur öðr-
um húsum.
Miklar vetrarhörkur hafa
að undanförnu verið í Belgíu
og er talið að rekja megi gas-
lekann til þeirra.
Rússar viour-
kenna liðhlaup
Moskvu, 16. janúar. AP.
SOVÉTMENN hafa nú í fyrsta sinn bandaríska utanríkisráðuneytið
viðurkennt, að sovéskur hermaður gerði allt hvað það gæti til að
hafi hlaupist undan mcrkjum í Afg- þvælast fyrir í því efni.
anistan. Kemur þetta fram í grein,
sem Tass-fréttastofan hefur sent frá
sér, en hingað tii hefur því ávallt
verið haldið fram, að liöhlauparnir
hefðu fallið í hendur skæruliðum og
verið neyddir til að biðja um hæli á
Vesturlöndum.
Mitterrand
fer til Nýju
í grein Tass er sagt frá tveimur
mönnum, Nikolai Ryzhkov, sem er
tvítugur að aldri og nú kominn
aftur til Sovétríkjanna, og Alex-
ander Voronov, sem býr í Banda-
ríkjunum, en vill snúa heim að
sögn Tass. Um Ryzhkov segir, að
hans mál sé „alger undantekning“.
Hlutskipti hermannsins hafi
reynst honum ofraun og þess
vegna hafi hann gengið skærulið-
um á hönd og beðið þá að koma sér
til Bandaríkjanna. Tass rekur síð-
an raunir Ryzhkovs í Bandaríkj-
unum en þar á hann að hafa verið
leiksoppur bæði karla og kvenna,
sem öll voru á snærum CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar. Að
lokum hafi hann fengið sig full-
saddan og snúið heim.
Um Voronov sagði Tass, að
hann vildi einnig snúa heim en
Mitterrand
fer til Nýju
Kaledóníu
París, 16. janúar. AP.
FRANCOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti skýrði frá því í
kvöld, að á morgun, fimmtudag,
hyggðist hann fara til Nýju Ka-
ledóníu í Suður-Kyrrahafi, til að
sýna landsstjórninni þar stuðn-
ing sinn.
Miklar viðsjár hafa að und-
anförnu verið á eynni, sem lýt-
ur stjórn Frakka, og 20 manns
látið lífið átökum andstæðra
fylkinga. Deilt er um hvort
eyjarskeggjar eigi að sam-
þykkja tillögu frönsku stjórn-
arinnar um sjálfstæði eyjar-
innar í kosningum, sem verða í
júlí, en sumum eyjarskeggja
þykir hún ganga of skammt,
öðrum að hún gangi of langt.