Morgunblaðið - 17.01.1985, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
Umfangsmiklar boranir
eftir olíu á Bretlandi
NÝTT olíuæöi er um það bil að skella í í Bretlandi — að þessu sinni á
landi. Hafa olíufélög hafið undirbúning að miklum borunum í leit að
auðugum olíusvæðum og ekki færri en 84 aðilar hafa fengið leyfi til
olíuleitar. Úthlutun á leyfum til að vinna olíu fer svo fram síðar á þessu
ári.
BP (British Petroleum) áform-
ar að bora á 60 stöðum á ári
næstu fjögur ár. Á árinu 1983
var borað á aðeins 21 stað alls í
Englandi. Um helmingi alls
Englands hefur verið skipt í stór
ferhyrnd svæði til olíu- og gas-
leitar og leit er einnig hafin á
nokkrum stöðum í Skotlandi.
Árið 1973 fannst olía nálægt
Wareham í Dorset. Þar eru nú
unnar 4500 tunnur á dag og BP
hefur þegar byrjað vinnslu á
öðru svæði í grenndinni, sem er
svo oliuauðugt, að likja má því
við stóru olíusvæðin í Norðursjó.
Olíuleitin á landi fer nú aðal-
lega fram á svokölluðu „Gullna
belti“ milli Dorset og Kent og á
svæðinu milli Leicestershire og
Yorkshire, þar sem þegar hafa
fundizt talsverðar olíulindir.
Enda þótt olíufundirnir séu ekki
eins miklir og í Norðursjó, þá er
allt að því 20 sinnum ódýrara að
vinna þessa olíu. Hagnaður af
olíuvinnslunni á þessu svæði
verður því að líkindum verulegur
og áhugi olíufélaganna á svæð-
inu að sama skapi mikill.
En olíuleitin hefur ekki haft í
för með sér eintóman ávinning.
Margir ibúar á olíuleitarsvæðun-
um óttast hávaða og mengun af
olíuborununum og olíuvinnsl-
unni síðar og því hafa mikil mót-
mæli komið upp, einkum í suður-
hluta Englands. Sumir halda því
fram, að þar verði senn umhorfs
eins og í Texas, þar sem olíu-
borturnarnir þeki landið eins og
skógar.
Neil Macfarlane, ráðherra sá I
brezku stjórninni, sem fer með
þessi mál, vísar þessum staðhæf-
ingum hins vegar alfarið á bug
og segir, að fyllstu varkárni
verði gætt til verndar umhverf-
inu. Jafnframt leggur hann
áherzlu á mikilvægi þess að vita,
hve mikil olía kunni að vera
þarna og hvernig unnt sé að
vinna hana. Slíkt geti haft geysi-
mikla þýðingu fyrir efnahag
Bretlands á næstu áratugum.
Bondi í Lincolnshire plægir akur sinn í skugganum af olfuturni. Á kortinu
sést, hvar helztu olíusvæðin liggja. Eins og sjá má, þá eru þessi nýju
olíusvæði á landi en ekki sjó, en fyrri olíufundir í Bretlandi hafa að mestu
leyti takmarkast við Norðursjó.
Tveir far-
ast í spreng-
ingu á olíu-
borpalli
London, 16. janúar. AP.
SPRENGING varð á olíuborpall-
inum Glomar Arctic II í Norður-
sjónum í morgun. Tveir menn lét-
ust og tveir slösuðust. Sprenging-
in varð í dælustöð borpallsins, en
þar voru mennirnir fjórir að störf-
um.
Borpallurinn var við tilrauna-
boranir á svokölluðum Jóhönn-
uflekki, sem er miðja vegu milli
Bretlands og Noregs. Eldur kom
upp í kjölfar sprengingarinnar
en tekist hefur að ráða niður-
lögum hans og er pallurinn ekki
í hættu. Starfsemi var þó hætt
um stundarsakir og 43 af 84
starfsmönnum fluttir til annars
borpalls, Glomar Arctic I, í 6
km fjarlægð.
Glomar Arctic II er í eigu
bandariska olíufyrirtækisins
Phillips Petroleum.
Mannskæðasta slys á olíu-
borpalli varð er Alexander I.
Kielland pallinum, sem Phillips
rak, hvolfdi á Ekofisk svæðinu
við Noregsstrendur í óveðri í
marzlok 1980. Fórust þá 123
menn.
Kambódía:
Óbreyttir borgar-
ar hnepptir í ánauð
Bangkok, Tailandi, 16. janúar. AP.
Víetnamski herinn heldur um
100.000 kambódískum borgur-
um í ánauð nálægt landamærum
Tailands, þar sem fólkið er látið
vinna við vegagerð og lagfæringu
á girðingum. Eru framkvæmdir
þessar liður í hernaðaraðgerðum
Víetnama gegn skæruliðum í
Kambódíu, að því er heimildir í
andspyrnuhópi þeim er styður
Norodom Sihanouk fursta, fyrr-
um þjóðhöfðingja landsins,
hermdu.
Kváðu heimildirnar margt
barna í hópi hinna ánauðugu,
og fjölskyldur sem ekki gætu
lagt til vinnuafl yrðu að bjarga
sér á mútum. Þeir sem ekki
vildu vinna með Víetnömum
væru teknir höndum og líflátn-
ir.
Að sögn heimilda í Tailandi,
bar víetnamskt herlið í dag eld
að brú á landamærum Kamb-
Fjöldagröf
finnst í Perú
Ayarurho, Perú, 16. janúar. AP.
FUNDIST hefur ný fjöldagröf með
29 sundurskotnum líkum á svæði,
þar sem skæruliðar hafa látið til
skarar skríða, að sögn ríkissaksókn-
ara.
Fjöldagröfin fannst í gær. Hinir
látnu voru með hendur bundnar
aftur fyrir bak og voru á líkunum
áverkar er bentu til pyntinga.
Fjöldagröfin fannst á sömu
slóðum í Andesfjöllunum í sunn-
anverðri Mið-Perú og gröf með 50
líkum fannst í ágúst sl. Grunur
leikur á að þar hafi stjórnarher-
menn verið að verki. Saksóknara
hafa borist á annað þúsund kvart-
anir frá ættingjum manna, sem
týnst hafa í tengslum við fjögurra
ára átök stjórnarhersins og
skæruliða.
ódíu og Tailands og gerði skot-
árásir á aðsetur skæruliða í
því skyni að koma í veg fyrir
að þeir næðu aftur á sitt vald
búðum sem þeir höfðu misst.
Uppþot
vegna
benzín-
hækkunar
King.wton, Jamaíku, 16. janúar. AP.
IIPPI>OT urðu í kjölfar umfangs-
mikilla mótmælaaðgerða þús-
unda manna, sem mótmældu
óvæntri stórhækkun á benzíni og
gasi. Vitað er um þrjú dauðsfoll
tengd óeirðunum.
Reistir voru vegtálmar og
flestum helztu vegum landsins
lokað. Kveikt var í hrúgum af
hjólbörðum. Loka varð skólum
og opinberum skrifstofum
vegna ástandsins. Flugsam-
göngur lögðust niður. Einnig
var ferðum járnbrautarlesta
aflýst þar sem rusli var fleygt
á járnbrautarteina víðs vegar
um land.
Að sögn lögreglu var allt
varnar- og lögreglulið landsins
sent á götur út til að halda aft-
ur af óeirðaseggjum. Beitt var
táragasi til að dreifa hundruð-
um manna, sem marséruðu að
húsi forsætisráðherra, Edward
Seaga, árla á þriðjudag. Henti
fólkið brennandi drasli inn á
lóð bústaðarins.
Lögregla skaut til bana
mann, sem sagður var hafa
skotið á lögreglusveit frá veg-
tálma. Tveir aðrir féllu fyrir
byssukúlum, annar í Kingston
og hinn í Maypen, en ekki er
vitað hverjir banamenn þeirra
eru.
Embættiseiðurinn svarinn
Fyrir nokkrum dögum sóru forsetar og aðrir embættismenn nýkjörins þings í Nicaragua embættiseiða sína og var
þessi mynd tekin við það tækifæri. Ystur til vinstri er Carlos Nunez, forseti þingsins, þá Leticia Herrera, varaforseti,
Clemente Guido, varaforseti, Mauricio Diaz, varaforseti og Rafael Solis ritari.
Noregur:
PLO fær ekki að reka
upplýsingaskrifstofu
Ósló, 16. janúar. AP.
FRELSISSAMTÖK Palestínumanna, PLO, fá ekki að koma á fót og reka
upplýsingaskrifstofu í Noregi. í gær ákvað dómsmálaráðuneytið að verða
ekki við umsókn Abdul Rahman Alawi um dvalarleyfi og leyfi til að starf-
rækja slíka skrifstofu.
Mona Rökke, dómsmálaráð-
herra (Hægri flokknum), sagði að
málið hefði verið rætt í ríkis-
stjórninni og utanríkisráðuneyt-
inu. Kvað hún ákvörðunina hafa
verið tekna á breiðum pólitískum
grundvelli.
Mona Rökke lagði áherslu á, að
Alawi lægi alls ekki undir grun
um að vera hryðjuverkamaður eða
hafa aðhafst nokkuð ólöglegt í
Vestur-Þýskalandi, þar sem hann
býr nú.
Hún kvað ráðuneytið hafa
kannað hvernig farið hefði í öðr-
um löndum, þar sem PLO hefði
sett á fót upplýsingaskrifstofur,
og væri reynslan af starfseminni
alls ekki neikvæð alls staðar, en
sums staðar hefðu PLO-fulltrú-
arnir orðið að fá lögregluvernd.
„Þess vegna var einnig tekið tillit
til öryggissjónarmiða, þegar gert
var út um málið," sagði dóms-
málaráðherrann.
Ákvörðunin hefur mætt harðri
gagnrýni frá vinstri flokkunum,
þar á meðal Verkamannaflokkn-
um. Þá halda norsk-palestínsk
vináttusamtök því fram, að það sé
algjör hneisa að beiðninni skuli
hafa verið hafnað.
Hart hefur verið deilt um það
mánuðum saman, hvort veita bæri
PLO leyfi til að reka upplýs-
ingaskrifstofu. Gyðingar í Noregi
og norsk-ísralesk vináttusamtök
halda því fram, að PLO hafi
stundað og stundi enn hryðju-
verkastarfsemi, og þess vegna eigi
ekki að leyfa neina starfsemi á
þeirra vegum í Noregi.