Morgunblaðið - 17.01.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
27
Frumvarp um
auglýsingar
í BBC fellt
London, 16. janúar. AP.
NEÐRI deild brezka þingsins felldi í dag frumvarp er heimilað hefði auglýs-
ingar í brezka sjónvarpinu, BBC, sem
Stjórnendur BBC hafa lagst
gegn því að teknar verði upp aug-
lýsingar milli dagskráratriða i út-
varpi og sjónvarpi á þeirri for-
sendu að það mundi bitna á hinni
góðu dagskrá. BBC stærir sig af
einhverri fínustu útvarps- og sjón-
varpsdagskrá, sem um getur.
Aðalflutningsmaður frumvarps-
ins var Joe Ashton þingmaður
Verkamannaflokksins. Gerði það
ráð fyrir „sveigjanlegum" auglýs-
ingatíma. Ashton kveðst hafa
flutt frumvarpið til þess að auð-
velda lækkun afnotagjalds út-
varps- og sjónvarps með auglýs-
ingatekjum.
Frumvarpið var fellt með 159
r ríkisrekið.
atkvæðum gegn 118. Deilan um
auglýsingar eða ekki auglýsingar
blossaði upp er BBC fór fram á
hækkun afnotagjalds fyrir lita-
sjónvarp úr 46 sterlingspundum í
65 pund. Margaret Thatcher gaf
til kynna i nóvember að hún væri
hlynnt auglýsingum á sumum út-
varps- og sjónvarpsstöðvum BBC
sem langtimalausn fjárhagsvanda
stöðvarinnar. Margir þingmenn
íhaldsflokksins iita á auglýsingar
sem heppilega leið til að halda af-
notagjöidum niðri, en frumvarp
Ashtons var talið ótimabært. Bú-
ist er við að ríkisstjórnin láti gera
úttekt á fjármögnun starfsemi
BBC áður en lagt verður fram
frumvarp um breytingar þar á.
Látinn maður
sekur um morð
Los Angeles, 16. jmnúar. AP.
LATINN maður var í dag dæmdur
sekur fyrir morð á eiginkonu sinni
og syni, og verður þessi úrskurður
líklega til þess að börn mannsins
af fyrra hjónabandi fá ekki einnar
milljónar dollara tryggingafé.
Clifford Lee Morgan, 57 ára,
fékk leigumorðingja til að myrða
seinni konu sína, Nancy, og átta
ára son þeirra, Mitchell. Voru
þau myrt á heimili þeirra hjóna
í maí 1981 með hrottalegum
hætti. Áður hafði Morgan keypt
handa þeim dýra líftryggingu.
Morgan lézt úr krabbameini í
júní í fyrra. Var málaferlum þá
ekki lokið, en í september 1983
var hann kærður fyrir að hafa
skipulagt morðin. Leigumorð-
ingjarnir tveir hafa verið dæmd-
ir í millitíðinni og verða þeir líf-
látnir í næsta mánuði í gasklefa.
Þar sem Morgan hefur nú ver-
ið sekur dæmdur hefur verið
komið í veg fyrir að fyrri kona
hans og fjögur börn þeirra geti
gert tilkall til tryggingarfjárins,
einnar milljónar dollara. Pen-
ingarnir munu hins vegar að öll-
um líkindum falla erfingjum
Nancy í hlut, móður hennar og
systur. Endanlega verður skorið
úr um með nýjum vitnaleiðslum
hver hljóta skal tryggingarféð.
Verða þar óbreyttir borgarar
kallaðir fyrir.
Ný skilgreining á
gyðingdómnum felld
Jerusalem, 16. janumr. AP.
ÍSRAELSKA þingið felldi í dag tillögu frá þingmönnum úr flokkum rétttrún-
aðarmanna en með henni vildu þeir breyta lagalegri skilgreiningu á því hver
er Gyðingur.
Tillagan var felld með 62 atkv.
gegn 51 og sagði Peres, forsætis-
ráðherra, í umræðum um hana, að
ef hún yrði samþykkt myndi hún
sundra þjóðinni. Fjórir flokkar
rétttrúnaðarmanna eiga samtals
12 menn á israelska þinginu og
kröfðust þess að tillagan yrði sam-
þykkt og þannig efnd loforð, sem
þeim voru gefin fyrir kosningar,
hvað sem liði öðrum málum eins
og efnahagsöngþveiti og deilunum
um brottflutning fsraelshers frá
Líbanon.
Ef frumvarpið hefði orðið að
lögum hefðu þeir einir getað tekið
gyðingatrú sem rabbíar eða prest-
ar rétttrúnaðarmanna legðu bless-
un sína yfir. Þar með hefðu lang-
flestir rabbíar Gyðinga í Banda-
ríkjunum og Evrópu verið settir út
í kuldann enda fremur frjálslynd-
ir í trúarlegum efnum.
Samkvæmt lögum er sá Gyðing-
ur sem á Gyðingamóður eða hefur
tekið gyðingatrú.
Vonast eftir auknum
viðskiptum við Rússa
fctjMÍnsjarsala
W0M breytiiya
á vershminni
Seljum húsgögn
með miklum afslætti
Til dæmis:
Húsgögn fyrir blómastofur og sumarbústaði.
Ódýrir stakir sófar og stólar í unglinga- og
sjónvarpsherbergi eða sumarbústaði.
Sófasett, hornsófar, teborð, skóskápar,
klappstóllinn vinsæli og margt fleira.
Komið og skoðið úrvalið. Það
verður margt góðra húsgagna
sem seljast ódýrt.
VALHÚSGÖGN
ÁRMÚLI4 SÍMI82275
\
Washiiifpon, 16. janúar. AP.
f GÆR kom fram að vonir væru bundnar við það í utanríkisráðuneytinu, að
viðskiptaviðræður sem áttu sér stað milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í
síöustu viku myndu hafa aukin viðskipti milli landanna í for með sér.
Talsmaður ráðuneytisins, Alan
Romberg, kvað næsta skref að
ákveða sameiginlegan fund við-
skiptanefnda landanna undir
stjórn Malcolm Baldridge við-
skiptaráðherra Bandaríkjanna og
Nikolai Patolichev utanríkis-
viðskiptaráðherra Sovétríkjanna.
Slíkur fundur hefði síðast verið
haldinn árið 1978, áður en sovéskt
herlið hélt inn í Afganistan.
Lionel Olmer, aðstoðarvið-
skiptaráðherra, var fyrir sendi-
nefndinni, sem fór til Moskvu. Var
markmið ferðarinnar að kanna
möguleika á ráðherraviðræðum
um viðskiptamálefni. Sagði að-
stoðarráðherrann heim kominn,
að hann hefði verið ánægður með
móttökurnar og árangur ferðar-
innar.
Romberg sagði, að vonast væri
til að fundir Olmers í Moskvu yrðu
til þess að gagnkvæm viðskipti,
sem báðir aðilar teldu sér hag-
kvæm, myndu fara vaxandi.
Sérunninn safngripur frá Glit
verður kjörgripur barna þinna
og stolt barnabarna á komandi öld
ttr]
HÖFÐABAKKA9
SIMI 685411