Morgunblaðið - 17.01.1985, Page 29

Morgunblaðið - 17.01.1985, Page 29
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985 29 Útgefandi nttfafrife hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 25 kr. eintakið. Flokksgervingur tregðulögmálsins Hvenær sem stigið hefur ver- ið stórt skref í orkubúskap eða iðnaðaruppbyggingu hér- lendis hafa framfaraöfl mætt sömu þröngsýninni á vegum sama andstæðingsins, Alþýðu- bandalagsins. Daníel Ágústín- usson, Akranesi, rifjar upp tíu ára gagnrýni gegn járnblendi- verksmiðjunni á Grundartanga, í grein í Morgunblaðinu í gær, og sýnir fram á, hvern veg sömu „farsarnir" séu notaðir enn í dag gegn orkuiðnaði, hvort heldur er norður í Eyjafirði eða hér sunn- an heiða. Reynslan frá Grund- artanga hafi hinsvegar tætt í sundur öll gagnrýnisatriði Alþýðubandalagsins. Fróðlegt er skoða þessi atriði í ljósi reynslunnar: • Ekki hefur heyrzt talað um mengun frá verksmiðjunni né önnur óþægindi. • Rykið, sem átti að leggja nærliggjandi byggð í eyði, er selt í tönkum til sementsverk- smiðjunnar á Akranesi og notað sem „bætiefni„ í framleiðslu hennar. • Ekki er vitað um einn einasta bónda, sem hætt hefur búskap vegna tilkomu járnblendiverk- smiðjunnar. Það er meira að segja búið á Klafastöðum, þar sem verksmiðjan stendur í tún- fæti. • Laxarækt er hafin undir rykhreinsitækjum verksmiðj- unnar og með varma frá þeim. Heppnist þessi tilraun eykur hún lífríki Hvalfjarðar en eyðir ekki. • Umræður fara nú fram um rekstur gróðurhúsa á verk- smiðjusvæðinu, sem hituð yrðu upp með orku frá verksmiðj- unni. • Hreinleg umgegni og snyrti- mennska á verksmiðjusvæðinu er til fyrirmyndar. • Verksmiðjan kaupir mikla af- gangsorku frá Landsvirkjun, sem ella kæmi engum að notum. Hún breytir orku fallvatna í vinnu og verðmæti til útflutn- ings og eykur þær þjóðartekur, sem lífskjör landsmanna byggj- ast í raun á. • í stað þess að eyða byggð, eins og haldið var fram, hefur fólki fjölgað um tæp 50% í hreppunum sunnan Skarðsheið- ar og á Akranesi, samhliða því sem hún hefur hleypt nýju blóði í hvers konar þjónustustörf og viðskipti í héraði. • Verksmiðjan veitir 180 mönnum atvinnu, sem hafa hærri meðalárstekjur en al- mennt gerist í sambærilegum störfum. Launagreiðslur verk- smiðjunnar 1985 eru áætlaðar 190 m.kr. Meiri stöðugleiki hef- ur verið í starfsmannahaldi þar en almennt er á vinnustöðum, 3em bendir til þess að menn uni hag sínum vel. I stuttu máli: allt svartagalls- raus Alþýðubandalagsins gegn járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga, hvert einasta gagnrýnisatriði, hefur orðið sér rækilega til skammar. Þar stendur ekki steinn yfir steini. Engu að síður þylur þessi flokksgervingur tregðulögmáls- ins og Þrándur í Götu uppbygg- ingar í þjóðarbúskapnum sama andófssönginn enn í dag, hve- nær og hvar sem stíga á skref til fjölþættara atvinnulífs og betri lífskjara. Kostnaðar- þáttur „félags- hyggjunnar“ Tíu af ellefu bæjarfulltrúum í Hafnarfirði hafa samþykkt að breyta rekstri bæjarútgerð- ar, sem var komin í rekstrarleg þrot, í almenningshlutafélag, ef vera mætti til þess að hleypa nýju lífi í veiðar og vinnslu í þessum gamalgróna útgerðar- stað. Fulltrúar allra flokka, utan Alþýðubandalags, stóðu að breytingunni. Alþýðubandalagið eitt hengdi sig á snaga skoðana- legrar forneskju um opinberan rekstur. í þess augum var strönduð bæjarútgerð stórum betri en endurhæfing í formi hlutafélags, jafnvel þótt hjól starfseminnar tækju að snúast á ný- Þjóðviljinn gagnrýnir meinta „félagshyggj uflokka" fyrir að hverfa frá opinberum rekstri til einkarekstrar — í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Af því til- efni er vert að huga að því, að kostnaður „félagslegrar" starf- semi svonefndrar, hverrar teg- undar sem er, er alfarið sóttur til verðmætasköpunar sem til verður í þjóðarbúskapnum. Mergurinn málsins, ekki sízt frá „félagslegu" sjónarhorni, hlýtur að vera sá, að þjóðar- búskapurinn, þ.e. atvinnuveg- irnir, hafi þá rekstrarstöðu, að geta risið undir viðunandi lífs- kjörum starfsmanna og kostn- aðarþætti „félagslegrar„ þjón- ustu hverskonar, sem sóttur er til fólks og fyrirtækja með margbreytilegri skattheimtu. Alþýðubandalagið rær öllum árum gegn rekstraröryggi at- vinnuvega, sem er hin hliðin á atvinnuöryggi almennings, og gegn nýsköpun í atvinnulífi, t.d. í formi orkuiðnaðar. Á stjórn- artímabili þess 1978—1983 vóru engin afgerandi skref stigin til atvinnuuppbyggingar hérlendis. Þannig hefur flokkurinn í raun höggvið að rótum „félagslegrar" starfsemi, þjónustu og fram- kvæmdúm, þ.e. aft hinni.kostn- aðarlegu undirstöðu,’þeim verð- mætum sem til verða í þjóðar- búskapnum. dal) er hér um að ræða tæplega 350 milljónir íslenzkra króna á ári.“ Hve margir eru starfsmenn ÍSAL nú og hve margir verða þeir eftir stækkunina? „Starfsmenn ÍSAL eru nú um 600 talsins, en ársstörf eru um 650. Stækkunin krefst u.þ.b. 230 starfsmanna í viðbót þannig að þeir verða um 880 eftir að hún er Álverið í Straumsvík. Fyrirkomulag hinnar nýju keraraðar verður þannig, að byggðir verða tveir stuttir kerskálar með einni röð kera og verða skálarnir samhliða þeim tveimur skálum, sem fyrir eru, nánar til- tekið á milli þeirra og Reykjanesbrautar, sem sést fremst á myndinni. Morpinblaðið/RAX. Áætlað er að það taki þrjú ár að stækka álverió í Straumsvík um helming: Tekjur íslenzka þjóðarbúsins af ÍSAL 15.200 milljónir frá því fyrirtækið tók til starfa fyrir rúmum 15 árum MEÐ samningum þeim sem tók- ust milli íslenzka ríkisins og Alu- suisse sl. haust og samþykktir voni með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á Alþingi í lok nóvember sl. urðu þáttaskil í samskiptum ís- lendinga og hins svissneska fyrir- tækis. Sættir tókustu í deilum, sem til var stofnað í desember 1980 af þáverandi iðnaðarráð- herra, Hjörleifi Guttormssyni. Með nýju samningunum voru Landsvirkjun tryggðar verulega hærri greiðslur frá ÍSAL fyrir selda raforku og samkomulag varð um hclmings stækkun ál- versins í Straumsvík, en slík stækkun er mjög hagkvæm fyrir ÍSAL og nauðsynleg fyrir Lands- virkjun svo að verjandi sé að halda áfram virkjun Blöndu. Morgunblaðið sneri sér til Ragnars S. Halldórssonar, for- stjóra íslenzka Álfélagsins hf., til að leita upplýsinga um fyrirhug- aða stækkun álversins í Straums- vík. Jafnframt veitti Ragnar blað- inu ýmsar upplýsingar um rekstur álversins frá upphafi og til dags- ins í dag og áhrif verksmiðjunnar á atvinnumál íslendinga o.fl. Fer samtalið við Ragnar hér á eftir: Hvenær má loúast við því að fram- kvæmdir hefjist víð stækkun álvers- ins? „Um það er ekkert vitað á þessu stigi. Nýju samningarnir voru samþykktir á Alþingi í lok nóv- ember og þá fyrst var raunhæft að huga að stækkun. Næsta skref er að finna aðila, sem vill verða með- eigandi að stækkuninni, og að því munu Alusuisse og Samninga- nefnd um stóriðju vinna á næst- unni. Ef nefndin finnur líklegan aðila, erum við tilbúnir til við- ræðna og sama gildir væntanlega um nefndina, ef við finnum ein- hvern líklegan. En allt veltur á því hvort Landsvirkjun getur boðið viðunandi orkuverð svo að fyrir- tæki í áliðnaði fái áhuga. Sam- keppnin er mikil, einkanlega frá Kanada, Zaire, Brasilíu og Ástr- alíu, þar sem gnægð ódýrrar, ónýttrar orku er þegar fyrir hendi.“ Hve langur verður byggingartími viðbótarinnar í Straumsvík og hve mikill verður kostnaðurinn? „Gróf áætlun um byggingar- tíma stækkunar hjá ÍSAL eftir að grænt ljós hefur verið gefið, unz gangsetning getur farið fram, er um þrjú ár. Fyrsta eina og hálfa árið fer í að hanna mannvirki og næsta eina og hálfa árið er bygg- ingartími. Samkvæmt þessu gæti framleiðsla hafizt í fyrsta iagi á árinu 1988. Byggingarkostnaður að með- töldum vöxtum á byggingartíma, gagnsetningarkostnaði og rekstr- arfé er um 2,700 dollarar á hvert árstonn. Afkastageta álversins er Ragnar S. Halldórsson, forstjóri ÍSAL. nú 88.000 tonn á ári og helmings stækkun hefur þvf í för með sér að afkastagetan eykst um 44.000 tonn á ári. Samkvæmt því áætlast byggingarkostnaðurinn 119 millj- ónir dollara, sem á núverandi gengi eru um 4880 milljónir is- lenzkra króna." Hvernig verður fyrirkomulag hinnar nýju keraraðar? „Það verða byggðir tveir „stutt- ir“ kerskálar með einni keraröð og verða skálarnir samhliða þeim tveimur skálum, sem fyrir eru, nánar tiltekið á milli þeirra og Reykj anesbrautar." Verður Straumsvíkursvæðið full- nýtt þegar kerskálarnir fiafa verið reistir og framleiðslúgetan iiefur aukist úr 88.000 árstonnum í 132.000 árstonn? „Nei, Straumsvíkursvæðið getur borið tvöfalt stærri verksmiðju en nú er, eða 176.000 árstonna verk- smiðju. Eg tel líklegt að eftir 1990 verði farið að huga að því að stækka verksmiðjuna um önnur 44.000 árstonn og þar með fullnýta Straumsvík til álframleiðslu." Verður vinnsluaðferðin í nýju kerskálunum eitthvað frábrugðin því sem nú er í Straumsvík? „Nei, þar verður notuð sama að- ferðin og notuð hefur verið síðan 1886, er Bandaríkjamaðurinn Hall og Frakkinn Héroult fundu út, hvor í sínu lagi, að framleiða má ál með því að leysa upp súrál i bráðnu krýolíti, sundra síðan súr- álinu með rafgreiningu. Hins veg- ar verður framleiðslan hagkvæm- ari en nú, því að ráðgert er að nota 180 kA ker, þ.e.a.s. 80% stærri ker en þau sem notuð eru f dag og orkunotkun á kíló af áli verður um 13 kW á móti 15 kW nú. í stuttu máli má segja, að notuð verði nýj- asta tækni, þ.e. níunda áratugar- ins, en núverandi búnaður er í raun byggður á tækni þessa sjötta og sjöunda." Hve mikla viðbótarorku þarf fSAL að kaupa af Landsvkrikjun eft- ir fyrirhugða stækkun? „Áætlað er að fSAL þurfi að kaupa viðbótarorku á bilinu 600—700 gígawattstundir á ári (1 GWst = 1 milljón kílówattstundir). Á þessu stigi er auðvitað ómögu- legt að segja til um á hvaða verði sú orka verður keypt, en ef við iniðurn við orkuverðið sem fSAL greiðir í dag, um 13 millidali fyrir hverja kílówattstund (1 millidalur = einn þúsundasti úr Bandaríkja- Á arunum 1979—82 var settur ipp fullkominn veinsibúnaður í álverinu og var áostnaður 40 milliónir loilarn cða im 1600 nilljónir islenzkra króna u íúverandi gengi. verunum var iokað og jiiónusta við þau er nú (ölvustýrð. Af invndunum tveimur niá [veinilega sjá (m miklu lireytingu, sem varð til Ijins betra í kerskálunum þegar kerunum var kokað. Þann 7 nóvember nadist sá merki atangi. ad 1 mill/on tonna at áh hotdu vertd tramletdd i Straumsvik Til aó gera sér grem tynr umtangi þessarar tramleidsiu má hugsa ser hana i ems tonna hleifabuntum Sé byggdur pyramidi ur mill/ón slikum búntum. yrdi hann 123 m hár og 1.5 hektan ad grunnfleti Til samanburóar má netna ad hráetnageymarmr 3 fyrir 110.000 tonn at suráh eru 50 m háir og Keops pyramidinn / Egyptalandi er nu 137 m har Sa pyramidi var hms vegar 146.5 m hár nyreistur og 5.3 hektarar ad grunnfíett Hundrad pusund manns byggðu hann á 20 árum ur 2.3 mill/ónum stema sem voru hver 2.5 tonn af pyngd ISAL parl pvi ad framleida 3 mtllfónir tonna / vidbót til ad na stærd Keops-pyramidans Ettir fynrhugaóa stækkun alversms a næstu árum verdur pad væntanlega fí/ótlega upp ur næstu aldamótum A myndmm hér fynr ofan hefur teiknannn sett hráetnageymana mnan i alpyramidann Alls hetur purtt ad fylla pa 18 sinnum og rumtak surálsms er /afnt 3 álpyramidum komin í gagnið, en hluti þeirra vinnur eingöngu við afleysingar. Síðastliðið sumar voru t.d. um 120 afleysingamenn. Þá er ógetið þess mikla fjölda, sem hafa mun atvinnu af bygg- ingarframkvæmdunum bæði í Straumsvík og við Blönduvirkjun, en stækkunin í Straumsvík er for- senda fyrir virkjun Blöndu." Starfsmannafjöldi fSAL segir ekki alla söguna, því reiknað hefur verið út að hvert eitt starf I fram- leiðslu- og útflutningsiðnaði skapi lífsviðurværi fyrir allmarga fleiri. Hve margir hafa lífsviðurværi sitt af ÍSAL? „f grein, sem dr. Ágúst Valfells, núverandi formaður Verkfræð- ingafélags fslands, ritaði í Morg- unblaðið í júlí 1978 kemur fram, að fyrir hvern einstakling, sem starfar að grundvallarfram- leiðslustörfum, myndast atvinna fyrir aðra í ýmsum greinum. Að meðtöldum mökum og börnum allra aðila myndar grundvallar- starfið lífsafkomu fyrir sex ein- staklinga. Miðað við þetta er end- anleg tala þeirra sem af iðnaðin- um lifa sjöföld tala þeirra sem við hann vinna. Samkvæmt þessu hafa nú í það minnsta 4.550 manns lífsviðurværi af ÍSAL og um 6.200 manns eftir stækkunina. Til að undirstrika þetta enn betur má benda á, að frá því álverið tók til starfa árið 1969 hafa launagreiðsl- ur ÍSAL numið 145 milljónum Bandaríkjadala eða 5.933 milljón- um íslenzkra króna miðað við gengi nú.“ Hver hafa áhrif ÍSAL verift á þjóft- arbúift þau rúmlega 15 ár, sem álver- ið hefur starfað I Straumsvík? „Frá upphafi hefur rúmlega þriðjungur af öllum sölutekjum ISAL runnið til íslenzka þjóðar- búsins. Alls eru þetta um 371 milljón Bandarikjadala eða jafn- virði 15,2 milljarða króna á gengi um áramótin. Til samanburðar má nefna að fjárlög íslenzka ríkisins fyrir árið 1985 nema 25,3 milljörð- um króna. Af þessari upphæð eru launa- greiðslur 5.933 milljónir króna, sem fyrr segir, greiðslur fyrir orku 3.360 milljónir, framleiðslu- skattur 794 milljónir, annar inn- lendur rekstrarkostnaður 3.646 milljónir og fjárfestingarkostnað- ur, greiddur innlendum aðilum, 1.436 milljónir króna. Hlutdeild áls í heildarútflutn- ingi iðnaðarvara var að meðaltali 58,3% árin 1977-1983. Árið 1983 var hlutfallið 60,0%. Hlutdeild áls í heildarútflutningi landsmanna hefur verið að meðaltali 13% á sama árabili. Þegar hlutdeildar- tölurnar eru hæstar er verið að selja uppsafnaðar birgðir. Bygging álversins og hafnarinn- ar í Straumsvík, svo og bygging Búrfellsvirkjunar og tengdra mannvirkja bættu verulega at- vinnuástandið í landinu á kreppu- árunum 1967—1970. Fjöldi mann- ára við byggingu ofangreindra mannvirkja var um 4.300, en frá því að rekstur verksmiðjunnar hófst og til ársloka 1984 hafa um 9.600 mannár verið unnin hjá lSAL.“ Nú hafa áhrifin verift mest á Hafnarfjörft eins og gefur aft skilja. Hefur þú upplýsingar þar aft lút- andi? „Þegar byggingarframkvæmdir hófust í Straumsvík árið 1967 var fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæj- ar mjög slæm. Atvinnuleysi var í bænum og ýmis útgerðarfyrirtæki höfðu annað hvort stöðvazt eða voru að því komin. Atvinna við byggingarframkvæmdir í Straumsvík, bæði verksmiðjuna og höfnina, létti því undir hjá mörgum heimilum í Hafnarfirði og jók tekjur bæjarins. Frá því ál- verið hóf rekstur sinn hefur fjöldi Hafnfirðinga starfað bæði hjá ÍSAL og ýmsum þjónustufyrir- tækjum, sem ÍSAL skiptir við. Á síðustu árum hefur um helmingur starfsmanna ÍSAL verið búsettur í Hafnarfirði og voru útsvars- greiðslur þeirra um 11 milljónir króna á árinu 1984. Á síðustu árum hefur hvergi á landinu orðið meiri fólksfjölgun en í Hafnarfirði. íbúum í bænum hefur fjölgað úr 9.300 manns 1. desember 1968 í 12.700 manns 1. desember 1983, eða um 36% á 15 ára tímabili. Mikil fjölgun at- vinnutækifæri er forsenda fyrir slíkri þróun og skal fullyrt að ÍSAL eigi þar drýgstan hlut að máli. Á sama tímabili var fjölgun íbúa í Reykjavík aðeins tæplega 8%. Höfnin í Straumsvík er eign Hafnarfjarðarbæjar, en endanleg- ur byggingarkostnaður hennar var um 30,4 milljónir svissneskra franka eða um 480 milljónir króna á núverandi gengi. Þessa upphæð hefur ISAL nú greitt að fullu. Á móti kemur hins vegar, að ÍSAL er undanþegið vörugjöldum af inn- og útflutningi á þess vegum, sem fer um höfnina í Straumsvík, en skipagjöld renna óskipt til Hafnarfjarðarbæjar, svo og vöru- gjöld þegar Hafnarfjarðarhöfn er notuð vegna þess að önnur skip til ÍSAL eru í Straumsvíkurhöfn. Framleiðslugjaldsgreiðslur ÍSAL hafa frá upphafi numið um 19,4 milljónum Bandaríkjadala og hef- ur verulegur hluti þeirrar upp- hæðar, þ.e. 6,6 milljónir, eða 260 milljónir íslenzkra króna, runnið til Hafnarfjarðarbæjar. Auk þess hefur ÍSAL greitt sérstök gatna- gerðargjöld án þess að Hafnar- fjarðarbær hafi þurft að kosta slíkar framkvæmdir á svæði ÍSAL.“ Lieinir fyrir hver afkoma ÍSAL var árift 1984? „Áætlað er, að rekstur ÍSAL fyrir árið 1984 hafi verið á þessa leið: Álframleiðslan nam 82.300 tonnum, sú mesta frá upphafi. Ál- salan var 78.789 tonn. Vergar sölu- tekjur námu 3.558 milljónum ís- lenzkra króna, tap fyrir skatt 17 milljónum, framleiðslugjald 173,0 milljónum, en framleiðslugjaldið innifelur 121,6 milljónir króna, sem er jafnvirði 3 milljóna Banda- ríkjadala, sem samið var um að greiða sem sáttafé í samningi rík- isstjórnarinnar og Alusuisse frá því í nóvember 1984. Áætlað tap eftir skatt er 190 milljónir króna og fjárstreymi 319 milljónir króna,“ sagði Ragnar S. Hall- dórsson, forstjóri ÍSAL, að lokum. — SS. *JL Byggingarkostnaður tæpar 5000 milljónir á núverandi gengi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.