Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANtJAR 1985
43
Plassey tækni- og
yísindagarðurinn
Plassey tækni- og vísindagarðurinn
— eftir Steinar
Steinsson
Á skömmum tíma hafa atvinnu-
vegir íra tekið stakkaskiptum.
Landbúnaður var meginatvinnu-
greinin, jarðirnar voru litlar og
erfitt að koma við vél- og tækni-
væðingu, og framleiðni því lág.
Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að
efna iðnþróun og beita margskon-
ar aðferðum í því skyni. Erlent
fjármagn og tækniþekking hefur
verið löðuð til landsins, innlendur
iðnaður örvaður til nýrra verk-
efna, tæknistofnanir efldar og
tæknimenntun stóraukin.
Plassey-tæknigarÖurinn
Stofnun Plassey-tækni- og vís-
indagarðsins í Limerick er ein af
mjög athyglisverðum fram-
kvæmdum stórnvalda til að
byggja upp jákvæð viðhorf al-
mennings til tækni og vísinda.
Skipulag þetta er nýtt á írlandi og
er fengið frá Bandaríkjunum. Mið-
punktur garðsins er mikill tækni-
skóli, sem er nýbyggður og er hluti
af tækni- og vísindaumhverfi í
glæsilegum lystigarðsramma.
Garðurinn hefur hlotið nafnið
Plassey Technological Park og er
um 500 ekra skógivaxið landsvæði
á bökkum Shannon-árinnar. Auk
stofnana, sem þarna verða byggð-
ar, verður mikil íþróttaaðstaða til
afnota fyrir skólann, stofnanirnar
og tækni- og vísindamenn iðjuvera
í nágrenninu.
Markmið garös-
fyrirkomulagsins
Garður þessi á að verða safn-
staður tækni- og viðskiptaþekk-
ingar fyrir írskt atvinnulíf. Það er
hugmyndin að þarna verði há-
þróað umhverfi, sem dregur að sér
lifandi þekkingu og þróunarkraft.
Þarna verða menntaðir og fóstr-
aðir verðandi stjórnendur írsks
atvinnulífs á sviði viðskipta, iðn-
aðar og tæknivísinda. Allmargar
stofnanir og fyrirtæki á sviði
mennta, tækniþróunar og við-
skipta hafa þegar haslað sér völl í
garðinum og fleiri munu gera það
í nánustu framtíð.
Enterprise House
Enterprise House er ein þeirra
bygginga, sem staðsettar eru í
Plassey-tækni- og vísindagarði. í
byggingunni hafa nokkrar stofn-
anir aðsetur og eru þær eftirtald-
ar: The Innovation Center, The Ir-
ish Productivity Center, The Local
Government Computer Services
Board og The National Microelec-
tronic Application Centre. Þessar
stofnanir eru ekki stórar hver um
sig en hafa náin tengsl við ýmsar
móðurstofnanir varðandi ýmis-
konar sérfræðiaðstoð. Þessar
stofnanir allar eru til þjónustu við
iðnaðinn svo og nýiðnað. Þrjár
fyrst töldu stofnanirnar eru
opinberar stofnanir en sú síðast
talda er hinsvegar einkafyrirtæki
er selur ráðgjafaþjónustu.
Innovation Centre
Ein stofnananna í Húsi fram-
taksins sem er ákaflega athyglis-
verð er Nýiðnaðarmiðstöðin.
Verkefni hennar var að veita fólki
og fyrirtækjum er höfðu snjallar
hugmyndir um vöruframleiðslu
uppörvun og aðstoð. Þegar munu
vera í framleiðslu margar nýjar
vörur er hafa verið þróaðar í
tengslum við stofnunina. Enn-
fremur leitar hún að nýjum vöru-
tegundum fyrir fyrirtæki, er vant-
ar viðfangsefni. Þá annast hún út-
tekt á markaðshorfum og þróun-
arhorfum vöru og vöruflokka.
Þessi stofnun er ung að árum, um
fjögurra ára, en hefur skilað mikl-
um árangri.
StuÖningur viö
hugmyndir
Fólk með hugmyndir hefur hér
tækifæri til að koma þeim á fram-
færi. Útfærsla hugmyndanna þarf
ekki að vera merkileg, grófar
skissur eða gróf frumsmíði, sem
skilgreinir hugmyndina. Sérfræð-
ingar stofnunarinnar skoða inn-
komnar hugmyndir og leggja mat
á möguleika sem í henni felast til
nýframleiðslu. Sé mat stofnunar-
innar jákvætt er hugmyndin
þróuð áfram. Markaðsmálin eru
skoðuð ýtarlega, vandað er til
hönnunar og nákvæmar fram-
leiðsluáætlanir gerðar svo og fjár-
magnskönnun.
*
Urvinnsla hugmynda
Þegar góðar hugmyndir koma á
borð stofnunarinnar er lögð
áhersla á að byggja upp fyrirtæki
til framleiðslu á vörunni. Reynt er
að fá til samstarfs um stofnun
fyrirtækis menn með sem víðtæk-
asta þekkingu. í flestum tilvikum
eru það ungir tæknimenn, sem
koma með hugmyndirnar og er sá
þáttur því oftast vel tryggður þeg-
ar í upphafi. Maður með markaðs-
þekkingu og útflutningsreynslu er
talinn mjög nauðsynlegur aðili að
hópnum. Ennfremur er talið æski-
legt að fjármálamaður með traust
í bönkum sé fenginn til liðs við
fyrirtækið. I flestum tilvikum hef-
ur þessi skipan tekist vel og fyrir-
tæki stofnuð á þennan hátt hafa
staðið sig vel og aflað erlendra
markaða og skapað ný störf.
Hugmyndir eru
auölind
í kynnisferð fengum við að sjá
dæmi um frumhugmyndir svo og
fullmótaða vöru eftir að stofnunin
hafði veitt ofannefnda aðstoð.
Þetta minnti á ummæli danska
hönnuðarins, sem hélt fyrirlestur
á vegum Sparisjóðs Reykjavíkur.
Hann hélt því fram að hráefni,
tækni og þekking væru þættir,
sem allar þjóðir hefðu aðgang að
ef þær bæru sig eftir henni.
Hinsvegar væri skortur á hug-
myndum að vörum, sem slægju í
gegn á markaðnum. Það er ljóst að
írsk stjórnvöld hafa komist að
raun um að hugmyndir eru auð-
lind sem vert er að virkja og
leggja mikið kapp á að greiða
þeim leið inn í framleiðslukerfi og
á markað írsku þjóðarinnar.
Ný verkefni
fyrir fyrirtæki
Fyrirtæki sem eru að leita að
nýjum vörum til að framleiða geta
snúið sér til stofnunarinnar.
Stofnunin er í tengslum við hug-
mynda- og framleiðslubanka en
þangað er hægt að sækja upplýs-
ingar um framléiðsluleyfi á
margskonar vörum. Þá gefur
stofnunin út dreifirit með upplýs-
ingum um margháttaða vöru, sem
hægt er að kaupa framleiðsluleyfi
á. Mörg fyrirtæki nota þjónustu
stofnunarinnar þegar þau hyggj-
ast auka reksturinn, eða til að
nýta betur vannýtt tæki. Einnig er
hægt að Ieita til stofnunarinnar ef
sala á framleiðsluvörum fyrirtæk-
is er dalandi og fá gerða úttekt á
markaðsstöðunni. í mörgum til-
vikum hefur þetta leitt til endur-
hönnunar vörunnar eða breyttra
markaðsaðferða. En í einstaka til-
vikum hefur framleiðslunni verið
hætt og nýrrar framleiðsluvöru
leitað.
Leit aö nýjum
viöfangsefnum
Vinnubrögðin í þessu tilviki eru
í meginatriðum eftirfarandi:
— Fyrirtækið snýr sér til stofn-
unarinnar með beiðni um að-
stoð.
— Sérfræðingar frá stofnun-
inni skoða fyrirtækið og
meta framleiðsluhæfni þess,
tækniþekkingu og markaðs-
reynslu. Þá ræða þeir ýtar-
lega við stjórnendur um þá
vöru er þeir hefðu áhuga
fyrir og reyna að skilgreina
hana eftir því sem kostur er.
— Gerð er kostnaðaráætlun
„Skipulag þetta er nýtt
á Irlandi og er fengiö
frá Bandaríkjunum.
Miöpunktur garösins er
mikill tækniskóli sem
er nýbyggöur og er hluti
af tækni- og vísinda-
umhverfi í glæsilegum
lystigarÖsramma.“
fyrir könnun og leit að vöru-
tegundum er hentað geta
fyrirtækinu og gerður samn-
ingur um greiðslu þess
kostnaðar.
— Nokkrar vörutegundir, sem eru
taldar henta framleiðslugetu
fyrirtækisins ásamt upplýs-
ingum um þær eru lagðar
fyrir stjórn fyrirtækisins.
Fyrirtækið tekur nú ákvörð-
un um framhaldið.
— Feli fyrirtækið stofnuninni að
annast málið er samið um
greiðslu kostnaðar við þann
þátt og annast þá stofnunin
samningagerðina.
Til athugunar
Það er athyglisvert hvaða að-
ferðum írsk stjórnvöld beita til að
skapa þau viðhorf, að tækni er
menning og að vert sé að helga sig
henni. 011 menning hefur orðið til
fyrir einhverskonar tækni síns
tíma og tæknin hefur stuðlað að
því að gera menninguna í ríkari .
mæli aðgengilega fyrir almenning.
Ekki er að efa að tækni- og vísind-
agarður, í sama stíl og er í Limer-
ick, hefði mjög örvandi áhrif á
iðnþróun okkar. Ekki væri úr vegi
að byggja slíka aðstöðu í Keldna-
holti. Þar eru þegar komnir veru-
legir vísar að tæknistofnunum en
til viðbótar þarf að byggja aðstöðu
fyrir Tækniskólann svo og viðsk-
iptaskóla, sem helga sig mark-
aðsmálum. Fyrir litla þjóð er ha-
gkvæmni slíks framtaks augljós.
Kostnaður við að tækjavæða
tækniskóla og tæknistofnanir er
geysimikill miðað við nútíma
þarfir en slík tæki er unnt að sam-
nýta í ríkum mæli við gott sam-
býli slíkra stofnana. Þá er augljós
ávinningur að því að auka sam-
skipti reyndra sérfræðinga og
verðandi tækni- og við-
skiptamanna, sem fengju ákjósan-
lega aðstöðu til að kynnast málum
íslenskra framleiðsluatvinnuvega.
Steinar Steinsson er skólastjóri
Iðnskólans í Hafnartírði. Hann er
nú í náms- og kynningarferd um
Morðurlönd og Bretland.
,Við
kaupum
lopapeysur
á hæsta verði hveiju sinni
w /^lafoss
Peysumóttakan, Vesturgötu 2, sími 22091. Opiö alla virka daga 9 til 12.