Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
fclk f
fréttum
Barnakórinn söng undir stjórn Margrétar Guðnadóttur fóstru.
J ólatr ésskemm tun
í Cromwell
m *
Ilok desember sl. héldu íslendingar í Cromwell, Connecticut-fylki í Bandaríkjunum. jólatrésskemmtun.
Þar búa nú um 33 íslendingar, námsmenn í framhaldsnámi og fjölskyldur þeirra. A skemmtuninni var
m.a. dansað í kringum jólatréð, íslenskri barnakórinn í Cromwell söng jólalög undir stjórn Margrétar
Guðnadóttur fóstru og fólk gæddi sér á hangikjöti og laufabrauði. Alls mættu 70 íslendingar bæði
búsettir þar og úr nærliggjandi fylkjum. Það er nú orðin hefð að halda skemmtun af þessu tagi árlega og
var þetta sú sjötta í röðinni.
Jólasveinninn kom í heimsókn með íslenska pakka.
Morgunblaðið/Þórunn Baldvinsdóttir
Hér eru þau
skötuhjúin
Eins og getið hefur verið um sló Olivia Newton-John til á síðustu
mínútum ársins 1984 og gifti sig sveini einum ungum, Matt Latt-
anzi að nafni. Ekki eru menn trúaðir á hjónabönd í Hollywood og illar
tungur segja að veðmál sé í gangi um hvé hjónaband þeirra Oliviu og
Matta endist. Olivia þykir með afbrigðum hrifgjörn kona og freist-
ingarnar eru margar í gleðiborginni Hollywood.
Sheena
gengin
út
Söngkonan Sheena East-
on hefur fengið sig full-
sadda af einbúalíferninu, en
hún hefur nú gengið að eiga
umboðsmann sinn, kappa að
nafni Bob Light. Það er
kannski heldur djúpt í árina
tekið að tala um einbúann
Sheenu, því hún hafði þekkt
hinn nýbakaða eiginmann
sinn í fimm ár, eða allt frá
þeim tima er söngferill henn-
ar fór að skila arði svo um
munaði. Herra Light hefur
verið umboðsmaður hennar
allan þann tíma og sumir
myndu segja um Sheenu nú,
að hún kunni að sameina at-
vinnu og ánægju.
Burt og Clint, tveir ofurtöffarar.
HvaÖ eru
gæjarnir
að sýsla?
Augu fólks munu mjög bein-
ast að nýjum kvikmyndum
á hinu nýja ári og hér munum
við líta á helstu verkefni nokk-
urra vel þekktra leikara.
Gömlu brýnin Burt Reynolds
og Clint Eastwood leika saman i
nýrri og taiinni æsispennandi
Timolhy Hutton mundar byssuna fagmannlega. Þckkiði Richard Gere?
Stingurinn á fullri ferð í ævintýramyndinni Dune.
sakamálantvnd sem heitir Heat
City.
Sting, söngvari popparasveit-
arinnar Police, hefur reynt fyrir
sér í kvikmyndum í seinni tið og
þótt standa sig bara fjári vel.
Hann leikur eitt aðalhlut-
verkanna í einhverri dýrustu
mynd sem gerð hefur verið, vís-
indaskáldverkinu Dune sem gerð
er eítir metsölubók F'ranks
Herbert. Myndin kostaði að sögn
50 milljónir dollara, enda tækni-
brellur og þvíumlíkt með því
stórkostlegasta sem enn hefur
sést á hvíta tjaldinu. Á móti
Sting leikur Max Von Sydow.
Timothy Hutton, ungur og
efnilegur hjartaknúsari, fer á
kostum í njósnamynd sem ber
nafnið The Faleon and the
Snowman.
Loks ber að geta Richards
Gere, sem þykir bera af flestum
koilegum sínum hvað snertir lík-
amlegan gjörvileik. Hann er
kannski kunnastur fyrir hlut-
verk sín sem taugaveiklaðir
kvennamenn í myndunum
Breathless og Looking for Mr.
Goodbar. Hann hefur þó sýnt að
hann getur leikið prýðilega og
það gerði hann í verðlauna-
m.vndinni An Officer and a
Gentleman. í nýjustu mynd
sinni, Cotton Club, er hlutverkið
sniðið fremur að leikhæfileikum
en líkamsburðum og stendur
Gere sig vel eins og hans var von
og vísa.