Morgunblaðið - 17.01.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
45
JÓNAS R.
JÓNASSON
„Markmiöið
að fara út
í frjálsan
útvarpsrekstur“
r
Eg var nú ekki lengi að forða
mér frá sjónvarpinu og ef ég
á að segja þér eins og er, get ég
tekið undir orð lítilla stráka sem
sögðu við mig: „Þú varst ömurleg-
ur, og afhverju varstu með hár-
kollu?“
Það var mjög skrítið að sjá sig
svona eftir þennan tíma og ég
hugsa að það að þátturinn var í
svart-hvítu hafi haft sitt að
segja.“
Jónas R. Jónasson, sem var að
segja frá þætti með tónlist Sig-
fúsar Halldórssonar, stýrði fyrir
nokkrum árum þætti í sjónvarp-
inu, sem endursýndur var nú
fyrir stuttu. Blm. og ljósm. komu
að máli við Jónas og spurðu hvað
hann hefði verið að aðhafast
undanfarin ár, þar sem hann
hefði horfið af sjónvarpssviðinu.
„Fljótlega eftir að ég var með
þessa þætti fór ég að vinna við
Hljóðrita og þar var ég til 1982
meira og minna. Síðan hef ég
verið erlendis, nánar tiltekið við
skólann U.C.L.A. í Kaliforníu við
nám.“
— Hvaða nám stundar þú?
„Ég er í námi sem tengist ein-
göngu sjónvarpi og útvarpi
þ.e.a.s. manni eru kynntar allar
hliðar sem koma nálægt þeim
rekstri. Og þessu námi lýk ég nú
í vor.“
— Stefnirðu að loknu námi á
starfi við útvarp eða sjónvarp?
„Já, það má segja það. Mark-
miðið er að fara út í frjálsan
útvarpsrekstur. Faðir minn tók
við rekstri Hljóðrita er ég fór
erlendis og það hefur ýmislegt
verið að gerast þar síðan ég fór. í
dag er það ósköp lítil fyrirhöfn
að setja þar upp útvarpsstöð og
segja má að það vanti tæpast
nema loftnet og magnara."
— Heldur þú að nýju út-
varpslögin verði samþykkt?
„Það er nú orðið tímabært að
rekstur útvarps og sjónvarps
verði gefinn frjáls. Ef vel ætti að
vera þyrfti að vera útvarpsstöð í
hverju plássi úti á landi sem t.d.
skólar og einhver áhugafélög
ættu að geta rekið. Það er gott
og blessað að hafa fjórðungs-
stöðvar, en hitt er líka nauðsyn
að hafa á sem flestum stöðum
staðbundið útvarp, þó ekki væri
útvarpað nema hluta úr degi.
Það virðist nú vera að rofa
mikið til í þessum málum, enda
ekki seinna vænna. Af hverju
ætti landslýður að mega rita
næstum hvað sem er, en ekki
segja það?
Það er fleira sem við erum
með á prjónunum í Hljóðrita.
Við ætlum t.d. að hlaða og fram-
leiða VHS-myndbandaspólur og
það eru ýmsar breytingar á
stúdíóinn á döfinni sem ættu að
gera okkur það kleift að vinna að
tónsetningu videomynda og
kvikmynda þar.“
— Þú stefnir ekki á sjónvarp-
ið hér heima í bráð?
„Alténd ekki fyrir framan
myndavélina. Nú er það meira
spennandi að fá að vinna á bak
við. Það eru ýmsar hugmyndir
sem maður hefur um þætti
o.s.frv., en þetta á eftir að koma
í ljós.“
Með það var Jónas rokinn,
enda flugvélin að fara með hann
eftir nokkrar klukkustundir í
sólina í Kaliforníu.
KÁTA EKKJAN
JANNI
Vill hafa þá
með skalla
og ístru
Janni Spies, hin ásjálega ekkja
ferðaskrifstofukóngsins og
hins Iygilega sérvitrings, Simons
Spies, lýsti nýlega yfir að þrátt
fyrir óskir sins látna eiginmanns
um að hún gifti sig ekki á ný,
myndi hún gifta sig aftur og væri
hún þegar farin að líta í kring um
sig. Þá ætlar hún að eignast 3
börn. Nú fyrir skömmu lýsti Janni
draumaprinsi sínum: Hann á að
vera miðaldra eða eldri maður
með skalla í miðju og ístru.
Á annarri myndinni dansar
Janni við mann sem hún sækir
mikinn styrk til og margir álíta að
gæti orðið hennar ektamaki. Hann
heitir Werner Isager og var fjöl-
skylduvinur. Á hinni er mjög
kunnur sænskur leikstjóri að
nafni Gunnar Hellström. Hann
var festur á filmu á leið til fundar
við Janni „vopnaður" miklum
blómvendi. Gunnar er einn af
mýmörgum sem ganga á eftir
Janni með grasið í skónum. Ef
marka má myndina á hann þó
varla möguleika, hann er að vísu á
í éttum aldri, og trúiega með ístru,
en hann er allt of iubbalegur.
Kannski einhverjir myndu taka
ofan gervihárið til að eignast
Janni?
Lukkudagar
Ósóttir vinningar frá janúar til desember áriö
1984.
Janúar
3. 33504
12. 12112
Febrúar
3. 16003
11. 34160
14. 58611
17. 34657
Mars
8. 11236
10. 16657
11. 59395
12. 5735
14. 7364
21. 49304
22. 3882
27. 12084
Apríl
1. 57343
21. 4730
Maí
9. 21182
12. 21000
14. 49950
17. 48378
23. 22540
29. 54371
Júní
2. 41708
8. 35724
12. 10004
17. 42559
22. 59668
23. 18646
30. 38226
Júlí
1. 14704
9. 48448
11. 4603
14. 54465
16. 24879
20. 2001
23. 5826
30. 12013
Ágúst
3. 2374
17. 23190
18. 917
21. 36735
September
3. 4010
7. 47352
9. 40255
11. 3039
13. 37904
15. 33439
16. 3835
19. 216
25. 25894
26. 36118
28. 3279
30. 59528
Október
2. 48617
6. 5781
8. 53877
9. 984
17. 46305
23. 6
30. 18212
Nóvember
1. 832
4. 43443
7. 18273
10. 51655
18. 24366
21. 632
25. 12122
26. 20152
Desember
2. 41981
12. 44689
13. 55742
15. 21943
22. 41879
Vinningshafar hringi í síma 20068 (símsvari) og
skilji vinsamlega eftir nafn og símanúmer en
hefjid ekki máls fyrr en eftir hljóömerkiö.
Blakdeild Víkings og íþróttafélög um land allt
þakka landsmönnum stuöninginn á liönu ári.
Utsala
Efni 50—190 kr.
Gardínuefni
50—190 kr.
Frotté-velour 100 kr.
Jersey-velour 150 kr.
Bútar — Bútar — Bútar
Bútar — Bútar — Bútar
Bútar — Bútar — Bútar
^íógue
Skóiavörðustíg 12 og
Vogue, Hafnarfiröi