Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 56
Fvrr e
Tll DAGIiGRA NOTA
óing
Fyrr en þig grunar!
Tímapantanir í síma 11630
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Nýrnaveiki fundin í laxi
í Kollafjarðarstöðinni
Stööin þegar einangruð, engin ákvörðun tekin um frekari aðgerðir
tvisvar áður komið upp hér á landi
og var niðurskurði og sótthreinsun
beitt í báðum tilvikum. Sigurður
sagði að nýrnaveiki hefði ekki
fundist við fyrri rannsóknir í
Kollafjarðarstöðinni.
„Það er ekki ástæða til að fyllast
vonleysi á fiskeldi hér á landi þó
þetta hafi komið upp nú. Við höfum
að ýmsu leyti góða aðstöðu til að
halda stöðvunum hreinum af sjúk-
dómum. Við notum til dæmis svo
til eingöngu smitfrítt lindarvatn í
stöðvunum. Ég geri mér vonir um
að nú verði aðstaða okkar hér á
Keldum bætt svo við verðum betur
í stakk búin til að takast á við þessi
verkefni," sagði Sigurður.
Laxcldisstöð ríkisins í Kollafirði.
Morgunbladiö/Rafn Hafnfjörð.
Skríflegar hugmyndir forsætisráðherra:
Megináhersla lögð
á skattahækkanir
— þingflokkur sjálfstæðismanna hafnar hugmyndunum
Stefán Jónsson með fánann.
Dularfullur
fánafundur
A LAUGARDAGINN fann hús
vörður Morgunhlaðshússins, Stef-
án Jónsson, bandarískann fána í
þakrennu á skúr á baklóðinni.
í bandaríska sendiráðinu
fengust þær upplýsingar að fáni
af þessari gerð væri frá 1776, en
hér væri um eftirlíkingu að
ræða. Á þessum tíma hafi engin
ákveðin regla verið um hvernig
ætti að raða stjörnunum á hinn
bláa flöt fánans og því hafi þessi
fáni ekki verið tekinn fram yfir
aðra samtímafána og aldrei ver-
ið viðurkenndur sem opinbert
tákn. Hinsvegar náði þessi gerð
fána miklum vinsældum þegar
Bandaríkin minntust 200 ára af-
mælis síns 1976, vegna tölunnar
76, sem á honum er.
Spurningunni um hvernig fán-
inn lenti í þakrennunni er hins-
vegar ósvarað.
41 % hækkun
á ýsuflökum
HÁMARKSVERÐ á ýsu og þorski í
smásölu var hækkað í gær í samræmi
við hækkun almenns fiskverðs. Ýsu-
flök hækkuðu úr 85 kr. í 120 kr. hvert
kfló, eða um 41 % horskfiök hækkuðu
úr 66 kr. í 79 kr. kílóið, eða um 19,7%.
Farmgjöld vöruflutningabifreiða
voru hækkuð um 2—12%, eða nálægt
8% að meðaltali. Sementsverð
hækkaði að meðaltali um 14—15%.
50 kílóa poki af portland-sementi
hækkaði úr 207,40 kr. í 244,30, eða
um 17,8%. Þá var heimiluð hækkun
á þjónustugjöldum skipafélaganna,
það er geymslugjaldi og fleiri slíkum
gjöldum, um 15%
Ástæðurnar fyrir erfiðleikum fé-
lagsins eru í tilkynningu félagsins
sagðar löng verkstöðvun vegna
verkfalls BSRB, gengisfellingar
umfram aðstefnd mörk stjórnvalda
og samsvarandi mikið gengistap
undir lok ársins, þá lækkun taxta
vegna samkeppni svo og tilkoma
Rainbow Navigation auk greiðslu-
írfiðleika viðskiptamanna og
margföldun hvers kyns vanskila og
Landbúnaðarráðherra hefur ákveð-
ið að setja Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði í einangrun vegna nýrna-
veiki sem þar hefur fundist. llm-
fangsmiklar rannsóknir hafa farið
fram í stöðinni frá því nýrnaveiki
varð vart í seiðum frá Kollafirði hjá
Sjóeldi í Höfnum og hefur nú verið
staðfest að veikin er þar í fiski. Veik-
in hefur enn ekki fundist í seiðum en
veruleg einkenni reyndust vera í 13%
klakfisks sem slátrað var. Seiði og
hrogn frá stöðinni hafa farið í eldis-
stöðvar og ár úti um land. Ekki hafa
verið teknar ákvarðanir um frekari
aðgerðir.
Árni tsaksson, settur veiðimála-
stjóri sem er jafnframt fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar, sagði í
samtali við Mbl. að í stöðinni væru
nú 170 þúsund gönguseiði og um
500 þúsund nýklakin seiði. Sagði
hann að ekkert yrði selt frá stöð-
inni á meðan málið væri í rannsókn
og einnig hefðu verið gerðar ráð-
stafanir til að hindra smit innan
stöðvarinnar. Aðrar aðgerðir biðu
ákvörðunar stjórnvalda. Árni sagði
að ekki væri hægt að áætla tjónið,
það yrði ekki hægt fyrr en ákvörð-
un um aðgerðir iægi fyrir. Sagði
hann að í sumar hefðu seiði frá
stöðinni verið seld í tvær eldis-
stöðvar en tiltölulega lítið farið í
ár. Hrogn frá stöðinni hafa farið á
nokkra staði.
Sigurður Helgason, fisksjúk-
dómafræðingur og ráðgjafi fisk-
sjúkdómanefndar, sagði í samtali
við Mbl. að í framhaldi af því að
nýrnaveiki hefði orðið vart í Kolla-
fjarðarstöðinni yrði settur aukinn
kraftur í rannsóknastarfið. Yrði
útbreiðsla veikinnar í stöðinni
rannsökuð frekar og aðrar stöðvar
yrðu jafnframt rannsakaðar svo og
villtur lax. Að fengnum niðurstöð-
um rannsóknanna, sem hann sagði
að væru erfiðar og gætu tekið
nokkurn tíma, yrðu teknar ákvarð-
anir um aðgerðir í einstökum til-
vikum. Ekki vildi Sigurður nefna
hugsanlegar aðgerðir, taldi of
snemmt að vera með yfirlýsingar
um það á þessu stigi málsins. Þess
má geta hér að nýrnaveiki hefur
greiðslutregðu í þjóðfélaginu.
Þá kemur fram í tilkynningunni,
að eiginfjárstaða félagins hafi
jafnan verið mjög slæm. Hins veg-
ar hafi félagið á síðustu árum notið
vaxandi stuðnings aðila flutn-
ingamarkaðarins, sem hafi viljað
stuðla að fleiri valkostum í sigling-
um til landsins og frá. Engu að síð-
ur segir í tilkynningunni, að stjórn
Hafskips hafi komist að þeirri
STEINGRÍMUR Hermannsson, for-
sætisráðherra, hefur kynnt þing-
mönnum stjórnarflokkanna skrifleg-
mðurstöðu að eigi að treysta fram-
tíð félagsins, „sem er eins og fjár-
hagslegur dvergur milli tveggja
stórvelda, hf. Eimskipafélags fs-
lands og SÍS, þurfi m.a. að koma til
erlend tekjuöflun og starfsemi
óháð kollsteypum íslensks efna-
hagslífs", eins og segir í tilkynning-
unni og að sögn forráðamanna
fyrirtækisins er hér átt við hinar
beinu siglingar skipa Hafskips
milli Ameríku og Evrópu, sem gef-
ið hafa góða raun.
Sjá: „Erum þess fullvissir að
þetta muni takast" á forsíðu
blaðs um viðskipti og atvinnulíf
og fréttatilkynningu Hafskips í
heild á B4.
ar hugmyndir um efni yfirlýsingar
stjórnarflokkanna í samræmi við það
sem ráðherrann sagði í ármótaávarpi
sínu um endurskoðun stjórnarstefn-
unnar. Meginkjarni þessara hug-
mynda er að skattar verði hækkaðir
svo scm með skyldusparnaði, hækk-
un eignaskatts og nýju gjaldi á stórar
fasteignir eða gamlar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hlutu
hugmyndir forsætisráðherra engar
undirtektir á þingflokksfundi sjálf-
stæðismanna á mánudag.
Mikil áhersla var lögð á það við
þingmenn stjórnarflokkanna að
ekkert spyrðist út um hugmyndir
forsætisráðherra eftir fundi þeirra
á mánudag. Að því er heimildar-
menn Morgunblaðsins segja er lögð
áhersla á þennan ríka trúnað nú af
tveimur ástæðum: Fréttaleki spilli
fyrir því að árangur náist og það sé
engum til góðs að hugmyndir for-
sætisráðherra spyrjist. Fyrri
ástæðuna bar hæst á fundi fram-
sóknarmanna en hina síðari hjá
sjálfstæðismönnum.
Að því er Morgunblaðið hefur
fregnað hefur fleiri en eitt skriflegt
skjal verið á ferðinni manna á með-
al frá forsætisráðherra. 1 umræð-
um um þau staldra menn helst við
skattahækkunarhugmyndirnar og
áhersluna sem lögð er á skattamál-
in. Kemur það heim og saman við
opinberar yfirlýsingar ráðherra
Framsóknarflokksins eins og Alex-
anders Stefánssonar, félagsmála-
ráðherra, sem vill auka tekjuöflun
til húsnæðismála. Auk nýrra
skatta í því skyni hreyfir forsæt-
isráðherra því að reglur verði sett-
ar um skuldabréfakaup lífeyris-
sjóða.
Forsætisráðherra vill að erlend-
um lántökum verði settar skorður
til að stöðva erlenda skuldasöfnun
á nokkurra ára bili. Vaxtaákvarð-
anir hér miðist að einhverju leyti
við raunvexti erlendis eða á erlend-
um skuldabagga þjóðarinnar.
Bönkum verði settar skorður í út-
lánum og þeirra gætt með aðhaldi.
Stefnt verði að rekstrarafgangi hjá
ríkissjóði í ár.
Að sögn viðmælenda Morgun-
blaðsins eru hugmyndir forsætis-
ráðherra um uppstokkun á Stjórn-
arráðinu ekki eins ljósar og gefið
hefur verið til kynna í fréttum,
meðal annars í NT, blaði ráðherr-
ans. Á hinn bóginn vill hann að
stjórn efnahagsmála færist meira
en nú er i hendur forsætisráðherra.
Umræðum er ekki lokið um þess-
ar hugmyndir í þingflokkum
stjórnarliða en eins og áður sagði
var þeim þunglega tekið í Sjálf-
stæðisflokknum.
80 milljón króna hlutafjárútboð Hafskips:
Á að styrkja rekstur-
inn vegna erfiðleika
STJÓRN Hafskips hefur boðað til hluthafafundar hinn 9. febrúar nk. og
verður þar lögð fram tillaga um nýtt hlutafjárútboð að upphæð 80 milljónir
króna til styrktar eiginfjárstöðu félagsins, en bókfært hlutafé nemur aðeins 15
millj. króna í dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.
Hafskip hefur átt við rekstrarerfiðleika að stríða undanfarna mánuði og er
Ijóst að rekstrartap félagsins á síðasta ári skiptir nokkrum tugum milljóna.