Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 1
72 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
53. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þúsundir Dana
tóku þátt í
skæruverkfalli
Kaupmannahöf, 4. mars. AP.
ÞÚSUNDIR Dana gengu út af vinnnstöAum sínum í dag til þess aö undir-
strika kröfu danskra verkalýðsfélaga um 35 stunda vinnuviku. Með skæru-
verkföllum sínum vildi almenningur þrýsta á leiðtoga sína að gefa ekki eftir
þá kröfu. Allsherjarverkfall hefði hafist í dag, ef sáttasemjari rfkisins hefði
ekki frestað verkfallinu um tvær vikur.
Þeir sem þátt tóku í skæruverk-
fallinu voru úr ýmsum stéttum,
strætisvagnabílstjórar, starfsfólk
á dagvistarstofnunum, almennir
verkamenn og fleiri. Lítið hefur
gengið í samningaviðræðum sátta-
semjara og fulltrúa samtaka
verkalýðsfélaga, en tvær milljónir
Dana tilheyra þeim samtökum, at-
vinnulíf myndi því lamast ef af
allsherjarverkfalli yrði.
Kröfur verkalýðsfélaganna fel-
ast bæði í hærra kaupi og stytt-
ingu vinnuviku. Vilja verkalýðs-
menn stytta vinnuvikuna þannig
að um 6 prósent styttingu væri að
ræða yfir tveggja ára tímabil. Þá
vilja þeir ákveðnar kauphækkanir,
en Ijóst er, að stjórnvöld verða
erfið heim að sækja í þeim efnum,
því þeim finnst sú 4 prósent kaup-
hækkun sem verkalýðsfélögin
sömdu um í síðustu samningum of
mikil. Vinnuveitendur vilja ekki
hækka kaup og fullyrða að kröfur
launþega um stytta vinnuviku
myndi koma út sem tveggja stafa
prósentutala yfir vinnusamdrátt.
Sáttasemjari getur frestað verk-
falli um viku í viðbót, en ef ekki
semst á þeim tíma, fellur eflaust
gerðardómur og er það engin ný-
lunda í Danmörku.
Herstjórnin í Póllandi:
Matvörur hækkuðu
þrátt fyrir allt
Varsjá, 4. mars. AP.
STJÓRNVÖLD í Póllandi hækkuðu
í dag verð á ýmsum matvörum um
allt að 75 prósent og kom það mjög á
óvart þar sem þau tilkynntu fyrir
skömmu að verðhækkunum yrði
frestað um óákveðinn tíma. Virðist
sem að baki hafi legið að slá vind úr
seglum Samstöðu sem hafði hótað
Hákarl át
unga konu
Adelaidc, Ástralíu, 4. mars. AP.
6 METRA langur hvítháfur drap
33 ára gamla konu í dag þar sem
hún kafaði á tveggja metra djúpu
vatni skammt undan fáfarinni
strönd. Fjórar dætur konunnar
urðu vitni að harmleiknum og
fískimenn sem þarna voru á hött-
unum fundu ekki annað en fata-
slitrur í blóðugu vatninu örfáum
mínútum eftir að fískurinn lagði
til atlögu.
„Ég sá uggann og sporðinn
er háfurinn klauf vatnið, hann
var miklu lengri en trillan,"
sagði Kevin Hirschauen, sem
ýtti báti sínum á flot er hann
sá „rautt vatnið þeytast í loft
upp“, „Þá vissi ég strax hvað
um var að vera,“ sagði Hirsch-
auen.
15 mínútna allsherjarverkfalli síð-
asta dag síðasta mánaðar ef ekki
yrði hætt við að hækka verð á mat-
vörum.
Það voru nauðsynjar eins og
brauð, mjólk, te og sykur sem
hækkuðu hvað mest, en minnstu
hækkanirnar námu 11 prósentum.
Stjórnvöld telja hækkanirnar litl-
ar, en Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu var á öðru máli. „Þetta er
svívirðilega gert,“ sagði hann og
bætti við að málið yrði tekið til
athugunar hjá Samstöðu. Allt var
með kyrrum kjörum í Póllandi
þrátt fyrir hækkanirnar. Walesa
sagðist styðja og vera með í öllum
þeim mótmælaaðgerðum sem
staðið yrði fyrir. Hann tók þó
fram að hann væri ekki að hvetja
til neins að svo stöddu.
Þing Norðurlandaráðs sett
Morgunblaðið/RAX
Þing Norðurlandaráðs, hið 33. í röðinni, var sett í Þjóðleikhúsinu á hádegi í gær. Þingfulltrúar, gestir,
blaðamenn og starfsmenn eru 860 talsins. Páll Pétursson var kjörinn forseti þingsins við upphaf fundar
í gær. Myndin var tekin í Þjóðleikhúsinu er Páll flutti ræðu sína. Fréttir frá Norðurlandaráðsþingi eru á
bls. 56, 57, 58 og 59 í blaðinu í dag.
Genscher bjartsýnn eftir
óvæntan fund með Gromyko
Moskvu, 4. mars. AP.
HANS Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands, og
Andrei Gromyko, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, áttu heldur
óvæntan 4' 2 klukkustundar langan
fund í Moskvu í dag og lét Gensch-
er hafa eftir sér að fundurinn gæti
markað þáttaskil fyrir komandi af-
Árás á kiarnorkuver
Nikósíu og Teheran, 4. rnars. AP.
Nikósíu og Teheran, 4. mars. AP.
TVÆR íraskar herþotur gerðu árás
á íranskt kjarnorkuver við Bushehr
og skemmdu það nokkuð, en „ekki
alvarlega“ eftir því sem íranir sögðu
og fordæmdu íraka í sömu andránni
fyrir árásina. frakar sögðu á hinn
bóginn að þeir hefðu valdið „mikl-
um skemmdum“. Herþoturnar
gerðu einnig árás á stáliðjuver og
drápu 12 manns auk þess sem
skemmdir urðu miklar.
Íranir gerðu sjálfir loftárás á
olíuflutningaskip í Persaflóa og
var það í þriðja skipti sem það
sama skip varð fyrir árás á þess-
um slóðum. Það skemmdist ekki
mikið í þessari árás. írakar sögð-
ust hafa ráðist á olíuskip nærri
Khargeyju, en það staðfesti eng-
inn nema þeir sjálfir.
vopnunarviðræður risaveldanna,
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, í
Genf.
Genscher hafði ekki breytt um
skoðun að fundinum loknum,
hann sagði þá á fréttamanna-
fundi, að fundurinn i Genf myndi
bera góðan árangur og ljóst væri
að bæði Sovétmenn og Banda-
ríkjamenn kæmu vel undirbúnir
til viðræðnanna. Genscher vildi
ekki tjá sig um hvort Gromyko
hefði í nokkru breytt um skoðun
varðandi geimvarnakerfis-
rannsóknir Bandaríkjamanna.
Gromyko sagði að fundinum
loknum, að viðræðurnar við
Genscher hefðu verið „gagnleg-
ar“, en gagnrýndi samt stjórn-
völd Vestur-Þýskalands harðlega
fyrir stuðning þeirra við áform
Bandaríkjamanna og sagði þau
þar með verða „meðsek" i hverju
því sem rannsóknir Bandaríkja-
manna hefðu í för með sér.
Gromyko sagði litla von til þess
að samkomulag myndi nást í
Genf vegna „stífni" Bandaríkja-
manna að halda til streitu áætl-
unum um geimvarnarkerfið.
Genscher varaði einnig við
„skjótum lausnum" í Genf, en
sagðist bjartsýnn á góðan árang-
ur samt.