Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
17
Jón Björnsson
Bókaklúbbur AB:
Valtýr á
grænni treyju
eftir Jón
Björnsson
BÓKAKLÚBBUR Almenna bókafé-
lagsins hefur gefið út í 2. útgáfu
skáldsöguna Valtýr á grænni treyju
eftir Jón Björnsson.
í frétt frá BAB segir: „Þessi
skáldsaga Jóns er samin út frá
austfirskri munnmælasögu um
réttarmorð á 18. öld. Sagan verður
í höndum Jóns Björnssonar að
áhrifamiklu drama um yfirvald
sem fremur réttarglæp, sennilega
aðallega af hræðslu um völd sín og
virðingu. Einnig má segja að hún
fjalli um múgsefjun og hvernig öf-
und og illvirki í garð náungans
gera persónurnar ómerkilegar og
lítilsigldar, en þjónusta við það
sem viðkomandi álítur sannast og
réttast getur gert hetjur úr miðl-
ungsmönnum. Er ekki að efa að
áhrifa réttarfars og lágkúru I
hugsunarhætti, sem síðari heims-
styrjöld var gróðrarstía fyrir,
gætir mjög í þessari bók.
Fyrri útgáfa Valtýs á grænni
treyju kom út 1951. Höfundurinn
gerði síðan leikrit eftir sögunni og
var það sýnt í Þjóðleikhúsinu 1953
við góðan orðstír. Sagan kom út á
dönsku 1977 og var þar af ýmsum
dómurum talin með því besta sem
þar hafði sést af íslenskum bók-
menntum síðari ár.
Það eru nú liðin 19 ár frá því út
hefur komið bók eftir Jón Björns-
son, og hafa allar hans skáldsögur
verið ófáanlegar hér í næstum
jafnlangan tíma, því að bækur
hans hafa alltaf verið vinsælar á
Islandi — eins og þær voru í
Danmörku á sínum tíma. En Jón
hóf rithöfundarferil sinn á dönsku
árið 1942 með Jordens Magt, sem
kom út í Hassesbalchs Bogklub
það ár. En hann var áður þekktur
í Danmörku fyrir smásögur sínar
sem hann birti í blöðum og tíma-
ritum."
Valtýr á grænni treyju er í útgáfu
bókaklúbbsins 267 bls. í Din-broti.
Bókin er prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar.
Skógastrandarhreppur:
Síðustu sjálf-
virku símarn-
ir tengdir
Slykkishólmi, I. mar».
1 DAG var 21 sími tengdur hjá
notendum í Skógarstrandarhreppi
á Snæfellsnesi og þá eru komnir
sjálfvirkir símar á alla bæi í
Snæfells- og Hnappadalssýslu.
Framkvæmd þessi hefur staðið nú
um nokkurn tíma, vonir stóðu til
að hægt yrði að opna símana um
áramótin en vegna hluta sem varð
að panta erlendis frá var ekki
hægt að tengja þá fyrr en nú.
NÝTT-NÝTT
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
VERÐ: 113 1. — kr. 11.200.-
192 1. — kr. 18.200.-
215 1. — kr. 13.550.-
215 1. — kr. 14.150.-
GÓÐIR GREIÐSL USKILMÁLAR
Hann ersterkur
”hún”líka
AEG ryksugan er sterk og endingargóð,
enda er gert ráð fyrir að hún þurfi
að þola ýmislegt.
AEG ryksugan hefur mikinn sogkraft,
lœtur vel að stjórn og fullnægir
flestra kröfum.
AEG er rótta ryksugan fyrir þig.