Morgunblaðið - 05.03.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
25
Christian Kampmann
ENGLE
Bókmenntír
Jóhanna Kristjónsdóttir
Christian Kampmann: Gngle
Útg. Gyldendal 1984
Christian Kampmann er í hópi
kunnustu rithöfunda Danmerkur,
í fyrsta lagi fyrir skáldverk sín og
í öðru lagi fyrir baráttu sína gegn
hommafordómum og um það efni
hefur hann mikið fjallað um i
skrifum sínum. í bókunum For-
nemmelser og Videre trods alt
sem beggja hefur verið getið í
þessum dálkum og kalla má
kannski fremur upprifjanabækur
en sjálfsævisögu gekk Kampmann
fram fyrir skjöldu og þótti sýna
mikinn kjark með skrifum sínum.
f fjórbókinni Visse hensyn, Faste
forhold, Rene linjer og Andre
máder sem komu út nokkrum ár-
um áður hafði Kampmann endan-
lega fest sig í sessi sem hinn
snjallasti rithöfundur og í þeim
bókum gætir nokkurs forsmekks
þess sem síðan var opinberað í
upprifjunarbókunum. Því er eytt
svo mörgum orðum í að minnast á
þetta hér, að Kampmann hefur
síðan lagt áherzlu á þessi efni,
afbrigðileg hegðun/hvatir versus
afstaða samfélagsins. f þessari
nýju bók sem inniheldur tvær
langar skáldsögur er þemað kunn-
uglegt, en farið um það mun hóf-
samari höndum en í upprifjunar-
bókunum — eðli málsins sam-
kvæmt að því er gera má ráð fyrir.
Fyrri sagan segir frá tveimur
skólatelpum Heidi og Kiki sem fá
þá hugmynd að auglýsa eftir karl-
mönnum til að gamna sér með
gegn borgun yfir eina helgi meðan
foreldrar beggja eru fjarri.
Draumórar telpnanna um kynlífið
fá ekki staðist og raunar ekki
viðbrögð þeirra heldur. Sagan
endar svo sem ekki í neinu; niður-
staðan ef til vill sú að við vitum
aldrei hvar við eigum að leita eða
hvar við eigum ekki að leita og að
ekki er betri sú músin sem læðist
o.s.frv. Sagan Herbergið er öllu
dramatískari og kampmanskri.
Miðaldra hjón leigja ungum hjón-
um íbúð í húsinu sínu og undarleg-
ir straumar leika milli miðaldra
konunnar Bente og unga leigj-
andaeiginmannsins Per. Miðaldra
eiginmaður veikist hastarlega og
samtímis því taka þau Bente og
Per að iðka heldur betur óhefð-
bundnar athafnir í lestrarher-
berginu í kjallaranum. Kamp-
mann segir að Per leiði hana með
sér í undraland og þegar Bente
verði ein skilji hún hver hún sé
sjálf og þori að horfast í augu við
sjálfa sig. Mér hefur oft fundist
athyglisvert hvað rithöfundar eru
misjafnlega lagnir að segja manni
um hvað þeir eru að skrifa. Það
veitir að vísu ekki af því hér, ég
hefði litið svo á að þetta væri frás-
ögn af sjúklegu bralli þeirra þarna
í kjallaranum. Mér datt ekki í hug
að þetta hefði verið í undralandi
né að Bente hefði öðlast allt þetta
nýja og æsandi þor. En þá veit
maður það.
Hj á embætti skattrannsóknarstjóra er unnið
í þágu þeirra sem hafa framtalið í lagi
Þarer unnið
fyrir þig
Það er sjálfsagður réttur allra heiðarlegra skattgreiðenda að eftirlit sé haft
með þeim sem reyna að brjóta lög og svíkja undan skatti. Hjá embætti
skattrannsóknarstjóra vinna sérfróðir menn með aðstoð nýjustu tölvutækni
við slíkt eftirlit.
Hluti starfs þeirra felst í fyrirbyggjandi aðgerðum - heimsóknum í fyrirtæki
vegna almenns eftirlits og til ráðgjafar.
Með fjölgun starfsmanna og tölvuvæðingu má nú fara yfir margfalt fleiri
framtöl og reikninga á mörgum sinnum skemmri tíma en áður. Samanburður
allra fyrirtækja í sömu starfsgrein er fljótlegur. Til dæmis tekur aðeins
skamma stund að sjá hvernig hlutfallið milli heildarveltu og skattskyldrar
veltu lítur út í rekstrarreikningi fyrirtækis.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Skattrannsóknarstjóri skal hafa með
höndum skatteftirlit og rannsóknir. Hann
skal fylgjast með eftirlitsstörfum
skattstjóra, leiðbeina um eftirlitsaðgerðir og
veita þeim upplýsingar um atvinnugreinar,
atvinnuvegi eða önnur atriði sem þýðingu
hafa við skatteftirlit. Skattrannsóknarstjóri
getur hafið rannsókn á hverju því atriði er
varðar skatta, lagða á samkvæmt lögum.
Hvaða óróleiki er
þetta þó sölu-
skattsskýrslan sé
á núlli nokkra mán
uði í röð.. ?
Nú er aldeilis kominn tími til að kíkja inn á veitingastaðinn HAUK í HORNI. HtUlktlf vemngahus
HEITUR MATUR I HADEGINU - KRAARSTEMMNING A KVOLDIN I hortll *■»»
Auglýsingaþjónustan