Morgunblaðið - 05.03.1985, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
Flugvél með hjálpar-
gögn rænt í Eþíópíu
París, 4. marz. AP.
FIMM MANNA áhöfn franskrar herflutningaflugvélar, sem
ferjaði hjálpargögn milli staöa í Eþíópíu, var sleppt úr haldi í dag.
Vopnaðir menn rændu áhöfn flugvélarinnar og lögöu hald á 8,5
lestir af hjálpargögnum strax eftir að hún lenti í bænum Lalibela
fyrir helgi.
Franska utanríkisráðuneytið
kvaðst ekki vita um örlög fjögurra
sjálfboðaliða, sem fóru með flug-
vélinni til Lalibela frá Addis.
Veður
víða um heim
Lmgst Haest
Akureyri +2 léttskýjaó
Amsterdam 1 7 rigning
Aþena 4 9 rigning
Berlín 1 8 heióskírt
BrUssel 4 10 rigníng
Chicago +1 2 snjókoma
Denpasar Feneyjar 23 32 rigning vantar
Frankfurt 4 12 skýjað
Ganf Helsinkl +2 8 skýjað vantar
Hong Kong 15 16 skýjaó
Jerusalem 1 11 heióskirt
Jóhannesarb. 13 24 heiöskírt
Kaupm.höfn 1 6 skýjaó
Lissabon 8 15 rigning
London 5 9 skýjaó
Los Angeles 5 17 rigning
Madrid 4 12 heiðskírt
Malaga 15 lóttskýjaö
Mallorka 18 skýjaó
Manilla 21 35 heiðskírt
Miami 19 25 skýjaó
Moskva +10 +5 skýjaó
Nýja Delhi 15 32 heióskírt
New York 0 9 skýjaó
Osló +5 +4 snjók.
París 7 13 skýjaó
Peking +5 0 heióskírt
Perth 18 28 heiöskírt
Reykjavík 3 skýjaó
Rio de Janeiro 18 29 skýjað
Rómaborg 5 15 heióskírt
San Francisco 7 15 rigning
Stokkhólmur +5 +2 skýjaó
Sydnsy 17 35 heióskírt
Tel Aviv 3 17 heióskírt
Tókýó 3 8 heiðskírt
Toronto +8 +1 skýjaó
Vinarborg 0 3 skýjaó
Varsjé 0 2 rigning
Franska sendiráðið í Addis kvaðst
þó standa í þeirri trú að þeir væru
komnir til starfa í Lalibela og
hefðu aldrei verið teknir í gísl-
ingu.
Lalibela er í héraðinu Wollo,
þar sem skæruliðar, sem berjast
gegn stjórnarhernum, eru at-
kvæðamiklir. Tóku skæruliðar
Lalibeia á sitt vald i október, en
drógu sig síðar til baka. Eru þeir
sagðir ráða borginni á ný.
AP/Símamynd
Henry Richardson, fyrnim framkvæmdastjóri félags námumanna í Notthingham, sem námumenn ráku úr starfi í
janúar, í orðaskaki við námumenn í London á sunnudag. Richardson var ákafur stuðningsmaður verkfallsaðgerða,
enda þótt flestir námumenn í Notthinghamshire hefðu snúið baki við verkfalli.
Verkfalli brezkra námumanna lokið án samkomulags:
Verkfallslyktir sig-
ur stjórnar Thatchers
London, 4. marz. AP.
BREZKIR námumenn hafa formlega aflýst árangurslausu verkfalli sínu og
ákveðið að snúa til vinnu á morgun, þriðjudag, nær ári eftir að látið var til
skarar skríða. llrslitin eru talin stórsigur stjórnar Margaret Thatcher og ósigur
leiðtoga námamanna, Arthurs Scargill. Verkfallið hefur haft mikið fjárhagslegt
tjón í för með sér, margar arðbærar námur hafa bætzt í hóp náma, sem tæpast
munu skila arði, og tugmilljóna sterlingspunda tjón hefur orðið á útbúnaði
náma.
Námumenn í Skotlandi og í Kent
í suðausturhluta Englands kváðust
þó ekki mundu snúa til vinnu fyrr
en yfirstjórn námanna féllist á
endurráðningu sumra námumanna,
sem reknir voru í verkfallinu fyrir
meinta glæpastarfsemi.
Samtök námumanna ákváðu á
sérstökum fulltrúafundi í London á
sunnudag að aflýsa verkfalli, hinu
lengsta og harðvítugasta í sögu
Bretlands. Hófst það 12. marz í
fyrra.
Scargill var þó vígreifur í dag og
hét áframhaidandi baráttu námu-
manna gegn áformum Kolafélags-
ins (NCB) um lokun óarðbærra
náma. „Látið ekki blekkjast, nú
munu námumenn leggja í skæru-
hernað gegn Kolafélaginu," sagði
Scargill. Hann kom sér hjá því að
fjalla nánar um hugsanlegar
skæruaðgerðir, en óttast er að
námumenn muni m.a. vinna
skemmdarverk í námunum. Kola-
félagið, sem stjórnar rekstri 174
ríkisrekna náma, hyggst loka 20
óarðbærum námum, og var það
vegna þessara áforma sem námu-
menn efndu til verkfallsins. Sagði
Scargill í sjónvarpi í morgun að
námumenn gætu snúið hnarreistir
til vinnu, þeir hefðu unnið mikinn
sigur með jafn löngu úthaldi gegn
áróðri og stefnu ríkisstjórnarinnar.
Kolafélagið sagði 900 námamenn
hafa mætt að nýju til vinnu í dag
og því ekki beðið morgundagsins,
eins og stéttarfélag þeirra hafði
ætlazt til. Rúmlega 52% námu-
manna höfðu hætt verkfalli þegar
samtök þeirra aflýstu verkfalli.
Námumenn hyggjast snúa til
vinnu með pomp og prakt, og ganga
fylktu liði undir fánum og áróð-
ursspjöldum, með lúðrablæstri og
söng.
Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra sagði ákvörðun fulltrúa-
fundarins sigur almennrar skyn-
semi. Lét hún í ljós vonir um að
sem fyrst greri um heilt og fram-
leiðslan kæmist í eðlilegt horf. Úr-
slit námudeilunnar eru talin mikill
sigur fyrir Thatcher, sem hefur
beitt sér fyrir takmörkun valds
verkalýðsfélaga.
Aflýsa árlegum sumar-
fundi ANZUS-ríkjanna
í DAG, mánudag, virtist sem ANZ-
US-bandalagið væri að syngja sitt sitt
síðasta, er Bob Hawke, forsætis-
ráðherra Astralíu, tilkynnti frestun
árlegs fundar bandalagsins „um
óákveðinn tíma“.
Var ástæðan sögð sú ákvörðun
Nýja Sjálands að neita að leyfa
bandarískum herskipum með
kjarnorkuvopn innanborðs að
koma til hafna þar í landi.
Utanríkisráðherrar ANZUS-
landanna þriggja hafa haldið með
sér fundi ár hvert allt frá því að
bandalagið var stofnað 1951, og átti
að funda næst í Canberra í Ástral-
iu snemma í júlímánuði í sumar.
„Bandalagið er nú ekki annað en
nafnið tómt, þar sem tilvist þess
byggist á þríhliða samstarfi," sagði
Bob Hawke við fréttamenn.
David Lange, forsætisráðherra
Nýja Sjálands, sem er í heimsókn í
Englandi, sakaði áströlsk stjórn-
völd um að láta Bandaríkjamenn
skipa sér fyrir verkum og taldi
frestunina „óheppilega". „Það er
greinilegt, að Bandaríkjamenn eru
nú að auka á það tjón, sem þegar er
orðið," sagði hann.
„f ljósi ákvörðunar Nýja Sjá-
lands og viðbragða Bandaríkjanna
væri óráðlegt að halda þennan
fund,“ sagði Hawke á fréttamanna-
fundinum.
í tilkynningu nýsjálensku stjórn-
arinnar sagði, að ákvörðun ástr-
alskra stjórnvalda væri hörmuð
„vegna þess, að við töldum, að á
fundinum gæfist okkur færi á að
skoða málin og ræða ágreinings-
efnin við bandamenn okkar".
Chile:
124 fórust í
jarðskjálfta
Santiago, 4. marz. AP.
AÐ MINNSTA kosti 124 manns fórust í jarðskjálfta
sem varð meðfram suðurhluta Chile á sunnudags-
kvöldið og er óttast að talan eigi enn eftir að hækka. í
opinberum tölum segir að tvö þúsund manns að
minnsta kosti hafi slasast. í höfuðborg landsins,
Santiago, hljóp fólk frávita af hræðslu út úr húsum
sínum og er af fyrstu fregnum greinilegt að margir
hafa misst heimili sín.
Svo virðist sem þrjár borgir, Santiago, Valpariso
og Vina Del Mar hafi orðið verst úti í jarðskjálft-
unum. f þessum borgum búa samtals um ellefu
milljónir manna. Harðasti jarðskjálftinn mældist
7,4 stig á Richter-kvarða og stóðu hamfarirnar yfir
í fimm mínútur. Mest varð manntjónið þá en síðan
komu á næstu sex klukkustundum alls 48 minni
skjálftar.
Símalínur rofnuðu svo og rafmagnsleiðslur en
björgunarsveitir hafa verið linnulaust að störfum.
Það hefur torveldað hjúkrun, að nokkur sjúkrahús,
t.d. í Valpariso, skemmdust verulega.
AP/Simamynd
Svipmynd frá höfuðborg Chile, Santiago, eftir jarð-
skjálftann í gærmorgun. Hluti íbúðarblokkar hefur
hér nær lagst saman.
GENGI GJALDMIÐLA
Dollar styrkist aftur
Lundúnum, 4. mars. AP.
Bandaríkjadollar óx ásmegin á
ný í dag gagnvart helstu gjald-
miðlum heims og kom þar einkum
til að seölabankar þeir sem stóðu
fyrir aðgerðum gegn dollaranum í
síðustu viku héldu að sér höndun-
um í dag. í síðustu viku seldu
bankarnir 4 milljarða dollara og
framganga dollarans í þessari
viku er talin vera undir því komin
hvort framhald verði á slíkum að-
gerðum. í kvöld samsvaraði eitt
breskt pund 1,0697 dollurum.
Samsvarandi tala frá föstudegi
var 1,0715 dollarar.
Gagnvart öðrum helstu gjald-
miðlum stóð dollar þannig:
V-þýsk mörk
Svissn. fr.
Fr. frankar
Gyllini
Lírur
Kanad. dollar
3,3680 (3,3600)
2,8880 (2,8755)
10,3035 (10,2700)
3,8175 (3,7975)
2,097.75 (2,095.00)
1,3930 (1,3935)
Gervjhjartaþeginn:
Blæðingar stöðvaðar
Louisville, Kentucky, 4. mars. AP.*—7
Á LAUGARDAG töldu læknar, að þeim hefði tekist að loka litlu gati á æð í
brjóstholi gervihjartaþegans Murray llaydons og stöðva blæðingar, sem þjak-
að höfðu hann í nokkra daga, að sögn Bob Irvine, talsmanns Humana-sjúkra-
hússins í Louisville.
Aðgerðin á Haydon tók 90 mín-
útur. Var hann þungt haldinn á
eftir, en líðan sjúklingsins ekki tal-
in verri en verið hefur eftir að
hann fékk gervihjartað fyrir 14
dögum, að sögn talsmannsins.
Læknar uppgötvuðu á þriðjudag,
að blóð safnaðist fyrir vinstra meg-
in í brjóstholi sjúklingsins. Þegar
blæðingarnar jukust enn á laug-
ardag, var ákveðið að ráðast í
skurðaðgerð.
Talið er að gatið hafi myndast,
þegar örmjó plastslanga, sem not-
uð var til að hafa gætur á blóð-
þrýstingi, var dregin út úr æðum í
tengslum við gervihjartað.