Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
27
TREHOLT-RETTARHOLDIN
„Tæki aldrei svona
skjöl heim með mér“
— sagði Geir Grung, eftirmaður Treholts í utanríkisráðuneytinu
08ló, 4. mars. AP.
SEX MANNS báru í dag vitni í réttarhöldunum yfir Arne Treholt, fyrrum
skrifstofustjóra f upplýsingadeild norska utanríkisráöuneytisins, sem
ákærður er fyrir njósnir í þágu Sovétríkjanna og íraks.
Geir Grung, sem tók við starfi fyrir réttinn í máli Arne Tre-
Treholts í utanríkisráðuneytinu
eftir að hann var handtekinn í
fyrra, var spurður hvort það
væri rétt, sem Treholt staðhæfir,
að algengt sé að stjórnarerind-
rekar erlendis leyfi hver öðrum
að sjá trúnaðarskjöl ríkisstjórna
sinna. „Mér er ekki kunnugt um
slíkt," sagði Grung, sem nú
starfar við sendiráð Norðmanna
I París.
Norskir stjórnarerindrekar
hjá Atlantshafsbandalaginu,
Sameinuðu þjóðunum og í sendi-
ráðinu í Stokkhólmi báru einnig
vitni í dag, svo og tvær konur,
sem störfuðu i upplýsingadeild
norska utanríkisráðuneytisins er
Treholt var handtekinn. Þau
voru spurð um ráðstafanir, sem
gerðar eru til að hindra að upp-
lýsingar sem taldar eru trúnað-
armál berist út.
Fram kom í dag, að Geir
Grung var látinn kanna þau 66
skjöl, sem fundust í tösku Tre-
holts er hann var handtekinn á
flugvellinum í Osló. „Sum
þessara skjala voru merkt sem
trúnaðarmál og ég mundi aldrei
hafa tekið þau heim með mér,“
sagði Grung.
Samtals verður 91 vitni kallað
holts, en aðeins fjögur til viðbót-
ar munu bera vitni fyrir opnum
tjöldum. Koma þau væntanlega
fyrir réttinn á morgun, þriðju-
dag. Talið er að í þeim hópi verði
Brit Groen, fyrrverandi eigin-
kona Treholts, og þrír starfs-
menn utanríkisráðuneytisins.
Réttarhöldunum yfir Treholt
verður væntanlega lokað á mið-
vikudag og þau þá flutt úr hinum
stóra réttarsal nr. 23 í Dómshús-
inu í Osló í minni sal á efstu hæð
hússins.
Arne Treholt
Viðurkennir að hafa lát-
ið KGB fá trúnaðarskjöl
Osló. 4. fehrúar. AP. V
ARNE Treholt viðurkenndi fyrir rétti i Osló á laugardag, að það væri rétt
sem hann hefði sagt við yfirheyrslur eftir að hann var handtekinn í fyrra,
að hann hefði margsinnis hitt erindreka sovésku leyniþjónustunnar í
New York og afhent þeim trúnaðarskjöl.
Treholt sagði hins vegar, að ari, skýrði frá því á laugardag að
frásögn sín við yfirheyrslurnar
hefði ekki verið í öllum atriðum
rétt. Hann tók aftur þau um-
mæli sín, að Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, hefði lýst ánægju með þau
skjöl sem hann fékk frá Treholt
nokkru áður en hann átti fund
með Alexander Haig, þáverandi
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í New York 23. september
1981.
Lars Quigstad, ríkissaksókn-
Treholt hefði við yfirheyrslur
sagst hafa hitt sovéskan njósn-
ara bæði fyrir og eftir fund
þeirra Gromykos og Haigs, og
hefði njósnarinn sagt sér að
Gromyko hefði verið mjög
ánægður með þær upplýsingar
sem hann hefði komið á fram-
færi.
„Þetta var ekki satt,“ sagði
Treholt. „Ég sagði þetta til að
verða spennandi."
Ekki kom fram í réttinum
hvers konar upplýsingar Treholt
afhenti fyrir fund Haigs og
Gromykos, en upplýst var að sá
sem tók á móti þeim var Sovét-
maðurinn Vladimir Zjizjin, sem
þá starfaði hjá Sameinuðu þjóð-
unum f New York. Treholt viður-
kenndi jafnframt að hafa afhent
fleiri Sovétmönnum trúnað-
arskjöl, en kvaðst ekki vilja
skýra frá nöfnum þeirra meðan
réttarhöldin væru opin. Hann
sagði að Zjizjin hefði látið sig fá
a.m.k. 5.000 bandaríkjadali í
ferðakostnað. Dómarinn spurði
hann þá hvað ferð til Vínar kost-
aði og Treholt svaraði: „Það sem
ég fékk var meira en nóg.“
Kari Storækre
þarf ekki
að koma fyr-
ir réttinn
Osló, 4. mars. Frá Jan-Erik Lauré,
fréttariUra Mbl.
KARI Storækre, eiginkona
Ame Treholts, þarf ekki að
koma fyrir rétt og vitna í máli
hans, eins og upphaflega stóð
til. Saksóknari greindi frá því
við lok réttarhaldanna í dag í
Dómshúsinu í Osló, að hún
hefði eindregið neitað að bera
vitni og ákveðið hefði verið að
þröngva henni ekki til þess.
Kari Storækre og lögfræð-
ingar hennar hafa haldið því
fram, að hún hafi fullan rétt
til þess að neita að vitna í
máli eiginmanns síns. Kari
hefur nýlega sent frá sér bók
um samband þeirra Arne
Treholts, sem nefnist „God
Tur til Paris", og það er
vegna upplýsinga, sem þar
koma fram, sem ákæruvaldið
óskaði eftir því að hún bæri
vitni. Saksóknari hafði látið
hafa eftir sér, að ef Kari
fengist ekki til að segja neitt
í vitnastúkunni, kæmi til
greina að lesa upp úr bókinni
fyrir réttinum og leggja
hana fram sem gagn í mál-
inu. Hann skýrði ekki frá því
í dag hvort af þessu yrði í
raun.
NÍU UF?
Líf og starfsorka er dýrmæt-
asta eign hvers og eins, enda
grundvöllur þeirra verðmæta
sem standa undir þörfum ein-
staklinga og fjölskyldna.
Eru þér ljós þau áhrif sem
skyndilegt fráfall þitt myndi hafa
á stöðu þinna nánustu?
Veitir lífeyrissjóður, al-
mannatryggingarkerfi, eða
kjarasamningur stéttarfélags
þíns nauðsynlega grundvallar-
vemd?
Líftrygging vemdar fjöl-
skyldu þína gegn fjárhagslegum
áföllum við óvænt fráfall þitt.
Við bjóðum verðtryggingu
allt tryggingartímabilið svo líf-
tryggingin heldur ætíð verðgildi
sínu.
Tryggingaráðgjafar okkar
aðstoða þig við val á tryggingar-
upphæð og tegund tryggingar
svo ömggt sé að þú hafir há-
marksvemd á hagstæðu iðgjaldi.
Yerðtryggð líftrygging
M'líftrygging
GAGNKVCMT TRYGGINGAFEiAG
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Skrifstofur: Laueaveeur 103 105 Revkiavík Sími 91 26055 UMBOÐSMENN UM ALLT LAND