Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
Veginn í Mafíu-árás
Þessi mynd var tekin á laugardag er komið var með ítalska iðnrekand-
ann Roberto Parisi í sjúkrahús í Palermo, eftir að hann hafði orðið fyrir
árás hóps glæpamanna úr Mafíunni. Parisi lést skömmu síðar. Bflstjóri
hans lét einnig lífið í árásinni.
19 létust í sprengju-
árás á bænahús
Ástandið í S-Líbanon versnar stöðugt
Maarake, Beirut, Líbanon og Jerúsalera, 4. marz. Al*.
MJÖG ÖFLUG sprenging varð í mosku, bænahúsi múhameðstrúarmanna í
Maarake í Líbanon, en þar í bæ hefur verið mikil andstaða við ísraela. Kllefu
manns að minnsta kosti biðu bana og nítján særðust.
Utvarpið í Líbanon hefur sagt
ísraela ábyrga fyrir þessu voða-
verki og mikil reiði og ólga er nú í
þeirra garð í Maarake. Sprenging-
in varð skömmu eftir að Israelar
létu af sólarhringsumsátri um bæ-
inn. Eins og hefur verið sagt frá í
fréttum hafa ísraelskir hermenn
upp á síðkastið gert hríð að bæj-
um og þorpum í Suður-Líbanon á
brott göngu sinni og hafa þeir
sagzt vera að leita að PLO-skæru-
liðum.
Líbanska stjórnin hefur tekið
mjög óstinnt upp aðgerðir ísra-
elsku hermannanna og um helgina
var því lýst yfir að árásir yrðu
gerðar á Norður-ísrael, ef svo
héldi fram sem horfði. Hins vegar
hefur talsmaður Israelshers ein-
dregið neitað því að ísraelar væru
viðriðnir hryðjuverkið í Maarake
og sagt að það væri bersýnilega
gert til að kynda undir hatri á
Israelum og vekja sundrungu og
ólgu.
ísraelar kunngerðu á sunnudag
að senn hæfist næsti áfangi í
brottflutningi ísraelska herliðsins
og myndi standa í þrjá mánuði.
Fréttamenn sem hafa farið um
svæðið sem ísraelar ráða segja, að
engum blöðum sé um það að fletta
að íbúar séu orðnir mjög þreyttir
á hernámi Israela og óvildin í garð
þeirra magnist dag frá degi.
Þá hafa herskáir líbanskir shit-
ar hvað eftir annað gripið til að
handtaka og pynda ýmsa þá sem
hafa þótt of samvinnuþýður við
Israela. Segir AP-fréttastofan að
svo mikil ólga sé í þessum lands-
hluta að til tíðinda geti dregið
hvenær sem er og ekki væri frá-
leitt að PLO-skæruliðar notfæri
sér ástandið til að búa um sig á ný
með hinum vafasömustu afleið-
ingum.
Búlgaría:
Aframhaldandi ofsóknir
gegn tyrkneskum mönnum
Borlín, 1. marz. AF.
BÚLGARSKI heimsmeistarinn í lyftingum, Naim Suleimanov, hefur breytt
tyrknesku nafni sínu í slavneskt nafn og látið þannig undan þrýstingi
kommúnistastjórnarinnar í landinu, sem keppir að því að útrýma þjóðerni
tyrkneska minnihlutans í Búlgaríu.
„Ef þið ekki þekkið nafnið Shal-
amanov, þá megið þið vita, að það
er nafn sama íþróttamanns, sem
16 ára unglingur varð heimsmeist-
ari í flokki fullorðinna og nú, þeg-
ar hann er 18 ára gamall, ber
nafnið Naum Shalamanov," segir
austurþýzka blaðið Junge Welt.
Blaðið hefur einnig eftir íþrótta-
-------------------------N
manninum: „Fjölskylda okkar hef-
ur nú tekið upp hið gamla búlg-
arska nafn, sem forfeður okkar
báru.“
Neues Deutschland, málgagn
austurþýzku stjórnarinnar, skýrði
einnig frá þessu með þessum orð-
um: „Naum Shalamanov (áður
kunnur undir nafninu Suleim-
anov) var einn þriggja búlgarskra
lyftingamanna, sem tóku þátt í
mótinu í Meissen."
Vesturþýzka íþróttafréttastofan
SID skýrði svo frá í dag, að móð-
urmál Suleimanovs væri tyrkn-
eska og að hann ætti heima í þorp-
inu Ptichar nærri tyrknesku
landamærunum.
Um ein milljón tyrkneskra
manna býr í Búlgaríu og eru þeir
því um 10% allra landsmanna.
Blöð í Tyrklandi og fleiri löndum
hafa haldið því fram, að mörg
hundruð manns af tyrknesku
þjóðerni hafi látið lífið undan-
farna mánuði í Búlgaríu fyrir and-
stöðu við tilraunir stjórnvalda þar
til að útrýma tyrkneskri tungu í
landinu. Þáttur í þessari viðleitni
stjórnvalda eru þau fyrirmæli, að
tyrkneskt fólk í Búlgaríu taki upp
búlgörsk nöfn.
Sérunninn safngripur frá Glit
verður kjörgripur barna þinna
og stolt barnabarna á komandi öld
jm^.
HÖFÐABAKKA9
simi 685411
Norður-írland:
Lögreglumaður
skotinn til bana
Belfast, 4. mars. AP.
LÖGREGLUFORINGI á Norður-írlandi var skotinn til bana í gær, sunnu-
dag, þegar hann kom til messu í klaustri í Enniskillen skammt frá landa-
mærunum við írland. Hafa þá tíu lögreglumenn fallið fyrir hendi IRA á
fjórum dögum.
Hugh McCormac, sem var kaþ-
ólskrar trúar og undirforingi í
lögreglunni í Enniskillen, var
skotinn til bana þegar hann gekk
frá bíl sínum í átt að klaustrinu
ásamt konu sinni og tveimur börn-
um, 16 ára gamalli stúlku og 15
ára gömlum dreng. Að sögn vitna
gekk morðinginn að McCormac,
skaut á hann og hélt því áfram
eftir að hann var fallinn í götuna.
Að því búnu flýði hann í bíl, sem
annar maður ók. Bíllinn fannst
síðar skammt frá landamærum
írsku ríkjanna.
Frá 17. febrúar sl. hafa 19
manns fallið í átökunum á Norð-
ur-írlandi og flestir fyrir hendi
IRA-manna, sem nú þegar hafa
lýst á hendur sér síðasta morðinu.
Ottast yfirvöldin að öfgamenn í
flokki mótmælenda muni vilja
hefna morðanna og auka með því
enn á óöldina.
Leyniþjónustumenn telja, að
INLA, marxísk samtök innan
IRA, hafi staðið að baki spreng-
ingunni í verslun Marks og Spenc-
ers í París 23. febrúar sl. I henni
beið einn maður bana og 15 slös-
uðust. Eftir sprenginguna lýstu
alls kyns öfgasamtök þvi yfir að
þau hefðu komið sprengjunni fyrir
en bresku leyniþjónustumennirnir
telja sig hafa heimildir fyrir því,
að marxistar í IRA hafi verið að
verki.
Miklar rigningar í Rio
Rio de Janeiro, 4. marz. AP.
SNÖGGAR hitabeltisrigningar urðu
í grennd við Rio de Janeiro um helg-
ina og segir að nítján manns hafí
dáið vegna þessa. Skriðufoll urðu og
ár fíæddu yfír bakka sína og víða
eyðilögðust vegir vegna úrfellisins.
Lögreglan í Rio de Janeiro segir
þetta eitthvað mesta og versta
vatnsveður sem þar hefur komið í
áratugi. Skriðuföllin fyrir ofan
Rio voru einnig meiri en nokkurn
tíma hafa orðið áður. Margir
ferðamenn eru um þessar mundir
i Brazilíu og segir lögreglan að
þeir séu allir heilir á húfi. Þeir
sem létust bjuggu flestir í Graj-
au-fátækrahverfinu í borginni.