Morgunblaðið - 05.03.1985, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
Kraftarnir dugöu þeim Jóni Páli Sigmarssyni og Skúla Óskarssyni skammt í
hjólastólunum. Hér er allt komiö í hnút við erfiðustu þrautina, stutta brekku.
Sigþrúöur Pilsdóttir rennir sér milli
hliöa. Með lipurð nældi hún í annað
sæti.
Formaður fþróttafélags fatlaðra, Arnór Pétursson, þeysir hér framúr Halldóri
Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra, sem á í erfiðleikum með að halda jafnvægi.
✓
99
Mikið þegar fullhraustir menn
eiga í erfíðleikum í hjólastól"
— sagði sigurvegari hjólastólarallsins, Jón Ragnarsson
„ÉG ÁTTAÐI mig á því eftir keppn-
ina hvað gera þarf rosalegt átak í
málefnum fatlaðra. Þegar fullhraustir
menn eiga í miklum erfiðleikum meö
að komast um hindranir, sem eru síð-
ur en svo ýktar miðað við hvað fatlað-
ir burfa að fást við dag hvern, þá er
eitthvað mikið að,“ sagði rallkappinn
kunni Jón Ragnarsson, eftir að hafa
unnið í hjólastólaralli Sjálfsbjargar í
Laugardalshöll á sunnudaginn.
Þátttakendur voru 30 talsins,
fatlaðir, þingmenn, rallkappar,
íþróttamenn og voru allir reiðu-
búnir að leggja hönd á plóginn til
aö veita málefnum fatlaðra lið. Hin
ýmsu fyrirtæki höfðu styrkt
keppnina, sem fór þannig fram að
áttalöguð akstursbraut var lögð um
fjalir Laugardalshallar með ýmis-
konar hindrunum sem áttu að
Morgunblaðid/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Jón Ragnarsson og Guðný Guðnadóttir áttu í harðri
keppni í úrslitum og fylgdust að þar til Jón seig framúr á
lokasprettinum. Jón sigraði en Guðný féll niður í fjórða
sætið vegna þess að hún sleppti hiuta úr einni þraut og
fékk aukatíma í refsingu.
„Síðan tökum við krappa hægri beygju ...“ Þingmenn-
irnir Svavar Gestsson, Arni Johnsen, Friðrik Sophusson
og Kristín Kvaran spá í bestu akstursleiðina.
Ferming
fiamundan?
Falleg fermingarvara í miklu úrvali
Fyrir fermingarbörnin: Fyrir fermingarveisluna:
Vasaklútar.kr. 81.- Úrval af servíettum .... kr. 81.-
Slæður.kr. 129.- Kökustyttur kr. 75.-
Nethanskar .kr. 195.- Fermingarkerti 3 gerðir . kr. 79.-
Hárkambar..kr. 95.- kr. 109.-
Blóm í hár.kr. 16.- kr. 345.-
Hanskar....kr. 75.- Kertastjakar kr. 65.-
kr. 110.-
Áletrum servíettur og sálmabækur.
Ilókabúð
N.MÁLS & MENNINGAR.
LAUGAVEGI 18-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240-24242
svipa til þess, sem hjólstólanotend-
ur þurfa að glíma við í daglegu lífi.
Sex keppendur óku saman í hverri
umferð áður en kom að úrslitum og
þeir sem fljótastir að fara hringinn
án skakkafalla kepptu til úrslita.
Það reyndist enginn leikur fyrir
keppendur að komast sumar hindr-
anirnar, þrátt fyrir áköf hvatn-
ingaróp fjölmargra áhorfenda.
Þrátt fyrir kraftana átti t.d.
„sterkasti maður heims", Jón Páll
Sigmarsson, í miklum erfiðleikum
með að komast upp stutta brekku á
sínum hjólastól og svo var um fleiri
fílhrausta kappa. „Ég lærði það að
maður verður að hafa góða stjórn á
líkamanum í hjólastól, kraftarnir
duga skammt,“ sagði Jón Páll. Tólf
þingmenn kepptu og þeirra fljót-
astur um brautina var Þorsteinn
Pálsson. „Þetta var óskaplega
skemmtileg keppni. En öllu gamni
fylgir alvara. Maður gerir sér betur
grein fyrir erfiðleikum þeirra sem
bundnir eru við notkun hjólastóla,"
;ði Þorsteinn.
æsispennandi úrslitakeppni
rallsins varð Jón Ragnarssonar
hlutskarpastur, Sigþrúður Páls-
„Gerir sér betur grein fyrir erfiðleik-
um þeirra sem bundnir eru notkun
hjólastóls." Þorsteinn Pálsson stóð
sig vel og náði þriðja sæti.
dóttir önnur, Þorsteinn Pálsson í
þriðja sæti. Fjórða varð Guðný
Guðnadóttir, síðan komu Jónas
Tryggvason og Friðrik Sophusson.
Besta tíma dagsins í brautinni náði
Birgir Isleifsson, en hann komst þó
ekki í lokaúrslitin.
Hlustunarskilyrði hljóðvarps:
Mjög slæm austan
Mýrdalssands
Siggeir
Björnsson
Siggeir
Björnsson (S)
bar nýlega
fram fyrir-
spurn til
menntamála-
ráðherra um
hlustunarskil-
yrði hljóð-
varps austan
Mýrdals-
sands, sem
verið hafi óþolandi slæm um langt
skeið. Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra, sagði m.a. í
svari sínu:
„Hlustunarskilyrði fyrir hljóð-
varp austan Mýrdalssands í
Vestur-Skaftafellssýslu eru
þannig að langbylgjumóttaka er
mikið til ónothæf á svæðinu
vegna truflana frá erlendum
stöðvum, en sending á hljóð-
varpsrás 1 er frá FM-stöð á Há-
felli. Hún næst víðast hvar með
viðeigandi loftnetabúnaði, en
styrkur er ekki alls staðar nægj-
anlegur fyrir ferðatæki.
Ríkisútvarpið hefur farið þess
á leit við Póst- og símamálastofn-
un að hið fyrsta verði gerðar
sviðsstyrksmælingar á svæðinu.
Síðan verði metið út frá þeim
hvaða ráðstafanir þurfi að gera
til að bæta hlustunarskilyrði.
Þetta segir í bréfi frá útvarps-
stjóra, Markúsi Erni Antonssyni,
frá 11. febrúar 1985, eða í gær.
Eftir að umsögn, sem þetta
svar útvarpsstjóra er byggt á,
barst útvarpinu var sent þaðan
bréf til Pósts og síma, þar sem
þess er farið á leit við stofnunina
að sviðsstyrksrannsóknum á
þessu svæði verði hraðað svo sem
verða má. Ætlunin er að þetta
verði nákvæmar rannsóknir á
sviðsstyrk einstakra senda. Þegar
niðurstöður þessara rannsókna
liggja fyrir ætti að vera ljóst
hvað mörgum sendum þarf að
bæta við dreifikerfið svo viðun-
andi hlustunarskilyrði náist.
Ekki á að verða nein töf á því að
sendar verði settir upp þegar
niðurstöður rannsóknanna liggja
fyrir þar sem von er á sendum
hingað til lands sem nota mætti á
þessu svæði. Þessir sendar koma
til landsins næsta sumar og
ákvörðun um nýtingu þeirra mun
tekin í beinu framhaldi af niður-
stöðu rannsóknarinnar.
Núna er verið að huga að
dreifikerfi fyrir rás 2 á þessu
svæði. Þegar sendar fyrir rás 2
verða settir upp mun loftnetum
verða breytt þannig að styrkur
rásar 1 mun aukast verulega.
Jafnframt mun ætlunin vera sú,
eins og áður sagði, að setja upp
nýja senda bæði fyrir rás 1 og 2
þannig að með auknum styrk á
útsendingum ætti að draga veru-
lega úr senditruflunum einstakra
útvarpsstöðva, en eins og fram
kemur í bréfi útvarpsstjóra er
langbylgjumóttakan mikið til
ónothæf á þessu svæði vegna
truflana frá erlendum stöðvum."