Morgunblaðið - 05.03.1985, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
OMRON
AFGRQÐSUIKASSAR I
Minni fvrirnöm-meiri yfirsyn"
SKRIFSTOMJVFl AR H F.
■nZS^
Hverfisgötu 33 - Slmi 20560
Dale .
Carnegie
námskeiðiÖ
Kynningarfundur veröur haldinn í kvöld,
þriöjudaginn 5. mars, kl. 20.30 að Síðu-
múla 35, uppi.
Allir velkomnir.
Námskeiöið getur hjálpað þér:
★ Aö öölast meiri trú á sjálfan þig og
hæfileika þína.
★ Aö byggja upp jákvæöara viöhorf
gagnvart lífinu.
★ Aö ná betri samvinnu viö starfsfélaga,
fjölskyldu og vini.
★ Aö þjálfa minniö á nöfn, ándlit og staö-
reyndir.
★ Aö ná betra valdi á sjálfum þér í ræöu-
mennsku.
★ Aö eiga auðveldara meö aö hitta nýtt
fólk og mæta nýjum verkefnum.
★ Aö veröa hæfari í því aö fá örvandi
samvinnu frá öörum.
★ Aö ná meira valdi yfir áhyggjum og
kvíöa í daglegu lífi.
★ Aö meta eigin hæfileika og setja þér
ný, persónuleg markmiö.
★ Carnegie-námskeiöin eru kennd í 62
löndum og metin til háskólanáms í
Bandaríkjunum. Fjárfesting í menntun
skilar þér aröi ævilangt.
82411
Einkaleyfi á Islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráö Adolphsson
Þannig komst
Larsen í stuð
Skák
Margeir Pétursson
Danski víkingurinn Bent Larsen
stóð svo sannarlega fyrir sínu á
afmælismóti Skáksambandsins
um daginn. Hann vann glæsilegan
sigur, hlaut 8 v. af 11 mögulegum,
vinningi á undan næstu mönnum.
Larsen tapaói engri skák, en þad
var samt engin lognmolla yfir tafl-
mennsku hans. Larsen hlýtur aö
hafa verið að gera að gamni sínu
eftir mótið þegar hann var að af-
saka rólega taflmennsku sína og
mörg jafntefli fyrir blaðamanni
Morgunblaðsins, því ef stutta jafn-
teflið við Spassky er undanskilið,
voru allar skákir hans æsispenn-
andi.
Eftir svæðamótið í Gausdal í
Noregi þar sem Larsen var sleg-
inn út úr heimsmeistarakeppn-
inni var hann fremur daufur í
dálkinn. Því heyrðist jafnvel
fleygt að hann hefði í hyggju að
hætta að tefla ef illa gengi á
mótunum í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn. Danir voru að von-
um slegnir vegna frammistöðu
Larsens og Hansens í Gausdal,
því þeir ætluðu sér bæði sætin á
millisvæöamótinu. Hinn þekkti
skákblaðamaður hjá Politiken,
Svend Novrup, lauk grein sinni
um mótið með þeim orðum að
úslitin væru mikið áfall fyrir
dönsku skákhreyfinguna og
Larsen persónulega, en hann
væri þó viss um að Larsen ætti
eftir að ná sér á strik, hann hefði
áður orðið fyrir miklum áföllll-
um.
Novrup var sannspár, en tafl-
mennska Larsens í tveimur
fyrstu umferðunum á afmælis-
mótinu var ekki til að hrópa
húrra fyrir. Þá tefldi hann við
okkur Helga Ólafsson og nú er
ég skoða þessar skákir, þegar
vopnagnýrinn er hljóðnaður,
finnst mér eins og skákgyðjan
hljóti að hafa tekið fyrir bæði
augun á okkur Helga á úrslita-
augnablikum þessara skáka.
Gegn Helga tefldi Larsen hol-
lenska vörn, sem er ekki sérlega
traust byrjun, allra sízt í hönd-
um Danans djarfa. Larsen gerði
í stuttu máli öll þau grundvall-
armistök sem þessi byrjun býður
upp á, hann lék mörgum óþörf-
um peösleikjum, uns staðan var
orðin eins götótt og svissneskur
ostur. Helgi tefldi mjög skyn-
samlega og þegar við grípum
niður í skákina hafði hann
plantaö riddurum sínum í tvær
verstu holurnar, d5 og g5. Áhorf-
endur voru farnir að tala um
„vel heppnað Hara-kiri“ hjá
Larsen.
Svart: Bent Larsen
Hvítt: Helgi Ólafsson
32. — Rxg5, 33. fxg5 — Rg4
Eina vonin, annars tapar
svartur peðinu á h5.
34. Re7+ — Kf8, 35. Bxg7+?
Miklu sterkara var að leika 35.
Rc6! strax og svartur er glatað-
ur. T.d. 35. - Dxg5, 36. h4! -
Dh6, 37. De7+ - Kg8, 38. Dxg7
og vinnur og drottningarfórnin
35. — Bxb2 stoðar ekki heldur:
36. Rxd8 - Bd4+ (37. - Bxa3, 38.
h3 er ámóta vonlaust) 37. Kfl —
Re3+, 38. Kel - Bc3+, 39. Kf2 -
Rg4+, 40. Kfl o.s.frv.
35. — Kxg7, 36. Rxc8
Nú strandar 36. Rc6 á Dxg5
því cl-reiturinn er óvaldaður.
36. Hxc8, 36. Hxa6
Hér var áreiðanlega betra að
leika 37. h3 því 37. - Dxg5?
gengur ekki vegna 38. Hxg4 —
Dcl+, 39. Kh2 - Dxa3, 40. De7+
og hrókur svarts verður skákað-
ur af.
37. — Dxg5, 38. Hxd6 — h4!
Dæmigert fyrir Larsen, hann
blæs til sóknar þegar flestir
myndu treysta varnirnar. Sókn
er líka bezta vörnin.
39. gxh4 — Dxh4, 40. h3 — Rf6,
41. De5 — Dg5
og þó svarta staöan sé enn mun
lakari, hann hefur peði minna,
tókst Larsen að hanga á jafntefli
um síðir.
Þessi skák skipti e.t.v. sköpum
fyrir báða keppendur, eins og sjá
má, hefði Helgi átt að vinna
skákina, en hins vegar varð
niðurstaðan sú að Helgi vann
enga skák á mótinu, en Larsen
tapaði engri.
Skákin sem kom okkur Larsen
báðum á skrið:
Áður en Larsen mætti mér í
annarri umferðinni hafi hann
teflt biðskákina við Helga og
stóð enn verr þegar hún fór aft-
ur í bið. Hann tefldi byrjunina
heldur ekki sérlega sannfærandi
gegn mér, en náði samt að
byggja upp þokkalega stöðu.
Þegar saxast hafði mikið á tíma
beggja keppenda kom upp mjög
athyglisverð staöa:
Svart: Margeir Pétursson
llvítt: Bent Larsen
Það er skemmtilegt ójafnvægi
í peðastöðunni, en jafnframt er
staðan afskaplega vandtefld.
Svartur stendur hér vel að vígi
og á ýmsa góða möguleika, sem
nægja þó ekki til vinnings gegn
beztu vörn. Stórkostleg hróks-
fórn kemur t.d. vel til greina:
36. - Hxf4!?, 37. Hxf4 - Hxe5,
(37. — c3 kemur einnig sterklega
til greina, en svartur verður að
þráleika eftir: 38. Hfl — Hxe5,
39. Kf2! - Hf5+, 40. Kgl - He5,
41. Kf2?, 38. Kf2 (Ekki 38. Hff3!
- c9, 39. Del — c2, 40. Dcl —
Hxd5! 41. Hfl — Hdl, og vinnur)
og nú á svartur ekkert betra en
39. — Dxd5+, 40. Kf2 - Dc5, 41.
Kf3! —Dd5+, með jantefli því 39.
- c2? er svarað með 40. Hxe5! og
hvítur vinnur.
36. — *5? er og hægfara vegna
37. e6! - f5, 38. Dd2 - b4, 39. d6
- c3, 40. d7 - Hd8, 41. e7 -
dxe7, 42. Hxe7 — cxd2, 43. Hxd2
og vinnur.
Bent Larsen
36. — h3!? er freistandi, til að
veikja hvítu kóngsstöðuna, en sá
leikur hefur þann slæma ókost
að Hg4 verður gjörsamlega
óvirkur eftir 37. g3!. Ég valdi
fjórða leikinn sem stóð til boða:
36. — c3, 37. Hxc3! — Hxg2+?
Rangt stöðumat í tímahraki.
Ég sá vitanlega að ég hafði jafn-
tefli í hendi mér með 37. — Dxc3,
en vildi nota tækifærið og veikja
hvítu kóngsstöðuna. Hins vegar
vanmat ég gjörsamlega hin öfl-
ugu miðborðspeð hvíts og það
kostaði skákina. Eftir 37. —
Dxc3, 38. Dxg4 - Dcl+, 39. Hfl
- Dc5+, 40. Khl - Dxd5, 41.
Dxh4 vinnur svartur alltaf peðið
til baka með góðri stöðu: t.d. 41.
- Dd3!, 42. Hal - Dd4.
38. Kxg2 — Dxc3, 39. Hf3! — Dc8.
svartur teflir ónákvæmt, en
sennilega varð taflinu ekki
bjargað.
40. 15 — Dc5, 41. De4 — Hc8
Biðleikurinn. Nú er 42. e6 ein-
faldast en Larsen fer lengri leið:
42. d6 — Dcl, 43. Kh3!
Þarna er hvíti kóngurinn
óhultur í skjóli svarta peðsins á
h4 — Hc4, 44. De3 — Ddl, 45. e6
- fxe6, 46. Dxe6+ — Kh7, 47.
Dg6+ - Kg8,48. De8+ - Kh7,49.
Dh5+ — Kg8, 50. f6! og svartur
gafst upp.
Þar með var Larsen kominn í
gang, í næstu umferð malaði
hann landa sinn Kurt Hansen.
Seinna á mótinu varðist hann
kóngssóknum þeirra Jóns L.
Árnasonar og Van der Wiels og
rúsínan í pylsuendanum var hár-
fín stöðuskák gegn Jusupov, sem
kallar þó ekki allt ömmu sína í
þeim efnum. Larsen innsiglaði
síðan sigurinn með stórmeist-
arajafntefli við Spassky, sem olli
öllum miklum vonbrigðum.
Heimsmeistarinn fyrrverandi
hefði átt að vita að hér uppi á
Fróni eru hvorki hræðsla né leti
fullnægjandi afsakanir fyrir
slíku háttalagi.
í næstsíðustu umferðinni náði
Jóhann Hjartarson að þjarma
mjög að Larsen, en þá sýndi
Daninn að hann getur einnig
varist af þolinmæði í erfiðri vörn
og hélt sínu.