Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 48
48
MORGUNBLÁÐIt), ÞRIDJUOAGUR 5. MAR2 1985
ffclk f
ffréttum
Bæring Elísson,
fyrrum bóndi
í Bjarnarhöfn
Par mánaðarins?
Boy George heitir sá t.v. á myndinni og má þekkja
hann á margra kílómetra færi, „vinur“ hans til
hægri hefur ekki verið nafngreindur, en þetta glæsi-
lega par mátti sjá „spásserandi" á Piccadilly Cirkus
kvöld eitt fyrir skömmu, eftir að hlýna tók dálítið í
Lundúnum og næturlífið að færast í sitt fyrra líf-
lega horf. Grunur lék á, að „vinurinn" væri karlkyns,
en þó treysti enginn sér til að slá því föstu. En hafi
verið ætlunin hjá George að hneyksla, sem þó er alls
ekki víst, þá tókst það varla, því fólk er hætt að
kippa sér upp við uppátæki hans...
Efsta myndin
mun vera af tjöl-
skyldunni í Lúx-
us-lífi og þau
leika Eygló,
Linda og Jónas.
Síðan kemur
Kindin og táning-
urinn, Elsa og
Jóna og neðst
þorrablótlslend-
inga í Lux nú í
febr. sl. þar sem
leikfélagið Spuní
sýndi leikþáttinn
Lúxus-ltf.
Aþorrablóti íslendinga
sem haldið var í Lux-
emborg nú í febrúar sl.,
frumsýndi leikklúbburinn
„Spuni“ leikþáttinn
Lúxus-líf.
Þessi grínþáttur fjallar
öðrum þræði um lífið og
tilveruna hjá íslendingum
búsettum í Luxemborg og
um gestakomur frá ís-
landi.
Þá má geta þess að
„Spuni“ hefur starfað í
nokkur ár og sl. ár setti
hópurinn upp barnaleikrit
eftir Pétur Gunnarsson
undir stjórn Þórunnar
Sigurðardóttur.
Þá sýndu þau m.a. f
París, á torginu fyrir
framan Pompidou-safnið.
Á stefnuskrá er að
setja á svið leikrit nú með
vorinu sem gæfi ieikhópn-
um e.t.v. möguleika á að
koma heim og sýna land-
anum það.
„Lúxus-líf‘
í Luxem-
borg
Bæring Elísson, fyrr-
um bóndi í Bjarnar-
höfn á Snæfellsnesi, hefur ver-
ið starfsamur um dagana. í
Bjarnarhöfn rak hann
eitt umfangsmesta bú á 1
Snæfellsnesi og eftir að hann
flutti til Stykkishólms
hafði hann búskap og
var m.a. verkstjóri hrepps-
ins en nú hefur sonur hans,
Högni, tekið við því starfi.
Bæring og kona hans,
Áróra Friðriksdóttir, búa í
hjarta Stykkishólms, á Borg,
en það hús lét Ágúst Þórar-
insson kaupmaður
byggja á sínum tíma.
Bæring verður 86 ára í •
vor og er enn hinn hress-
asti.
Slúðursérfræðingar
urðu fyrir vonbrigðum
Allar vangaveltur um að Brooke Shields og Anthony Delon væru
eitthvað að bralla saman í einkalífinu fengu sannkallað logn undir
báða vængi ef við leyfum okkur að laga orðatiltækið góða að aðstæðum.
Það var álit slúðursérfræðinga að eitthvað væri í gangi á umræddum
bæjum, og var þess beðið í ofvæni að bæði færu í skíðafrí til Gstaadt. Nú
er það skíðafrí um garð gengið, Brooke og Anthony fóru bæði til Gstaadt
og renndu sér á skíðum, einkum Brooke, Tony var meira á stjái er
rökkva tók. En aldrei hittust þau, það fullyrða þeir sem hafa ekkert
betra að gera en fylgjast með þessu fræga fólki. Sum sé, ekkert ævintýri
Brooke hress og sæt í snjónum
Allir syngja
nú saman ...
Það svífur mikil vinátta yfir
vötnunum hjá Jermain Jack-
son, bróður Michaels Jackson,
annars vegar og Piu Zadoru hins
vegar. Pia er nýlega komin heim
af heilsuhæli eftir barnsfæðing-
una, tágrönn og spengileg, og hef-
ur nú sungið „dúett" með Jermain,
sem ætlunin er að slái rækilega í
gegn. Til að fylgja lagi sínu eftir
hafa þau látið gera myndsegul-
bandsupptöku af flutningi lagsins
þar sem Jermain að sögn lemur
gítarstrengi og og Pia dansar og
syngur af krafti fremur klæðlítið
innan um mótorhjól og harða
karla. Þau fylgdust saman með
kvikmyndahátíð i Frakklandi
fyrir skömmu og þá var þessi
mynd tekin af þeim, í sleða í
snjónumí frönsku Ölpunum. Er
hér heldur friðsamlegra og ró-
legra heldur en á umræddu mynd-
segulbandi. Ekki fer enn sögum af
vinsældum myndsnældunnar og
lagsins góða, en ýmsir hafa orðið
til þess að stinga upp á því, að ef
Pia hefði viljað slá í gegn hefði
verið nær að vinna lag í samvinnu
við Michael Jackson ...