Morgunblaðið - 05.03.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
• 10100 KL. 11-12
I FRÁ MÁNUDEGI
1 TIL FÖSTUDAGS
t i\t m
Eftirminnilegt
Jökulskvöld
Ragnheiður Jónsdóttir skrifar:
Laugardaginn 19. janúar síð-
astliðinn var samkoma í félags-
heimilinu Ýdölum í Aðaldal og
fyrir henni stóð Umf. Mývetning-
ur í Mývatnssveit. Það sem fór þar
fram var kynning á verkum Jökuls
Jakobssonar, nefnt „Jökulskvöld".
Bókmenntakynning þessi hafði áð-
ur verið flutt á síðastliðnu vori í
Skjólbrekku í Mývatnssveit og
einnig þar kvöldið áður en hún var
flutt í Ýdölum. Kynningin hófst
með því, að Sveinn Einarsson
fyrrv. leikhússtjóri flutti erindi
um lífsferil og ritstörf Jökuls. Síð-
an var samlestur eða leiklestur,
fyrsti þáttur leikritsins „Klukku-
strengir". Þar á eftir var lesin
smásagan „ Revuar Nicolai".
Síðasti hluti dagskrárinnar var
leikritið „Afmæli í kirkjugarðin-
um“. Skemmst er af því að segja,
að þó þarna væru einungis áhuga-
menn að verki, en ekki lærðir leik-
arar, var flutningur alls efnisins
með þeim ágætum, að ekki er rétt
að þess sé hvergi að neinu getið.
Leikritið „Klukkustrengir" var
skrifað að tilhlutan Leikfélags
Akureyrar og frumflutt af því á
Akureyri en hefur verið sýnt víðar
en þar. Það gerist í miðlungs stóru
bæjarfélagi þar sem flestir vita
allt um alla og ef þeir vita það
ekki, þá geta þeir sér til um það.
Allt sem er aðkomið og óþekkt
verður íbúum bæjarfélagsins
kærkomið viðfangsefni til orðs og
æðis. Hér var horfið frá hefð-
bundnu leikformi eins og áður var
sagt, en notað annað form, ein-
faldara í meðförum. Samlestur
eða leiklestur er að vissu leiti
vandmeðfarinn, þar sem hann gef-
ur ekki sömu möguleika til tján-
ingar eins og sviðsett leikrit, en
öllu var skilað með ágætum af
þeim sem með hann fóru, en þau
voru sjö talsins.
Sagan Revuar Nicolai greinir
frá nokkrum ævistundum í lífi
gamallar konu sem gefa þó sýn
yfir lífsferil heillar fjölskyldu.
Sagan er snilldarverk og i með-
förum upplesara jók hún gildi sitt.
Leikritið „Afmæli í kirkjugarð-
inum“ var þó e.t.v. það sem skildi
mest eftir. Það mun ekki mikið
þekkt, samt hefur það verið leikið
í útvarp, en frumflutningur á sviði
var á bókmenntakynningu þessari
í Skjólbrekku á siðastliðnu vori.
Þar segir frá tveimur Jónum „Jón“
og „Hinn Jón“, sem vinna við hirð-
ingu á kirkjugarði í Reykjavík,
einnig frá vel fullorðinni konu sem
heimsækir gröf látins eiginmanns
þrisvar í viku og situr þá gjarnan
þar með handavinnu sína. En ein-
mitt þennan dag hafði hinn látni
átt afmæli.
Þetta er í senn meinfyndið og
djúpalvarlegt verk.
Ekki er ætlunin að tíunda
frammistöðu einstaklinga því þar
mátti vart á milli sjá, en segja
verður þó, að persónan „Hinn Jón“
hafi orðið eftirminnilegust. Ein-
stæðingsskapur og umkomuleysi
þessa Jóns var sýndur af hófsemi
og nærgætni og á þann hátt að
engum duldist, að þrátt fyrir allt
hélt þessi auðnuleysingi sinni
mannlegu reisn.
Of oft hafa þeir sem fara með
hlutverk af þessum toga, fallið I
þá freistni að undirstrika per-
sónuieikann með kækjum — ræsk-
ingum — hummi og þessháttar,
sem nær ekki öðru en því, að gera
persónuna afkáralega, en hér var
slíku sleppt.
Þegar Umf. Mývetningur réðst í
að kynna verk Jökuls Jakobssonar
snéru forráðamenn félagsins sér
til aðstandenda skáldsins og báðu
þá um að benda á einhvern þann
sem þeir treystu til að flytja er-
indi um æfi hans og störf. Þeir
óskuðu eftir að Sveinn Einarsson
yrði fenginn til þess, þar sem þeir
Jökull hefðu verið vinir frá æsku
Jökull Jakobsson
og samstarfsmenn á fullorðinsár-
um. Erindi Sveins var svo sem
vænta mátti fróðlegt og skemmti-
legt, samið af næmum skilningi,
þekkingu og vinarhlýju.
Það er mikil uppörvun fyrir fólk
út um landsbyggðina að fá slíkan
mann sem Svein Einarsson til
hjálpar og samvinnu, þegar ráðist
er í svo viðamikið verkefni sem
þessa bókmenntakynningu. Sveinn
sýndi ungmennafélaginu mikia
velvild og heiður með sínu fram-
lagi og sparaði þar hvorki tíma né
fyrirhöfn. Þá er ekki minna vert
um þá viðurkenningu sem hann
með þessu sýndi því menningarlífi
sem reynt er að halda uppi um
hinar dreifðu byggðir landsins, en
alltof fáir gefa gaum.
Um langt árabil hafa ýmis fé-
lagasamtök í sveitum og bæjum
verið öðru hvoru að koma á kynn-
ingu á verkum skálda okkar.
Sjaldan hefur heyrst af því að þær
uppfærslur hafi verið fengnar til
flutnings innan skólanna. Slíkar
kynningar gætu þó veitt skólafólki
meiri þekkingu og innsýn og vakið
meiri áhuga, en margar langar
kennslustundir.
Þess væri óskandi að sú starf-
semi sem félagasamtök á lands-
byggðinni hafa haldið uppi á þessu
sviði geti áfram haldið sínu lífi og
reisn og almenningur sýni í verki,
að hann kunni að meta það menn-
ingarframlag og njóta þess.
t
Eigum nú nokkrar
notaðar
tölvuvogir
með eða án miðaprentara.
Gott verd —
Greiðslukjör
Seljast í ábyrgð
sem nýjar.
Plnsl.us liF
Bíldshöfða 10,110 Rvk.,
sími 82655.
TÖLVU
COBOL
MARKMIÐ
Tilgangur þessa námskeiðs er að kenna undirstöðuatriði við
forritun í COBOL. Farið er í helstu skipanir forritunarmálsins
og þær útskýrðar. Meginupptaka námskeiðsins verður í formi
verkefna og að námskeiði loknu eiga menn að vera færir um að
leysa eigin verkefni.
Lilja telur of mikið fyrir unglinga að borga 18 kr. í strætisvagnana.
Af hinu og þessu
Lilja skrifar:
Kæri Velvakandi.
Mig langaði til að koma eftir-
töldu á framfæri: Sjónvarpið
mætti gjarnan sýna Dallas aftur.
Ég er ekki sammála því að sýna
eigi sálarflækjur, kínverskar
myndir eða annað þvíumlíkt á
föstudags og laugardagskvöldum.
Fólk vill sjá eitthvað almennilegt
þá. Og hvað með eina tónleika með
Wham?
Þá vil ég þakka útvarpinu, rás 1,
fyrir útvarpssöguna Grant skip-
stjóri. Hún er mjög skemmtileg.
Svo finnst mér að krakkar á aldr-
inum 12 til 15 ára ættu að greiða
unglingafargjald í strætó. Það er
alltof dýrt að borga 18 krónur,
unglingar hafa ekki efni á því. Og
Wham-aðdáendur! Hvar eruð þið
á fimmtudögum? Þið eigið að sitja
við símann og koma ykkar hljóm-
sveit á listann hjá rás 2.
EFNI:
Skipulagning forrita. — Uppbygging á skrám. — Skráar-
vinnsla. — Valmyndafræði. — Forritunarmálið COBOL. Verk-
efni.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað þeim er vilja læra forritun í COBOL.
Enskukunnátta nauðsynleg og einhver þekking á tölvum/-
tölvuvinnsla er æskileg.
LEIÐBEINANDI:
Guðjón Ingi Gestsson
kerfisfræöingur.
Starfaöi áður hjá Reiknistofnun
Hí, en starfar nú sem kerfisfor-
ritari hjá E.J. Skúlasyni hf.
TÍMI:
11.—16. mars, kl. 9—13, samtals 20 klst.
Við kennsluna verður notuð bókin „A simplified quiede to
structured Cobol programming" eftir McCracken, sem þátt-
takendur fá til eignar að námskeiðinu loknu.
TILKYNNIÐ ÞATTTÖKU
í SÍMA 82930.
STJÓRNUNARFÉLAG
ISIANDS
UMÚLA 23
1182930