Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
59
Merki Norður-
landaráðs
MERKI Norðurlandaráðs, sem
nú er notað í fyrsta sinn á þingi
ráðsins. Tákn þjóðanna átta,
sem aðild eiga að ráðinu.
Steingrímur Hermannsson:
Atli Dam lögmaður Færeyja og Jonathan Motzfeldt formaður landsstjórnar Grænlands.
Samvinna verði
aukin á sviði
hátækni, upplýs-
inga og hugvits
„ÞAÐ ER skoðun mín, að mikilvægara verði með hverju ári að hinar
norrænu þjóðir efli samstarf sitt á sviði efnahags- og atvinnumála,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra m.a. í ræðu sinni á þingi Norð-
urlandaráðs í gær.
Um þetta sagði Steingrímur
ennfremur:
„í löndum okkar hefur tekist að
skapa lífskjör, sem eru með því
besta sem þekkist í heiminum.
Þetta hefur verið gert á grundvelli
hefðbundinna atvinnugreina. Þær
hafa vissulega þróast ört og jafn-
vel náð meiri framleiðni og full-
komnun í öðrum löndum. f flest-
um slikum greinum eru nú hins
vegar vaxtarmöguleikar að mestu
nýttir. Svo er í landbúnaði, sjávar-
útvegi og mörgum greinum hins
hefðbundna iðnaðar, eins og t.d. í
skipasmiði, stáliðnaði o.fl. Þetta
er síður en svo einsdæmi um
Norðurlöndin. Sömu sögu er að
segja í öllum hinum vestræna
heimi, og reyndar allstaðar þar
sem þjóðarframleiðsla hefur verið
einna mest á undanförnum árum.
Þjóðirnar leita því nýrra vaxtar-
möguleika og á grundvelli nýrrar,
háþróaðrar tækni hafa þeir
opnast hver af öðrum og jafnvel
meiri en nokkurn gat órað fyrir.
Á sviði hins nýja hátækni- og
upplýsingaiðnaðar skara tvær
þjóðir framúr, Japanir og Banda-
ríkjamenn. í grein sem nýlega
birtist í hinu þekkta tímariti Eco-
nomist, var því haldið fram, að
Evrópa hefði þegar dregist svo
langt aftur úr á þessum sviðum,
að álfan nálgaðist það að teljast
til vanþróaðra landa. Fyrir þessu
voru færð mörg tðluleg rök og því
haldið fram, að bilið mundi
breikka jafnt og þétt, ef markvisst
og skipulagt átak yrði ekki þegar
gert.
Á Norðurlöndunum er að minu
mati að ýmsu leyti mjög góður
grundvöllur fyrir hinn nýja iðnað.
Almennt mennta- og menning-
arstig er hátt, jafnvel með því
hæsta í heimi. Fólkið er viður-
kennt sem dugmikið og útsjónar-
samt. Tekist hefur að skapa al-
menna velferð þannig að örbirgð
og fátækt eru ekki almennt vanda-
mál. Viðurkennt er og staðfest, að
hinar nýju iðngreinar þróast og
dafna best í slíku andrúmslofti og
í litlum einingum. Það veldur hins
vegar nokkrum erfiðleikum, að
markaðurinn heima fyrir er lítill.
Þótt samstarf á ýmsum hefð-
bundnum sviðum atvinnulífs geti
verið æskilegt, vil ég leggja
áherslu á hin nýju svið hátækni,
upplýsinga og hugvits, og legg
áherslu á, að Norðurlandaráð
stuðli að auknu samstarfi á þeim
sviðum."
Krlendir þingfulltrúar koma til Þjóóleikhússins. Annar frá hægri er Kaare Willoch forsætisráðherra Noregs.
Eiöur Guðnason, formaður menningarmálanefndar:
Nordsat ekki að
en málinu verði
í almennum umræðum á þingi Norðurlandaráðs benti Eiður Guðnason,
formaður menningarmálanefndar Norðurlandaráðs, i, að vegna þeirrar
málsmeðferðar sem „Nordsat" hefur fengið muni íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur horfa á sjónvarpsútsendingar í gegnum gervihnetti frá V-Þýzkalandi,
Hollandi, írlandi og Ítalíu, áður en samnorræn gervihnattaútsending verður
að veruleika. Hann hvatti til þess að málinu yrði haldið vakandi í framtíðinni
þó það fengi ekki afgreiðslu á þessu þingi. Hugmyndin hafi verið góð og
verði það áfram.
í máli hans kom fram að nauð-
synlegt væri að auka fjárframlög
til samnorrænna menningarmála.
„Það vantar peninga, ekki hug-
myndir," sagði Eiður.
í fyrsta lagi stóraukið fjár-
framlag til Norræna menning-
armálasjóðsins. Nýtt átak og
ráðstafanir i samvinnu alþýðu-
fólks og æskulýðs. Aukin áhersla á
samvinnu fjölmiðla. Ekki ein-
göngu á tæknisviði heldur einnig á
dreifingu efnis. Þá mætti ræða
aukna samvinnu Norðurlanda í
kvikmyndun, bæði innan og utan
Norðurlanda, og auknum fjár-
framlögum til þeirra mála.
Auka bæri samvinnu um menn-
ingarmál landanna á vestursvæð-
inu og þeirra, sem eiga lönd að og
við Norðurheimskautsbaug og þá
sérstaklega með samband Græn-
lands við hin Norðurlöndin í huga.
Samvinna á sviði rannsókna
hefur dregið að sér athygli eftir að
rannsóknarráði hefur verið komið
á. En hraða ber uppbyggingu þess
og auka fjárveitingar fyrir nám-
skeið og styrki til vísindamanna.
Á sviði menntamála má nefna
sameiginlegann vinnumarkað
fyrir kennara, samræmd háskóla-
próf og háskólagráður og sam-
ræmi í norrænum kennslugögnum
og kennsluáætlunum. Mikilvægt
er að auka tungumálaskilning
milli landanna og áætlun um nem-
endaskipti ætti að vera hægt að
veruleika í bráð
haldið vakandi
Eiður Guðnason
framkvæma. Ráðstefna um þau
mál verður haldin á vegum menn-
ingarmálanefndarinnar næsta
haust.
Þegar um atvinnuaukningu í
framtíðinni er að ræða ætti mik-
ilvægi menningarmála að aukast.
Á sviði tölvutækni er nauðsynlegt
að þróa sérstakt kerfi, sem hjálp-
artæki við kennslu fyrir norrænar
aðstæður.
Áhersla á þróun norrænnar
menningarsamvinnu verður jafn-
vel að fylgja eftir með þjóðlegum,
svæðisbundnum og staðbundnum
áætlunum.
Ennfremur sagði hann, „Ég er
neyddur til að nefna tvö önnur
mál, sem koma norrænni sam-
vinnu við. Eins og kunnugt er, er
75% af útflutningi okkar sjávaraf-
urðir, tilvist okkar sem þjóðar
byggir á fiskveiðum. Þess vegna
höfum við áhyggjur þegar ein
samstarfsþjóð okkar hér í norðri,
vissulega eins og mörg önnur lönd,
hefur rekið sjávarútveg sinn með
auknum ríkisstyrk."
,.Það er Noregur sem ég á við.
Ég veit að í Noregi segja menn að
hér sé eingöngu um svæöispólitik
að ræða, en okkar menn í fisk-
iðnaði eru mjög áhyggjufullir yfir
þesssari þróun. Samkeppni er góð,
en hún verður að byggja á sama
grundvelli. Við getum aldrei
styrkt okkar sjávarútveg, en ef þið
haldið því áfram leiðir það til
versnandi lifskjara fyrir okkur.“
„í öðru lagi nefni ég hval- og
selveiðar, sem hafa í mörg hundr-
uð ár verið mikilvægur þáttur í
efnahags- og menningarlífi Nor-
egs, Grænlands, Færeyja og ís-
lands. í þessum málum hafa ný
sjónarmið komið fram á síðustu
árum. Fólk sem lítið eða ekkert
þekkir til lífsins og menningar á
norðlægum slóðum, en virðast
hafa nægt fé, hefur ráðist að þess-
um atvinnugreinum. Og beitir því,
sem mætti kalla efnahagslegri
skemmdarstarfsemi. Við búum í
hrjóstrugum löndum, og við reyn-
um að halda uppi fullri atvinnu. í
skjóli náttúruverndar vinna þessir
hópar að því að skapa atvinnuleysi
á svæðum í norðri sem ekki geta
snúið sér að neinu öðru en nýtingu
þeirra náttúruauðlinda sem þar er
að finna. Góður málstaður nátt-
úruverndar hefur verið misnotað-
ur á örlagaríkan hátt. Við höfum
látið þetta viðgangast og næstum
því ekki sagt neitt.“
„Nú er vissulega kominn tími til
að Norðmenn, Færeyingar, Græn-
lendingar og íslendingar samein-
ist um að verja sig og hagsmuni
sína, sameinist til að verja þennan
þátt menningarlífsins gegn
áhlaupi öfgasamtaka. Samein-
umst um að gera grein fyrir okkar
máli, leggjum fram rök byggð á
skynsemi með stuðningi af vís-
indalegum staðreyndum. Látum
ekki öfgahópa einoka umræðurn-
ar. Vinnum að því að þeir sem búa
í norðlæga hluta landanna geti
óhindrað nýtt þær náttúruauð-
lindir sem þar finnast, nýtt þær í
samræmi við eðlileg náttúru-
verndarsjónarmið. Fáum við ekki
að nýta þær auðlindir sem eru
fyrir hendi, verður ekki mögulegt
að halda nyrsta hluta Norður-
landa í byggð.“