Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 60
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Ríkissaksóknari:
„Þráin að komast á sjó
heitstrengingum sterkari"
Á fjölmennum fundi í Sjómanna-
félagi Eyjafjarðar fór fram leyni-
leg atkvæðagreiðsla. Mikil óánægja
kom fram með samninginn og sam-
þykktu fundarmenn nánast sam-
hljóða að hafna tilmælum um
frestun verkfalls. í Siglufirði var
fundi um samkomulagið frestað og
því ekki róið þaðan.
RLR rannsaki
kaffibauna vid -
— Skipstjórinn á Pelagusi aftur
kominn til Vestmannaeyja
Vegtmannaeyjum, 4. mars.
„ÉG HÉT l*VÍ með sjálfum mér eftir slysið að fara aldrei aftur á sjóinn, en
ég er og hef alltaf verið sjómaður og þráin eftir því að komast aftur til sjós
blundaði alltaf í undirmeðvitund minni og varð fljótlega öllum heitstreng-
ingum yfirsterkari. Ég var fjóra mánuði í landi eftir slysið, mest vegna
meiðsla á fæti sem ég hlaut þegar ég var dreginn í land. Síðan gerðist ég
skipstjóri á togara í Norðursjónum og þá var ég í sex mánuði kennari við
sjómannaskóla."
Þetta sagði Brys Gustaaf skip-
stjóri á belgíska togaranum
Henri Jeanine frá Ostende, en
hann var skipstjóri á öðrum belg-
ískum togara, Pelagus, sem þann
21. janúar 1982 strandaði austan
á nýja hrauninu á Heimaey í
samtali við fréttaritara Mbl.
Hann kom að þessu sinni til Vest-
mannaeyja til að koma mikið
sjúkum skipverja undir læknis-
hendur hér á sjúkrahúsinu.
Þennan örlagaríka dag, þegar
Pelagus strandaði, voru aðstæður
á strandstað mjög slæmar, hvass
álandsvindur og mikið brim við
grýtta ströndina. Sex mönnum
var bjargað við illan leik á land
úr togaranum en tveir skipverjar
drukknuðu. Þá fórust tveir ungir
Morjfunbladiö/SÍRurþíeir
Brys Gustaaf skipstjóri í brúnni á
skipi sínu, Henri Jeanine.
björgunarmenn úr Eyjum, læknir
og sveitarforingi Hjálparsveitar
skáta í Eyjum, þegar þeir voru að
reyna að bjarga nauðstöddum
mönnum úr skipinu. Brys Gust-
aaf skipstjóri var hætt kominn
þegar verið var að draga hann til
iands úr skipinu í björgunarstól,
línan festist og varð að skera
stólinn lausan og sjódraga skip-
stjórann í gegnum brimskaflinn á
þurrt.
Nú þremur árum eftir þetta
hörmulega slys var Brys Gustaaf
aftur kominn til Vestmannaeyja.
Sagði hann að þetta væri fyrsti
túrinn á fslandsmið eftir Pelag-
us-strandið. Hann sagði enn-
fremur að allir sjómennirnir sem
hefðu bjargast hefðu haldið
áfram sjómennsku og einn þeirra
væri með honum á Henri Jeanine,
þó ekki í þessum túr. — hkj.
Á fundi í Neskaupstað var sam-
komulagið fellt með 20 atkvæðum
gegn 18 og einn seðill var auður. Á
Eskifirði greiddu 28 atkvæði gegn
samkomulaginu, en 3 sögðu já, einn
seðill var auður og einn óútfylltur.
Helstu ákvæði samkomulagsins
eru þau, að kauptrygging hækkar í
27 þúsund krónur. Lífeyrisgreiðsl-
ur af launum skulu samræmdar og
örorku- og dánarbætur hækkaðar.
Fæðispeningar hækka um 25%.
Hækki laun hjá fiskiöj ufólki eftir
1. maí, hækkar kauptrygging til
samræmis. Samningurinn gildir til
áramóta 1986/87 og er uppsegjan-
legur með mánaðar fyrirvara.
Verði honum ekki sagt upp fram-
lengist hann um hálft ár með sama
uppsagnarfresti.
Sjá viðtöl við deiluaðila, sem tek-
in voru eftir undirskrift sam-
komulagsins í gærdag, á bls. 4.
skipti SÍS
RÍKISSAKSÓKNAKI hefur lagt fyrir Kannsóknarlögreglu ríkisins að hefja
opinbera rannsókn á „kaffibaunamálinu", sem svo hefur verið nefnt, inn-
flutningi Sambands íslenzkra samvinnufélaga á kaffibaunum frá Brazilíu í
gegnum Nordisk Andelsforbund, innkaupasamband samvinnufélaga á Norð-
urlöndum. Rannsóknin beinist meðal annars að hugsanlegum fjársvikum og
gjaldeyrisbrotum.
Umfangsmikil rannsókn á veg-
um skattrannsóknarstjóra og
gjaldeyrisdeildar Seðlabankans
fór fram á bókhaldi SÍS og dótt-
urfyrirtækisins, Kaffibrennslu
Akureyrar.
í Ijós kom að Sambandið fram-
vísaði reikningum án þess afslátt-
ar, sem sölufyrirtæki í Brazilíu
veitti, þegar fengnar voru gjald-
eyrisyfirfærslur til að borga fyrir
Lögreglan hefur
afskipti af ólög-
legu hundahaldi
LÍÍGREGLIINNI í Reykjavík hafa
borist 14 erindi frá Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkur þar sem farið er
fram á afskipti lögreglunnar vegna
ólöglegs hundahalds í borginni. I
þcssum tilfellum hafa viðkomandi
hundaeigendur látið undir höfuð
leggjast að sækja um undanþágu til
borgaryfirvalda eins og lög gera ráð
fyrir, en frestur til að sækja um und-
anþágu rann út hinn 9. febrúar sl.
Oddur Hjartarson hjá Heil-
brigðiseftirlitinu sagði í samtali
við Mbl. að vitað væri um ákveðna
staði þar sem hundar væru án til-
skilinna leyfa. í slíkum tilfellum
væri málið afhent lögreglunni og
kæra borin fram. Samkvæmt
reglugerðinni eru hundarnir tekn-
ir frá eigendum og komið fyrir í
hundageymslu, en eigendur fá
tækifæri til að 'eysa hundinn út
innan 10 daga. Eigandinn verður
þá að sækja um leyfi til borgaryf-
irvalda og greiða áfallinn kostnað
við toku hundsins og geymslu. Ef
hann hirðir hins vegar ekki um að
ganga frá sínum málum innan
þess frests verður viðkomandi
hundi lógað.
kaffið. Yfirfært var fyrir samtals
um 16 milljónir dollara, jafnvirði
um 650 milljónum íslenzkra
króna, en raunverulegar greiðslur
vegna afsláttar voru um 10 xh
milljón dollarar. Mismunurinn
hafnaði í sjóðum SÍS en var
endurgreiddur að mestu leyti til
Kaffibrennslu Akureyrar þegar
rannsókn málsins var hafin.
Viðskiptin annaðist skrifstofa
Sambandsins í Lundúnum. Brazil-
íska fyrirtækið veitti afslátt, en
eftir á. Þegar til að mynda kaffi
var keypt fyrir 200 dollara, þá var
hluti þess veittur í afslátt eða bón-
us, sem kom til frádráttar við
næstu kaffikaup SÍS. Samkvæmt
heimildum Mbl. skortir enn veru-
lega á, að forráðamenn SlS hafi
gert haldbæra grein fyrir því fé,
sem veitt var í afslátt.
Sjómannasamningar:
ALLIR DANSA KONGA
Þaó var glatt á hjalla þegar félagar í æskulýðssamtökum norrænu stjórnmálaflokkanna komu saman á
Naustinu á sunnudagskvöldið. Allir dönsuðu konga með Guðmund Ingólfsson hljóðfæraleikara í broddi
fylkingar. Næstur honum er Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra sem flutti ræðu. Þá má sjá Erlend Krist-
jánsson, Geir Haarde og Sighvat Björgvinsson.
Samkomulagið mætir víða
mikilli andstöðu sjómanna
MIKIL andstaða er meðal sjómanna
gegn samkomulagi Sjómannasam-
bands íslands og Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna. Samningarnir
voru felldir í Neskaupstað og á Eski-
firði. f Eyjafirði, á Suðurnesjum og
Skagaströnd var tilmælum samninga-
nefndar Sjómannasambandsins um
frestun verkfalls hafnað, en fram fór
leynileg atkvæðagreiðsla um sam-
komulagið. í Siglufirði var fundi
frestað. Á fundum í Keykjavík og
Hafnarfirði var samþykkt að fresta
verkfalli frá miðnætti þar til úrslit
leynilegrar atkvæðagreiðslu liggja
fyrir og standa þannig á bak við
ákvörðun samninganefndarinnar um
frestun verkfalls. Einnig samþykkti
samninganefnd Sjómannasambands-
ins að atkvæði skyldu talin úr einum
potti, fyrir utan Austfirði, þar sem
samkomulagið kom til atkvæða-
greiðslu í hinum cinstöku félögum.
Á fundi í Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur og ná-
grennis í gærkvöldi var mikil and-
staða gegn samningunum og voru
uppi háværar raddir um að at-
kvæði skyldu talin heima í héraði
og ekki yrði tekið tillit til óska
samninganefndar Sjómannasam-
bandsins um sameiginlega talningu
á öllu landinu.
Þó var samþykkt að vera með í
sameiginlegri talningu, en tilmæl-
um samninganefndarinnar um
frestun verkfalls á miðnætti var
hafnað. Samþykkt var að afhenda
Sjómannasambandinu ekki at-
kvæði fundarmanna fyrr en allir
netabátar, sem lagt hefðu net í
verkfalli, hefðu tekið upp net sín.
Á fundi á Skagaströnd fór fram
leynileg atkvæðagreiðsla um sam-
komulagið, en fram kom mikil
óánægja meðal sjómanna, sem
höfnuðu tilmælum Sjómannasam-
bandsins um frestun verkfalls frá
miðnætti.