Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C 81. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kjarnorkuvopnamál: Eldflaugatillögu hafnað en funda- höld framundan Brtawl, WukiBftoo, Moekvu, 10. apriL AP. UTANRÍKISRÁÐHERRA Holiands sagði í dag eftir þriggja klukku- stunda vióræóur vió Gromyko, utanríkisráóherra Sovétríkjanna, aó í þeim hefói ekkert nýtt komió fram. Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og Gromyko ætla að hittast í Vín 14. maí nk. Fjórir banda- rískir þingmenn hittu í dag Gorbachev aó máli í Moskvu. Hans van den Broek, utanrík- isráðherra Hollands, átti í dag þriggja klukkustunda langar viðræður við Gromyko, utanrík- isráðherra Sovétríkjanna, og var við því búist, að þar yrði lagt fast að Hollendingum að hætta við að setja upp meðaldrægar eldflaugar í landinu. Að viðræð- unum loknum sagði van den Broek, að Sovétmenn hefðu ekk- ert nýtt fram að færa og að stað- ið yrði við fyrri ákvarðanir um uppsetninguna. Flestir leiðtoga NATO í Vestur-Evrópu hafa hafnað tillögu Gorbachevs, leið- toga Sovétmanna, og sagði t.d. talsmaður vestur-þýsku stjórn- arinnar, að tillagan væri i raun ekki um annað en að Sovétmenn hefðu að jafnaði tíu sinnum fleiri eldflaugar i Evrópu en vestræn ríki. Embættismenn í bandaríska utanríkisráðuneytinu skýrðu frá því í dag, að þegar Sovétmenn hefðu síðast ákveðið að hætta uppsetningu eldflauga, frá því í mars 1982 til nóvembers 1983, hefði sá tími vefið notaður til að koma fyrir 70 SS-20-eldflaugum með 210 kjarnaoddum. Fram- kvæmdir, sem nú stæðu yfir við ný eldflaugastæði, bentu einnig til, að fyrirhugað væri að fjölga flaugunum enn frá því, sem nú er. Skýrt var frá því í Washington og Moskvu i dag, að þeir utanrík- isráðherrarnir Shultz og Grom- yko muni eiga með sér fund í Vín 14. maí nk. Að sögn bandarískra embættismanna munu afvopn- unarmálin verða ofarlega á baugi en ekki aðeins þau heldur einnig Afganistan og mannrétt- indamál. Fjórir bandarískir þingmenn með Thomas P. O’Neill í broddi fylkingar áttu í dag nærri fjögurra klukku- stunda fund með Gorbachev í Moskvu og færðu honum bréf frá Reagan, Bandaríkjaforseta. Að fundinum loknum sagði O’NeiIl, að skipst hefði verið á skoðunum en augljóslega væri ekki að vænta neinna stefnubreytinga hjá Sovétmönnum. AP/Símamynd A KREMLARFUNDI Thomas P. O’Neill, forseti bandarísku fulltrúadeildarinnar, með Mikhail S. Gorbachev, leiðtoga Sovétmanna. Á milli þeirra stendur sovéskur túlkur. Danmörk: Verkfallsmenn hóta „stjórnlausu landi“ — en Schluter segir ekki stafkrók verða breytt í lögunum K.upm.nn.bofn, 10. april. AP. TUGÞÚSUNDIR manna söfnuð- sinni, að ekki yrði stafkrók ust saman á mótmælafundi fyrir breytt í lögunum um vinnudeil- urnar. Þeir róttækustu meðal verkfallsmanna hóta hins vegar að gera Danmörku að „stjóm- framan danska þjóðþingið í dag en Poul Schliiter, forsætisráð- herra, ítrekaði það enn einu lausu landi“ þar til þeir hafa fengið vilja sínum framgengt. Sakharov-vitnaleiðslurnar í Lundúnum: Hugrekki Sakharovs er lýsandi fordæmi sem ekki mun gleymast sagði Simon Wiesenthal við vitnaleiðslurnar Lowlon, 10. aprfl. Prá GuOmundi Mannúnnyni, Mannréttindi hafa ekki aukist ( Sovétríkjunum á þeim áratug sem liðinn er frá því Helsinki-sáttmál- inn var undirritaður. Á sumum sviðum hefur ástandið versnað. Þetta kom fram í erindum sérfræð- inga og framburði útlægra sov- éskra andófsmanna við Hmmtu al- þjóðlegu Sakharov-vitnaleiðslurn- ar, sem hófust í Lundúnum í morg- un. Efrem Yankelevich, sem er tengdasonur eiginkonu Andreis Sakharov, greindi frá því í upp- hafi vitnaleiðslnanna í morgun, að Sakharov hefði uppi áform um að segja sig úr vísindaaka- demíu Sovétríkjanna og kynni að gera það eftir einn mánuð. Sæti í vísindaakademíunni er mesta virðing sem sovéskum vísinda- manni getur hlotnast og fylgja því margs konar forréttindi. Ef Sakharov segir sig úr akademí- unni verður hann fyrsti vísinda- maðurinn sem það gerir. „Áform Sakharovs sýna að vonleysi hef- ur heltekið hann og hann sér blaðamanni Mbl. ekki fram á bjartari tíma,“ sagði dr. Allan Wynn, sem stjórnar vitnaleiðslunum. Simon Wiesenthal, sem kunn- ur er fyrir leit sína að stríðs- glæpamönnum nasista, flutti ávarp við setningu vitnaleiðsln- anna. Hann sagði að Sovét- stjórnin lifði í þeirri von að hinn frjálsi heimur mundi gleyma Sakharov og konu hans, Yelenu Bonner. Þar skjátlaðist stjórninni hins vegar hrapallega. Hugrekki Sakharovs væri mönnum um heim allan lýsandi fordæmi og hann mundi ekki gleymast. Átakanlegasti viðburður vitnaleiðslnanna i dag var fram- Simon Wiesenthal, sem frægur er nasista, ásamt Efrem Yankelevich fimmtu Sakharov-vitnaleiðslnanna AP/Simamynd fyrir leit sína að stríðsglæpamönnum tengdasyni Sakharovs, við setningu í Lundúnum í gær. burður Victors Davidov, 29 ára gamals sagnfræðings, sem í rösk þrjú ár sætti meðferð á geð- veikrahæli vegna pólitískra skoðana sinna. Sovéskir geð- læknar héldu því fram að David- ov þjáðist af geðklofa og gáfu honum inn geðlyf, sem ollu margs konar ofskynjunum. „Ég hafði heyrt um þessi hæli, en þau reyndust hundrað sinnum verri en ég ímyndaði mér. Tilvist þeirra hefur vakið með mér efa- semdir um manninn sem siðferð- isveru," sagði hann. Sovésku útlagarnir lögðu á það þunga áherslu að athygli fjölmiðla og almennings í hinum frjálsa heimi hefði úrslitaþýð- ingu fyrir örlög andófsmanna i Sovétrikjunum. Fjölmörgum andófsmönnum hefði verið sleppt úr fangelsum, vinnubúðum og af geðveikrahæl- um vegna áskorana frá mann- réttindasamtökum á Vestur- löndum og umfjöllunar vest- rænna fjölmiðla. Sjá: „Sovélmenn etluAu ■Idrei__“ á bls. 22. „Stjórnin mun ekki hopa á hæl í þessu máli,“ sagði Schlúter í viðtali við danska útvarpið í dag og varaði jafnframt landa sína við að trúa því, að einhverju yrði komið til leiðar með því að slita sundur lögin í landinu. Að sögn útvarpsins söfnuðust um 100.000 manns saman úti fyrir Krist- jánsborgarhöll og um 25.000 komu saman í Árósum. Umferð- artruflanir voru víða miklar f Kaupmannahöfn og annars stað- ar þar sem verkfallsmenn lokuðu akbrautum og sömu sögu var að segja um ferjuferðir, sem sums staðar lögðust niður. Flest stærstu verkalýðssam- bðndin hafa hvatt fólk til að láta af mótmælum og hverfa aftur til vinnu sinnar en róttækir menn innan verkalýðshreyfingarinnar, þeir, sem standa vinstra megin við jafnaðarmenn, skora á fólk að halda aðgerðunum áfram. „Við munum ekki gefast upp fyrr en Schlúter hefur hrökklast frá,“ sagði Jan Andersen, sem er úr flokki kommúnista og einn frammámanna vinstri manna i verkalýðshreyfingunni. Aðrir skoðanabræður hans hafa heitið því að gera Danmörku að „stjórnlausu landi" þar til stjórnin afturkallaði lögin um vinnudeilurnar. Schlúter og stjórn hans segja, að sú aðhaldssemi, sem að sé stefnt með lögunum, muni verða til að auka atvinnu í Danmörku, lækka verðbólguna enn frekar og síðast en ekki síst, að greiðslu- jöfnuður þjóðarinnar muni verða hagstæður árið 1989, í fyrsta sinn í rúma tvo áratugi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.