Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1986 £ „Þetta skiptir mig engu máli“ — segir Erró um gagnrýni ísraelsmanna á myndina „Beirut" „ÞETTA skiptir mig engu máli enda er efnið í myndina ekki frá mér komið, heldur tekið upp úr ýmsum blöðum. Ég sendi þeim aðra mynd um leíð og ég frétti um þetta,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, Erró, listmálari í París í samtali við blaðamann Mbl. en sendiráð fsraels í París mótmælti sýningu á málverki hans „Beirut“, sem verið hefur á Biennalinum, alþjóðlegri listaverkasýningu í París, þar sem þeir töldu að í henni fælist gyðingahatur. Erró sagði að fyrir miðjum að- alsýningarsalnum væru 6 póli- tískar myndir frá honum með efni frá ýmsum löndum. fsraels- mennirnir hefðu m.a. verið við- kvæmir fyrir því að sjá skop- mýnd af Begin í nasistabúningi sitjandi á hnjám Hitlers í um- ræddu málverki. Sagðist hann hafa heyrt að sendiráð fsraels hefði fengið mörg hundruð mót- mælabréf út af þessu en hann hefði hins vegar ekkert frétt fyrr en allt var að verða afstaðið og sent þeim nýja mynd um leið. Það hefði ekki tekið nema hálf- tíma. „Ég hefði tekið myndina strax niður hefði ég vitað hvað var á seiði," sagði Erró. Erró sagði að „Beirut" hefði verið sýnd hér heima á listahátíð og enginn hefði amast við henni þá. Hann sagðist jafnframt hafa heyrt að einhver læti væru í Englandi út af annarri mynd sinni sem fjallaði um Falklands- eyjastríðið en vissi ekki nánar um það. Sagði að þetta skipti sig engu máli, hann væri ekki höf- undur þessara skopmynda og væri núna að vinna að allt öðr- um hlutum. Matthías Bjarnason, heilbrigðisráðherra: Engar tillögur borist um fjárveitingar vegna AIÐS „ÞESSI mál heyra alfarió undir land- lækni og hann hefur engar tillögur gert um fjárveitingar til þessa“, sagði Matthías Bjarnason heilbrigðisrið- herra, er hann var spurður, hvort stjórnvöld hefðu í huga að veita fjár- munum til fyrirbyggjandi aðgerða og rannsókna á sjúkdómnum AIDS, áunninni ónæmisbæklun. Matthías sagði ennfremur, að aðrar þjóðir, þar sem sjúkdómsins hefði orðið vart, hefðu varið mikl- um peningum í rannsóknir og að vitaskuld nytum við góðs af þeim. Hann sagði síðan: „Við erum bless- unarlega lausir við þennan sjúk- dóm. Það hefur aðeins orðið vart við eitt tilfelli, sem sagt hefur verið frá i blöðum, og það er ekki hættu- legt. Þá tel ég að erfitt sé að hafa eftirlit með þessu. Við höfum enga skrá yfir þá sem eru í mestri hættu. Það er reynt að fara eins varlega og unnt er i blóðgjöfum en það verður ekki sett upp nein stór rannsóknastofnun vegna þess hér- lendis. Við notfærum okkur það sem hefur verið rannsakað annars staðar." Dalvík: Atvinnulífið tók fjörkipp Itahík, 10. ■fríL EFTIR uppihald f fiskvinnslu á Dalvík yfir páskadagana tók at- vinnulífið að nýju fjörkipp með því að togarinn Björgúlfur landaði ann- an dag páska 123 tonnum af karfa og grálúöu. Þann sama dag kom togar- inn Baldur inn með 40—50 tonn af þorski og rækjutogarinn Dalborg 25 tonn af rækju. t dag er verið aö landa úr togaranum Björgvin 150 tonnum af karfa. Fréttarítarar 4 Færey- ingarí landhelginni FJÖGUR færeysk línuskip voru að veiðum í íslenzku fiskveiðilögsög- unni síðastliðinn þriðjudag sam- kvæmt upplýsingum Landhelgis- gæzlunnar. Voru þau á miðunum undan Suðausturlandi. Færeyingum hefur nú verið út- hlutað 4.250 lestum af bolfiski hér við land, en það er helmingur þess, sem þeir máttu veiða hér við land á siðasta ári. Þá máttu þeir veiða 8.500 lestir, þar af 2.000 lestir af þorski. Stjórnvöld hafa ákveðið að bíða með úthlutun frekara afla- magns þar til ljóst er með hvaða hætti loðnuveiðar verða á næstu vertíð. Alls hafa verið gefin út leyfi fyrir 21 færeyskt línuskip til veiða hér við land og jafnmarga hand- færabáta.___ _____ Happdrætti DAS: Aðalvinn- ingurinn kom á óseldan miða Aðalvinningur í happdrætti DAS á síðasta happdrættisári kom á miða númmer 14773 í aðalumboði, en sá miði var óseldur allt árið. Vinningur- inn var íbúð í vernduðu húsnæði, sem DAS er að reisa ( Garðabæ og er eingöngu ætlað fyrir aldraða og öryrkja. „Við hefðum helst kosið að vinn- ingurinn hefði farið til einhvers, sem hefði getað notið hans,“ sagði Baldvin Jónsson. „En þetta hús- næði er eingöngu fyrir aldraða eða öryrkja. Aðrir mega ekki búa þarna og hefðu orðið að selja íbúð- ina.“ Vinningnum hefur verið skilað aftur og engin endanleg ákvörðun hefur verið tekin um hvort hann verði boðinn sem aukavinningur á næsta ári. Kópavogur: Ekið á fimm- tuga konu TÆPLEGA fimmtug kona slasaðist al- varlega í fyrradag þegar hún varð fyrír bifreið á Alfhólsvegi í Kópavogi. Hún var flutt á slysadeild og síðar á gjör- gæsludeild Borgarspítalans. þar sem hún er enn Konat var að ganga suður yfir Álfhólsveg við Bröttubrekkn um klukkan 16 í t'yrradag er hún varð fyrir fólksbifreið sem ekið var aust- ur Álfhólsveg. Konan er talin al- varlega slösuð Lögreglan i Kópa- vogi biður vitni að atburðinum aö gefa sig fram. Dun-let kraftakjarninn normal Þrisvarsinnummýkra • Þrisvar sinnum auöveldara ■=vvv Ein tappafylli af Dun-let kraftkjarna gef- ur þrefalt meiri mýkt og ferskleika en sama magn af venjulegu Dun-let. í hverjum dropa er nefnilega þrefalt meiri mýkt og fersk- leiki. Flaskan er þrefalt minni — og þess vegna þrefalt léttari aö bera, geyma og skammta úr. Með Dun-let kraftkjarna er þrisvar sinnum auðveldara aö fá þvottinn dúnmjúkan og ilmandi en meö venjulegu Dun-let. af raf magnar f ljótt og örugglega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.