Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 29
MORÖtTNfeLÁÐID, riMMttlOÁCTfe'll. APRÍLÁ9& 29 Kafli úr skýrslu utanrfkisráðherra: Virkir þátttakendur í varnarsamvinnu Hér fcr á eftir kafli úr skýrslu Geirs Hallgrímssonar utanríkisráð- herra um utanrikismál, sem lögð var fram á Alþingi í gær, miðvikudag: Þekking á varnar- og öryggismálum — Varnarmálaskrifstofa í því skyni að öðlast betri yfirsýn og meiri þekkingu á varnar- og ör- yggismálum hefur ráðuneytið und- anfarið lagt áherslu á að efla tengsl við hermálayfirvöld bandalagsins í Brussel og Norfolk. svo og ná- grannaþjóðir okkar. I maí sl. hóf Is- land þátttöku í störfum hermála- nefndar NATO. Fyrir nokkru var haldinn viðræðufundur í London með fulltrúum bresku utanríkis- og varnarmálaráðuneytanna, þar sem skipst var á skoðunum um stöðu mála á Norður-Atlantshafi. Aflað hefur verið upplýsinga frá Norð- mönnum vegna ratsjármálsins og viðræður hafa átt sér stað við starfsmenn Atlantshafsbandalags- ins um ýmsa þætti þessa sama máls. Gagnvart Bandaríkjamönnum og Atlantshafsbandalaginu hefur verið lögð rík áhersla á, að íslensk stjórn- völd fái ávallt upplýsingar um hern- aðarstöðu landsins og ekki sé hafist handa um neinar áætlanir, er snerta varnarstöðu þess, án samráðs við okkur. Við viljum og verðum að vera virkir þátttakendur í varnarsam- vinnu bandalagsins á öllum stigum mála. I skýrslu minni til Alþingis um utanríkismál á sl. ári gat ég þess að athugun stæði yfir á því, hvernig heppilegasta tilhögun yrði á eflingu varnarmáladeildar, bæði með hliðsjón af núverandi umfangi verk- efna hennar og ekki síður i þeim tilgangi að á vegum utanríkisráðu- neytisins verði ávallt til staðar full- nægjandi þekking á varnar- og ör- yggismálum. I því skyni að fram- fylgja þessu markmiði hef ég ákveð- ið þá breytingu á varnarmáladeild, að framvegis verði starfssvið henn- ar aukið í áföngum, m.a. með ráð- ningu sérfræðinga með herfræði- lega og hertæknilega reynslu og menntun. Varnarmáladeild mun framvegis verða sérstök skrifstofa í utanríkisráðuneytinu. Verða verk- efni varnarmálaskrifstofunnar þessi: a) Málefni, er varða framkvæmd varnarsamnings íslands og Banda- ríkjanna, sbr. lög nr. 110/1951; b) Herfræðileg og hertæknileg mál- efni, er lúta að upplýsingaöflun og rannsóknum, þannig að hægt sé hverju sinni að leggja hlutlægt ís- lenskt mat á hernaðarstöðu lands- ins, varnarþörfina og fyrirkomulag varnanna; c) Þátttaka í starfi hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins. Samstarf við varnarliðið og yfirherstjórn Atl- antshafsbandalagsins á Atlantshafi (ACLANT) um gerð áætlana varð- andi varnir íslands. Samskipti við varnarmálaráðuneyti ríkja Atl- antshafsbandalagsins og annarra ríkja eftir ákvörðun utanrikisráð- herra; d) Skýrslugjöf og ráðgjöf fyrir rik- isstjórnina; e) Samstarf við almannavarnaráð og landhelgisgæslu; f) Yfirstjórn mála á varnarsvæðun- um og þeirra ríkisstofnana, sem starfa á eða eru f tengslum við varn- arsvæðin og heyra undir utanrikis- ráðherra, sbr. lög nr. 106/1954 sbr. auglýsingu nr. 96/1969; g) Eftirlit með verktökum og þjón- ustuaðilum, er starfa á varnarsvæð- um. Samskipti við nágrannasveit- arfélög, sem eru í nábýli við varn- arsvæðin, og stofnanir og aðila, er hafa hagsmuna að gæta vegna veru varnarliðsins. Eðli varnarstöðvarinnar Varnarliðið er hér til varnar land- inu og svæðunum umhverfis það i samræmi við óskir okkar sjálfra. Eftirlitsstarfið, sem varnarliðið innir af hendi, er grundvallarfor- senda þess, að ávallt verði hægt að greina aukningu á herstyrk Sovét- rikjanna í námunda við Island, þannig að Atlantshafsbandalagið geti brugðist við með viðeigandi hætti. Eðli varnarstöðvarinnar hef- ur ekki breyst, þrátt fyrir um- fangsmikla endurnýjun og endur- bætur, er hófust snemma á þessum áratug. Endurbætur þessar eru nauðsynlegar eigi varnarstöðin að geta sinnt varnar- og eftirlitshlut- verki sínu, en það grundvallast ann- ars vegar á loftvörnum og hins veg- ar á kafbáta- og skipaeftirliti. Horfast verður í augu við þá stað- reynd, að uppbygging sovésks her- afla á Kola-skaga, sem hófst að verulegu leyti snemma á sjöunda áratugnum meðan slökunarstefnan stóð yfir, hefur verið stöðug og markviss. I skýrslu norska herfor- ingjaráðsins, sem birt var í janúar sl., er gerð úttekt á hernaðarupp- byggingu Sovétríkjanna á norður- slóðum sl. 20 ár. Komist er að þeirri niðurstöðu, að hún hafi verið mjög mikil og er ekki síst vakin athygli á framförum i herbúnaði. Til að mynda hefur fjöldi stærri sovéskra herskipa Norðurflotans aukist úr 50 í 90 á þessu tímabili, þar af hefur beitiskipum fjölgað úr þrem í tólf. Kafbátum búnum langdrægum eld- flaugum hefur fjölgað úr 26 í 39 og kafbátum, er hafa innanborðs með- aldrægar eldflaugar, hefur fjölgað úr 19 í 31. Samtals er talið, að Sov- étmenn hafi um 180 kafbáta í Norð- urflotanum. Fyrir okkur Islendinga eru þær framfarir, sem orðið hafa á tækni- búnaði sovéskra herflugvéla áhyggjuefni. Eldri meöaldrægar sprengjuflugvélar hafa verið útbún- ar stýriflaugum, nýjar langdrægar sprengjuflugvélar, sem eru hljóðfrá- ar og nefnast Backfire, hafa verið teknar í notkun og innan nokkurra ára mun enn fullkomnari sprengju- flugvél, sem nefnist Blackjack, bæt- ast við flugflota Sovétmanna. Loftvarnaþáttur Sérhverju ríki stafar ógn af flugi óþekktra herflugvéla í námunda við lofthelgi þess, nema viðhlftandi gagnráðstafanir séu fyrir hendi hverju sinni. Hlutverk varnarliðsins hefur verið að greina allar óþekktar flugvélar, er koma inn á eftirlits- svæði þess, fylgjast með þeim og hafa tiltækan varnarbúnað, ef eitthvað skvldi út af bregða. Eftir- litssvæði varnarliðsins nær u.þ.b. 140 sjómflur út frá ströndum lands- ins, sbr. fyrri mynd, sem sýnir bæði eftirlitssvæðið og áætlað sjónsvið fjögurra ratsjárstöðva f 13.000 feta hæð. Til þess að inna þetta hlutverk af hendi hefur varnarliðið á að skipa 12 orrustuvélum, af gerðinni F-4E Phantom, tveimur AWACS- ratsjárvélum, einni eldsneytisflutn- ingavél af gerðinni KC-135, og tveimur ratsjárstöðvum, annars vegar á Miðnesheiði og hins vegar á Stokksnesi. I ljósi þeirrar þróunar, sem orðið hefur í langdrægum sprengjuflug- vélum og stýriflaugum Sovétríkj- anna, hefur verið talið nauðsynlegt að efla loftvarnir Islands og svæð- anna umhverfis landið. Sfðar á þessu ári eru væntanlegar 18 orr- ustuvélar af gerðinni F-15, sem munu taka við hlutverki Phantom- vélanna. Nýju vélarnar hafa aukið flugþol, sem gerir það að verkum, að auðveldara verður m.a. að senda þær inn á norðausturhluta eftir- litssvæðisins án eldsneytisbirgða- vélarinnar. Verið er að ljúka bygg- ingu níu styrktra flugskýla, sem munu hýsa F-15-orrustuvélarnar og samþykkt hefur verið bygging fjög- urra skýla til viðbótar. Þar eð ekkert ratsjáreftirlit úr landi er fyrir hendi út frá Norður- landi, og AWACS-vélarnar tvær geta ekki verið á lofti allan sólar- hringinn, hefur verið til athugunar að byggja tvær nýjar ratsjárstöðvar á Vestfjörðum og Norðausturlandi, endurnýja búnað núverandi rat- sjárstöðva á Miðnesheiði og Stokks- nesi, sem er orðinn úreltur, og setja upp eftirlitsstöð á Keflavfkurflug- velli, sem tæki við upplýsingum frá öllum fjórum ratsjárstöðvunum. Loftvarnarhlutverk varnarliðsins mun ekki breytast vegna slíkrar endurnýjunar ratsjár- og eftirlits- kerfisins, en þvf yrði gegnt á full- komnari hátt en nú er unnt. Stöðv- arnar yrðu búnar langdrægum flug- eftirlitsratsjám, sem næðu til allt að 200 sjómílna svæðis frá hverri stöð og samsvaraði sjónsvið þeirra nokkurn veginn efnahagslögsögu okkar Islendinga. Aukið sjónsvið ratsjárkerfisins gæfi varnarliðinu meiri tfma til viðbragðs og út- haldsbetri orrustuvélar tryggðu viðbragösgetuna. Ljóst er því, að endurbætur þessar mundu bæta mjög loftvarnir Islands sem full þörf er á í ljósi þeirrar þróunar, sem orðið hefur á vopnabúnaði Sov- étríkjanna. Aætlað er, að um 11 menn þurfi til að sjá um rekstur hverrar rat- sjárstöðvar og yrði þar um íslenska starfsmenn að ræða. Þar eð eftirlit flyttist f eftirlitsstöðina í Keflavfk yrði um verulega fækkun varnar- liðsmanna á Stokksnesi og á Mið- nesheiði að ræða. Sérstök afnot íslenskra aðila af ratsjárstöðvunum yrðu einkum vegna flugumferðarstjórnar og eft- irlits með skipaumferð i grennd við stöðvarnar, en einnig mundu þær veita veðurupplýsingar. Veita mætti fullkomna flugumferðarþjónustu fyrir millilandaflug og innanlands- flug í algengustu flughæðum og í mörgum tilfellum mætti nota rat- sjárnar til að fylgjast með aðflugi að flugvöllum í grennd við stöðvarn- ar. Sérstakar skiparatsjár, sem komið yrði upp á stöðvunum, gæfu kost á að fylgjast með siglingum allt að 60 sjómílur á haf út. Upplýsingar frá ratsjánum mundu þvf auka mjög öryggi í lofti og á legi. Áætlað er, að rekstur ratsjárstöðvanna gæti haf- ist árið 1987 með bráðabirgðabún- aði, sem Bandaríkjamenn legðu til. Endanlegum búnaði, sem Atlants- hafsbandalagið kostaði, yrði komið fyrir tveim árum síðar. (slensk stjórnvöld og fslenskir tæknimenn tækju virkan þátt i framkvæmdum á öllum stigum. Hönnun mann- virkja og búnaöar yrði f samræmi við íslenska staðla og yrði tekið mið af aðstæðum hér á landi. Varðandi frekari upplýsingar um ratsjár- stöðvarnar vfsast til ítarlegrar skýrslu, sem varnarmáladeild utan- ríkisráðuneytisins sendi frá sér f lok sl. árs. Kafháta- og skipaeftirlit Kafbáta- og skipaeftirlit úr lofti hefur verið rekið af varnarliðinu frá Keflavíkurflugvelli síðan það kom til landsins 1951. Núverandi flug- vélakostur, vélar af gerðinni Orion P-3C, hefur verið hérlendis síðan 1969 og er ein flugsveit með níu flugvélar staðsett hér f 5 mánuði i senn. Náin samskipti eru við banda- lagsþjóðir okkar í Evrópu um kaf- bátaleit á Norður-Atlantshafi. Dag- lega taka kafbátaleitarvélar frá Bretlandi, Frakklandi, Hollandi, Kanada, Noregi og Þýskalandi þátt í þessu eftirliti og skipta með sér leit á afmörkuðum svæðum, sem breytt er dag frá degi. Seinni mynd sýnir dæmi um slfk svæði. Vélar frá þess- um þjóðum hafa oft nokkurra daga viðkomu á Keflavíkurflugvelli og taka þá þátt f eftirlits- og æfinga- flugi varnarliðsins. Er þetta gott dæmi um nána varnarsamvinnu og upplýsingaskipti, sem eiga sér stað innan Atlantshafsbandalagsins. I þessu sambandi hefur verið til athugunar hjá utanríkisráðuneyt- inu erindi Hollendinga um að fá heimild til þess að staðsetja á Kefla- víkurflugvelli eina kafbátaleitarvél af sams konar gerð og varnarliðið hefur nú til umráða. Áhugi Hollend- inga byggist fyrst og fremst á því, að fá tækifæri til þess að æfa hol- lenskar áhafnir í eftirlitsstörfum á Norður-Atlantshafi í þágu sameig- inlegra varna Atlantshafsbanda- lagsins. Fjöldi Hollendinga yrði um 30, þ.m. talið bæði áhöfn og starfs- menn til þess að annast viðhald vél- arinnar, en dvalartfmi yrði einn til tveir mánuðir í senn. Ekki yrði um fjölgun i varnarliðinu að ræða, þar sem bandarískum vélum og starfs- liði fækkaði samsvarandi. Kafbátaleit neðansjávar með svonefndu SOSUS-hlustunarkerfi hefur verið starfrækt á Norður- Atlantshafssvæðinu um langt ára- bil. Hérlendis hefur verið rekin eft- irlitsstöð í þessu skyni í tæp 20 ár. Þetta kerfi er, ásamt upplýsingum frá kafbátaleitarflugvélum, mikils- verður þáttur í því, að Atlantshafs- bandalagsríkin hafi fullnægjandi upplýsingar um ferðir sovéskra kafbáta á hverjum tfma. Á átaka- eða hættutimum yrði það eitt meg- inhlutverk sovéskra kafbáta að rjúfa siglingar um Atlantshaf milli Norður-Ameríku og Evrópu. Því er brýnt að hafa eftirlit með kafbátum Sovétmanna, og ekki síst eldflauga- kafbátum þeirra, sem ógnað geta þjóðum Atlantshafsbandalagsins beggja vegna hafsins. ísland og lunheimurinn: Skýrsla til Alþingis um utanríkismál Geir Hallgrímsson uUnríkisráðherra lagði fram á Alþingi í gær ítarlega 53 bls. skýrshi um utanríkismál, ásamt 318 bls. skýrslu um þátttöku íslands í 39. Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í september-desember 1984. Skýrslan um utanríkismál er kaflaskipt sem hér segir: • Inngangur • Kafli um alþjóðamál, sem fjall- ar um samskipti austurs og vest- urs, afvopnun, kjarnorkuvopna- laus Norðurlönd, Helsinki-sam- þykkt, Stokkhólmsráðstefnu, Afr- fku, Austurlönd nær, Fjarlægari Austurlönd, Mið- og Suður- Amerfku. • Alþjóðastofnanir og svæða- samtök: 1) Sameinuðu þjóðirnar, 2) Efnahags- og félagsmálaráðið (ECOSOC), 3) Menningarstofnun- ina (UNESCO), 4) Alþjóðaheil- brigðisstofnunina (WHO), 5) Kvennaráðstefnu f Nairobi, 6) Evrópuráðið, 7) Norðurlanda- samvinnu, 8) Grænland. • Varnar- og öryggismál: 1) Um- ræðu um hlutverk varnarliðsins, 2) Varnarmálaskrifstofu, 3) Eðli varnarstöðvarinnar, 4) Loft- varnaþáttur, 5) Kafbáta- og skipaeftirtit, 6) Hlutverk land- helgisgæzlu, 7) Helguvík, 8) Stjórnstöð, 9) Verktakastarfsemi fyrir varnarliðið, 10) Nýfram- kvæmdir, 11) Mannvirkjasjóð Atl- antshafsbandalagsins, 12) Fjölda varnarliðsmanna (3.057 talsins), 13) Ný flugstöð — flugumferð, 14) Fríhöfn, 15) Ýmis rekstur. • Hafréttarmál: a) Hafréttar- samningur Sameinuðu þjóðanna, b) Hafsbotnsmálefni, c) Hval- veiðimál, d) Norður-Atlantshafs laxverndarstofnun (NASCO), e) Veiðar annarra þjóöa við Island, f) Skipting loðnuveiða og g) Fisk- veiðar Islendinga f lögsögu ann- arra ríkja. • Þróunarsamvinna, sem m.a. fjallar um þróunaraðstoð, en framlög af ríkisfé til þeirra mála 1984 vóru 72 m.kr eða 0,107% af áætlaðari þjóðarframleiðslu. • Utanrikisviðskipti 1984 en halli á viðskiptajöfnuði okkar við um- heiminn nam 4.130 m.kr. eða 6% þjóðarframleiðslu það ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.