Morgunblaðið - 11.04.1985, Qupperneq 4
£
MÖRGTBNBLAÐH), PIMMTDDAGUR & APÍIÍL1985
Úthlutun úr Kvikmyndasjóði:
4 myndir hlutu
2,5 millj. hver
Mikið vantar á að fjárþörf sjóðs-
ins samkvæmt lögum sé fullnægt
MorgunbUAið/Bjarni
Frá vinstri Magnús Torfi Ólafsson, Húnbogi Þorstcinsson, Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra og nefndar-
mennirnir Stefán Ingólfsson formaður, Gunnar Helgi Hálfdánarson, Friðrik Stefánsson og Jón Sveinsson.
Greiðslujöfnun:
Greiðslubyrði haldist í hend-
ur við breytingar á launum
— meðal tillagna nefndar sem félagsmálaráðherra
fól að gera könnun á fasteignamarkaðinum
KVIKMYNDASJÓÐUR íslands hef
ur nú lokið úthlutun 18 milljóna
króna til 20 aðilja samtals. í greinar-
gerð úthlutunarnefndar segir meðal
annars, að beinar styrkumsóknir
hafi aldrei verið fleiri eða 52 alls.
Því miður hafi fjárþörf sjóðsins sam-
kvæmt lögum enn ekki verið full-
nægt á þessu ári og vanti þar mikið
á. Því hafi úthlutaðar upphæðir bæði
orðið færri og lægri en vænzt hefði
verið. Hæstur styrkur, 2,5 milljónir
króna, kom í hlut framleiðenda
Morgunbladiö/Júlíus
í stað stöðumæla við hvert stæði
hefur verið komið fyrir einum
stöðumæli fyrir mörg bifreiða-
stæði.
Ný tegund
stöðumæla
f GÆR voru teknir í noktun
tveir sjálfsalar í stæði fyrir bif-
reiðir í stað stöðumæla. Annar
er á bifreiðastæði Landsbank-
ans við Laugaveg 77 en hinn á
bifreiðastæði milli Grettisgötu 9
og 11, en á þessum stöðum eru
nú alls um 70 stöðumælar. Gjald
verður hið sama og á gömlu
stöðumælunum og sömu reglur
gilda um aukaleigugjald.
Leiðbeiningar um notkun
eru áletraðar á sjálfsalana, en
stöðumælaverðir munu til að
byrja með leiðbeina fólki um
notkun þeirra.
FÉLAGAR í Sjómannasambandi ís-
lands hugðust í gærmorgun stöðva 50
þúsund lesta flutningaskip frá Pan-
ama, sem var að losa súrál í
Straumsvíkurhöfn, vegna þess að
skipverjar jim borð höfðu ekki kjara-
samninga, sem viðurkenndir eru af
Alþjóðaflutningasambandinu. „Við
urðum að láta undan síga, þar sem
vafi lék á um laglegan rétt okkar,“
sagði Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélags Reykjavíkur, í
samtali við Mbl. í gærkvöldi.
Unnið var um páskana við að losa
flutningaskipið Spry Carrier, sem
skráð er í Panama en eigendur eru í
myndanna Atómstöðin, Á hjara ver-
aldar, Hrafninn flýgur og Hvítir
mávar.
í greinargerð úthlutunarnefnd-
ar segir ennframur, að nefndin
hafi neyðzt til að hafna, að
minnsta kosti í bili, mjög álitleg-
um umsóknum vegna fjárskorts.
Þar megi sérstaklega nefna um-
sókn Ágústs Guðmundssonar, eins
reyndasta kvikmyndaleikstjóra
okkar, um styrk vegna myndar-
innar „Skáldsögu", en þar sé um
að ræða stórmynd á íslenzkan
mælikvarða.
Þá segir í greinargerðinni: „Þess
er fastlega vænzt, að stjórnvöld
standi við þær skuldbindingar við
kvikmyndagerð í landinu, sem fel-
ast í lögunum frá 1984, þannig að
unnt reynist, þótt síðar verði á ár-
inu, að veita eðlilegan stuðning,
meðal annars við gerð fyrrnefndr-
ar kvikmyndar Ágústs Guð-
mundssonar."
Auk fyrrnefndra leikinna kvik-
mynda hlutu myndirnar Eins og
skepnan deyr og Erindisleysan
mikla tveggja milljóna króna
styrk hvor um sig. Styrkveitingar,
150.000 krónur, vegna handrita og
undirbúnings voru sem hér segir:
Guðný Halldórsdóttir vegna
myndarinnar Stella í orlofi; Þor-
steinn Jónsson vegna myndarinn-
ar Ljósbrot; Ásgeir Bjarnason og
fleiri vegna myndarinnar Sólar-
landaferðin; Þorsteinn Marelsson
og fleiri vegna myndarinnar Línu-
dans og Valgeir Guðjónsson vegna
myndarinnar Maðurinn sem fékk
högg á höfuðið. Þá hlaut Hrafn
Gunnlaugsson 550.000 króna styrk
vegna handrits og undirbúnings
myndarinnar Tristan og ísóld.
Eftirfarandi aðilar fengu styrk
vegna heimildarmynda: Kvik sf.
(Saga hvalveiða við ísland)
500.000 krónur; Magnús Magnús-
son (Lífríki Mývatns) 100.000
krónur; ísl. kvikmyndasamsteyp-
an (Hringurinn) 200.000 krónur;
ísmynd (Louisa Matthíasdóttir)
400.000 krónur; Baldur Hrafnkell
Jónsson (Tryggvi ólafsson)
200.000 krónur; Sýn sf. (Flótta-
menn frá fjarlægu landi) 200.000
krónur og Kristín Jóhannesdóttir
(Pourqoui-pas-slysið) 100.000
krónur. Til útbreiðslu og kynn-
ingar islenzkra kvikmynda var
veitt einni milljón króna.
í úthlutunarnefnd áttu sæti
Friðbert Pálsson, forstjóri Há-
skólabíós, Sveinn Einarsson, fyrr-
verandi Þjóðleikhússtjóri, og Jón
Þórarinsson, fyrrverandi dag-
skrárstjóri sjónvarps, en hann var
jafnframt formaður nefndarinnar.
Hong Kong. Skipstjóri um borð er
enskur, yfirmenn frá Hong Kong en
undirmenn frá Kína. Að sögn Guð-
mundar hafa undirmenn innan við
dollar á dag í laun, en það brýtur í
bága við hið „blá skírteini" Al-
þjóðaflutningasambandsins, sem
kveður á um lágmarkslaun far-
manna.
„Yfirvöld í Panama, Líberíu og
fleiri ríkjum hafa boðið útgerðum
að skrá skip sín gegn lágu gjaldi og
skattafvilnunum, auk þess að far-
menn séu á skammarlaunum. Þetta
hefur skapað misvægi á hinum al-
þjóðlega flutningamarkaði. Þessi
ALEXANDER Stefánsson félags-
málaráðherra skipaði sl. sumar
nefnd, sem hann fól að kanna fast-
eignamarkaðinn og gera tillögur til
úrbóta. Nefndina skipa þeir Stefán
Ingólfsson verkfræðingur, formaður,
Friörik Stefánsson viðskiptafræðing-
ur, Gunnar Helgi Hálfdánarson hag-
fræðingur og Jón Sveinsson lögfræð-
ingur. Þeir hafa nú skilað þremur
áfangaskýrslum og voru þær kynnt-
ar fréttamönnum í gær.
Fasteignamarkaðurinn
á höfuðborgarsvæðinu
1980 til 1984
Nefndin leggur aðaláherslu á at-
hugun á aldurssamsetningu fast-
eignakaupenda og kaupgetu þeirra
árin 1980 til 1984.
1 niðurstöðum skýrslunnar kem-
ur m.a. fram að tæplega 700 íbúðir
hafa verið seldar til fólks á aldrin-
um 22 til 26 ára á höfuðborgar-
svæðinu árið 1984 á meðan tæplega
200 íbúðir voru byggðar.
Um helmingur allra kaupenda
íbúðarhúsnæðis er á aldrinum 22
til 32 ára. En kaupgeta fólks á aldr-
inum 22—26 ára hefur farið
minnkandi og kaupendum á þess-
um aldri hefur fækkað um 20% frá
1980 til 1984.
Kaupendum á aldrinum 33—50
ára sem keyptu fjögurra herbergja
íbúð eða stærri fjölgaði um 44%
frá 1980—1984, en kaupendum sem
eru 51 árs og eldri og keyptu litlar
íbúðir, 2—3 herb., fjölgaði um
rúmlega 60% frá 1980—1984.
Á síöasta ári voru um 600 fbúðir
á höfuðborgarsvæðinu seldar utan-
bæjarfólki sem síðan flutti flest til
Reykjavíkur. En utanbæjarmenn
sem ekki flytjast til borgarinnar
kaupa um 200 íbúðir á svæðinu á
skip eru þekkt meðal sjómanna sem
sjóræningjaskip og menn hafa tekið
höndum saman til að sporna við
þessari þróun. Þvl fórum við um
borð og hugðumst stöðva skipið uns
gengið hefði frá sómasamlegum
kjarasamningum við skipverja. Við
hverju ári. Áætlað er að um 2.000
íbúðir á svæðinu séu í eigu utan-
bæjarmanna.
Fleira fólk á aldrinum 22 til 32
ára kaupir nú í gamla bænum i
Reykjavík en t.d. í Hraunbæ eða í
Breiðholti. Á sama tíma virðast
kaup þessa fólks á íbúðum í Garða-
bæ og á Seltjarnarnesi hafa dregist
saman.
Niðurstöður skýrslunnar eru
byggðar á könnun á kaupsamning-
um sem gerðir voru á tímabilinu
apríl, maí og júni árin 1980,1982 og
1984. Alls voru notaðir 786 kaup-
samningar við lokaúrvinnslu
skýrslunnar, en samtals voru kann-
aðir meira en 1.000 samningar, eða
um þriðji hver kaupsamningur sem
gerður var á þessum tímabilum.
Leiðir í húsnæðismálum
í niðurstöðum áfangaskýrslu um
leiðir í húsnæðismálum leggur
nefndin aöaláherslu á að hverfa
verði frá „nýbyggingastefnu“ und-
anfarinna áratuga i húsnæðismál-
um og taka í stað þess upp „húsnýt-
ingarstefnu" með höfuðáherslu á
nýtingu þess húsnæðis sem fyrir er
í landinu.
Með óbreyttri þróun stefnir í að
60—65% yngra fólks búi í eigin
húsnæöi í stað 80—85% eins og nú
er.
Nefndin telur að nýting fjár sem
veitt er úr hinu opinbera lánakerfi
sé ekki nægileg góð. Um 25%
lánsfjár til nýbygginga 1983 fóru
til fjölskyldna, sem byggðu hátt í
60 fm af gólffleti á fjölskyldumeð-
lim eða stærra.
Háar útborganir, skammur láns-
tími og miklar nýbyggingar valda
því að fjárþörf húsnæðismark-
aðarins er mjög mikil. Með breytt-
létum undan siga en vonum að
þetta verði til viðvörunar og að
„sjóræningjaskip" verði ekki fengin
til þess að sigla hingað til lands,“
sagði Guðmundur Hallvarðsson.
Spry Carrier sigldi úr Straumsvík-
urhöfn snemma í gærmorgun.
um greiðslukjörum og minnkun
gólfflatar í nýbyggingum má
minnka fjárþörfina um 25—40%.
Nefndin telur rétt að nota þann
möguleika að kaupa tilbúnar íbúðir
á almennum fasteignamarkaði inn
í félagslega íbúðakerfið. Það væri
bæði ódýrara og hentugra og
hækkar auk þess fasteignaverð sem
gerir markaðsverð stöðugra en ella.
Greiðslujöfnun
Að beiðni félagsmálaráðherra
tók nefndin sérstaklega fyrir þau
áhrif sem verðþróun undanfarinna
ára hefur haft á greiðslubyrði hins
almenna kaupanda og lagði fram
tillögur um fyrirkomulag sem létta
mundi greiðslubyrði lántakenda.
í skýrslunni um greiðslujöfnun
segir m.a. að ef þær forsendur sem
kaupendur ganga út frá við fast-
eignakaup eiga að standast verður
greiðslubyrði þeirra að breytast í
samræmi við almenna þróun launa.
Greiðslubyrði verðtryggðra fast-
eignaveðlána hefur aukist um lið-
lega 37% umfram launahækkanir
frá árinu 1980.
Nefndin telur að breyting raun-
vaxta, afnám verðtryggingar og
lenging lánstíma geti ekki einar sér
leyst vandann.
Mælt er með að tekið verði upp
sérstakt fyrirkomulag til að reikna
út afborganir af fasteignaveðlán-
um sem nefnt er greiðslujöfnun og
felst í því að tryggja lántakanda að
greiðslubyrði fasteignaveðlána
haldist í hendur við breytingar á
launum.
Þegar laun hækka minna en
lánskjaravísitala minnka afborg-
anir, en þegar launin hækka hlut-
fallslega meira, er endurgreiðslu
hraðað. Greiðslujöfnun verði beitt
á verðtryggð og óverðtryggð fast-
eignaveðlán.
Ekki er talið unnt að nota
óbreyttar þær „launavísitölur" sem
nú eru reiknaðar út til að reikna út
afborganir við greiðslujöfnun.
Eyða verður stökkum, sem vísitöl-
urnar taka og jafna þau út ef
reikna á mánaðarlega samfellda
vísitölu.
Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra sagði á fundinum að
hann teldi að vinna nefndarinnar
ætti eftir að hafa jákvæð áhrif á
þróun húsnæðismála. Hann sagði
að þegar hafi verið reynt að hjálpa
fólki í greiðsluerfiðleikum t.d. með
lánafyrirgreiðslu, ráðgjöf Húsnæð-
isstofnunar o.fl.
Ráðherra sagði að lokum að
starfshópur væri að vinna að til-
lögum um skattaafslátt til að mæta
umframgreiðslum húsnæðiskaup-
enda og væru þær með svipuðu
sniði og þær sem hópur áhuga-
manna um úrbætur í húsnæðismál-
um hefði lagt fram. Hann sagðist
leggja fram frumvarp um þetta
mál eftir næstu helgi.
Sjómannasamband íslands:
Reynt ad stöðva
„sjóræningjaskipu
Morgunblaðið/RAX
Spry Carrier í Straumsvfkurhöfn. Félagar í Sjómannasambandi íslands
reyndu að hefta for þess til þess að tryggja undirmönnum sómasamleg laun,
en þeim er greitt innan við dollar á dag í laun.