Morgunblaðið - 11.04.1985, Side 5
MORGUNBLAÐtÐ, FIMMTUDAGUR11. APRlL 1985
5
Utanríkisyiðskiptin 1984:
Helmingur þjóðarfram-
leiðslunnar fluttur utan
Halli á viðskiptajöfnuði 4.130 m.kr. eða 6 % þjóðarframleiðslu
Útflutningiir vöru og þjónustu í sl.
ári nam um helmingi þjóóarframleiðsl-
unnar. Utanríkisvióskipti vega því
þungt í efnahagsafkomu íslendinga.
Halli á vöruskiptajöfnuói við útlönd
1984 nam 332 m.kr., þrátt fyrir aó
heildarútflutningur vsri 8,5% meiri á
sambærilegu gengi en 1983, en þá var
544 m.kr. afgangur. Þetta kemur fram
í skýrslu Geirs Hallgrímssonar utan-
ríkisráðherra til Alþingis um utanrfk-
ismál 1985, sem lögó var fram á Al-
þingi í gær.
Þess ber að geta að birgðir út-
flutningsvara um sl. áramót vóru
692 m.kr. meiri en í ársbyrjun.
Hinsvegar minnkuðu útflutnings-
birgðir um 1.231 m.kr. 1983. Litil
breyting var á viðskiptakjörum. —
Greiðslur fyrir ýmis konar erlenda
þjónustu vóru einnig hærri 1984 en
1983, einkum vegna vaxtagreiðslna
og ferðalaga erlendis. Hallinn á við-
skiptajöfnuðinum, bæði vegna vöru-
skipta og þjónustu, var því 4.130
m.kr. en 1.260 m.kr. 1983 og sam-
svaraði 6% af þjóðarframleiðslu
samanborið við 2,4% árið áður.
V öniinnflutningur
jókst um 13% 1984
Sjávarvörur vóru 67% af heildar-
útflutningi. Fryst fiskflök vóru
langmikilvægasta útflutningsvaran,
eða 28% af heildarútflutningi. Flutt
vóru út 113.600 tonn af frystum fisk-
flökum, 35.500 tonn af blautverkuð-
um saltfiski, 114.000 tonn af loðnu-
mjöli, 54.000 tonn af loðnulýsi og
12.700 tonn af nýjum fiski I kæli-
gámum.
Útflutningur iðnaðarvara nam
um 29% af heildarútflutningi 1984,
sem er svipað hlutfall og 1983. Út-
flutningur á áli nam um 85.000
tonnum, sem er verulega minna
magn en 1983. Útflutningur á kísil-
járni jókst hinsvegar verulega. Ull-
arvörur juku og hlut sinn í útflutn-
ingi á árinu.
Útflutningur á landbúnaðarvör-
um var um 1,7% af heildarútflutn-
ingi, sem er lítilsháttar aukning.
Bandaríkin vóru sem fyrr lang-
stærsta og hagstæðasta markaðs-
land okkar, en þangað fóru 28,4% af
heildarútflutningi 1984, sem er svip-
að hlutfall og 1983. Evrópubanda-
lagið er hinsvegar stærsta markaðs-
svæði okkar með 38,3% heildarút-
flutnings, en þar njótum við mikil-
vægra tollfríðinda. Útflutningur til
EFTA-ríkja nam 12,7% heildarút-
flutnings, en þar hafði Portúgal
nokkra sérstöðu sem stærsti kaup-
andinn. Viðskiptin við A-Evrópu
vóru svipuð og áður, en þangað fóru
tæp 20% heildarútflutnings.
Viðskiptin við Japan hafa farið
vaxandi, en þangað er flutt hvalkjöt,
fryst loðna, loðnuhrogn, frystur
karfi, rækja, lagmeti og loks kísil-
járn.
f skýrslu utanríkis-
riðherra segir m.a.:
„Vegna þýðingar utanríkisvið-
skipta fyrir þjóðarbúið hlýtur það
að vera mikið hagsmunamál að
standa vörð um það frelsi í alþjóða-
viðskiptum, sem náðst hefur, og
standa gegn tilraunum til að skerða
þaö með höftum, tollum og ríkis-
styrkjum. Þetta hefur verið afstaða
islenzkra stjórnvalda á alþjóða-
vettvangi. Á árunum 1980—83 hafa
verið talverð brögð að því að lönd
hafi gripið til verndaraðgerða vegna
atvinnuleysis og erfiðleika í ákveðn-
um atvinnugreinum þrátt fyrir yfir-
lýsingar og aðvaranir GATT, OECD,
EFTA og EB. Þessar aðgerðir hafa
þó ekki haft bein áhrif á útanríkis-
viðskipti íslands nema hvað varðar
ríkisstyrki til sjávarútvegs í Kan-
ada og Noregi. Viðskiptaráðherrar,
sem sótt hafa ráöherrafundi OECD
og EFTA, hafa margoft gagnrýnt
styrkveitingar til sjávarútvegs sem
raska samkeppnisstöðu á alþjóða-
mörkuðum auk þess sem gagnrýni
hefur verið borin fram við ráða-
menn í Noregi og Kanada".
Ljósm. Morgunblaðið/Július
Nokkrir félagar íslensku hljómsveitarinnar, sem leika á tónleikum í
Bústaðakirkju í kvöld. Mvndin var tekin á æflngu fyrr í vikunni.
íslenska hljómsveitin:
Frumflytur oktett eftir
Þorkel Sigurbjörnsson
ÍSLENSKA hljómsveitin heldur
13. tónleika sína í kvöld kl. 20.30.
Á tónleikum þessum verða flutt
tvö kammerverk, Óbókvartettinn
eftir Wolfgang Amadeus Mozart
og Kvintettinn op. 16 eftir Ludvig
van Beethoven, og frumfluttur
oktett eftir Þorkel Sigurbjörnsson
sem hlotið hefur nafnið Áttskeytla.
Á tónleikunum koma fram eft-
irtaldir félagar íslensku
hljómsveitarinnar: Kristján Þ.
Stephensen, óbó, Sigurður I.
Snorrason, klarinett, Björn
Árnason, fagott, Lilja Valdi-
marsdóttir, horn, Ánna Guðný
Guðmundsdóttir, píanó, Laufey
Sigurðardóttir, fiðla, Hrefna
Hjaltadóttir, lágfiðla, og Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir, selló. Tón-
leikarnir verða haldnir í Bú-
staðakirkju.
Júlíus Geirmundsson
seldi í Bremerhaven
JÚLÍUS Geirmundsson ÍS seldi afla
sinn í Bremerhaven í gær og fyrradag.
Hann fékk nokkru lægra verð en
fékkst við síðustu landanir fyrir páska,
enda eftirspurn eftir flski nú minni.
Þrjú önnur flskiskip selja afla sinn
erlendis í þessari viku.
Júlíus seldi alls 211 lestir, mest
karfa. Heildarverð var 5.270,200
krónur, meðalverð 24,98. Dagstjarn-
an KE landaði í gær og morgun í
Cuxhaven. Karlsefni RE landar í
Cuxhaven á föstudag og í dag,
'fimmtudag, landar Keilir RE í
Grimsby.
Nu ætlum við að sveigja
greiðslukjörin að getu sem
f flestra. w ^
ÍMYND EINSTAKRA GÆÐA
'f - MEST SELDI BÍLL Á
ÍSLANDI
Það er sagt að allir bílar séu
jafnir en við vitum betur.
Sumir eru og verða yfir
aðra hafnir hvað varðar
gæði kosti og verð og er
UNO einmitt fremstur í
þeim fiokki.
NU GETUR ÞU EIGNAST
FIAT UNO S 45 FYRER
AÐEINS
'•WVI
A GÖTUNA MEÐ RYÐ-
VÖRN OG SKRÁNINGU.
Tökum fleiri bíla en Fiat
uppínýjanUNO.
Veglegt útlit og vöndud hönnun
1929
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
1985