Morgunblaðið - 11.04.1985, Page 24
Ö8IÍI Jlll'lA .11 SUDAHtlTMMll JllUAJHkflJUJIUM
Z4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUR 11. APRÍL 1985
Danski utanríkis-
ráðherrann til Kína
Kaupmannahofn. 10, aprfl. AP.
DANSKI utanríkisráðhcrrann, Uffe
Ellemann-Jensen, fer í opinbera
heimsókn til Kína og mun dvöl hans
þar standa frá 27. aprfl til 3. maí, að
því er utanríkisráðuneytið tilkynnti f
dag.
I tilkynningu ráðuneytisins
sagði, að Ellemann-Jensen myndi
eiga viðræður við starfsbróður
sinn, Wu Xueqian. Viðskiptanefnd
er í för með ráðherranum.
Frá Kína fer danski ráðherrann
til Hong Kong, þar sem hann mun
dvelja í einn dag, að því er sagði í
tilkynningu ráðuneytisins.
Rændu rúbínum fyr
ir IV2 millj. punda
London, 9. aprfl. AP.
A miðvikudag fyrir páska stálu
þrír menn rúbínsteinum að verð-
mæti 1,5 milljóna punda úr sýn-
ingarglugga gimsteinaverslunar í
Knightsbridge. Er það í annað sinn á
fimm mánuðum sem gluggi verslun-
arinnar er rændur að sögn lögregl-
unnar.
Þjófarnir brutu rúðuna í glugg-
anum, sópuðu saman rúbínunum
og óku síðan á brott með ofsa-
hraða. Þegar bíll þeirra stöðvaðist
í umferðaröngþveitinu snöruðust
þeir út og brutu rúðu í leigubifreið
sem elti þá og hlupu á brott.
Talsmaður Scotland Yard sagði
að ránið hefði verið mjög í sama
anda og ránið í sömu versluti í
októbermánuði sl.
Að sögn Scotland Yard tók ör-
yggisvörður leiguhifreiðina til að
veita þjófunum eftirför. Leggja
varð leigubifreiðarstjórann inn á
sjúkrahús vegna áverka sem hann
fékk af völdum glerbrota.
Tveir menn frá Chicago, Arthur
Rachel og Joseph Scalise, afplána
nú 15 ára dóma, sem þeir hlutu
fyrir að ræna fyrrnefnda gim-
steinaverslun í september 1980.
Þeir stálu gimsteinum að verð-
mæti 1,4 milljóna punda.
Kramhúsið
Norðmenn ætla ekki
að hætta hvalveiðum
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, er nú á 11 daga feróalagi
um ýmis Asíulönd. f gær átti hún viðræóur við Suharto, forseta Indón-
esíu, en á myndinni sem hér fylgir er breski forsætisráðherrann að
kanna heiðursvörð í Kuala Lumpur, höfuðborg Malaysíu, ásamt forsæt-
isráðherra landsins, Mahathir Mohamad.
hjá Alþjóða hvalveiðiráðinu og
bandarískum yfirvöldum. Við
munum hafa samband við báða
þessa aðila í því skyni að reyna að
finna lausn á málinu."
Ýmis náttúru- og dýraverndar-
samtök i Bandarikjunum hafa
hótað að herða baráttu sína fyrir
því að Noregur hætti hvalveiðum,
m.a. með því að stuðla að innflutn-
ingsbanni á norskar sjávarafurðir.
Eftir að Japanir lýstu yfir, að
þeir mundu hætta hvalveiðum, eru
það aðeins Norðmenn, Sovétmenn
og Perúmenn, sem neita að virða
ákvörðun Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins um að öilum hvalveiðum skuli
hætt.
Dans- og leiksmiðja
Bergstaðastræti 9b, (bakhús)
Vornámskeið
hefjast
15. apríl
Thatcher í Kuala Lumpur
Ódó, 9. apríl. Frá Ju Erik Unré, frétUriUr. Mbl.
„Jafnvel þótt Japanir hafi látið
undan þrýstingi Bandaríkjamanna
um að stöðva hvalveiðar 1988, ætl-
um við að leita lausnar sem gerir
okkur kleift að halda veiðunum
áfram,“ segir Thor Listau, sjáv-
arútvegsráðherra Noregs.
Ákvörðun Japana hefur veikt
möguleika Norðmanna til áfram-
haldandi veiða, en fyrrnefnd orð
sjávarútvegsráðherrans gefa
ákveðið til kynna, að Norðmenn
ætli ekki að láta sig baráttulaust.
Listau segir ennfremur: „Af-
staða okkar er skýr. Svo lengi sem
líffræðileg skilyrði leyfa og hvala-
stofnum er ekki ógnað, teljum við
rétt að halda áfram nýtingu
þeirra. Við vonum, að þetta sjón-
armið okkar mæti skilningi bæði
Innritun í síma 15103.
Fyrir börn og unglinga:
Afrikudans,
jassdans,
leikræn tjáning.
Kennarar:
Hafdís Árnadóttir
Hafdís Jónsdóttir
Halla Margrét Jónsdóttir
Elísabet Guðmundsdóttir
Auöur Bjarnadóttir
Abdul Dokr
Sigríöur Eyþórsdóttir
Margrét Pálmadóttir
m # ‘
%
AP/Símamynd
Tangarsókn tudda
Þessi nautabani ætlaði aldeilis að sýna listir sínar á fyrsta nautaati „vertíðarinnar" á Spáni nýlega. Þaut hann
djarflega að nautinu og hugðist stinga spjótum sínum í bak tudda, en dýrið sneri taflinu við, krækti horni í síðu
kappans og þeytti honum frá sér. Slapp hann betur en á horfðist í fyrstu, en nautið kembdi ekki hærurnar í
ójöfnum leiknum.
Sprengikúlur urðu
fimm börnum að bana
Þebu, (■rikkUndi, 10. aprfl.
Sprengikúlur frá stórskotaliðsæf-
ingu í nágrenni Þebu í Mið-Grikk-
landi lentu í sígaunabúðum og
sprungu þar. Fimm börn létu lífið, að
sögn lögrcglunnar.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að allmörg börn, sem verið hefðu
að leik við búðirnar, hefðu hlotið
sár í sprengingunni.
Hann sagði, að skotið hefði verið
út fyrir æfingasvæði griska hers-
ins nálægt þorpinu Neochoraki.
Sígaunabúðirnar voru um 500
metra fyrir utan æfingasvæðið.