Morgunblaðið - 11.04.1985, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 11.04.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985 , %5 ll.r l"lil | i' . | i i l 11 | j 'l'li ! "H>" ■ -— Færeyjar: Laxveiðarnar ganga tregt Þóraböfn, 9. apríl. Frá Jogvan Arge, fréttaritara Mbl. Lazveiðar Færeyinga hafa gengið hófu veiðar 5. nóvember og lýkur illa í vetur. Ekki er útséð enn. hvort vertíðinni um næstu mánaðamót. færeysku laxveiðibátunum tekst að fiska upp í kvótann, sem er 625 tonn. Á undanförnum árum hafa bát- arnir ekki átt í neinum vandræð- um með að veiða upp í kvótann. Á vertíðinni, sem nú stendur yf- ir, hefur 31 skip veiðileyfi. Þau Fiskifræðingar hafa enn ekki getað gefið neina skýringu á veiði- tregðunni nú, en sjómennirnir nefna sem ástæðu, að veðrið hafi verið of gott á veiðisvæðinu. Bestir veiðimöguleikar eru sagðir vera í heldur leiðinlegu veðri, en mikil veðurblíða hefur ríkt f kringum Færeyjar í vetur. Bandaríkin: Móðir Teresa hlýt- ur frelsisorðuna ( alrutu, iDdlmndi. 10. afrfL AP. MOÐIR Teresa, dýrlingur hinna snauðu í Calcutta, sagðist í dag mundu þiggja frelsisorðuna svo- nefndu, æðstu borgaralegu viður- kenningu í Bandaríkjunum, „fyrir starf sitt í þágu fátæks fólks“. „Hljóti ég þessa viðurkenningu tek ég við henni vegna dýrðar Guðs,“ sagði þessi 75 ára gamla nunna í viðtali við AP. Ronald Reagan forseti tilkynnti á mánudag um tilnefningu Móður Teresu, en hann valdi sjálfur þá 13 sem viðurkenninguna hljóta að þessu sinni, m.a. söngvarann Frank Sinatra og leikarann James Stewart. Móðir Teresa hlaut friðarverð- laun Nóbels árið 1979, einnig fyrir starf sitt i Calcutta. Hún sagðist hafa lesið um bandarísku verð- launaveitinguna f blöðum i dag, miðvikudag. Móðir Teresa verður ekki við- stödd afhendingu orðunnar f Hvíta húsinu 23. maí, þar sem hún mun dveljast í Róm um þær mundir, að eigin sögn. Sviss: Byssuleyfi til að kaupa lásboga Genf, Srias, 0. aprfl. AP. Lögregluyfirvöld f Genf hafa ákveðið, að menn verði að hafa byssuleyfi til þess að mega kaupa lásboga. Hefur ákvörðun þessi vakið upp mikil mótmæli meðal Svisslendinga, afkomenda Vil- hjálms Tell. Yfirvöld fyrirskipuðu vopna- verslunum að takmarka sölu lás- boganna á fyrrnefndan hátt, þar sem unnt væri að valda með þeim „miklu og alvarlegu lík- amstjóni". „Aldrei frá þvi á dögum Vil- hjálms Tell hefur slíkt mál kom- ið til kasta lögreglunnar," sögðu vopnasalar f viðtali við blaðið Le Matin í dag og mótmæltu ákvörðuninni. „Á hinn bóginn hafa margir endað ævi sína á undanförnum árum með því að vera kyrktir f kvenmannssokkum. Verður þess e.t.v. krafist í framtíðinni, að menn hafi byssuleyfi til að mega kaupa sokkabuxur?" spurðu vopnasalarnir. Bandaríkin: 230 milljóna kr. happdrættis- vinningur ógildur tlirrábiirg, PennMjlvsníu, 9. aprfl. AP. Happdrættisvinningur að verð- mæti 5,6 milljónir dollara (um 230 millj. ísl. kr.) varð ógildur í gær, mánudag, þegar liðinn var árs frest- ur án þess að eigandi vitjaði vinn- ingsins. Aldrei fyrr hefur svo stór happdrættisvinningur verið látinn ósóttur í Bandaríkjunum. „Þetta var leitt,“ sagði Lynn R. Nelson, aðstoðarforstjóri Penn- sylvaníu-happdrættisins. „Við vonumst alltaf til að vinningsmið- ar skili sér.“ Vinningurinn, sem hér um ræð- ir, féll á miðann er dregið var 6. aprfl í fyrra. Vinningshafar verða að vitja vinninga innan árs frá drætti. Áf því að lokadaginn bar upp á laug- ardag framlengdu yfirmenn happ- drættisins frestinn fram á mánu- dag. Ferðahátíð í Þðrscafé — föstudag 12. apríl Ferðakynning ferðaskrifstofunnar Úrvals. Föstudagskvöld 12. apríl. Bingó. Glœsilegir vinningar. ★ Boflið verflur upp á fordrykk kl. 19 ★ Matur framreiddur frá kl. 20. Franskur matseflill. fto*] _ iöstudag*- ►ðrscate tiegi jðlíu»*on sKEsssír 233»- STAÐUR HINNA VANDLÁTU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.