Morgunblaðið - 11.04.1985, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 11.04.1985, Qupperneq 27
, MOpqyNBtLApip„^IW^U£>AGUR U, APRjL.1985 21 narandstöðunn- u forseta skýrsla forseta ASÍ um atvinnu- og efnahagsstefnu er í litlu sam- ræmi við þau sjónarmið sem ráð- andi eru í Alþýðubandaiaginu. Það vekur athygli að mikii áhersla er lögð á að nýiðnaður fái greiðan aðgang að fjármagni og það er lögð áhersla á að nýta kosti mark- aðarins, þar sem það á við. Þetta gerist alis ekki í óbreyttu stjórn- kerfi og það er athyglisvert að flokksbræður forseta ASÍ hafa farið með ríkisfjármál, húsnæðis- og félagsmál, orkumál, viðskipta- og menntamál í ýmsum ríkis- stjórnum sl. 8 ár og í starfi þeirra þar er ljóst að þeir fylgja allt ann- arri stefnu en forseti Alþýðu- sambandsins leggur til að verði gert. Þetta bendir til þess að fyrir- ferð og forsjá alþýðubanda- lagsmanna í launþegahreyfing- unni sé og mikil og ekki til góðs.“ Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins: „Skýrslan fyrst og fremst almenn- ar hugleiðingar“ „ÞESSI skýrsla er fyrst og fremst almennar hugleiðingar um ástandiö og þar eru margar góðar upplýsingar og gagnlegar til frekari umræðu og stefnumótunar og tillögugerðar um þessi mál,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, í samtali við Morgunblaðið um skýrslu forseta ASÍ. „Ég held að það sé gott eitt um það að segja, að skýrsla sem þessi sé tekin saman af hálfu Alþýðu- sambandsins, en það sem ræður úrslitum er framhaldið og hver áhrif af þessari skýrslu verða," sagði Svavar jafnframt. Svavar sagðist telja að það hefði verið rétt ákvörðun Alþýðusambands- þings að nauðsynlegt væri að launþegasamtökin mótuðu heild- arstefnu í efnahags- og atvinnu- málum, þannig að ekki yrði látið við það sitja að gera kröfur um kaup og kjör, heldur að menn veltu því einnig fyrir sér hvernig það kaup yrði tryggt og þau lífs- kjör sem verið væri að fara fram á. „Þetta verður auðvitað gert með breytingum í atvinnulífinu, en einnig með því að ganga á hlut þeirra sem hafa á síðustu þremur til fjórum misserum hirt geysilega fjármuni upp úr launaumslögum fólks. Aðalatriðið fyrir verka- lýðshreyfinguna er að ná í þá fjár- muni,“ sagði Svavar, „því þeir hafa ekki gufað upp, þeir eru bara annars staðar í þjóðfélaginu.“ Aðspurður um hvað hann vildi segja um frumkvæði það sem ASÍ og VSl hefðu tekið nú, sagði Svav- ar: „Ég vil ekki dæma neitt um það á þessu stigi málsins. Ég hlýt að spyrja um árangur — hvaða leiðir bjóðast til árangurs. Ég hefði talið vænlegast og skyn- ASI samlegast í þessari stöðu, að beita þannig baráttuaðferðum, þannig málflutningi og þannig kröfugerð að það megi verða til þess að verkalýðsstéttin í laridinu skilji það afl sem í henni felst, þegar hún stendur saman. Ég held að menn sæki ekki verulega inn á svið fjármagnseigenda, öðruvísi en að fjármagnseigendurnir skynji það afl sem felst í verka- lýðshreyfingunni." Aðspurður um hvað hann vildi segja um þá fullyrðingu Jóns Baldvins Hannibalssonar að skýrsla forseta ASÍ endurspeglaði fremur stefnu Alþýðuflokksins í efnahags- og atvinnumálum, fremur en Alþýðubandalagsins, sagði Svavar: „Ég held að málið sé ósköp einfaldlega það, að Ás- mundur er þarna að túlka þau sjónarmið sem hann hefur sem forystumaður í Alþýðusamband- inu, takandi tillit til allra að- stæðna og mismunandi sjónar- miða sem eru innan Alþýðusam- bandsins. Ég get ekki verið svo smekklaus að fara að stimpla þessa skýrslu sem eign einhvers stjórnmálaflokks. Hérna er ein- faldlega um að ræða skýrslu sem ætluð er sem grundvöllur til um- ræðna, áður en farið verður af stað með tillögugerð og beinar kröfur." Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Samtaka um kvennalista „Ákveðnari stefnumörkun í atvinnumálum nauðsynleg“ „ÉG ER því sammála að ákveðnari stefnumörkun í atvinnumálum sé nauðsynleg og ekki síður samstilling hinna ýmsu þátta, eins og mennta- kerfis, rannsóknastarfsemi, lána- kerfis og sölustarfsemi," sagði Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Samtaka um kvennalista, er hún var spurð álits á skýrslu forseta ASÍ um atvinnumál. „Við stöndum nú á nokkrum timamótum í atvinnumálum," sagði Kristín. „Við erum að átta okkur á því að í flestum atvinnu- greinum skipta gæði meira máli en magn. Það er okkur hollt. í framhaldi af því verður vinnuaflið vonandi í hærri metum. Við verð- um að vinna mjög markvisst að auknum útflutningi. Þar er tvennt mikilvægast: t fyrsta lagi eigum við að gera meira af því að leita eftir því hvað við getum selt og framleiða svo, í stað þess að fram- leiða óseljanlega vöru, eins og svo mörg sorgleg dæmi eru um. f öðru lagi eigum við að leggja áherslu á það sem er sérstakt fyrir okkur — óspillt land, tært loft, hreint vatn, og svo framvegis. Þessum þáttum aukast stöðugt gildi i æ mengaðri heimi. En við náum aldrei neinum árangri, nema launafólk sé með í ráðum og fái mannsæmandi laun fyrir vinnuframlag sitt. Það mega atvinnurekendur hafa í huga.“ 44 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Grikkland: Hörð og óvægin kosn- ingabarátta fer í hönd ÞÓTT kosningabaráttan í Grikklandi sé varla hafin og ekki endanlega búið aó ákveða kosningadag, þegar þetta er ritað, er þegar fari að hitna í kolunum. Og menn spá því að þetta verði harðskeyttasta kosningabarátt- an í Grikklandi síðan lýðræði var endurreist árið 1974. Ástæður þess eru vitanlega margar en benda má á nokkrar þær helztu: Gremja Nýja lýðræðisflokks- ins vegna þess hvernig að kjöri Sartzetakis hæstaréttar- dómara í embætti forseta var staðið. Auk þess er mikil óánægja meðal hægri manna yfir því, að Andreas Papandreou, forsætis- ráðherra, skyldi upp úr þurru og alveg á elleftu stundu draga til baka þá ákvörðun sína að styðja Konstantín Karamanlis. Karam- anlis hafði ákveðið að gefa kost á sér annað kjörtímabil, en sagði af sér um leið og Papandreou hafði kunngert að hann hefði ákveðið að PASOK styddi forsetann ekki til endurkjörs. Kosning Sartzetakis var og um- deild. Fyrst og fremst var deilt um hvað Papandreou myndi þurfa að láta Kommúnistaflokk Grikk- lands fá f staðinn fyrir þau at- kvæði sem flokkurinn léði PAS- OK við forsetakosningarnar. Margir miðjumenn í grískum stjórnmálum eru uggandi um að Papandreou hafi heitið kommún- istum of miklum skerf, eftir næstu kosningar. Óánægjan er þó ekki síður vegna þess hvernig kosningarnar fóru fram. Þær áttu lögum sam- kvæmt að vera leynilegar, en Pap- andreou hafði látið útbúa tvenns konar kjörseðla, bláa fyrir þá sem greiddu Sartzetakis atkvæði og hvíta fyrir þá sem skiluðu auðu. Kjörið réðst á einu atkvæði Io- annis Alevras, forseta þingsins. Hann hafði tekið við forsetaemb- ætti, samkvæmt stjórnarskrár- ákvæðum, eftir að Karamanlis sagði af sér. Þar af leiðandi var því haldið fram að hann hefði ekki atkvæðisrétt í forsetakjöri. Papandreou hafði mótmælin að engu, Alevras greiddi atkvæði og þar með tókst Sartzetakis að fá tilskilinn atkvæðafjölda, 180 af 300. Papandreou hefur án efa orð- ið nokkuð órótt þegar upplýstist, að tveir PASOK-þingmenn hefðu hlaupizt undan merkjum, og skil- að auðu. Eftir kosningarnar lýstu svo þingmenn Nýja lýðræðisflokksins yfir því, að þeir teldu niðurstöð- urnar ólögmætar og myndu þeir hunza forsetann. Ýmsir lögfróðir menn hafa verið fengnir til þess að tjá sig um málið og ber flestum saman um, að hægt væri að ógilda kosninguna, en þar sem Papandr- eou ákvað kosningar nokkrum mánuðum fyrr en kjörtímabilinu lýkur, mun Nýi lýðræðisflokkur- inn ekki hyggja á aðgerðir í því efni. I sjálfu sér kom ekki á óvart að kosningunum skyldi flýtt eftir það sem hafði gerzt á undan. Pap- andreou lítur væntanlega svo á að PASOK muni hagnast á því, þar eð fylgi flokksins úti á lands- byggðinni hefúr ekki fyrr verið meira en nú. Má það meðal ann- ars rekja til þess að afkoma grískra bænda hefur stórlega batnað, þeir hafa hagnazt mjög á aðild Grikkja að Efnahagsbanda- laginu. Hins vegar gæti orðið verðfall á afurðum þeirra þegar kæmi fram á haustið og því hefur Papandreou metið stöðuna svo að það kæmi PASOK tii góða að hespa kosningarnar af nú. Hann veit einnig, að forsetamálið mun verða hitamál í kosningunum og samstarf hans við kommúnista. En hann álítur sennilega að miðjumenn í stjórnmálum muni ekki vera alveg reiðubúnir til að flykkjast í stórum stíl til Nýja lýðræðisflokksins ef fyrirvari er skammur og því gæti hann hugs- anlega náð einhverju af því fylgi nú, sem kynni að tapast eftir því sem mánuðir liðu. Konstantin Mitsotakis, formað- ur Nýja lýðræðisflokksins, hefur margsinnis bent á það síðan hann tók við forystu flokksins, að Pap- andreou hafi verið reikull og óáreiðanlegur í stefnu sinni í utanríkismálum og þarf varla að fjölyrða um það. Hann hefur einnig lagt mikla áherzlu á það að þrátt fyrir betri hag bænda, séu flest kosningaloforð Papandreou frá því 1981 enn óuppfyllt. Um- bætur í heilbrigðiskerfi og menntamálum hafa ekki verið gerðar og samgöngumál eru í ólestri. Almennt er ástandið í Grikklandi ekki skárra en þegar Papandreou lofaði allagi, breyt- ingu haustið 1981, atvinnuleysi hefur aukizt, verðbólgan vaxið, og svo mætti lengi telja. Ýmsir stjórnmálaskýrendur segja líka, að Mitsotakis sé liklegur til þess að stórefla Nýja lýðræðisflokkinn og það hafi raunar þegar komið á daginn, að málflutningur Mitsot- akis hafi fengið góðan hljóm- grunn. Mitsotakis er sjálfur mik- ill mælskumaður, harðskeyttur og óvæginn og flokkurinn stendur ólíkt betur að vígi nú með sterkan foringja en þegar kosið var fyrir fjórum árum. Mitsotakis hefur sagt að hann sé þeirrar skoðunar, að Nýi lýð- ræðisflokkurinn ætti að geta hnekkt veldi PASOK þó svo að kosningarnar séu fyrr en ætlað var. Vegna þess að Papandreou hefur ekki tekizt að standa við gefin heit og því muni kjósendur nú ekki vera jafn ginnkeyptir fyrir fagurgala hans. Þetta á auð- vitað eftir að koma í ljós, en það sem gæti skipt sköpum væri ef PASOK missti miðjumennina frá sér. Þar er um að ræða 10 prósent kjósenda og eins og áður var vikið að er meðal þeirra reiði vegna þeirrar uppátektar Papandreou að taka að vingast við kommún- ista. Auk þeirra mála sem hér hafa verið nefnd skal svo siðast en ekki sízt vikið að samskiptunum við Tyrkland. Báðir flokkarnir leggja mikið kapp á að benda kjósendum á að aðalhætta sem að Grikkjum steðji sé frá Tyrkjum. Mitsotakis getur notað það í kosningabarátt- unni, að Papandreou hafi ekki orðið neitt ágengt i því að ná samningum varðandi Kýpur. Og þeir Mitsotakis og Papandreou eru raunar báðir vísir til að ýta undir Tyrkjaskelfinguna og Tyrkjahatrið í Grikklandi. Sjaldgæft er að kosningar i Grikklandi fari fram sumarmán- uðina. Venja er að efna til þeirra áður en sumarhitarnir verða of miklir enda fólki nógu heitt I hamsi fyrir. Þótt kosningarnar verði í byrjun júní er orðið heitt I Grikklandi þá. Og þó að þær væru seinna myndi það ekki draga úr hinum pólitíska hita sem kominn er í baráttuna. Nýi lýdræðisflokkurinn efndi til útifundar á Syntagma á fðstudaginn langa og sótti hann mikið fjölmenni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.