Morgunblaðið - 11.04.1985, Page 33

Morgunblaðið - 11.04.1985, Page 33
MORGONBLAÐIÐ, FljlMTUDAGTlR'il.' ÁPRÍL19& 33 Anna Benedikts- dóttir — Minning Fsdd 25. febrúar 1898 Dáin 30. mars 1985 „Örlög velta á hending tveggja handa. Hart slá nornir vef og þræði blanda. Vefst í höggi hverju æfi kafli, hljótt þær leiknum stýra í duliðskufli... Einar Ben. Þannig tekur Einar Benedikts- son til orða. Þannig setjum við mörg einnig upp okkar dæmi þeg- ar þræðir vefjast saman og við stöndum og bollaleggjum leið þeirra í vefinn sem fyrst og síðast verður jú það sem eftir stendur. Anna Benediktsdóttir fæddist í Grímstungu í Vatnsdal í Húna- vatnssýslu. Foreldrar hennar voru þau Guðrún Friðriksdóttir og Benedikt Jóhannsson. Bæði af húnvetnskum ættum. Ekki lágu leiðir þeirra saman sem slíkra, en giftust og eignuðust börn í hjóna- böndum sínum. Guðrún giftist Jóni Hjartarsyni og voru börn þeirra: Helga, sem er látin, Hjört- ur, kaupmaður í Olympíu hér í borg, Guðrún, dó ung, og Margrét gift Frederiksen. Þau bjuggu fyrst í Saurbæ í Vatnsdal. Fluttu þaðan til Reykja- víkur og dvöldu þar uns þau keyptu Skeggjastaði í Mosfells- sveit, og bjuggu þar. Var alla tíð náið og gott samband milli þeirra mæðgna og heimila þeirra. Bene- dikt giftist til Sauðárkróks. Börn hans voru fjögur: tvíburar, Mar- grét og Karólína, sem er látin, þá Steingrímur, sem er látinn, og Guðrún. Eins og hálfs árs gömul var Anna tekin í fóstur að Ási í Vatnsdal af þeim hjónum Sigur- laugu Guðmundsdóttur og Guð- mundi Ólafssyni alþingismanni. Með henni ólust þar upp frá bernsku frændsystkini Guðmund- ar, ólína og Guðmundur, seinna prestur að Barði í Fljótum. í Ási voru mörg fleiri börn um lengri eða skemmri tíma. Heimilið á Ási var mjög rómað fyrir myndarskap og menning- arbrag. Benedikt hafði dvalið langdvölum í Ási og vissi því í hvaða hendur hann var að láta dóttur sína. Anna naut líka ástrík- is og umönnunar sem hún minnt- ist ávallt með gleði þegar hún sagði frá uppvexti sínum seinna á ævinni. 15 ára gömul fór hún í kvenna- skólann á Blönduósi og var þá yngsti nemandi sem setið hafði skólann. Seinna sótti hun nám- skeið í fatasaum og hannyrðum í Reykjavík. Það skyggði á ævi önnu að hún var lengst af með skerta heilsu. Hún veiktist bæði af barna- og taugaveiki, mun það jafnvel hafa skilið eftir þau spor er sköpum skipti. Hún fatlaðist einnig af gigt og háði það henni í mannlegum samskiptum útí frá. Eigi að síður, litla stúlkan sem fæddist í Grímstungu og ekki var að þeirra tíma yfirsýn borin til drauma um stórbrotna veraldlega framtíð, hún átti eftir að lifa í glæsileik síns tíma. Henni voru góðar gáfur gefnar bæði til munns og handa og hún var falleg og skemmtilega viðræðuhæf. Frá- sagnargleði hennar var mikil og lá það gamansama ekki í láginni. 20. september 1924 gekk Anna í hjónaband hér í Reykjavík. Maður hennar var Friðrik H. Ludvigsson sonur hjónanna Jóhönnu Bjarna- dóttur Þórðarsonar að Reykhólum í Reykhólasveit og Ludvigs Haf- liðasonar kaupmanns Guð- mundssonar frá Engey. Heimili sitt stofnuðu þau að Vesturgötu 11 hér í Reykjavík og stóð það þar æ síðan meðan bæði lifðu. Mann sinn missti hún 4. október 1961. Heimilið bar, að marga mati, sömu reisn og Anna var alin upp við. Guðmundur fóstri hennar hélt jafnan til hjá þeim hjónum þegar hann sat á al- þingi. Honum fylgdi að vonum mikil gestakoma af samþings- mönnum hans, svo og heiman úr héraði. Þá hélst samband milli hennar stóra systkinahóps þó þrí- skiptur væri og segir það sína sögu um víðsýni og vináttubönd sem henni fylgdu ævina á enda. Sigurlaugu fóstru sína tók hún á heimili sitt þegar hún var orðin ekkja og hafði hana til dauðadags hennar. Anna og Friðrik eignuðust dótt- ur og son bama. Guðrúnu, f. 1926, hún er gift Brian Holt f.v. ræð- ismanni Breta á Islandi, þau eiga tvo syni. Patrik, hann er kvæntur og á tvær dætur. Hann býr í Eng- landi. Anton sem einnig er kvænt- ur og á tvær dætur. Hann býr á Seltjarnarnesi. Guðmund ó. f. 1928. Hann fluttist til Kanada árið 1956. Hann kvæntist Margréti, konu af skoskum ættum. Þeim varð ekki barna auðið. Guðmund- ur átti við langvarandi vanheilsu að stríða. Hann andaðist þar ytra 13. október 1984. Heimili sitt á Vesturgötunni hélt Anna nokkurn tíma eftir að hún varð ekkja, en þar kom að hún flutti alfarin til dóttur sinnar og lifði í skjóli þeirra hjóna uns hún andaðist eftir stutta legu á sjúkra- húsi. Líf hennar þar er kapítuli útaf fyrir sig. Hann gæti verið skóla- bókardæmi nú þegar mest er gert í því að ráðstafa gömlu fólki sem afgangsverum og jafnvel líkt við stórt þjóðfélagsvandamál. En Anna var þar engin hornreka, all- ar hennar þarfir voru mínútu sett- ar. Vegna heilsu sinnar sat hún langdvölum í stól og hún átti sinn stól, það settist enginn í hann, hún þurfti aldrei að biðja um að staðið væri upp fyrir sér. Anna átti því láni að fagna að vera vernduð alla sína ævi. Hún lifði í farsælu hjónabandi og dótt- ir hennar og tengdasonur hlúðu að henni á þann fullkomnasta máta sem ég hef séð um mína daga. Þau miðuðu sínar ferðir og gjörðir við hennar hagsmuni. í banalegu hennar vék fjölskyldan ekki frá henni hvorki nótt eða dag, það var haldið í höndina á henni uns yfir lauk. Eflaust hefur Anna átt sínar efasemdir um tilgang lifsins. Vef- ur hennar slóst saman á þann máta að vart mun heimasætan í Ási haft sett hann svo glögglega upp fyrir sér. Þó afkomendur hennar séu ekki margir miðað við langa ævi, má segja að þeir hafi verið gefnir hinum stóra heimi sem var svo óra langt frá Vatns- dalnum kæra. Það útaf fyrir sig er hljómur margra strengja sem fylgja móðurhjartanu og mun ég ekki ætla mér þá dul að færa þá þaðan. Frá því við kynntumst eru meira en 15 ár. Hún er mér minn- isstæð falleg eldri kona að ytri sýn en ung að allri innri gerð, hún var svo andlega hress. Fyrir ánægju- iegar stundir er ég henni þakklát nú að leiðarlokum. Ég bið henni, hennar fólki og minu sem henni tengdist, allrar blessunar. Friður sé og veri með þeim öll- um. Jónína Jónsdóttir henni þar. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé minning Jónínu, sem lengi mun geymast í hugum okkar. Góður Guð geymi hana. Ólafur Jónsson Mín bíður ei hin djúpa, dimma gröf, því drottinn sjálfur bjó mér aðra leið, og bak við dauðaiis breiðu, myrku höf, þar bíður annað fagurt lífsins skeið. En gröfin þögul, geigvænleg og kðld, hún geymir aðeins það, sem jörðin á. Mín leið er yfir hel og harma völd til hans, sem andi minn og líf er frá. Eg veit, að þú minn guð, er gafst mér líf og gafst mér ódauðleika, von og trú, á framhaldslífsins vegi verður hlíf, - á vegunum, er sjálfur lagðir þú. Og þegar opnast dauðans dimmu hlið, þá degi þinum mæti eg á ný. Eg geng þar inn með fullum sálarfrið, því, faðir, eg er skjóli þínu í. Eg veit, að bak við lífið kemur líf, sem lífgar það, sem hér á jörðu kól. Og þú ert, Guð minn, hverri veru hlff og hverju barni þínu kærleikssól. í ógnum dauöans, eins og sonur þinn, eg anda minn í þínar hendur fel. Eg veit mér bregzt ei föðurfaðmurinn og forsjón þinni’ og líkn eg treysti vel. (Höf. Einar M. Jónsson) Ég þakka elsku ömmu minni fyrir allt. GJ.Ó. Fiskiðn gengst fyrir námstefnu um fiskiðnað FISKIÐN, fagfélag fiskiðnaóarins, gengst i morgun, fostudag, fyrir nám- stefnu um fiskiðnað. Verður hún í Hreyfilshúsinu við Grensásveg og hefst klukkan 10 árdegis. Námstefnan hefst með fram- söguerindum en að þeim loknum verða umræður. Framsöguerindi flytja: Lárus Björnsson, kennari við Fiskvinnsluskólann, Einar G. Hjaltason, verkstjóri Hraðfrysti- húss Hnífsdals, dr. Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Iðntækni- stofnunar íslands, dr. Grímur Valdimarsson, forstjóri Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins, og Gísli Erlendsson, forstjóri Rekstr- artækni. Ráðstefnuna setur Finn- ur Ingólfsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, en fundar- stjórar verða Aðalsteinn Gott- skálksson og Jón Geirsson. Hjól í óskilum NÝLEGT reiðhjól af gerðinni DBS er i óskilum í Hlíðargerði 6 í Reykjavík, en þar hefur það verið í nokkrar vikur. Húsráðendur, sem hafa símann 84529, vilja gjarnan að eigandinn sæki hjólið, en þeir telja að því hafi verið stol- ið og síðan skilið eftir í Hlíðar- gerðinu. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíðum Moggans! STJÓRNUNAR STJÓRNUN BREYTINGA Management of change Stöðugar breytingar í vinnuumhverfi stiórnenda leiða til meiri krafna og auka vinnuálag. Til þess að ráða við þetta þarf nýjar aðferðir og nyja hæfni sem ekki er tif staðar nema að litlu leyti i dag. Breytingar eru eðlilegur hluti af lífinu, en hinar öru tæknifram- farir á unaanförnum árum hafa aukið hraða breyt- inganna og áhrif þeirra fara vaxandi. Vaxandi skilningur er á því innan atvinnulífsins að aeta fyrirtækjanna til þess að lifa af, velti mjög á næfninni til þess að stjórna breytingum á árangurs- ríkan hátt. Engin einfold leið er til. Markmið námskeiðsins er m.a. að: - greina eðli breytinga og þau vandamál sem þær skapa - yfirfara aðferðir við stjórnun breytinga - greina vandamál sem við er að etja í dag vegna breytinga Efni námskeiðsins er m.a.: - þörfin fyrir breytingar og framtíðarspár - nin raunverulegu vandamál breytinga - þróun bestu aostæðna - skipulagning og framkvæmd á árangurs- ríkum stjórnunaraðferðum - helstu lykilatriði við stiórnunbreytinga - markvirkar stjórnskipulagsbreytingar Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum stjórn- endum fyrirtækja og stofnana, sem á einhvern hátt þurfa að stjórna breytinqunr námskeiðið hentar einnig mjöq vel rekstrarráogjöfum, sem óska að ná tökum á víofangseefninu. Leiðbeinandi: Mike Fischer, starfar sem stjórnun- arráðgjafi hjá fyrirtækinu Organisation Dynamics. Sérsvið hans eru stefnumótun og markmiðasetning fyrirtækja, framleiðniaukandi aogerðir og bættar samskipta- og hvatningaraðferðir. Hann hefur 17 ára starfsreynslu við Teiðbeiningarstörf í breska flughernum og hjá breska varnarmálaráðuneytinu, oa starfaði sem aðalleiðbeinandi á þjálfunarnám- skeiðum hersins. Staður og tími: 23.-24. apríl 1985 í Krist- alssal Hótels Loftleiða. TILKYNNIÐ ÞATTTÖKU í SÍMA 82930 MARFÉLAG ISLANDS ICSíí,23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.