Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 49
MORGDNBLADID, FIMMTUÖAGUk Vl. ÁÍ^RÍL 19&5
49
Ólöglegt maric Vals
— færöi liðinu sanngjarnt jafntefli gegn FH
FH-INGAR og Valsmenn gerðu
jafntefli, 26:26, er önnur umferð
úrslitakeppni íslandsmótsins í
handknattleik hófat í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði í gmrkvöldi.
Staðan í leikhlói var 15:10 fyrir
FH. Úrslitín voru sanngjörn eftir
gangi leiksins en síöasta mark
Valsmanna var ólöglegt þó það
hafi verið dmmt gílt.
Níu sek. tyrir leikslok fengu
Valsmenn aukakast, Einar Þor-
varðarson sem kominn var fram í
sóknina fékk knöttinn og sendi
hann inn á línuna á Geir Sveins-
son. Brotið var á Geir og aftur
dæmt aukakast. Þá voru 4 sek.
eftir. Jón Pétur Jónsson tók knött-
inn af Geir og sendi hann á Þor-
björn Jensson sem skaut rakleiðis
að marki FH og skoraði er aðeins
2 sekúndur voru eftir. En þegar
Jón Pétur framkvæmdi aukakastiö
voru ekki allir Valsmennirnir
komnir út fyrir punktalínuna — og
heföi aukakastiö því átt að fram-
kvæmast aftur. Dómararnir létu
hins vegar markið standa og
Valsmenn nældu þar með í stig.
Leikurinn var jafn allan tímann,
FH-ingar leiddu þó yfirleitt og
komust nokkrum sinnum fáein
mörk yfir. Valsmenn náöu þó ætið
aö jafna aftur og komust einu sinni
yfir, 19:18, er 17 mín. voru eftir.
FH-ingar svöruöu því með fjórum
mörkum í röð. Komust í 22:19 en
síöan var spennan mikil í lokin eins
og áöur segir og stemmningin í
húsinu var geysileg.
Haraldur Ragnarsson var frá-
bær í marki FH í leiknum. Varöi
fjölda skota, þar á meðal 2 víta-
köst og mörg dauðafæri. Einar
Þorvaröarson varði mjög vel í
marki Vals í síöari hálfleik. í upp-
hafi hálfleiksins varöi hann vítakast
Kristjáns Arasonar og viö þaö efld-
ust Valsmenn til muna. Valsvörnin
fór þá aö taka mjög vel á móti
FH-ingunum og í sókninni nýttu
Valsarar breidd vallarins vel.
Mörk FH: Kristján Arason 8/2, Hans Guö-
mundsson 8/2, Jón Erlinfl Ragnarsson 3, Guö-
jón Arnason 2, Þorgils Ottar Mathiesen 2,
Sveinn Bragason 1 og Valgarð Valgarösson 1.
Mörk Vals: Július Jónasson 7, Jakob Slg-
urösson 6, Theódör Guöfinnsson 5, Jón Pétur
Jónsson 3, Þorbjörn Jensson 2, Gelr Svelns-
son t og Þorbjðrn Guömundsson 1.
— ágás./SH.
Naumur Víkings-
sigur á KR-ingum
VÍKINGAR unnu nauman sigur á
KR í úrslitakeppni 1. deidlar í
handknattleik ( Hafnarfirði í
gærkvöldi 21:20 eftir að hafa haft
yfir, 10:8, í leikhléi. Sigur Víkings
hékk á bláþræði — Viggó Sig-
urösson skoraöi sigurmarkið úr
vítakasti sjö sekúndum fyrir
■eikslok.
Víkingar höfðu forskot mest all-
an leikinn, komust t.d. í 15:10, er
tíu mín. voru liönar af síöari hálf-
leiknum. Síöan í 16:11 en þá tóku
KR-ingar þaö til bragös aö taka
Viggó Sigurösson og Þorberg Aö-
alsteinsson báöa úr umferö og viö
þaö riölaöist leikur Vikings mikiö.
KR-ingar efldust á sama tíma og
gífurleg barátta þeirra siöustu 20
mínúturnar haföi næstum fært
þeim jafntefli og þar meö eitt stig.
Þeir söxuöu jafnt og þétt á for-
skotið, staöan varö 16:14, siöan
reyndar 18:14, og 18:17. Munurinn
aöeins eitt mark og allt gat gerst.
Þá voru tíu mín. eftir. Spennan var
gifurleg lokakaflann. Vikingar
komust í 19:17 og síöan í 20:18 er
8 mín. voru eftir. Næstu sex mín.
var ekki skoraö mark og er tvær
mín. voru eftir minnkaði KR mun-
inn í eitt mark, 20:19, og jafnaði
síðan 20:20, er ein mín. var eftir.
Viggó skoraöi svo úr víti er aöeins
sjö sek. voru eftir eins og áöur
sagöi. Hilmar Sigurgisiason braust
inn af línunni og dæmt var víti á
KR-inga þar sem þeir stóöu inni í
vítateignum er þeir brutu á honum.
Sigurinn var sanngjarn er á heil-
dina er litiö en varla heföi talist
ósanngjarnt þó KR-ingar heföu
náö jafntefli. Slík var barátta þeirra
og viljastyrkur síöustu 20 mínút-
urnar.
Þorbergur Aöalsteinsson var
langbestur Víkinganna en Hílmar
Sigurgíslason lék einnig mjög vel.
Steinar og Karl áttu góöa spretti
en hurfu inn á milli. Ekki er gott aö
tína neinn sérstakan út úr KR-liö-
inu. Leikmenn þess voru mjög
jafnir.
Mörk Víkings: Þorbergur 9/3,
Viggó 3/1, Steinar 3, Einar Jó-
hannesson 2, Karl Þráinsson 2,
Hilmar Sigurgíslason 1 og Sigurö-
ur Ragnarsson 1.
Mörk KR: Haukur Geirmundsson
6, Páll Björgvinsson 4/1, Jóhannes
Stefánsson 4/1, Friörik Þorbjörns-
son 2, Höröur Haröarson 2 og
Haukur Ottesen 2.
Handbolti í kvöld
TVEIR leikir fara fram í kvöld í
úrslítakeppninni í 1. deild karla (
handknattleik. KR og Valur leika í
íþróttahúsinu ( Hafnarfiröi kl.
20.00 og strax að þeim teik lokn-
um leika FH og Víkingur og hefst
leikurinn kl. 21:30.
Á morgun, föstudag, leika síð-
an Víkingur og Valur og KR—FH.
Einnig þeir leikír fara fram (Hafn-
arfirði.
^tfllÓMSVEITIN
Þrettándu tónleikar islensku hljómsveitarinnar á þessu starfsári veröa haldnir í Bústaöakirkju á
fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:30. Á tónleikum þessum, sem jafnframt eru áttundu áskriftartónleikar
hljómsveitarinnar í Reykjavík, veröa flutt tvö ástkær kammerverk eftir Wolfgang Amadeus Mozart
og Ludvig van Beethoven, Óbókvartettinn (K 368b) eftir Mozart og Kvintettinn op. 16 eftir Beet-
hoven. Aö auki veröur frumfluttur oktett eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem hlotiö hefur nafniö
ATTSKEYTLA. Er þaö níunda tónverk innlends höfundar sem hljómsveitin falast eftir og frumflytur
á starfsárinu. A tónleikunum koma fram eftirtaldir félagar íslensku hljómsveitarinnar.
Siguröur I. Snorrason
Hrefna Hjaltadóttir
Olöf Seaselja Bjöm Árnaaon
Óskaradóttir
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
Laufey Sigurðardóttir
Krístjén Þ. Stephensen Lilja Valdimarsdóttir
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær:
Óöinsgata
Hverfisgata 4—62
Sóleyjargata
TOLVU
Tölvur eru í dag fyrst og fremst notaðar við úrvinnslu
gagna. Samt er það svo að hefðbundin forritunarmál s.s.
Basic og Fortran eru fyrst og fremst ætluð fyrir tölulega
útreikninga og því ekki þjál við gagnavinnslu. Gagna-
safnskerfi hafa því augljóslega kosti fram yfir önnur mál,
þegar unnið er með gagnasöfn. Dæmi um gagnsöfn eru
m.a. birgðaskrár, fasteignaskrár og viðskiptamanna-
skrár.
MARKMIÐ:
Eitt vinsælasta gagnasafnakerfið á markaðnum í dag er
DBASE II sem fá má á velflestar smátölvur. Á þessu
námskeiði fá þátttakendur innsýn í það hvernig skal
skipuleggja gögn, gagnameðhöndlun og gagnaúr-
vinnslu, og eftir námskeiði skulu menn vera færir um að
nota DBASE II í þessu skyni.
EFNI:
- Tölvur sem gagnavinnslukerfi.
- Skipulag gagna til tölvuvinnslu.
- Gagnasafnsforrit kynnt og borin saman.
- Verkefni og æfingar í DBASE II, á tölvubúnað SFÍ.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað stjórnendum og öðrum þeim sem
vilja tileinka sér notkun gagnasafnskerfa á smátölvur.
LEIÐBEINENDUR:
ÍL
Valgeir Hallvarðsson, véltæknifræðingur.
Lauk próH við Odense Teknikum I978, en
starfar nú sem deildarstjóri hjá Eimskip.
TIMI:
15.4.-17.4 kl. 9-13.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTOKU
í SÍMA 82930
ATH: Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntun-
arsjóður Starfsmannafélags ríkisstofnana styrkja félaga sína
á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa skrifstofur viðkomandi
félaga.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSIANDS !»o23