Morgunblaðið - 01.06.1985, Side 2
2
MOgGlJNBLAqiÐ, LAtyGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
"1 Norðurlax hf. á Laxamýri
INNLENT
Útfór Kristjáns
Sveinssonar
gerð frá
Dómkirkjunni
ÚTFÖR Kristjáns Sveinssonar,
læknis, heidursborgara Reykjavfk-
ur, var gerd frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í gær að viðstöddu fjöl-
menni. Séra Þórir Stephensen,
dómkirkjuprestur, jarðsöng. Mart-
einn H. Friðriksson lék á orgel,
Magnús Jónsson söng einsöng,
Gunnar Kvaran lék á selló og
Ljóðakórinn söng.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
Birgir ísleifur Gunnarsson, al-
þingismaður, ólafur örn Arn-
arson, yfirlæknir, Kristján Bald-
vinsson, læknir, Páll Gislason,
læknir, forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur, Úlfar Þórðarson,
læknir, Sigurjón Pétursson,
borgarfulltrúi og Kristján Bene-
diktsson, borgarfulltrúi, báru
kistuna úr kirkju.
ÚR KIRKJU báru Davíð Oddsson, borgarstjórí, Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður, Ólafur Örn Arnar-
son, læknir, Kristján Baldvinsson, læknir, Páll Gíslason, læknir, og forseti borgarstjórnar, Úlfar Þórðarson,
læknir, Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi, og Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi.
Tvíburar dúxa
MEÐAL stúdenta sem útskrifuðust frá Verzlunarskóla íslands á
fimmtudaginn voru tvíburabræður. Svo skemmtilega vildi til að annar
þeirra, Magnús Harðarson, var dúx með einkunnina 9,41 og bróðir
hans, Páll Harðarson, var semi-dúx með einkunnina 9,36.
Auk þess að vera með hæstu
einkunnir fengu þeir bræður
fjölda verðlauna fyrir náms-
árangur. Magnús fékk verðlaun
fyrir góðan árangur í bókfærslu,
þjóðhagfræði og rekstrarhag-
fræði, verðlaun úr Raungreina-
sjóði, verðlaun úr Minningar-
sjóði um dr. Jón Gíslason fyrir
frábæra frammistöðu í erlend-
um tungumálum á stúdentsprófi
og verðlaun skólans fyrir hæstu
einkunn.
Páll fékk verðlaun fyrir góðan
árangur í bókfærslu, þjóðhag-
fræði og rekstrarhagfræði,
tvenn verðlaun úr Raungreina-
sjóði, m.a. fyrir afburða árangur
í forritun, verðlaun úr Minning-
arsjóði um dr. Jón Gíslason fyrir
hæstu meðaleinkunn i erlendum
tungumálum í Hagfræðideild og
fyrir frábæran árangur í þýsku
og verðlaun skóla fyrir næst-
hæstu einkunn.
Þeir Magnús og Páll flugu til
Ibiza með skólafélögum sinum
strax morguninn eftir útskrift-
ina. Þar munu þeir dvelja í mán-
aðartíma. Að sögn systkina
þeirra ætlar Magnús að bera út
póst í sumar og Páll að vinna hjá
hreinsunardeild borgarinnar.
Ekki hafa þeir gert upp við sig
hvað þeir ætla að gera næsta
vetur, en margt hefur verið rætt
í því sambandi.
6—10 milljóna tjón
vegna tálknaveiki
UM HÁLF milljón seiða hefur drepist
úr tálknaveiki af óþekktum orsökum
sem herjað hefur í laxeldisstöðinni
Norðurlaxi hf. á Laxamýri í Þingeyj-
arsýslu að undanförnu. Fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar metur
tjónið á 6—10 milljónir kr. Sýni frá
Laxamýri eru til rannsóknar á Keld-
um en langur tími getur liðið þar til
veikin verður greind.
Björn G. Jónsson á Laxamýri,
framkvæmdastjóri Norðurlax hf.,
sagði i samtali við Morgunblaðið að
veikin hefði herjað á eldri fiskinn í
stöðinni í vetur án þess að valda
miklu tjóni. Hún hefði síðan kom-
ist í smáseiðin á viðkvæmum tíma
með þeim afleiðingum að um 80%
allra smáseiða i stöðinni hefðu
drepist á fáum vikum, líklega uin
500 þúsund seiði. Hann sagði að
seiöin misstu lystina, þyldu engan
hita og vesluðust upp á örfáum
dögum.
Björn sagði að barist hefði verið
við sjúkdóminn í sex vikur, með öll-
um tiltækum ráðum, bæði inn-
lendri og erlendri sérfræðiþekk-
ingu, en ekkert hefði dugað. Sjúk-
dómur þessi væri þekktur hér á
landi, hann hefði komið upp áður í
stöðvum hér og leikið þær grátt en
aldrei verið hægt að greina hvað
væri á ferðinni. Nú væru sýni í
rannsókn í tilraunastöð háskólans í
meinafræði á Keldum, en bið yrði á
niðurstöðum rannsóknanna. Björn
taldi helst að sjúkdómurinn hefði
komið í stöðina úr náttúrunni, sú
virtist slóðin, en einnig væri hugs-
anlegt að hann hefði borist með
fóðri. Sagði Björn að hann gengi
yfir sem faraldur, en þeir fiskar
sem lifðu yrðu ónæmir fyrir hon-
um. Að því leyti hegðaði hann sér
öðru vísi en þekktir sjúkdómar hér
á landi, svo sem nýrnaveiki og
kýlapest. Taldi Björn ýmislegt
benda til að faraldurinn væri að
ganga yfir.
Björn Jónsson sagði að stöðin
væri ekki tryggð gegn tjóni af völd-
um sjúkdóma, og þó svo væri hefði
tryggingarfélagið ekki bætt tjónið
vegna þess að sjúkdómurinn hefði
ekki verið greindur. Hann sagði að
tjónið væri afar slæmt fyrir stöð-
ina, og kæmi sér einnig illa fyrir
viðskiptavini hennar vegna þess að
búið hefði verið að lofa þessum
seiðum út um allt land. „En við
verðum bara að bíta á jaxlinn, og
byrja upp á nýtt,“ sagði Björn.
Félagsmálaráðherra um úrskurð sinn:
Endurskoðaður ef borg-
in bætir úr formgöllum
„SAMKVÆMT fréttum virðist borg-
arstjóri hafa áttað sig á því að þarna
var ekki rétt að málum staðið því
hann hefur látið gera nýjar samþykkt-
ir. Þetta verður skoðað á nýjan leik,
þegar ráðuneytinu berast nýjar upp-
lýsingar", sagði Alexander Stefáns-
son, félagsmálaráðherra, þegar hann
var spurður að því hvort félagsmála-
ráðuneytið hygðist endurskoða úr-
skurð sinn varðandi ógildingu bygg-
ingarleyfis fjölbýlishússins Stangar-
holt 3—9, sem deilur hafa staðið um
að undanförnu.
Alexander sagði að aðalatriði
málsins væri það að meðferð borg-
arinnar á þessu máli hefði ekki ver-
ið í samræmi við lög og reglur, og
þvf hefði ráðuneytið orðið að ógilda
samþykktir borgarinnar um bygg-
ingaleyfið. Vilji ráðuneytisins stæði
alls ekki til að gera borginni eða
neinum öðrum miska, en þvf bæri
skylda til að gæta hagsmuna hins
almenna borgara eins og annarra.
Hann sagði að úrskurðurinn yrði að
sjálfsögðu endurskoðaður ef borgin
gerði ráðstafanir sem bættu úr
formgöllum á meðferð hennar á
málinu, en vildi ekki kveða upp úr
um hvort útgáfa nýs mælingablaðs
sem sýnir byggingarsvæðið sem
eina lóð dygði til þess.
Færeyingar kaupa
16 ný fískiskip
Helgi Pétursson
Ritstjórnarstefna NT verður
óbreytt."
Meðan við höldum að okkur
höndum í kaupum á fiskiskipum
hafa frændur okkar Færeyingar,
nánar tiltekið færeyska lands-
stjórnin, samþykkt kaup á 16 nýj-
um skipum. Er hér um að ræða 4
línuskip, sem ætlað er að fari á
veiðar við Labrador og 5 rækjutog-
arar sem munu halda á veiðar við
Svalbarða en 7 togarar verða gerð-
ir á úthafsveiðar. Á móti verða
seldir tveir eldri togarar.
Að sögn fréttarara okkar í
Færeyjum, Jogvan Arge, er aðal
röksemdin fyrir kaupum á
rækjutogurunum sú, að ef Fær-
eyingar kaupi ekki fleiri rækju-
skip verði hlutur þeirra af
rækjukvótanum við Svalbarða
of lítill. Hvað úthafsveiðarnar
varðar er ætlunin að veiða eink-
um þorsk, ufsa, karfa og blá-
löngu.
Fiskifræðingar í Færeyjum
hafa áður lýst yfir áhyggjum
sínum á ofveiði á þorski og ufsa.
En þeir hafa ekki ennþá gefið út
yfirlýsingu varðandi þessi fiski-
skipakaup.
Aætlað að öll skipin muni
kosta 1.200 milljónir danskra
króna. Flest verða þau byggð i
Noregi en nokkur í Færeyjum.
Standa nú yfir samningar um
þau mál. Er áætlað að fyrstu
skipin verði tilbúin til veiða eft-
ir eitt ár en hin eftir 4 ár.
Helgi Pétursson
ráðinn ritstjóri NT
HELGI Pétursson fréttamaður út-
varps hefur verið ráðinn ritstjóri NT
og befur hann störf í dag. Enn er
ekki afráðið hvort eða hverjir verða
ráðnir sem meðritstjórar Helga, en
rætt hefur verið við þá Indriða G.
Þorsteinsson og Magnús Bjarnfreðs-
son, en þeir hafa enn ekki afráðið
hvort þeir muni taka við slíku starfi.
Þetta staðfesti Magnús Bjarnfreðs-
son í samtali við Morgunblaðið (
gær, og sagði að hann þyrfti að fá
ýmsar upplýsingar frá útgáfu-
stjórninni áður en hann gæti gert
upp hug sinn.
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi fréttatilkynning frá út-
gáfustjórn NT:
„Á undanförnum vikum hefur
verið unnið að endurskipulagn-
ingu á útgáfu, rekstri og ritstjórn
NT.
Sú endurskipulagning kemur í
kjölfar mjög erfiðs rekstrar á síð-
asta ári m.a. vegna 6 vikna verk-
falls prentara sl. haust.
í kjölfar þess að Magnús ólafs-
son ritstjóri lætur af störfum að
eigin ósk, hefur stjórn NT ráðið
Helga Pétursson fréttamann rit-
stjóra NT frá og með 1. júní nk.
Af hálfu stjórnar NT hefur
þeim Hákoni Sigurgrímssyni, Ein-
ari Birni, Guðmundi Karlssyni og
Helga Péturssyni verið falið að
vinna að áframhaldandi endur-
skipulagningu á rekstri og rit-
stjórn blaðsins. Er frekari breyt-
inga að vænta í þeim efnum innan
fárra vikna.