Morgunblaðið - 01.06.1985, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNl 1985
Stjómarliðar um stöðuna í húsnæðismálum:
Tillögur stjórn-
arandstöðu eru
óraunhæfar
ÞEIR Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisnokksins og Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
munu hitta fuiltrúa stjórnarandstöð-
unnar á hádegi í dag, bar sem þeir
munu gera þeim grein fyrir afstöðu
stjórnarflokkanna til illagna stjórn-
arandstöðunnar varðandi fjáröflun
til lusnæðismálalána. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins telja
beir Steingrímur og Þorsteinn ekki
að 'illögur stjórnarandstöðunnar séu
vaunhæfar. Þeir telja að margt af því
sem bent er á, sé óframkvæmanlegt.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær, vill stjórnarand-
staðan afla tveggja milljarða til
húsnæðislána á næstu 18 mánuð-
um. Vill hún að eignaskattsvið-
auki á fyrirtæki, sem hún leggur
til að verði 100% hækkun skatts-
ins, gefi 215 milljónir á ári, en það
jafngildir 322 milljónum þennan
18 mánaða tíma. Þannig að með
eignaskattsauka einstaklinga,
ættu um 380 milljónir að skila sér
undir þessum lið, samkvæmt til-
lögum stjórnarandstöðunnar.
Ekki er talið líklegt að stjórnarlið-
ar, einkum sjálfstæðismenn, vilji
fallast á þessa auknu skattbyrði
fyrirtækja.
Astæða þess að ákveðið hefur
verið að falla frá skyldusparnaði á
hátekjufólk mun vera sú, að
stjórnmálamennirnir hafa séð
fram á að með því að hækka sölu-
skatt um eitt prósentustig, gefi
það af sér um 500 milljónir á ári,
sem jafngildir um 750 milljónum á
þessum 18 mánuðum.
Pétur SigurÓsson formaður sjómannadagsráós, finnbogi Sævar Guómundsson yfirsmiður og Rafn Sigurðsson
forstjóri í matsal hinnar glæsilegu hjúkrunardeildar sem tekin var f notkun á Hrafnistu í gær.
Hrafnista f Reykjavík:
Endurbyggð hjúkrun-
ardeild tekin í notkun
Æfðu reykköfun
NÁMSKEIÐ um öryggismál sjómanna hefur undanfarið staðið yfir
á vegum Slysavarnafélags íslands i Reykjavík. Meðal annars æfðu
sjómennirnir sig í reykköfun og var þessi mynd tekin um borð í
varðskipi í Reykjavíkurhöfn í gær.
I GÆR var ný endurbyggð álma
formlega tekin í notkun á Hrafnistu,
dvalarheimili aldraóra sjómanna, í
Reykjavík.
I álmu þessari er til húsa ein af
fimm hjúkrunardeildum Hrafn-
istu. Deildin er sérstaklega ætluð
fólki sem á við geðræn vandamál
að striða og mun það vera nýjung
á dvalarheimilum aldraðra hér-
lendis. Vistmenn á deildinni eru
22.
Að sögn Rafns Sigurðssonar,
forstjóra Hrafnistu, voru fram-
kvæmdir þessar kostaðar með
styrk úr Framkvæmdasjóði aldr-
aðra. Sagði hann að vonir stæðu
til að unnt yrði í framhaldi af
þessu að endurbyggja á sama hátt
aðrar hjúkrunardeildir heimilis-
ins, því þær stæðu orðið nokkuð að
baki nýjum hjúkrunardeildum
annars staðar hvað ýmsa aðstöðu
varðaði og hefði af þeim sökum
reynst erfitt að fólk til starfa á
þeim.
Endurbæturnar hafa staðið yfir
í eitt ár. Hafa þær alfarið verið
unnar af iðnaðarmönnum, sem
fastráðnir eru hjá Hrafnistu.
Lauk Rafn Sigurðsson miklu lofs-
orði á störf þeirra og sagði það
einsdæmi að slíkar framkvæmdir
ættu sér stað án þess að loka
þyrfti viðkomandi deild og senda
fólkið heim. Slíkt var ekki unnt
hér því flestir vistmenn áttu ekki í
önnur hús að venda. Pétur Sig-
urðsson, formaður sjómanna-
dagsráðs, tók í sama streng og
benti á að allar breytingar hefðu
verið gerðar í samráði við vist-
menn og starfsfólk, sem sýnt hefði
mikla þolinmæði og lagt sig fram
um að framkvæmdir gengju sem
best.
Þeir Rafn og Pétur lögðu
áherslu á að allt væri gert til að
hafa sem heimilislegastan blæ á
deildinni, því hún væri fyrst og
fremst heimili, en ekki stofnun.
Halldór Guðmundsson arkitekt
teiknaði hinar nýju innréttingar,
en yfirsmiður var Finnbogi Sævar
Guðmundsson.
Máilýskurannsóknir f höfuðborginni:
Flámæli á undan-
haldi í Reykjavík
— og harðmæli fer vaxandi meðal eldra fólks
MUN FÆRRI Reykvíkingar eru flámæltir nú en voru í lok seinni heims-
styrjaldarinnar. Einnig viróist sem linmæli hafi minnkaó í höfuðborginni
á sama tíma. Þetta kemur fram í ritgerð eftir þá Höskuld Þráinsson og
Kristján Arnason í ritinu íslenskt mál og almenn málfræói, sem kemur út
á vegum Hins íslenska málfræóifélags í dag.
Þeir Höskuldur og Kristján landið. Svo er t.a.m. um linmæl-
athuguðu málfar Reykvíkinga og
Kópavogsbúa á árunum 1981 —82
með því að ræða við tæplega 200
manns í heimahúsum, á vinnu-
stöðum og í skólum. Þeir segja í
niðurstöðum sínum, að sem
mállýskusvæði hafi Reykjavík
mjög mikla sérstöðu miðað við
önnur svæði landsins. „Ekki er
hægt að tala um að Reykjavík
„eigi“ nein hefðbundin einkenni,
sem helst sé að finna þar, eins og
ta.m. skaftfellska hefur ein-
hljóðaframburð á undan -gi-,
norðlenska raddaðan framburð
o.s.frv.," segir í grein þeirra. „Öll
þau framburðareinkenni, sem
einkenndu Reykjavík, eins og
lýst er í rannsóknum Björns
Guðfinnssonar og Ólafs M.
Ólafssonar finnast víðar um
ið, sem nær til mikils hluta
landsins, enda þótt oft sé sagt að
það sé reykvískt einkenni." Eins
sé um flámæli, sem nokkuð hafi
borið á í borginni í könnun
Björns og Ólafs upp úr stríðsár-
unum. „Annað, sem gerir
Reykjavík sérstæða sem mál-
lýskusvæði, er stærð hennar og
það, að stór hluti íbúanna er að-
fluttur. Það er efni í sérstakar
rannsóknir að kanna Reykjavík
frá þessu sjónarmiði,“ segja þeir.
Rannsóknir þeirra benda til að
harðmæli aukist með aldrinum.
„Annað, sem benda má á í þessu
sambandi, er það að jákvæð
fylgni er milli menntunar og
harðmælis," segir í greininni.
„Það virðist því að breyttir tím-
ar séu nú hvað varðar samband
harðmælis og aldurs og mennt-
unar. Harðmæli eykst með meiri
menntun og aldri. Augljósasta
skýringin á þessu virðist vera sú
mályrkjustefna, sem talið hefur
harðmæli betra mál en linmæli.“
Einnig segir að ekki sé óhugs-
andi, að hlutfall Norðlendinga sé
hærra í hópi menntamanna en
öðrum hópum. „Þetta væri þá
ekki vegna þess, að Norðlend-
ingar séu gáfaðri en aðrir, held-
ur vegna þess e.t.v. að þeir Norð-
lendingar, sem flytja til Reykja-
víkur, séu líklegri til að vera
menntamenn en ómenntaðir."
I lokaorðum greinarinnar seg-
ir að ekki sé stórkostlegur mun-
ur á tíðni harðmælis í Reykjavík
nú og fyrir 40 árum. Ljóst sé að
dregið hafi úr hinu „hefð-
bundna" flámæli, sem var mest
áberandi á „i“ og „u“ en í staðinn
bóli á nýju flámæli, þar sem
fjarlægar! hljóðin, einkum „ö“,
hafi tilhneigingu til að nálægj-
ast.
Verðbólga og lág
laun eru talin
mestu vandamálin
— samkvæmt niðurstöðu í
í SKOÐANAKÖNNUN Hagvangs
hf. er geró var fyrr í þessum mánuði
töldu 12,6% aóspuróra verðbólguna
mesta vandamál fslendinga, og hef-
ur þeim fækkað frá því í febrúar, en
þá voru þeir 19%. Hins vegar hefur
þeim fjölgaó sem telja lág laun
mesta vandamálið, eru nú 12,0% í
staó 7,2%áður.
Veróbólga
Lág laun
Efnahagsástandió
Eyðsla um efni fram
Áfengi/fíkniefni
Skuldasöfnun erl.
Samhliða
hvað sé mesta vandamál íslend-
inga var spurt hvort viðkomandi
hefði trú á því að hægt verði að
leysa þetta vandamál á næstu ár-
um. Tæplega 37% svöruðu að það
væri hægt að verulegu leyti, 31,4%
skoðanakönnun Hagvangs
Rúmlega einn af hverjum tíu
segja efnahagsástandið helsta
vandamálið og 10,6% eyðslu um
efni fram. Á meðfylgjandi töflu
sést hvemig afstaða manna skipt-
ist eftir einstökum málaflokkum.
Til samanburðar eru helstu niður-
stöður úr fyrri könnunum:
apríl júlí sept. febr. maí
’84 ’84 ’84 ’85 ’85
12,4 12,0 10,3 19,0 12,6
7,3 8,7 9,9 7,2 12,0
19,8 10,3 8,5 13,6 10,9
15,9 10,9 10,3 10,7 10,6
4,3 8,0
spurningunni um
3,3
að einhverju leyti, 12,5% að litlu
leyti en 7,4% töldu vandamálið
óleysanlegt.
Könnun Hagvangs náði til 1.000
landsmanna og varð gerð eins og
fyrr segir í þessum mánuði.
Sjö samurajar sýnd
KVIKMYNDAHÁTÍÐ veröur ekki
framlengd, en þó veróur gerð ein und-
antekning. Vegna mikillar aósóknar á
snilldarverk Kurosawa, Sjö samuraj-
ar, veróur hún sýnd á laugardag,
sunnudag og mánudag í Austurbæj-
arbíói kl. 9.00.
Margir þurftu frá að hverfa á
tveim síðustu sýningum myndar-
innar og ætlar Kvikmyndahátið því
að reyna að koma til móts við fjölda
áskorana og óska sem borist hafa
um að ?fna til aukasýningar á
myndinni. Sjö samurajar er sýnd í
fullri lengd og eins og Kurosawa
hugsaði hana í upphafi. Myndin er
einhver stórbrotnasta bardaga-
mynd sem gerð hefur verið og hefur
fyrir löngu skipað sér sess sem eitt
af sígildum listaverkum
kvikmyndasögunnar.
Þess má að lokum geta að í Holly-
wood var gerð nánast alger eftirlík-
ing þessarar myndar, kvikmyndin
„Sjö hetjur", þar 3em Steve McQu-
een og Jul Brynner !éku aðalhlut-
verkin. Sú mynd stendur Sjö sam-
urajum iangt að baki.
(Frá kvikmyndahátfð)