Morgunblaðið - 01.06.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 1. JUnI 1986
5
Valdimar Indriðason alþingismaður
um Sementsverksmiðjuna:
„Umsagnir starfs-
mannanna voru
neikvæðar“
„ÞETl'A er fullkomlega samrýman-
legt,“ sagði Valdimar Indriðason al-
þingismaður þegar blaðamaður
Morgunblaðsins spurði hann hvernig
það gæti samrýmst að vera þingmað-
ur Sjálfstæðishokksins og greiða at-
kvæði gegn því að ríkisfyrirtæki verði
breytt í hlutafélag. Eins og fram hef-
ur komið í Morgunblaðinu í gær, féll
frumvarp Sverris Hermannssonar
iðnaðarráðherra um að breyta Sem-
entsverksmiðju ríkisins í hlutafélag
og selja 20% fyrirtækisins á jöfnum
atkvæðum í efri deild í fyrradag, og
var Valdimar eini þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins sem greiddi atkvæði
gegn frumvarpinu.
Valdimar sagði að leitað hefði
verið umsagnar starfsmanna fyrir-
tækisins og bæjarstjórnar Akra-
ness varðandi afstöðu til þessa
frumvarps iðnaðarráðherra. Um-
sagnir beggja aðila hefðu verið
neikvæðar og röksemdir þeirra
fyrir því hefðu verið þær að nægar
upplýsingar lægju ekki fyrir.
„Ég hef margsinnis talað við
hæstvirtan iðnaðarráðherra og
beðið um að fá að athuga málið
betur og kynna það,“ sagði Valdi-
mar, „en það hefur ekki verið
möguleiki á því frá hans hendi. Ég
gat því ekkert annað gert, þótt ég
sé hlynntur því að sem mestu af
ríkisrekstri verði breytt í einka-
rekstur, en að greiða atkvæði gegn
þessu frumvarpi. Það er rangt að
reyna að knýja mál fram, á þann
veg að ekki gefist nægur tími til að
fjalla um málið af fullri alvöru í
viðkomandi byggðarlagi."
Morgunbladid/Emilía
Þær tóku forskot á sæluna og reyndu nýju sundlaugina f Hrafnistu í Hafnar-
firði. Frá vinstri: Friðrika Eyjólfsdóttir og Málfríður Stefánsdóttir.
Hrafnista, Hafnarfirdi:
Ný sundlaug vígð
Á Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna í Hafnarfirði, verður vígð ný
sundlaug á sjómannadaginn. Laugin, sem er innilaug, er 12 sinnum 6 metrar
og hefur verið í byggingu síðan 1982.
„Hér hafa allir fylgst grant með
öllum framkvæmdum við sundlaug-
ina og verið spenntir fyrir því að
takast mætti að ljúka við hana
fyrir sjómannadaginn, sem er mjög
ríkur í huga heimilisfólksins hér,“
sagði Lovísa Einarsdóttir, leikfim-
iskennari en hún mun sjá um
sundkennsiu við laugina. „Þau, sem
eru hjá mér í leikfimi bíða spennt
eftir að reyna laugina auk þeirra,
sem fara héðan á hverjum morgni í
sund til Hafnarfjarðar og verða
sjálfsagt fegin aðstöðunni, sem
verður hér.
Við höfum lengi verið með hóp-
æfingar í leikfimi á Hrafnistu, en
leikfimin er mjög góður undirbún-
ingur fyrir þá sem vilja fara í laug-
ina. í lauginni gera þau sömu æf-
ingar og þau finna að það er mun
auðveldara að beygja sig og teigja í
vatni heldur en í venjulegri leik-
fimi. Eina sem ber að varast er að
fólk ætli sér ekki of mikið í byrjun.
Það þarf að fara hægt af stað.
Margir, sem hér búa, hafa aldrei
komið í sundlaug og ég dáist að því
Morgunblaöiö/Fridþjófur
Sverrir llermannsson iðnaðarráðherra flutti ávarp við brottflutning höggmyndarinnar um Guðríði Símonardóttur
frá Grundartanga í gær. Á myndinni eru m.a. Jón Sigurðsson forstjóri Járnblendiverksmiðjunnar, Ragnhildur
Stefánsdóttir myndhöggvari, Barði Friðriksson og Friðgeir Olgeirsson skipherra á Ægi sem kemur með högg-
myndina til Vestmannaeyja í dag.
„Guðríður Símonardóttir“ á
varðskipi til Vestmannaeyja
HÖGGMYNDIN um Guðríöi Símonardóttur eftir Ragnhildi
Stefánsdóttur myndhöggvara var sett um borð í varðskipið
Ægi í Grundartangahöfn í gær og mun Ægir flytja höggmynd-
ina til Vestmannaeyja. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra
hélt hóf við brottflutning höggmyndarinnar þeim sem unnið
hafa aö gerð iistaverksins á Grundartanga, en margir
starfsmenn Járnblendiverksmiðjunnar aðstoðuðu Ragnhildi
við lokaáfanga verksins.
Iðnaðarráðherra sagði áður en
höggmyndin var hífð um borð í
varðskipið að það væri kominn
tími til að minningin um Guðríði
Símonardóttur yrði heiðruð á
hvað þau eru kjarkmikil að drífa
sig í laugina.
Ég er viss um að sundlaugin á
eftir að skapa mikla tilbreytingu í
lífi fólksins hérna og gefa fólki enn
frekar tilfinningu fyrir virkri þátt-
töku í því, sem aðrir eru að gera
annarstaðar í þjóðfélaginu."
„Ég hef aldrei áður komið í
sundlaug,“ sagði Málfríður Stef-
ánsdóttir, 79 ára frá Súðavík, sem
nú dvelur á Hrafnistu og var ein
þeirra, sem tóku forskot á sæluna
og reyndu nýju laugina fyrir
nokkru. „Börnin mín og maðurinn
minn syntu alltaf 200 metrana en
ég fór aldrei með þeim. Þetta er
þennan hátt og sama sagði Jón
Sigurðsson forstjóri Járnblendi-
verksmiðjunnar sem kvað það
hafa verið sérstaklega skemmti-
legt tímabil í verksmiðjunni
alveg dásamleg tilfinning, mér
finnst ég geta flogið. Ja, það er
margt nýtt sem ég upplifi hér á
Hrafnistu og ég vissi ekki að væri
til. Þetta er alveg himneskt."
Við hlið Málfríðar í lauginni var
Friðrika Eyjólfsdóttir, 84 ára, og
tók hún undir með henni og sagði:
„Þetta er að vísu ekki í fyrsta sinn
sem ég fer í sundlaug. Ég ákvað að
læra að synda um fimmtugt og fór á
sundnámskeið hér í Hafnarfirði þar
sem ég hef alltaf búið, en ég datt
illa í fyrsta tíma og gafst þá upp.
Nú hef ég alveg jafnað mig af
hræðslunni við vatnið og finnst
tími til kominn að læra að synda.“
meðan höggmyndin varð til.
Þegar Ægir sigldi að bryggju á
Grundartanga heilsuðu heima-
menn með púðurskoti úr lítilli
fallbyssu, og þegar Ægir sigldi
áleiðis til Vestmannaeyja með
Guðríði heilsaði Ægir með því
að skjóta púðurskoti úr fallbyssu
skipsins. Drundi þá í Hvalfirði.
Ragnhildur byggir höggmynd-
ina um Guðríði upp á dröngum,
þannig að konumyndin er byggð
úr kletti. 10 konur í Vestmanna-
eyjum hafa staðið fyrir söfnun
til verkefnisi ns, en ráðgert er að
afhjúpa höggmyndina um Guð-
ríði Símonardóttur þann 17. júní
á Stakkagerðistúni þar sem hún
átti heima fyrír 360 árum, en
nær 350 ár eru nú liðin síðan
Guðríður lagði af stað úr Barb-
aríinu heim til Eyja. Guðríður
var nær þrítugu þegar henni
ásamt syni hennar var rænt frá
Eyjum en eiginmaður hennar
varð eftir. Sama árið og Guðríð-
ur slapp aftur heim til íslands
fórst eiginmaður hennar, en hún
giftist síðan séra Hallgrími Pét-
urssyni og bjuggu þau lengst af í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd,
steinsnar frá þeim stað þar sem
höggmyndin um hana komst í
endanlega gerð.
Búist er við að varðskipið Æg-
ir skili höggmyndinni um Guð-
ríði á land í Vestmannaeyjahöfn
eftir hádegi í dag.
á sjómannadaginn
Þú finnur ánægjuna í Fríklúbbsferö meö Útsýn.
Megum viö bjóöa þér
þaö besta á
Ítalíu —
Spáni og
Portúgal ?
KLUBBURINN
artiBioö
Stórkostlegt tækifæri fyrir þig
I 6 manna hópi býöst þér 3000 kr.
kynningarafsláttur fyrir feröafélagana
og frítt fyrir þig í 2 vikur í sól og sumar-
yl!
Gildir aöeins næstu daga fyrir nýjar
pantanir á fáum óseldum sætum til
Ítalíu, Spánar og Portúgal.
Austurstræti 17
símar:
26611 — 23510