Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
7
Samninganefnd um stóriðju:
Fengu um 8000
krónur á dag
— fyrir samningafundi og undirbúning
FULLTRÚAR í samninganefnd um stóriðju fengu greitt sem svaraði 22
yfirvinnutímum á dag, eða nærri 8000 krónur, þá 56 daga, sem formlegir
samningafundir með Alusuisse voru á síðasta ári. Tímakaup var miðað við
næturvinnukaup í efsta flokki BHM, eða 356 krónur á tímann. Um
þóknun til nefndarmannanna fyrir setu í nefndinni var farið eftir tillögum
þóknunarnefndar fjármálaráðuneytisins, sem greiðir um 230 krónur fyrir
hvern tíma á nefndafundum. Þetta kom fram á blaðamannafundi í iðnað-
arráðuneytinu í gær, þar sem Páll Flygenring ráðuneytisstjóri og Krist-
mundur Halldórsson deildarstjóri skýrðu hvað lægi að baki þeim háu
greiðslum til nefndarmanna, sem skýrt var frá fyrr í vikunni.
1 athugasemdum, sem þeir settu fjölda sé innifalinn undirbúningur
fram á fundinum, segir m.a. að
eins og fram hafi komið í svari
iðnaðarráðherra við fyrirspurn
Geirs Gunnarssonar á Alþingi
hafi allur kostnaður við
samningamálin um málefni ál-
versins verið færður á einn reikn-
ing og að ekki liggi fyrir sundur-
liðun á hvað er vegna gerðar-
dómsmála og annarra atriða og
hvað var vegna Samninganefndar
um stóriðju.
Þeir lögðu áherslu á, að þótt í
svarinu á Alþingi hafi verið talað
um greiðslur til starfsmanna, sem
jafnframt áttu sæti í nefndinni,
hafi alls ekki verið um það að
ræða að þeir Jóhannes Nordal,
Guðmundur G. Þórarinsson og
Gunnar G. Schram hafi verið
starfsmenn sinnar eigin nefndar.
Um hafi verið að ræða aðrar
launagreiðslur en þóknun.
í athugasemdunum segir síðan:
„Ljóst var að störf samninga-
nefndarinnar yrðu miklu víðtæk-
ari en bein nefndarstörf. Var því
ákveðið að miða greiðslur til
samningamanna við fjölda þeirra
daga, sem þeir voru í formlegum
samningum og var höfð hliðsjón
af greiðslum þeim, sem ákveðnar
höfðu verið til lögfræðinga í sam-
bandi við gerðardómsmálið. Var
við það miðað, að greiðslur þessar
næmu sem svarar % af greiðslum
til lögfræðinganna. Hafa ber í
huga að þar er um útselda vinnu
að ræða.“ Þeir Páll og Kristmund-
ur sögðu á fundinum í gær að við-
miðunin þar hefði verið 600 SDR á
dag, eða sem svarar um 24 þús. kr.
á núvirði.
„Ákvað iðnaðarráðuneytið að
höfðu samráði við fulltrúa fjár-
málaráðuneytisins að greiða sem
svarar 22 tímum í yfirvinnu í
hæsta launaflokki opinberra
starfsmanna fyrir hvern dag sem
formlegir samningafundir við
mótaðilann áttu sér stað. Er þá
gert ráð fyrir að í þessum tima-
fyrir samningafundina.
Hefur ráðuneytið séð um að
greiða samningamönnum í sam-
ræmi við þetta fyrir þá daga, sem
formlegir fundir voru. Árið 1984
voru formlegir fundir i um 56
daga,“ segir í athugasemdum iðn-
aðarráðuneytisins.
Páll Flygenring ráðuneytis-
stjóri sagði á fundinum að það
væri skoðun sín, að samninga-
nefndarmennirnir hefðu unnið
miklu meira en sem svaraði 22
tímum á dag i 56 daga. Hann
kvaðst ekki geta svarað því hvort
sú vinna hefði verið unnin að öllu
leyti utan reglulegs vinnutíma
nefndarmannanna, sem sumir
hverjir eru opinberir starfsmenn.
Páll sagði að aðferð ráðuneytisins
við að reikna út greiðslur fyrir
nefndarstörfin á þennan hátt ættu
sér ekki fordæmi í ráðuneytinu.
Luigi Bellotti erki-
biskup í heimsókn
HÉR Á LANDI er nú staddur, í
árlegri heimsókn, Luigi Belotti
erkibiskup og sendiherra Vatík-
ansins á Norðurlöndum. Hann
hefur aðsetur í Kaupmannahöfn.
Belotti er ríkiserindreki Páfa-
garðs og ræðir hér við sendi-
herra ýmissa landa, einnig stað-
gengil utanríkisráðherra og
stjórn kaþólsku kirkjunnar. Sem
fulltrúi páfa heimsækir hann
kaþólska söfnuði og systraregl-
urnar. Vegna tímaskorts kemst
hann þó ekki til reglu St. Frans-
iskusar í Stykkishólmi. Næst-
komandi sunnudag, 2. júní, syng-
ur hann messu í Dómkirkju
Krists konungs í Landakoti og
hefst hún kl. 10:30.
Kóra- og organistahá-
tíð sett í Reykjavík
Kóra- og organistahátíð verður
sett í Dómkirkjunni sunnudags-
kvöldið 2. júní kl. 20.30. í tengslum
við hátíðina verður jafnframt organ-
istanámskeið og verða kennarar þar
átta. Að hátíð þessari standa kirkju-
kórasamband íslands, Félag ís-
lenskra organleikara og söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar. Er þátttaka í
námskeiðinu öllu kórfólki heimil.
Sex tónleikar verða í tengslum
við námskeiðið og verða meðal
annars flutt verk eftir Bach,
Hándel, Scharlatti og Schutz —
sem allir eiga merk afmæli 1 ár.
Þátttakendur námskeiðsins munu
flytja verkin og koma samtals
fram um sextíu organistar. Nám-
skeið sem þetta hafa verið haldin
árlega undanfarin tíu ár í Skál-
holti og Reykjavík. Kórfólk hefur
sótt þessi námskeið vel og hafa
þátttakendur verið allt að þrjú
hundruð í Skálholti.
Á kvöldin verða haldnar kóræf-
ingar og verður sú fyrsta þriðju-
dagskvöldið 4. júní kl.20.00 í Lang-
holtskirkju. Verða þar æfð bæði
kirkjuleg og veraldleg verkefni
með nýjum þýddum textum eftir
Helga Hálfdanarson, Jón Óskar og
Helga Sæmundsson.
Jónas Ingimundarson píanó-
leikari heldur píanótónleika á há-
tiðinni og Ragnar Björnsson held-
ur tónleika á gamla Dómkirkju-
orgelið sem brátt mun víkja fyrir
öðru nýju. Kórtónleikar verða í
Langholtskirkju laugardagin 8.
júní kl. 16.30. Þá verður kvöldvaka
í ráðstefnusölum ríkisins Borgar-
túni 6, þar sem þátttakendur sjá
um öll skemmtiatriði. Messa verð-
ur í Langholtskirkju sunnudaginn
9. júní kl. 14. Biskup íslands, herra
Pétur Sigurgeirsson predikar og
þjónar fyrir altari ásamt séra
Hjalta Guðmundssyni og sr. Pétri
Maack.
Fargjöld SVR
hækka
FRÁ OG meö mánudeginum 3. júní
hækka fargjöld Strætisvagna Rcykja-
vfkur.
Einstök fargjöld verða 22 kr., en
voru áður 18 kr. Hér er því um 22%
hækkun að ræða. Miðum á far-
miðaspjöldum fullorðinna fækkar
úr 20 í 17 en verðið helst óbreytt,
300 kr. og hækkar farið því um
17,6%. Spjöld með fimm miðum
kosta 100 kr.
Einstök fargjöld barna hækka úr
5 kr. í 6, eða um 20% og farmiða-
spjald á 80 krónur verður með 17
miðum í stað 20 áður. Farmiðakort
fyrir aldraða og öryrkja kostar enn
150 krónur en miðunum fækkar úr
20 í 17 og hækkar farið þá um
17,6%.
Hörður Gíslason skrifstofustjóri
hjá SVR sagði að sú gjaldskrá sem
nú félli úr gildi væri frá 29. des-
ember síðastliðnum og fjárhags-
áætlun þessa árs hafi gert ráð fyrir
hækkun fargjaldanna, hér væri því
ekki um að ræða óvænta hækkun
heldur hafi hún verið ákveðin fyrir
löngu.
Afli Suðureyjar
VE 1604 tonn
VeMtmannaeyjum, 31. maí.
AFLAKÓNGUR vetrarvertíðarinnar
í ár, Siguröur Georgsson á Suöurey
VE, tók upp netin í gær og er þar
með hættur veiðum að sinni.
Nú um helgina mun hann og
skipverjar hans halda upp á lokin
og sjómannadaginn eftir langt og
strangt úthald og fengsæla vertíð.
Þeir hafa unnið fyrir hvíldinni.
Afli Suðureyjar í vetur var 1.604
tonn og þar af fengust 445 tonn i
maímánuði, sem þykir sérlega
gott. — hkj.
Ragnar Björnsson heldur tónleika á
gamla Dómkirkjuorgelið sem hér
sést, en það mun brátt víkja fyrir
öðru nýju.
Bflasöludeildin opin
í dag frá kl. 1—4
Lada 1200 station
Lada 1500 station
Lada safír
Lada Lux
Lada Sport
Kr. uppseidur
Kr. uppseldur
Kr. 229.600,-
Kr. 280.500.-
Kr. 420.000,-
Lada 1200 Kr. 205.000,-