Morgunblaðið - 01.06.1985, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNl 1985
Jóhaone8 Geir listmálari.
Tvær sýningar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Fólk úti á landsbyggöinni
veitir ekki síður en borgarbúar
kenndum sínum útrás í leik
með liti og form.
Það getur verið í formi af-
þreyingar og lífsnautnar, svo
sem hjá Steinþóri Eiríkssyni frá
Egilsstöðum, sem sýndi á
Hamragörðum fyrir skömmu.
Myndir hans voru einlægar og
fjölskvalausar og í sumum
þeirra skynjaði maður listræn-
an streng í samsemd manns og
náttúru. Kom það einkum fram
í myndunum „í Kúabotnum"
(1), „Svartfell í þoku“ (2) og
„Myndir á steini" (39).
— Það kveður við nokkuð
annan tón um meðferð mynd-
miðilsins hjá Svövu Sigríði
Gestsdóttur, sem sýnir vatns-
litamyndir og túskteikningar 1
Ásmundarsal til 2. júní.
Að vísu leita báðir gerend-
urnir til náttúrunnar um
myndefni en gera það á ólíkan
hátt og Svava er öllu þroskaðri
á tæknisviðinu. Myndir hennar
eru ósjaldan nærmyndir af
ýmsum fyrirbærum í náttúr-
unni og hún hugar meira að
Ijósi og litbrigðum. Hér kemur
og einnig greinilega fram mis-
munurinn á hinu óskólaða nátt-
úrubarni, sem Steinþór er, og
listaspíru er hefur nokkra skól-
un að baki. Svava nam í Mynd-
listarskóla Reykjavíkur og síð-
ar í Danmörku. Hún er einn af
stofnendum Myndlistarfélags
Árnessýslu og hefur haldið
nokkrar sérsýningar á Selfossi
og í Reykjavík.
Ég sá fyrir tilviljun sýningu
hennar í Listasafni Árnessýslu
í fyrra og skrifaði um hana í
blaðið. Get ég undirstrikað allt
það sem ég sagði þá og heim-
fært á þessa sýningu, en ég
endurtek það ekki hér. En það
er alveg víst að með Svövu búa
hæfileikar, sem hún er sem
óðast að þroska, svo sem fram
kemur í heillegustu myndunum
á sýningunni, svo sem „Haust-
regn“ (6), „í Stokkseyrarfjöru“
(13), „Gamla gatan" (20) og
„Mýrarljós" (22).
Svava Sigríður Gestsdóttir
Ljós og birta
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Myndverkasmiðurinn Jóhann-
es Geir segir í spjalli hér í blað-
inu, að hann sé mjög háður
vissri birtustemmningu og rjúki
upp til handa og fóta ef birtan
er sérstök. Skipti minnstu máli
hvort úti sé rigning og rok, ein-
ungis að birtan sé þannig að lit-
irnir í náttúrunni njóti sín.
Þetta er rétt lýsing á vinnuað-
ferðum gerandans, því að
stemmningar hinna ýmsu ljós-
brigða eru aðal listar hans og
hann nær þá hrifmestum
árangri er honum tekst hér best
og er sjálfum sér samkvæmur.
Þótt Jóhannes byggi myndir
sínar iðulega vel upp og sé sér
þannig vel meðvitandi um lög-
mál myndbyggingarinnar, þá er
hann fyrst og fremst málari
stemmninganna í kringum ljós
og upphafið birtuflæði.
Þessa sér vel stað á sýningu
Jóhannesar í Gallerí íslenzk list,
á Vesturgötu 17, en þar sýnir
hann 10 olíumálverk og 46 olíu-
krítarmyndir næstu vikurnar.
Jóhannes er þessum tveim
tjámiðlum tröllatryggur og er
merkilegt hve mikilli fjölbreytni
hann nær við meðhöndlun
þeirra, en það lýsir einmitt
margbreytileika íslenzkrar
náttúru og veðrabrigða og sí-
kvikulum ljósbrigðum í lofti og
gróandi.
Það eru einmitt myndir, sem
eru í mestu samræmi við
ofanskráð er grípa áhorfandann,
rumska við honum og vekja til
umhugsunar. Hér nefni ég mál-
verk eins og „Frá Grindavík.
Kvöld í marz“ (5), „Vetrarkvöld
í Árbæ“ (10) og olíukrítarmynd-
ir, svo sem „Rauðhólar" (8),
„Frá Örfirisey" (12), „Sólstafir,
Elliðaárlón“ (44), „Sólarlag,
Árbæ“ (45) og „Útreiðartúr"
(46). Þetta eru allt myndir þar
sem listamaðurinn fer á kostum
og er samkvæmur sjálfum sér
svo sem hann kemur mér fyrir
sjónir.
— Annað, sem er einkenn-
andi fyrir Jóhannes, er að hann
þarf ekki að leita langt til að
finna boðleg viðfangsefni. Hann
er eiginlega í essinu sínu þegar
hann vinnur á heimaslóðum þar
sem hann þekkir myndefnið út
og inn. Hann fangar þannig auð-
legðina í kringum sig og þarf
ekki að leita uppi sögufræg við-
fangsefni né vinsæl myndefni.
Tjámiðillinn er tæki í höndum
hans til að miðla hughrifum og
hér er hann sífellt að uppgötva
og upplifa, sem svo er forsenda
skapandi hughrifa.
— Sýning Jóhannesar Geirs
fer mjög vel í húsakynnum Gall-
erí íslenzk list og er báðum aðil-
um til sóma.
Guðmundur Emilsson
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sigríður Ella Magnúsdóttir
Jón Þorsteinsson Robert W. Becker
Makkabeus
Judas
Tónllst
Jón Ásgeirsson
Óratórían Júdas Makkabeus
eftir Hándel hefur verið tónlist-
arsagnfræðingum nokkur ráð-
gáta. Sérdeilislega hefur þeim
gengið erfiðlega að útskýra þær
miklu vinsældir er verkið hlaut
frá fyrsta degi. Nokkrir telja
minni háttar innanlandsdeilur
og sigurgleði Englendinga eftir
að hafa barið á Skotum vera
ástæðuna og einnig að gyðingar í
London hafi bjargað uppfærsl-
unni með J)ví að flykkjast á tón-
leikana. Astæðan er talin vera
sú að Júdas Makkabeus hefur
verið frelsishetja þeirra og
messíasarímynd.
Eitt lag úr verkinu hefur notið
mikilla vinsælda, sem einna
helst má líkja við vinsældir dæg-
urlaga í dag. Það er hinn eigin-
Iegi sigursöngur „See the con-
quering hero cornes". Upphafs-
stefið er ein af lánshugmyndum
Hándels en hann var nokkuð
fjölþreifinn um verk annarra.
Operugerð Hándels hefur mikið
verið til umræðu og eru vand-
ræði hans talin vera í beinum
tengslum við lélegar leikgerðir
en Englendingar voru aldir upp
við góðan texta og magnaðan
leik. Við endurflutning á óperum
Hándels, nú síðustu árin, kemur
í ljós að tónlistin í þessum
gleymdu óperum er feikna góð
en sem leikverk eru þau óttalega
mösulbeina. Óperur hans voru
sem sagt lítilfjörleg leikverk og
við það snúa sér að gerð óratór-
iuverka hafi Hándel í raun litlu
breytt, enda eru óratoríurnar í
raun mögnuð leikverk og það
sem meira gilti fyrir vinsældir
verkanna, að efni þeirra var
mönnum mjög hugstætt og trú-
mál almennt umræðuefni á þeim
tímum. Júdas Makkabeus er
langt verk og einkennilegt nokk,
þá jók höfundurinn við verkið
nokkrum sinnum við hverja nýja
uppfærslu en í uppfærslu Sin-
fóníuhljómsveitar fslands var
verkið töluvert stytt. Slík stytt-
ing rænir verkið stærð þess og
sérdeilislega þar sem miðhlutar
nokkurra þátta voru felldir burt.
Þar með raskaðist formgerð
þeirra og svo mjög, að þeir
misstu allan „slagkraft“. Sú
venja að stytta slík verk er að
mestu sprottin af óþolinmæði
nútímamannsins og ótta flytj-
enda við að íþyngja áheyrendum.
Þessi smækkunartilhneiging er
talin hafa eyðilagt mörg stór-
verk meistaranna og víst er að
þau verk, sem eru flutt óstytt,
hafa haldið reisn sinni og einnig,
að ef verkin þola ekki ianga
hlustun eiga þau að fá að vera í
friði. Að fella burtu heila kafla
er sök sér en að skera úr heil-
stæðum þætti er vafasöm aðferð
við að endursemja verk, hvort
sem hér er um nýbreytni eða eft-
irhermu að ræða. Hvað sem
þessu líður var flutningur verks-
ins um margt ágætur en í heild
vantaði nokkuð mikið á alla leik-
ræna túlkun og má segja að
verkið hafi verið flutt en ekki
túlkað. Einsöngvararnir stóðu
sig mjög vel og án þess að á
nokkurn sé hallað, vakti söngur
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur mikla
athygli og má segja að hún hafi
verið stjarna kvöldsins. Til að
nefna eitthvað, var söngur henn-
ar sérstaklega glæsilegur í „So
Shall the Lute and Harp Awake"
og í „From Mighty Kings He
Took the Spoil“. Sigríður Ella
Magnúsdóttir söng mjög vel,
bæði í dúettunum (sem undirrit-
aður hefði viljað heyra suma
sungna eins og tónskáldið ætlað-
ist til, nefnilega af karli og konu)
og einnig í aríunni „Father of
Heaven“. Jón Þorsteinsson söng
mjög vel og má þar til nefna
„How Vain Is Man“ og í þeirri
erfiðu aríu, sem er herhvöt Júd-
asar, „Sound an Alarm", en þar
mátti heyra „tvístrikað a“ sung-
ið ellefu sinnum. Hlutverk Sím-
onar söng Robert W. Becker og
var hann sérlega góður í aríunni
„The Lord Worketh Wonders". í
heild var einsöngvaraliðið mjög
gott og Söngsveitin Filharmonía
sömuleiðis. Þrátt fyrir að kórinn
hafi oft verið fjölmennari, var
hann óvenju hljómsterkur og vel
samæfður. í heild var flutning-
urinn góður og hljómsveitin góð.
Szymon Kuran var konsert-
meistari og átti auk þess smá
einleik er hann flutti mjög vel.
Aðrir sem áttu smá strófur
gerðu sitt besta. Eins og fyrr
sagði vantaði nokkuð á túlkun og
má það vera lítt reyndum stjórn-
anda til málsbóta, að slík stór-
virki sem Júdas Makkabeus er
ekki allra meðfæri svo vel sé. í
stað þess að hætta nokkru í
vafasömum eltingaleik við list-
rænar túlkunarbrellur, kaus
Guðmundur Emilsson að halda
„skipi sínu á kyrrum sjó“ og
fyrir bragðið náði hann jafnri og
góðri áferð, sem verður að telj-
ast mjög góður árangur ungs
hljómsveitarstjóra í átökum við
stórbrotnasta óratóríutónskáld
heimsins.