Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 15
15
MORGUNBLAÐID, LAUGARDÁGUR 1. JÚNf 1985
Mirabellgörðunum — Mirabellhöllin er til vinstri á myndinni en í bak-
grunn er það sem mi nefna aðaismerki Salzburgar — Hohensalzburg.
fá m.a. kampavín í rúmið, skoðun-
arferð um borgina, Salzburg-
arkonsert og kertaljósakvöldverð.
Allt stílað upp á rómantíkina og
selst vel, samkvæmt því sem okk-
ur var tjáð. Hver var svo að segja
að rómantíkin væri á undanhaldi?
Nú. Ferðamaðurinn, hvort sem
hann er frá íslandi eða öðrum
löndum, nærist að sjálfsögðu ekki
eingöngu á fagurri byggingarlist,
listilega hönnuðum görðum, stór-
brotnum köstulum, eða landslagi
eins og það gerist fegurst. Meira
þarf til — bæði andans næringu í
formi tónlistar, leiklistar og
myndlistar, en eins og áður segir,
getur hver og einn fundið eitthvað
við sitt hæfi í þeim efnum, ég
nenni ekki einu sinni að tíunda öll
þau „Festivöl" sem á boðstólum
eru; nefni þo Mozart Festival sér-
staklega, og svo auðvitað hina
jarðbundnu, lífrænu næringu, mat
og drykk. Matsölustaðirnir er
ótölulega margir og flestir góðir.
Matur, vín og bjór er á viðráðan-
legu verði á íslenskan mælikvarða,
en engan veginn ódýr á austur-
riskan mælikvarða. Sömu sögu er
að segja af gistikostnaði, hann er
viðráðanlegur, þegar um stutta
dvöl er að ræða, en af praktískum
ástæðum ráðlegg ég engum að
staldra lengi við í Salzburg, enda
svo margt annað að skoða í Aust-
urríki, hvort sem um Salzburgar-
hérað er að ræða, Týról, eða önnur
héruð landsins.
Eitt loka„tipps“ — að vísu frá
því ég kynntist Salzburg sumarið
1980, en vonandi er það enn í fullu
Strasse, samanber íslenskuna
gata og stræti. Því geta menn gert
sér í hugarlund litla og þrönga
götu, þar sem húsin næstum skaga
út yfir götuna — einstaklega róm-
antískt.
Ungum brúðhjónum
boðnir sérstakir
„Brúðkaupspakkar“
Höllin Mirabell, sem stendur í
Mirabell-görðunum, er vissulega
þess virði að þar sé eytt einhverj-
um mínútum og ekki eru garðarn-
ir síðri, þó að sumum kunni að
þykja nóg um barrokkskipulagn-
ingu blómabeðanna. í dag er höll-
in frægust fyrir Marmorsaal
(Marmarasal) sem nú er notaður
til tónleikahalds auk þess sem
hann er leigður út fyrir giftingar.
Það skemmtilega við veru okkar í
Mirabell-höllinni var það, að ein-
mitt þá stundina stóð yfir hjóna-
vígsla í Marmarasalnum. Salz-
burgarmenn bjóða ungum brúð-
hjónum upp á sérstaka „brúð-
kaupspakka" þar sem hjónavígsl-
an fer fram í Marmarahöllinni og
síðan er sérstök brúðhjóna-
þjónusta innifalin í þrjá sólar-
hringa, þar sem brúðhjónin ungu
■vr .;iw ■■■ 11 - a.ii'illl ''M >
Það mi segja ad þessi mynd sé drmigerð fyrir útiveitingaMsin í Salzburg, sem eru mýmörg.
Flestir kjésa að skoða borgina fótgangandi. Hér eru nokkrir ferðalangar i
leið yfir brúna yfir Salzach, sem hlykkjast eins og ormur f gegnum miðja
Salzburg.
gildi — Ef þið leitið að skemmti-
legum stað í Salzburg sem hefur
upp á austurrískt andrúmsloft að
bjóða, sem og góðan mat, vín og
bjór, skreppið þá í Gablerbráu við
Linzer Gasse 9. Þeirra sérréttur er
fylltar endur, sem bragðast hreint
unaoslega, og auk þess leika þeir
þjóðlega tónlist, sem fær ólíkleg-
ustu menn til þess að Jóðla“ eða
Jodeln", eins og það heitir á
þýsku. Þetta er stór staður, rúmar
um 700 manns. Þeir sem á hinn
bóginn vilja vita af einhverjum
litlum og hugguiegum stað gætu
kynnt sér stað eins og Brasseria &
Creperie, við Kaigasse 7. Þessi
staður rúmar að vísu ekki nema
um 50 manns og er á engan hátt
Eins og sést af þessari mynd, eru
það engar ýkjur að segja að Dóm-
kirkjan sé stórkostleg bygging. Tak-
ið einnig eftir skógi vaxinni hlíðinni
í bakgrunni.
austurrískur, heldur franskur
Staðurinn er sérhæfður í frönsku
eldhúsi og að mínu mati er það
gert vel. Þetta eru aðeins vinsam-
legar ábendingar til þeirra sem
ekki vita hvar þeir ætla að eta eða
kneyfa. Eindregið mæli ég þó með
að menn rækti svolitið ævintýra-
þrána í brjósti sér og reyni fyrir
sér á eigin spýtur. „Guten Appe-
tit“ eins og það heitir á ylhýru
máli austurrískra og þýðverskra,
„Und Prost“.
Klukkan:
08:00 Fánar dregnir aö húni á skipum i
Reykjavíkurhöfn.
11:00 Minningarguösþjónusta í Dómkirkjunni.
Biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sig-
urgeirsson, minnist drukknaöra sjó-
manna. Séra Hjalti Guömundsson þjón-
ar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir
stjórn Marteins H. Friörikssonar.
Skemmtisigling unt sundin blá
12:15 Skemmtisiglingar meö hvalbátum um
sundin viö Reykjavík, fyrir þá sem keypt
hafa merki Sjómannadagsins. Börn
yngri en 12 ára þurfa þó aö vera í fylgd
meö fullorönum. Farið veröur frá Faxa-
garöi í Reykjavíkurhöfn. Siglingar hefj-
ast kl. 12:15 og síöasta ferö veröur farin
kl. 16:00. Þrír bátar veröa í förum.
ÚtHátíðarhöld við Reykjavfkurhofn
13:00 Milli 13:00 og 14:00 sigla félagar í
sportbátaklúbbnum Snarfara bátum
sínum innan Reykjavíkurhafnar. Enn-
fremur verður sjóskíöaíþrótt á þeirra
vegum.
13:30 Lúörasveit Reykjavíkur leikur létt sjó-
mannalög, stjórnandi er Stefán Þ. Steph-
ensen.
14:00 Samkoman sett. Þulur og kynnir dags-
ins er Anton Nikulásson.
Ávörp
A: Fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Steingrímur
Hermannsson, forsætisráöherra, í fjar-
veru sjávarútvegsráöherra.
B: Fulltrúi útgeröarmanna, Einar K. Guö-
finnsson, útgeröarmaöur í Bolungarvík.
C: Fulltrúi sjómanna, Pétur Sigurösson,
togaraskipstjóri.
D: Pétur Sigurðsson, formaður Sjómanna-
dagsráös, heiörar aldraöa sjómenn
meö heiöursmerki Sjómannadagsins.
Skemmtanir dagsins
Milli kl. 14:00 og 15:00 sigla félagar í
Brokey og Siglingafélagi Reykjavíkur inn
í Reykjavíkurhöfn á seglskútum sínum.
14:45 Kappróöur í Reykjavíkurhöfn. Keppt er
bæði í karla- og kvennasveítum á nýjum
kappróörabátum.
Björgunarsýningar
Félagar í björgunarsveit SVFÍ Ingólfi í
Reykjavík sýna meðferð öryggis- og
björgunartækja.
15:30 Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar,
ásamt félögum í björgunarsveitinni Ing-
ólfi, sýna björgunaræfingar úr sjó.
Koddaslagur fer fram af ekjubrú Akra-
borgar, ef næg þátttaka fæst. Kepp-
endur gefi sig fram á staönum.
Veitingar veröa til sölu á hafnarsvæöinu
á vegum Kvenfélaga sjómannskvenna.
Einnig fer fram sala á merki dagsins
og Sjómannadagsblaöinu 1965.
Hrafnista Reykjavík
14:30 Lúörasveit Reykjavíkur leikur viö Hrafn-
istu í Reykjavík.
14:30—17:00 Kaffisala í kaffi- og samkomusal. Jafn-
framt veröur sýning og sala á handa-
vinnu vistmanna. Allur ágóöi rennur til
velferöarmála heimilismanna Hrafnistu í
Reykjavík.
Hrafnista Hafnarfirði
10:30 Lúörasveit Hafnarfjaröar leikur viö
Hrafnistu Hafnarfiröi.
11:00 Sjómannamessa í Kapellu Hrafnistu
Hafnarfiröi, prestur séra Siguröur H.
Guðmundsson.
14:30—17:00 Kaffisala í borö- og samkomusal. Jafn-
framt veröur sýning og sala á handa-
vinnu vistmanna. Allur ágóöi rennur til
velferöarmála heimilismanna.
15:30 Sundlaug Hrafnistu Hafnarfirði vígö og
tekin í notkun, séra Siguröur H. Guö-
mundsson vígir sundlaugina.
Athugiö
Sjómenn
STJSwí £3J