Morgunblaðið - 01.06.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. jUNl 1985
23
Brúðubíllinn
er ferðbúinn
Brúðubíllinn, sem notið hefur mikilla vinsælda hjá yngstu kynslóðinni, er
nú ferðbúinn, níunda sumarið í röð. Verða fyrstu sýningarnar í sumar
mánudaginn 3. júní nk. Bfllinn mun í sumar koma tvisvar á alla gæsluvelli í
Reykjavík, en þeir eru nú 28 talsins. í fyrri heimsókninni verður sýnt leikrit
sem heitir „Feluleikur** en í hinni seinni verk sem nefnist „Lilli gerist
barnfóstra“. Hver sýning tekur hálfa klukkustund.
Handrit, brúður og leiktjöld eru
eftir Helgu Steffensen, sem einnig
stjórnar brúðunum ásamt Sigriði
Hannesdóttur, en hún semur einn-
ig vísurnar, sem sungnar eru. Þær
Helga og Sigríður ljá brúðunum
raddir sínar, ásamt leikurunum
Aðalsteini Bergdal, Sigurði Sigur-
jónssyni, Þórhalli Sigurðssyni og
Þórunni Magneu Magnúsdóttur.
Tónlist annast þeir Nikulás Ró-
bertsson og Birgir Birgisson. Leik-
stjóri er Helga Steffensen.
Á blaðamannafundi, sem þær
Helga og Sigríður efndu til í gær,
kom fram að Brúðubíllinn er rek-
inn á vegum Reykjavíkurborgar
og er orðinn fastur liður í
menningarlífi borgarinnar ár
hvert. Undanfarin 5 sumur hefur
hann einnig ferðast um lands-
byggðina. í sumar verður enn bætt
um betur og haldið til Færeyja.
Þar verða sýningar fyrir íslensk
börn í boði íslendingafélagsins, en
einnig verða þrjár sýningar ætlað-
ar færeyskum börnum. Sýnt verð-
ur í Norðurlandahúsinu í Þórs-
höfn.
Það kom fram hjá þeim Helgu
og Sigríði að börn á aldrinum
tveggja til tíu ára hefðu sýnt sýn-
ingum þeirra slíkan áhuga að
aldrei hefði fallið niður sýning,
hvernig sem viðraði. Einnig bentu
þær á að hér væri í flestum tilfell-
um um að ræða fyrstu leikhúsferð
yngstu barnanna og því væri mik-
ilvægt að vel tækist til.
Dagskrá brúðubílsins er dreift á
gæsluvelli borgarinnar og eru að-
standendur barnanna hvattir til
að kynna sér hana.
Þó sýningarnar séu einkum
hugsaðar fyrir börn eru allir vel-
komnir. Aðgangur er ókeypis.
Hér fer á eftir dagskrá fyrri
umferðar bílsins í sumar:
Faxaskjól 3. júní kl. 10
Dunhagi s.d. kl. 11
Vesturvallag. 4. júní kl. 10
Vesturgata s.d. kl. 11
Ljósheimar s.d. kl. 14
Njálsgata 5. júní kl. 10
Freyjugata s.d. kl. 11
Rauðilækur s.d. kl. 14
Stakkahlíð 6. júní kl. 10
Hvassaleiti s.d. kl. 11
Safamýri s.d. kl. 14
Hringbraut s.d. kl. 15
Tunguvegur 7. júní kl. 10
Dalaland s.d. kl. 11
Hólmgarður s.d. kl. 14
Barðavogur 10. júní kl. 10
Gullteigur s.d. kl. 14
Sæviðarsund s.d. kl. 15
Rofabær 111. júní kl. 10
Rofabær II s.d. kl. 11
Kambsvöllur s.d. kl. 14
Fífusel 12. júní kl. 10
Breyttur
messutími
í Bústaða-
kirkju
FRA OG MEÐ næsta sunnudegi, 2.
júní, verða messur í Bústaðakirkju
kl. 10 árdegis. Verður svo alla
sumarmánuðina. Þetta var reynt í
fyrsta skipti síðastliðið sumar og féll
bæði kirkjugestum og starfsfólki
þessi tilhögun svo vel, að samþykkt
var að halda henni áfram.
Kom það vel fram í fyrra, að
margir komu við í Bústaðakirkju
og sóttu messu áður en haldið var
úr bænum. Enaa er sjálfsagt að
koma þannig klæddur, sem hentar
fólki hverju sinni. Messan hefst á
sunnudaginn kl. 10:00, séra ólafur
messar og Guðni Þ. Guðmundsson
annast orgelleik og kórstjórn.
Tungusel s.d. kl. 11
Breiðholt s.d. kl. 14
Yrsufell s.d. kl. 15
Iðufell 13. júní kl. 10
Vesturberg s.d. kl. 11
Suðurhólar s.d. kl. 14
Dagskrá seinni umferðarinnar
mun birtast í blaðinu síðar.
Helga Steffensen og Sigríður Hannesdóttir ásamt nokkrum persónum sem koma fram í sýningum Brúðubflsins í
FULL BUÐ AF SÆNSKUM BOM ULLARFATNAÐI
Postsendum
Líneik
Laugavegi 62 Sími 91-23577