Morgunblaðið - 01.06.1985, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 01.06.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 1., JttNÍ 1985 25 Hundrað ferða- menn slösuðust London, 31. maí AP. YFIR hundrað manns slösuð- ust í dag, er hraðlest full af ferðamönnum frá Gatvick- flugvelli rakst aftan á far- þegalest á leið til Viktoríu- stöðvarinnar í London. Mörgum tugum slasaðra varð að hjálpa í sjúkrabílana og voru andlit sumra alblóö- ug. Ekki var þó vitað um nema tvo menn, sem slasazt höfðu hættulega. Áreksturinn átti sér stað kl. 9.55 í morgun (8.55 að ísl. tíma). Var önnur lestin að koma frá Grin- stead suðvestur af London, og urðu skemmdir á henni litlar, en hraðlestin, sem kom frá Gatvick, varð fyrir verulegum skemmdum. Samtals voru um 600 manns með báðum lestunum, er áreksturinn varð. I'annig var umhorfs eftir að hraðlest full af ferðamönnum rakst aftan á farþegalest í London í gær. Yfir hundrað manns slösuðust, þar af tveir hettulega. Þessi mynd var tekin er verið var að fera til gesluvarðhaldsvistar tvo af þremur er teknir hafa verið höndum vegna milljónaránsins ( New York. Fremst fyrir miðju er Rosario Leanzo, 61 árs gamall, og á bak við hann er Thomas Lacarruba. MiUjónaránið f New York: Þrír menn hand- teknir og ákærð- ir fyrir ránið New York, 30. maí. AP. ÞRÍR menn hafa verið handteknir og ákærðir fyrir af hafa rænt tæplega 8 milljón dollurum í seðlum úr brynvörðum bíl öryggis- gæslufyrirtækis í New York í aprflmánuði, en ekkert af þýfinu hefur komið í leitirnar, að því er alríkislögreglan, FBI, tilkynnti í gær. Vitni sá einn hinna handteknu nokkrum klukkustundum eftir ránið, þar sem hann lamdi með sleggju á afturdyr brynvarða bíls- ins, sem þjófarnir notuðu til að komast undan með peningana, að sögn Joe Valiquette, talsmanns FBI. Hinir tveir sáust standa vakt og bera peninga úr brynvarða bílnum yfir í annað farartæki, sagði Val- iquette. Hann gat ekkert fullyrt um það, hvort hinir handteknu hefðu verið fjórmenningarnir sem rændu pen- ingunum. Verði mennirnir fundnir sekir um aðild að ráninu, geta þeir átt yfir höfði sér allt að 20 ára fang- elsisdóma og 5000 dollara sekt, sagði Valiquette. Kaktusai Smáum sem stórum ótrúlegt úrval af kaktusum m feitum. Allar stæröir og < í þúsundatali- 75.- til 10.000.- kr. viða vcröki tæMfærið fyrir þá sem vilja kynnast iri vinsselu plöntu. EV SALURINN — EV SALURINN — EV SALURINN — EV SALURINN — EV SALURINN EV SALURINN - FÍATHÚSINU - SÍMAR - 79944 - 79775

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.