Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
Álftartungukirkja i Mýrum
Guðsþjónusta í Alftar-
tungukirkju á Mýrum
DÓMKIRKJAN: Sjómannamessa
kl. 11.00. Biskup íslands, herra
Pótur Sigurgeirsson, prédikar og
minnist drukknaöra sjómanna.
Sr. Hjalti Guömundsson þjónar
fyrir altari. Sjómenn lesa úr ritn-
ingunni. Sr. Hjalti Guömundsson.
Guösþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sjómannadaginn
2. júní 1985.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guös-
þjónusta í safnaöarheimili Ár-
bæjarsóknar kl. 11.00 árd.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl.
11.00. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BREIÐHOLTSPREST AK ALL:
Sumarferö safnaöarins á sunnu-
dag, 2. júní. Farið veröur frá
Breiöholtsskóla kl. 9.30. Safnaö-
arnefndin.
BÚST AOAKIRK J A: Guösþjón-
usta kl. 10.00. Ath. breyttan
tíma. Organleikari Guöni Þ. Guö-
mundsson. Sr. Ólafur Skúlason.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 10.00. Sr. Árelíus Níelsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 11.00. Sr. Sol-
veig Lára Guömundsdóttir mess-
ar. Organleikari Guöný Margrét
Magnúsdóttir. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Sjó-
mannadagsmessa kl. 14.00. Frí-
kirkjukórinn syngur, organleikari
Pavel Smid. Bænastundir eru í
kirkjunni þriöjud., miövikud.,
fimmtud. og föstudaga kl. 18.00
og standa í stundarfjóröung. Sr.
Gunnar Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA: Safnaöarferö
í Þjórsárdal sunnudaginn 2. júní.
Messa í Stóra-Núpskirkju kl.
14.00. Lagt af staö frá Grensás-
kirkju viö Háaleitisbraut kl.
10.00. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Altarisganga. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Þriöjudag, fyrir-
bænaguösþjónusta kl. 10.30,
beöið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Guösþjónusta
kl. 10.00. Sr. Karl Sigurbjörnss-
on.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Tómas Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón-
usta kl. 11.00. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 11.00. Prestur sr.
Pjetur Maack. Organleikari Krist-
ín Ögmundsdóttir. Ljóöakórinn
annast söng. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11.00. Altarisganga. Sigríöur
Jónsdóttir, sem leyst hefur
organista kirkjunnar af í 2 ár,
hættir nú störfum. Verður þetta
því jafnframt kveöjumessa fyrir
hana. Þriöjudag, 4. júní, fyrir-
bænaguösþjónustua kl. 18.00.
Sóknarprestur.
NESKIRKjA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Miövikudag 5. júní, fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELJASÓKN: Guösþjónusta kl.
11.00 í Ölduselsskólanum. Fyrir-
bænasamvera fimmtudaginn 6.
júní kl. 20.30 í Tindaseli 3. Sókn-
arprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 10.30. Sr. Úlfar Guömunds-
son.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa
kl. 14.00. Sr. Úlfar Guömundss-
on.
HJÁLPRÆÐISHERINN. Útisam-
koma á Lækjartorgi kl. 16. Hjálp-
ræöissamkoma kl. 20.30.
HVÍT ASUNNUKIRK JAN FÍLA-
DELFÍA: Almenn guösþjónusta
kl. 20.
Kaþólskar messur:
DÓMKIRKJA KRISTS konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Luigi Bellotti
erkibiskup, sendiherra Vatíkans-
ins á Noröurlöndum, syngur þá
messu. Lágmessa kl. 14.00.
Rúmhelga daga er lágmessa kl.
18.00 nema á laugardögum, þá
kl. 14.00.
MARÍUKIRKJA, Breiöholti: Há-
messa kl. 11.00. Lágmessa
mánudag til föstudags kl. 18.00.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garóabæ: Hámessa kl. 14.00.
KAPELLA St. Jósefsspítala,
Hafnarfiröi: Hámessa kl. 10.00.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga er
messa kl. 8.00.
SUNNUDAGINN 2. júní nk. verður
hátíðarguðsþjónusta í Alftár-
tungukirkju á Mýrum. Tilefni
messunnar er að nú er að mestu
lokið viðgerð á kirkjunni. Fram-
kvæmdir við hana hófust síðastliðið
haust þegar ráðist var í að girða
kirkjugarðinn og gera við kirkjuna
að utan. Skipta þurfti um járn og
gera við máttarviði að nokkru leyti.
Einnig voru gluggar smíðaðir að
nýju. Verkþáttur þessi var í hönd-
um trésmiðjunnar Mispils í Borg-
arnesi.
Viðgerðin er átak í fámennum
söfnuði en til að hún mætti verða,
hafa burtfluttir velunnarar
kirkjunnar og söfnuður lagst á
eitt um að endurgera hana. Fjár-
mögnun hefur farið fram með
ýmsum hætti en mikið hefur
munað um stuðning úr Húsfrið-
unarsjóði sem veitti styrk á síð-
asta hausti.
Þess má geta að kirkjan á
nokkra góða gripi og meðal
þeirra er merkur og ævagamall
kaleikur af enskum uppruna. Al-
taristafla frá 18. öld er á þjóð-
minjasafninu en núverandi tafla
er eftir Ásgeir Bjarnþórsson.
Á sunnudaginn messar sókn-
arpresturinn sr. Þorbjörn Hlynur
Árnason á Borg, en að messu lok-
inni verða kaffiveitingar í félags-
heimilinu Lyngbrekku.
Ingibjörg Jóhanns-
dóttir — Afmæliskveðja
Ein af merkustu konum okkar
samtíðar, Ingibjörg Jóhannsdótt-
ir, fyrrverandi skólastjóri á Stað-
arfelli og Löngumýri, er 80 ára í
dag.
Kynni okkar hófust árið 1941
þegar ég kom sem nemandi í hús-
mæðraskólann á Staðarfelli. í
endurminningu minni finnst mér
að aldrei hafi verið myrkur þenn-
an vetur, heldur samfelld birta og
ylur. Ég þykist vita að þessi birtu-
tilfinning í hugskoti mínu stafi frá
umhyggjusömu og hlýju viðmóti
húsráðenda, ásamt ólýsanlegri
litadýrð himinsins yfir Hvamms-
firði, einkum þegar líða tók á vet-
ur og vor. Hún er mér afdalabarn-
inu, sem varla hafði séð til sjávar,
ógleymanleg.
Eitt atvik er mér öðrum minn-
isstæðara frá þessum vetri og þó
fremur vorinu. Mér hafði verið
sett fyrir það verkefni að leggja
kartöflur til spírunar. En áhuga-
svið Ingibjargar Jóhannsdóttur
beindust ekki eingöngu að ræktun
huga og handar, heldur einnig að
ræktun hvers konar jarðargróða.
Ingibjörgu bar þar að, sem ég sat
yfir kartöflunum og eftir að hafa
setið hjá mér góða stund spurði
hún: „Langar þig ekki til að verða
vefnaðarkennari?" „Mér þykir
gaman að vefa,“ svaraði ég, en um
lengra nám en þennan vetur í hús-
mæðraskóla lét ég mig ekki
dreyma. Á þessum tíma var fá-
tæktin jafn sjálfsagður förunaut-
ur námfúsra unglinga eins og alls-
nægtir unglinganna á okkar dög-
um. Er ekki að orðlengja það að
Ingibjörg lagði grundvöllinn að
lífsstarfi mínu og fyrir það á ég
henni ævarandi þakkarskuld að
gjalda.
Að námi mínu loknu áttum við
margra ára samstarf í skólanum
sem hún stofnaði árið 1944 og rak
á föðurleifð sinni, Löngumýri í
Skagafirði, um áratuga skeið. Á
þeim tíma þekktust engin bjart-
sýnisverðlaun, annars hefði hug-
sjónakonan Ingibjörg á Löngu-
mýri orðið margfaldur verðlauna-
hafi. Saga skólastofnunar og
skólastarfsins á Löngumýri væri
verðugt viðfangsefni ritfærra
manna.
Víst voru aðstæður allar frum-
stæðar á Löngumýri fyrstu árin
og þrengslin ekki „mannsæmandi"
vegna mikillar aðsóknar. En hún
Ingibjörg stóð aldrei ein. Með
henni fluttist að Löngumýri sam-
kennari hennar frá Staðarfelli,
Björg Jóhannesdóttir frá Móbergi.
Alla tíð stóð hún sem óbifandi
bjarg við hlið Ingibjargar, og
einnig hún lagði aleigu sína undir
að vel mætti til takast um skóla-
starfið.
Enn standa þær Ingibjörg og
Björg hlið við hlið á heimili sínu
Reynimel 22 í Reykjavík, og enn
njóta þær ávaxtanna af fórnfúsu
starfi sínu umvafðar vinsemd og
óvenjulegri ræktarsemi gamalla
nemenda sinna.
Kæru vinkonur, Ingibjörg og
Björg. Megi forsjónin enn um sinn
leyfa ykkur að njóta friðar og far-
sældar á fallega og hlýlega heimil-
inu ykkar.
Guðrún Bergþórsdóttir
Heiðurskonan Ingibjörg Jó-
hannsdóttir frá Löngumýri er átt-
ræð í dag. Að því tilefni vil ég
senda henni dálitla afmæliskveðju
frá heimahögunum.
Hún fæddist á Löngumýri í
Vallhólmi, 1. júní 1905, dóttir
hjónanna Sigurlaugar Ólafsdóttur
og Jóhanns Sigurðssonar sem þar
bjuggu góðu búi. Ljúf hafa æsku-
árin verið hér í hjarta Skagafjarð-
ar með víða útsýn til fagurra
fjalla. Dætur Sigurlaugar og Jó-
hanns eru þrjár og er Ingibjörg
elst þeirra.
Hugur hennar stóð til mennta
og 1936 lauk hún kennaraprófi.
Fyrsta árið á eftir kenndi hún í
Borgarfirði en varð skólastjóri á
Húsmæðraskólanum að Staðar-
felli í Dölum 1937 og var þar til
vorsins 1944.
En hugur hennar stóð sterklega
til að koma á húsmæðrafræðslu í
heimabyggð sinni. Því stofnar hún
Húsmæðraskólann að Löngumýri
haustið 1944. Hér á Löngumýri
var þá (og er enn) myndarlegt
íbuðarhús er foreldrar hennar
byggðu 1917. I því húsi ásamt
nokkurri viðbót sem er borðsalur,
hófst Ingibjörg handa. Fyrsta
skólaárið voru 19 nemendur en
þeim fór æ fjölgandi. Enda leið
ekki á löngu þar til fleiri bygg-
ingar risu að Löngumýri, byggðar
af þeim stórhug sem einkennir
Ingibjörgu, en ekki alltof miklum
efnum. Kannske þætti aðbúnaður
á fyrstu skólaárunum hér ekki
nægilegur í dag. En það eru
breyttir tímar, og víst er það aldr-
ei hef ég heyrt kvartanir frá hin-
um fyrstu nemendum vegna þess.
Svo virðist sem allar minningar
þeirra séu góðar. Og það veganesti
sem þær hlutu hér, þakka þær enn
þann dag í dag. Aðsókn að Hús-
mæðraskólunum var mjög góð á
þessum árum og eru nemendur
Ingibjargar áreiðanlega milli 6 og
7 hundruð talsins. mikils trausts
og vináttu nýtur Ingibjörg frá
fyrrv. nemendum sínum. Er mér
til efs að svo mikil og sterk bönd
milli skólastjóra og nemenda sé
víða að finna. Veit ég að þær
hugsa hlýtt til hennar á þessum
tímamótum, og þakka vináttu
hennar og allan þann fróðleik er
hún miðlaði þeim. Ingibjörg var
skólastjóri til vorsins 1967. En ár-
ið 1962 gaf hún Þjóðkirkju lslands
skólann og ennig nokkurt land
umhverfis. Þar er fagur trjá- og
blómagarður en Ingibjörg er mikil
ræktunarkona einnig á þeim
vettvangi. Vinkona Ingibjargar
Björg Jóhannesdóttir stóð við
hennar hlið allan starfstímann á
Löngumýri og nú búa þær saman í
Reykjavík á góðum stað í Vestur-
bænum, Reynimel 22.
Ég mun ekki fjölyrða frekar um
æfiferil Ingibjargar. Auk þess að
veita skólanum forstöðu á vetrum
rak hún sumardvalarheimili fyrir
börn í mörg sumur. Hún var virk í
félagsmálum s.s. í Kvenfélaginu
og Skógræktarfélaginu og fleiru
sem ég kann ei upp að telja. Ég
kom hér að Löngumýri eftir að
Ingibjörg flyst suður, svo við höf-
um aldrei verið löngum samvist-
um. En hér sjást verk hennar
hvarvetna. Atorka hennar og
bjartsýni er með ólíkindum. Og
Langamýri, staðurinn allur er lífs-
verkið hennar og hjartabarnið.
Nú, þegar ekki er lengur starf-
ræktur húsmæðraskóli hér en
staðurinn er starfsvettvangur
kirkjunnar með orlofsstarfsemi
fyrir aldraða á sumrin og margs-
konar námskeiöahaldi yfir vetur-
inn bæði fyrir eldri og yngri, fylg-
ist hún vel meö. Árið 1979 lagði
hún fram stórfé til aukinnar upp-
byggingar á Löngumýri. Gjöf
hennar gerði kleift að reisa hér
300 m2 hús er hýsir 20 manns.
Þannig er Ingibjörg, sívakandi og
biðjandi fyrir hjartabarni sínu,
Löngumýri.
Kæra Ingibjört þetta eru aðeins
örfá orð. Um þig mætti skrifa þó
nokkra bók, en ég vil þakka þér
fyrir mína hönd og staðarins.
Þakka þér gjafir þínar en ekki síð-
ur hug þinn og bænir þínar, fyrir
öllu er hér fer fram.
Kirkja fslands stendur í þakk-
arskuld við þig sem aldrei verður
fullgoldin. Og þegar þetta er skrif-
að á sólbjörtu kvöldi Hvítasunnu-
dags hér heima að Löngumýri, ber
staðurinn allur þér kveðjur og
þakkir. Hvert tré og blóm er þú
gróðursettir og hlúðir að og einnig
og ekki síður ég sem nýt fyrir-
bæna þinna.
Megi góður Guð gefa þér fagurt
og friðsælt kvöld.
Margrét K. Jónsdóttir,
forstöðum. að Löngumýri.
Sjómannadagsblað
Neskaupstaðar 1985
R UI
i.M£
Sjómannadags-
blað Neskaup-
stadar 1985
Sjómannadagsráð Neskaup-
sstaðar hefur sent frá sér mynd-
arlegt rit í tilefni af sjómannadeg-
inum á morgun. Blaðið er 128 síð-
ur að stærð. Ritstjóri er Smári
Geirsson, en í ritnefnd Guðjón
Marteinsson, Ragnar Sigurðsson
og Magni Kristjánsson. Blaðið er
tölrusett, umbrotið og prentað hjá
Nesprenti, litgreining var unnin
hjá Myndamótum.
Meðal efnis í blaðinu má
nefna grein eftir Guðmund
Bjarnason og Smára Geirsson,
sem þeir kalla „Oft var fjör í
Fleetwood", Jóhann Jóhannsson
skrifar greinina „Kollsteypa á
Neskaupstað". Svend-Áage
Malmberg skrifar „Að vera í
vist í sjónum við ísland", Þór-
unn Jakobsdóttir skrifar um
Kvennadeild SVFÍ á Norðfirði
50 ára, Inga Hrefna Sveinbjarn-
ardóttir skrifar greinina „Hætt
kominn í höfninni í Leirvík",
greint er frá hverjir voru heiðr-
aðir síðasta sjómannadag í Nes-
kaupstað, Vilhjálmur Hjálm-
arsson skrifar um endalok land-
nótaveiða í Mjóafirði, Eyjólfur
Gíslason skrifar endurminn-
ingar frá Neskaupstað 1915,
viðtal er við Hávarð Bergþórs-
son, Þórður Kr. Jóhannsson
skrifar um Haföldubryggjuna
og grein er eftir Þröst Har-
aldsson undir nafninu „Lónað 1
Austfjarðaþokunni". Auk þessa
er ýmislegt annað efni í blað-
inu.