Morgunblaðið - 01.06.1985, Side 50

Morgunblaðið - 01.06.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNl 1985 „V/ið -plugam L/fir eina borgunum ykJcar d leið niður. . . mjög h\lkomum)kil." stríða. Sömu reglur fyrir varna- liösmenn og íslendinga í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þann 12. maí sl. gerði bifreiðaeig- andi þá fyrirspurn til tryggingafé- laganna, „hvort varnarliðsmenn á Keflavíkurflugvelli fái, er þeir koma með bifreiðir sínar til lands- ins, 65% afslátt af ábyrgðar- og kaskótryggingum?". Ennfremur var spurt: „Ef þetta er rangt, hvað þurfa þeir að greiða há iðgjöld af áðurnefndum tryggingum og hvers vegna greiða þeir lægri ið- gjöld en Islendingar?" Þar sem fyrirspurnir þessar höfða til nokkurra tryggingafé- laga samtímis, var Samstarfs- nefnd íslensku bifreiðatrygginga- félaganna beðin að svara þeim. Svarið er þetta: Það gilda sömu reglur fyrir varnarliðsmenn og ís- lendinga. Landinu er skipt niður í 3 svokölluð áhættusvæði, þar sem iðgjöld eru mismunandi eftir tjónatíðni eða tjónaþunga. Hæst er iðgjaldið á 1. áhættusvæði, en lægst á 3. Upphaflega greiddu varnarliðsmenn sama iðgjald og greitt var á 1. áhættusvæði, en á nokkrum árum færðust þeir af 1. áhættusvæði á 3. og er ástæðan einfaldlega sú, að tjónatíðni var afar lítil hjá þeim. Þeir greiða nú svipuð iðgjöld og bifreiðaeigendur greiða í Borgarfirði og Stykkis- hólmi, svo eitthvað sé nefnt. Hér er skýrt dæmi um það, að iðgjöld byggjast á tjónareynslu og njóta varnarliðsmenn þess í þessu til- viki. Virðingarfyllst, f.h. samstarfsnefndarinnar Bruno Hjaltested. Nei, ekki Kanasjónvarp Kona á Suðurnesjum skrifar: Mig langar að leggja fáein orð í belg í umræðu um sjónvarp. Ég bý á Suðurnesjum og var eitt sinn í þeirra hópi sem gátu horft á „kanasjónvarpið" að vísu mér til lítillar ánægju. Nú hefur verið rætt um hvort ekki væri æskilegt og ódýrt að leyfa afnot af þessu sjónvarpi aft- ur. Ég vona bara að hamingjan gefi að íslenskir ráðamenn beri gæfu til að hafna öllum slíkum til- lögum. Það sem ég á við er það að mér finnst enskt tal og tunga tröllríða svo íslenska útvarpinu, rás 2, og því miður stundum sjón- varpinu Iíka, að á það er alls ekki bætandi með því að demba yfir okkur amerísku sjónvarpi, nóg er nú samt. Að lokum vil ég þakka íslenska sjónvarpinu marga ágæta þætti t.d. „Stiklur" sem er í sérflokki og margt annað, sem of langt er upp að telja. Skapandi rokk útilokað frá rás 2 HÖGNI HREKKVÍSI Kokkunnandi skrifar: Um daginn skrifaði „birtingur" í Velvakanda og kvartaði undan því að rás 2 spilaði aldrei íslenskt rokk, heldur einungis Wham, Dur- an Duran og Broadwaygengið (Bjögga, Þorgeir o.fl.). Ég vil endi- lega taka undir orð „birtings". Allt sem flokkast undir skap- andi rokk er útilokað frá rás 2, en sömu lögin af sama falska vin- sældalistanum eru spiluð aftur og aftur á hverjum degi. Ég tek undir það með birtingi að þarna er verið að heilaþvo smákrakka. Ég vil líka vekja athygli á því að þeir á rás 2 kölluðu Prince og Frankie goes to Hollywood framsækna rokkara um daginn. Þetta er gróf fölsun eða þá ótrúlegt þekkingarleysi á tónlist. Prince og Frankie goes to Hollywood eru ekki framsæknir frekar en Wham og Duran Duran en þeir sem aldrei heyra rás 2 hlusta á fjölbreytta tónlist. Þetta sýnir að rás 2 geldir tón- listarsmekk hlustenda með ein- hæfu lagavali. Rás 2 hefur algjör- lega brugðist og ég skora á þá sem aðhyllast skapandi rokk (Kukl, Oxsmá, Með nöktum, Tolli & íkar- us, S/H draumur, P.P. Djöfuls ég, Bubbi, Psychic TV, Fall, Pere Ubu, Art Bears, Joy Division o.m.fl.) að láta frá sér heyra. „ f?IPOARALÖ6f?eGLAN ER (ZBIÐVIO plG1- "

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.