Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 51
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
5i;
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Til skaða mín njóta
Árni Helgason, Stykkishólmi,
skrifar:
Svo segir Einar Benediktsson
skáld um bjórinn og af löngum
kynnum vissi hann vel hvað hann
söng.
Bjórfrumvarpið er nú afgreitt í
neðri deild Alþingis til 3. umræðu.
Með harðneskjunni, aðstoð kven-
þjóðarinnar og reynslulítilla vara-
þingmanna hafðist þetta og mega
sjálfboðaliðar áfengisauðvaldsins
vel við una. Jafnvel þjóðþrifamál
ríkisstjórnarinnar urðu að bíða
því bjórfrumvarpið hafði algeran
forgang. Viðbrögðin sjást.
Erlendar bruggverksmiðjur
hyggja á brugghús hér og iða í
skinninu. „Við fylgjumst af áhuga
með þessu," er haft eftir þeim.
Hugsa sér gott til að auðgast á
brestum bræðra sinna. Það er
undrunarefni hversu margar
hendur eru á lofti til að leggja
snörur og seilast í pyngjur þeirra
er síst mega við því, og margt er
heilbrigðum hugsandi manni í dag
erfitt að skilja. Takið eftir: í frv.
um bjórinn er gert ráð fyrir 1% af
tekjum bjórsölunnar (hækkað um
helming) og til hvers? Til að fræða
fólkið um þann skaða, sem bjórinn
veldur landi og lýð. Semsagt þeir
alþingismenn sem samþykkja
bjórinn staðfesta um leið að hann
er skaðvaldur þjóðfélagsins og
þvílíkt böl að það verði að verja
stórri fjárhæð til að vara menn
við honum.
Ég hlustaði á viðtal við forystu-
menn í bruggiðnaði hér á landi
sem eru ákafir að nota sér þessi
viðhorf og þann fjárgróða sem
fæst með því sem breyskir og
ístöðulitlir menn koma til að
fórna á altari bjórsins. Þetta voru
frammámenn Sanitas og Ölg. Eg-
ils Skallagrímssonar sem eru að
búa sig í að dæla oní mannskapinn
13—15 milljónum lítra af þessum
skaðvaldi á ári. Og hvaðan kemur
þeim hjálpin? Hún kemur frá al-
þingismönnum, kjörnum af fólk-
inu til að vinna að heill og ham-
ingju þjóðar vorrar. Alþingis-
mönnum, sem skrifa undir eiðstaf
um að fara eftir hreinni samvisku
og gera ekkert annað en landi og
lýð sé fyrir bestu. Slík er reisn
Alþingis í dag, virðulegustu stofn-
unar þjóðarinnar, og er þá ekki
eðlilegt að menn tali um þverrandi
virðingu fyrir löggjafarsamkom-
unni? Einu sinni var spurt: Hvað
er sannleikur? í dag kemur sú
hugsun upp í huga heilbrigðra og
athugulla manna og hávær spurn-
ing: Hvað er samviska?
Og hvernig á að samræma það
þegar þingmenn viðurkenna svo
Árni Helgason
ekki verður um villst að bjórinn sé
þjóðinni til skaða, og það þurfi að
verja miklu fé að vara hana við
þessari vá, en á sama tíma rétta
þeir upp höndina til að veita þessu
grugguga böli inn í landið og koma
með því fólki á vonarvöl, og mörg-
um enn lengra. Og hver er svo
þessi samviska er þannig vinnur.
Hvaða afl knýr á bjórfrumvarpsmenn?
Svanur Karlsson skrifar:
Þegar ég heyri tölur um einn
milljarð króna hjá ríkinu á afeng-
issölu og fimm og hálfan milljarð
í útgjöld til að reyna að bæta lít-
ilsháttar úr því böli sem drykkju-
skapur veldur, þá undrast ég ekki
sérlega. Það gerir enginn, sem
hefur kynnst baráttunni við
ofdrykkju. En mér finnst óhugn-
anlegt að hugsa til þess sem Guð-
rún Helgadóttir sagði í útvarpinu
á sl. ári, en hún er einn af flutn-
ingsmönnum bjórfrumvarpsins.
Hún sagðist ekki vita betur en
það væri einkamál hvers og eins
hvort hann drykki áfengi eða ekki.
Óhugnaðurinn er sá að rithöfund-
ur eins og Guðrún, sem skrifað
hefur af nokkurri nærfærni um
bágindi og gleði lífsins, skuli ekki
hafa hugleitt þetta mál betur.
Stendur þetta fólk, sem myndar
löggjöfina á Alþingi íslendinga
kannski ekki betur að málum en
þetta?
Það er ekkert leyndarmál að
sumir þeirra sem harðast hafa
barist fyrir bjórnum á liðnum ár-
um, hafa seinna þurft að leita sér
hjálpar við drykkjusýki.
Hvaða afl er það sem nú knýr á
hjá flutningsmönnum bjórfrum-
varpsins og meirihluta nefndar,
sem um það fjallar?
Þessir hringdu .. .
Nýtt fólk til starfa
hjá Duran-klúbbnum
Duran Duran klúbburinn
hringdi:
Kæri Velvakandi:
Við hjá Duran Duran-klúbbn-
um viljum koma því á framfæri
að í byrjun maí tók nýtt fólk til
starfa hjá Duran Duran-klúbbn-
um. Hefur klúbburinn nú aðset-
ur í versluninni „Hjá Hirti".
Þegar við tókum við klúbbnum
var mikil ringulreið á öllu t.d. I
sambandi við hverjir höfðu
greitt ársgjald og hverjir áttu
það eftir. Þess vegna hefur verið
kvartað mikið. En nú er búið að
koma reglu á mestalla ringuleið-
ina svo að þið, aðdáendur, ættuð
að fá skírteinin ykkar inn um
bréfalúguna á morgun eða hinn.
Ennfremur er nú á leiðinni í
prentun, bæklingur með ýmsum
upplýsingum um Duran Duran,
sem kemur til ykkar aðdáenda
bráðlega. En, þetta er ekki allt
sem þið fáið. Restin kemur í ljós
síðar.
Kær kveðja.
P.S. Ef einhver skyldi ekki fá
skírteinið sitt, vinsamlega látið
okkur vita af því. Heimilisfangið
er: Duran-klúbburinn, pósthólf
1301,121 Reykjavík.
Hvar er
verslunin?
Guðbjörg Böðvarsdóttir skrifar:
Hver getur gefið mér upplýs-
ingar um hvar hannyrðaverslunin
„Ellen" er nú staðsett? Hún var
áður á Kárastíg 1.
Ég hef grun um að hún sé hætt
og ef svo er, hvar get ég þá komist
í samband við þann sem var með
hana? Ég þarf þess nauðsynlega
út af mynd, sem ég veit að var til
þar.
Ef einhver getur veitt mér um-
beðnar upplýsingar, vinsamlega
segið mér símanúmer eða heimil-
isfang. Síminn hjá mér er 92-2328.
Afskorin blóm f|
í úrvali
Opid til kl. 9 öll kvöld.
Græna
höndin
Gróðrarstöð við Hagkaup,
Skeifunni, sími 82895.
■WK.
Nú í sumar munu þjónustu- og sölufulltrúar Bíla-
borgar h/f gera víðreist um landsbyggðina til
skrafs og ráðagerða við MAZDA eigendur og
þjónustuaðila.
3. júní verða þeir á Blönduósi hjá
Bílaþjónustunni og á Sauðárkróki hjá
Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga.
4. júní verða þeir á Siglufirði hjá
Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar og
á Dalvík hjá Bílaverkstæði Dalvíkur.
5. júní verða þeir á Akureyri hjá Bílasölunni h/f
og á Húsavík hjá Bifreiðaverkstæðinu Fossi h/f.
6. júní verða þeir á Egilsstöðum hjá
Bifreiðaþjónustu Borgþórs Gunnarssonar, á
Neskaupstað hjá Síldarvinnslunni h/f og á
Eskifirði hjá Benna og Svenna h/f.
7. júní verða þeir á Hornafirði hjá Bifreiðadeild
Vélsmiðju Hornafjarðar.
MAZDA eigendum og þeim sem eru í bílakaups-
hugleiðingum er bent á að hafa samband við
ofangreinda aðila varðandi nánari tímasetningar.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23, sími 812 99