Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 56
KEILUSALURINN
OPINN 9.00-02.00
ttgtmMftfrtfr
TIL DAGLEGRA NOTA
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
VERÐ I LAUSASOLU 30 KR.
Landbúnað-
arvörur
hækka um
8%—10%
SEXMANNANEFND ákvað í gær
9,4% hskkun verðlagsgrundvallar,
það er hjekkun til bænda, en verð
landbúnaðarafurða hækkar í dag.
Smásöluverð einstakra búvara hefur
ekki enn verið reiknað út Launalið-
ur bóndans vegur um þriðjung f
verði landbúnaðarafurða. Ríkis-
stjórnin hskkaði niðurgreiðslur um
40 milljónir króna til að msta úr-
skurði yfirnefndar um hskkun
launa og flutningskostnaðar, sem
taka átti gildi 1. marz síðastliðinn,
en kom ekki til framkvsmda og
hefði þýtt 8,7 % hskkun búvara.
Reiknað er með að hækkun
landbúnaðarvara í smásölu verði á
bilinu 8'/4 —10%. Einstaka búvör-
ur hækka mismikið vegna ákvörð-
unar ríkisstjórnarinnar að hækka
niðurgreiðslur um 40 milljónir
króna. Vinnslu- og heildsölukostn-
aður mjólkur hækkar um 15 aura
á Iítra, eða 2,6%. Umbúðakostnað-
ur mjólkur hækkar um 6 aura, eða
3,3%. Slátur og heildsölukostnað-
ur sauðfjárafurða verður óbreytt-
Hækkun á
áfengi og
tóbaki á
mánudag
ÁKVEÐIÐ hefur verið að áfengi
og tóbak hskki í verði á mánu-
dag, þann 3. júní. Verða útsölur
Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins lokaðar þann dag af
þeim sökum.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hækkar áfengi
um tæplega 10%, líklega um 7
til 8%, en hækkun á tóbaki
verður eitthvað meiri, hugsan-
lega um 15% að meðaltali.
Hækkun tóbaks verður þó mis-
jöfn eftir tegundum, og er lík-
legt að dýrari vindlingar hækki
minna en þeir ódýrari, þannig
að ekki verði jafnmikill verð-
munur á vindlingum og nú er.
Ný sundlaug á Hrafnistu
Ljóam. Emilia
Vatn er vellíðan og það er aldrei of seint að fá sér sundsprett. Það sést best á þessu galvaska fólki, sem hér nýtur tilsagnar Lovísu
Einarsdóttur leikfimikennara í því hvernig á að taka fyrstu sundtökin í nýrri sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði sem verður vígð á
sjómannadaginn.
Formannafundur Verkamannasambandsins:
Samningaviðræður hetj-
ist við vinnuveitendur
— Guðmundur J. Guðmundsson talinn hafa beðið lægri hlut
Formannafundur Verkamanna-
sambands íslands samþykkti í gsr
að fela stjórn sambandsins að óska
eftir viðrsðum við Vinnuveitenda-
sambandið, þar sem megináhersla
verði lögð á að tryggja að ef kaup-
máttartrygging verður bönnuð með
lögum, verði samningar þegar laus-
ir, að gengið verði frá sérstökum
hskkunum fyrir fiskvinnslufólk og
að sérsamningar sérstakra félaga
verði gerðir samhliða, eða fyrir 1.
október ok. Takist það ekki, verði
samningar þessara félaga lausir frá
1. október. Ákvað fundurinn að
kjósa samninganefnd til þessara
viðrsðna og sérstaka samninga-
nefnd fyrir fiskvinnslufólk.
Kauptryggingu sagt upp
_r _ w
í BUR og Isbirninum
— Sáttafundur í sjómannadeilunni á mánudag og
þá hefst samúðarverkfall á stóru togurunum
KAUPTRYGGINGU var sagt upp
hjá yfir 300 starfsmönnum í fisk-
iðjuverum Bsjarútgerðar Reykjavík-
ur og (sbjarnarins í gsr. Ástsðan er
fyrirsjáanlegur hráefnisskortur í
frystihúsunum vegna verkfalls sjó-
manna í Reykjavík, sem hófst 17.
maí. Að sögn Brynjólfs Bjarnasonar
framkvsmdastjóra BÚR verður lok-
ið við að vinna fyrirliggjandi hráefni
um miðja nsstu viku og sömu sögu
mun vera að segja frá ísbirninum.
Tilkynningin um uppsögn kauptrygg-
ingar er miðuð við að fólk fari af
launaskrá mánudaginn 10. júní. Hjá
Hraðfrystistöðinni í Rcykjavík hefur
ekki verið gripið til aðgerða sem
þessara.
„Það er nánast ekkert frekar að
frétta af þessu — stóra spurningin
er hvað gerist á mánudaginn,"
sagði Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, í gær.
Boðað samúðarverkfall félags-
ins á stóru togurunum sex, sem
gerðir eru út frá Reykjavík, kom
til framkvæmda kl. 18 í gærkvöldi.
Fyrsti togarinn, Snorri Sturluson,
mun stöðvast er hann kemur til
hafnar á mánudaginn — væntan-
lega um sama leyti og haldinn
verður fyrsti samningafundurinn í
tæpar þrjár vikur. Ríkissátta-
semjari hefur boðað til fundarins
kl. 13:30 á mánudaginn.
Engin hreyfing hefur orðið í
samningaviðræðum síðan fundur
var síðast haldinn, 15. maí sl., og í
gær benti ekkert til að breyting
hefði orðið á afstööu deiluaðila.
Tveir stóru togaranna létu úr höfn
skömmu áður en samúðarverkfall-
ið skall á, Ögri í gærmorgun og
Viðey seint í fyrrakvöld.
Þetta var langur og átakamik-
ill fundur, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Hann hófst
kl. 14 og stóð fram undir 18:30.
Greindi menn á um hvort ganga
ætti til samninga við VSI eða
ekki, og er það hald manna að
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasam-
bandsins, hafi orðið undir í þess-
um átökum, þar sem hann hafði
áður lýst sig mótfallinn því, en
stóð þó að þeirri tillögu sem sam-
þykkt var á fundinum í gær.
„Nei, ég túlka þetta ekki á
þann veg að ég hafi orðið undir.
Ég greiddi atkvæði með tillög-
unni og var einn af flutnings-
mönnum hennar," sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamanna-
sambandsins, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkveldi.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var Guðmundur þrá-
spurður á fundinum um hvað ylli
sinnaskiptum hans frá fyrri for-
mannafundi Verkamannasam-
bandsins. Þá hefði hann ekki
viljað samningaviðræður við
vinnuveitendur fyrr en í haust.
Sömu heimildir herma að fátt
hafi orðið um svör hjá formanni
Verkamannasambandsins.
Þá mun Kolbeinn Friðbjarnar-
son, formaður Vöku á Siglufirði,
hafa stigið í pontu á fundinum og
sagt að það væri svo sem í lagi að
fara út í þessar viðræður við VSÍ,
svo fremi sem ekkert kæmi út úr
þeim.
Sjá fréttaskýringu um verka-
lýðsraál á bls. 16 og 17.
Vörubifreið ekið
á hæðarhindrun
Umferðarhnútur mikill myndaðist
á Kringlumýrarbraut á tíunda tíman-
um í gærkveldi, þegar vörubílstjóri
virti að vettugi þá hæðartakmörkun
sem er við brúarbygginguna yfir
Kringlumýrarbraut, og ók hann á slá
sem lá á milli stólpanna með þeim
afleiðingum að allt hrundi.
Við þetta festist bifreiðin í
bremsu, og stöðvaði alla umferð
suður Kringlumýrarbrautina. Var
umferðin ekki komin í samt lag
fyrr en hálftíma síðar.
Frá og með 1. júní kostar áskrift
Morgunblaðsins kr. 360 á mán-
uði. I lausasölu kr. 30 eintakið.
Grunnverð auglýsinga verður frá
og með sama tíma kr. 235 dálk-
sentimetrinn.