Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 3

Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 3
J . MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JtM 19&5 B i við söguna af Taminu, sem býr á eyju sem er eingöngu byggð börnum. „Þessi saga er draumur, draumsýn sem sækir á mig. Að hugsa sér að vera neyddur til að eyða ævinni umkringdur börnum, án tækifæris til að ræða við nokkurn fullorð- inn. Martröð. Hvaðan kemur þessi ímynd? Eg veit það ekki, ég er ekki að kryfja drauma mína, ég kýs heldur að spinna úr þeim sögur." Börn hafa undarlegu hlutverki að gegna í bókum þínum. í „The Unbearable Lightn- ess of Being" kvelja börnin kráku, og Ter- eza segir upp úr þurru við Tomas: „Ég er þakklát þér fyrir að hafa ekki viljað eign- ast börn.“ Hins vegar má finna í bókunum væntumþykju í garð dýra. í síðustu bók- inni er svín gert að viðkunnanlegri per- sónu. Er ekki þessi afstaða til dýranna nokkuð smjaðurkennd? „Það finnst mér ekki. Smjaður miðar að því að gera öllum til geðs, hvað sem það kostar. Að tala vel um dýrin en vera tor- trygginn í garð barna getur varla fallið öllum í geð. Það getur jafnvel vakið nokkra gremju. Ekki það að ég hafi neitt á móti börnum. En barnaskapur finnst mér ógeðfelldur. Faöir minn var pí- anóleikari. Hann hafði mikið dálæti á nútímatónlist — á Stravinsky, Bartók, Schoenberg, Janacek. Hann barðist ákaft fyrir því að Leos Janacek hlyti viðurkenningu sem listamaður. Janacek er heillandi nútímatóns- káld, óviðjafnanlegur, og honum verður hvergi skipað í flokk með öðr- um. Hérna í Frakklandi, fyrir kosningarnar, höfðu allir stjórnmálaflokkarnir uppi veggspjöld. Alls staðar voru sömu slagorð- in um betri framtíð og alls staðar myndir af brosandi börnum að leik. Því miður er mannleg framtíð okkar ekki bernska, held- ur elli. Raunverulegur mannkærleiki sam- félagsins birtist í afstöðu þess til ellinnar. En ellin, eina framtíðin sem blasir við okkur öllum, verður aldrei sýnd á áróð- ursveggspjöldum. Hvorki spjöldum hægri né vinstri manna." Ég sé að ágreiningurinn milli hægri og vinstri vekur ekki mikinn áhuga hjá þér. „Hættan sem steðjar að okkur er alræð- isheimsveldið. Khomeini, Mao, Stalin — eru þeir tii hægri eða vinstri? Alræðis- stefnan er hvorki til hægri né vinstri, og innan heimsveldis hennar mun hvort tveggja tortímast. Ég hef aldrei verið trúaður en þegar ég sá tékkneska kaþólikka ofsótta á ógnar- tímum Stalíns fann ég til innilegra sam- — stöðu með þeim. Það sem aðskildi okkur, trúin á Guð, skipti minna máli en það sem sameinaði okkur. Þeir hengdu sósíalista og klerka í Prag. Þannig fæddist bræðralag þeirra hengdu. Þetta er ástæðan fyrir því að þrálát bar- átta hægri og vinstri er í mínum augum úrelt og mjög hallærisleg. Mér er meinilla við að taka þátt í stjórnmálalífinu þótt stjórnmálin geti verið heillandi leiksýning. Sorgleg og banvæn leiksýning í heimsveld- inu í austri, andlega ófrjó en skemmtileg í vestri.“ Stundum er því haldið fram að þrátt fyrir allt gefi kúgunin listum og bók- menntum meiri alvöruþunga og meira líf. „Við skulum ekki vera með neina draumóra. Þegar kúgunin er varanleg get- ur hún útrýmt menningunni algjörlega. Menningin þarf að þróast meðal þjóðar- innar, hún þarfnast frelsis til skoðana- skipta; hún þarfnast málgagna, listsýn- inga, umræðna og opinna landamæra. Engu að síður getur menningin haldið lífi í takmarkaðan tíma við erfiðustu aðstæð- ur. Eftir rússnesku innrásina árið 1968 voru svo til allar tékkneskar bókmenntir bann- aðar, og þeim aðeins dreift í handritum. Engu að síður voru tékkneskar bókmennt- ir stórfenglegar á áttunda áratugnum. Skáldsögur eftir Harbal, Grusa, Skvor- ecky. Það var þá, á þessum mestu hættu- tímum í sögu þeirra, að tékkneskar bók- menntir unnu sér alþjóða viðurkenningu. En hve lengi geta bókmenntir komizt af neðanjarðar? Það veit enginn. Svona ástand hefur aldrei fyrr ríkt í Evrópu. Hvað varðar ógæfu þjóða megum við ekki missa sjónar af tímamörkunum. í fas- ísku einræðisríki vita allir að ógæfan tek- ur enda. Allir mæna á endann á jarðgöng- unum. f heimsveldinu í austri eru jarð- göngin endalaus. f það minnsta endalaus með tilliti til mannsævinnar. Þess vegna er ég lítt hrifinn af því þegar verið er að bera saman Pólland og, til dæmis Chile. Jú, pyndingarnar, þjáningarnar eru þær sömu. En lengd jarðganganna er mjög ólík. Og það breytir öllu. Pólitísk kúgun felur í sér annarskonar hættu, sem — í það minnsta hvað varðar skáldsöguna — er jafnvel verri en ritskoð- unin og lögreglan. Þar á ég við siðgæðið. Kúgunin skapar allt of skýr mörk milli þess góða og þess illa, og rithöfundurinn lætur auðveldlega undan þeirri freistingu að gerast boðberi. Frá mannlegu sjónar- miði getur þetta virzt aðlaðandi, en það er banvænt fyrir bókmenntirnar. Hermann Broch, austurríski rithöfund- urinn sem er í miklu dálæti hjá mér, hefur sagt: „Eina dyggðin sem rithöfundur verð- ur að fylgja er þekkingin." Eingöngu bókmenntaverk sem opinbera ókunna hlið mannlegrar tilveru eiga rétt á sér. Hlut- verk rithöfundar er ekki að boða sann- leika, heldur að finna sannleika." En er ekki hugsanlegt að samfélög sem búa við áþján geti veitt rithöfundum fleiri tækifæri til að finna ókunna hlið á tilver- unni en þeim gefst kostur á sem lifa frið- sömu lífi? „Ef til vill. En við skulum líta á Mið- Evrópu, þessa gífurlegu tilraunastofu sög- unnar. Á 60 ára tímabili höfum við upplif- að fall heimsveldis, endurfæðingu smá- / Eg hef aldrei veriö trúaður en þegar ég sá tékkneska kaþól- ikka ofsótta á ógnartímum Stalíns fann ég til innilegra samstööu með þeim. Það sem aðskildi okkur, trú- in á Guð, skipti minna máli en það sem samein- aði okkur. Þeir hengdu sósíalista og klerka í Prag. Þannig fæddist bræðralag þeirra hengdu. ríkja, lýðræði, fasisma, hernám Þjóðverja og þau fjöldamorð sem því fylgdu, hernám Rússa og nauðungarflutningana sem því fylgdu, vonirnar sem bundnar voru við sósíalismann, skelfingar Stalíns, land- flótta ... Ég hef alltaf undrazt það hvernig fólkinu í kringum mig tókst að sætta sig við þetta ástand. Maðurinn er dularfullur. Hann er eins og spurningarmerki. Og það er þessi undr- un sem skapar þörfina fyrir að skrifa skáldsögu. Vantrú mín á mikilvægi margs þess sem svo til útilokað er að ná fram á rætur að rekja til reynslu minnar frá Mið-Evrópu. Sem dæmi má taka að æskan er ekki æviskeið heldur verðmæti í sjálfri sér. Þegar stjórnmálamenn nefna þetta orð eru þeir venjulega með kjánalegt bros á vör. En ég, þegar ég \ar ungur, bjó á ógnartím- um. Og það var æskan sem studdi ógnvald- inn, mikill hluti hennar, vegna reynslu- leysis, vanþroska, siðalögmálsins um allt- eða-ekkert, lýriskra viðhorfa. í engri bóka minna kemur fram meiri trotryggni en í „Life is Elsewhere". Hún fjallar um æsku og skáldskap. Reynslu skáldskaparins á ógnartímum Stalíns. Bros ljóðlistarinnar. Blóðugt bros sakleysisins. Skáldskapurinn er eitt þessara verð- mæta sem ekki verður komið höggi á í þessu þjóðfélagi okkar. Það gekk fram af mér árið 1950 þegar franski kommúnistinn Skáldskapurinn er eitt þessara verð- mæta sem ekki verður komið höggi á í þessu þjóðfélagi okkar. Það gekk fram af mér árið 1950 þegar franski kommúnistinn og skáldið Paul Eluard lagði opinberlega bless- un sína yfir það er vinur hans, rithöfundurinn Zavis Kalandra frá Prag, var hengdur. og skáldiö Paul Eluard lagði opinberlega blessun sína yfir það er vinur hans, rithöf- undurinn Zavis Kalandra frá Prag, var hengdur. Þegar Brezhnev sendir skrið- dreka til að standa fyrir fjöldamorðum í Afghanistan er það hræðilegt, en, ef svo má segja, eðlilegt — það var við því að búast. Þegar mikið skáld lofsyngur aftöku er það áfall sem splundrar þeirri mynd sem við gerum okkur af umheiminum." Veldur reynsluríkt líf því að skáldsögur þínar verða sjálfsævisögulegar? „Engin persóna í sögum mínum er sjálfsmynd mín, né heidur nokkur persóna eftirmynd lifandi manns. Mér líkar illa við duldar sjálfsævisögur. Ég kann ekki að meta lausmælgi hjá rithöfundum. Hvað varðar sjálfan mig tel ég lausmælgi eina af dauðasyndunum. Hver sá sem opinberar einkamá! annars verðskuldar hýðingu. Við lifum á tímum þar sem verið er að eyði- leggja einkalífið. Lögreglan eyðileggur það í kommúnistaríkjunum, blaðamenn ógna því í lýðræðisríkjunum, og smám caman glatar fólkið sjálft lönguninni til einkalífs og tilfinningunni fyrir því. Að búa við það að geta aldrei dulizt aug- um annarra — það er hreinasta víti. Þeir sem búið hafa í alræðisríkjum vita þetta, en það stjórnkerfi dregur aðeins fram, líkt og stækkunargler, þá tilhneigingu sem virðist uppi í öllum nútíma samfélögum. Tortíming eðlishvatanna; hnignun hugs- unar og lista; aukning skriffinnskunnar; útþurrkun persónueinkenna; skortur á virðingu fyrir einkalifi. Án launungar er ekkert mögulegt — ekki ást, ekki vinátta." Það var orðið allframorðið þegar viðtal- inu lauk og Kundera fylgdi mér heim að hótelinu, stuttan spöl í röku rökkri París- arborgar. Einum eða tveimur dögum síðar bjóða Kundera-hjónin mér til hádegis- verðar þar sem á borðum er kornhæna með einiberjasósu, matreidd á tékkneskan hátt. Kundera er léttur í lund en kenjótt- ur. Hann segist lesa minna og minna vegna þess að franskir útgefendur séu allt- af að minnka ietrið á þeim bókum sem þeir senda frá sér. Hann tekur ekki til greina þann möguleika að hér sé ekki um frönsk launráð að ræða heldur þurfi hann ný gleraugu. „Hann fer undan í flæmingi eins og rit- höfundum er tamt þegar hann er spurður að því um hvað bókin sem hann er að vinna að fjalli. En hann hefur ekkert á móti því að ræða samstarf sitt við franska kvikmyndaleikstjórann Alain Resnais, en þeir eru nú að vinna að gerð „flókins skop- leiks". Kundera semur handritið, og hann er að leita fyrir sér að nafni á leikinn. Ætti það að vera „Þrír eiginmenn og tveir elskhugar“ eða „Tveir eiginmenn og þrír elskhugar"? Hér nær stríðnin yfirhönd- inni á laununginni. Þetta er sá Milan Kundera sem vinir hans frá 1968 eiga svo góðar minningar um, áhyggjulausi Kundera, höfundur „Laughable Loves“, bókarinnar sem hann metur mest allra verka sinna, því hún er tengd skemmtilegasta tímabili ævi hans. (Olga (arlisle, höfundur bókarinn- ar „Vokes in the Snow, er höíund- ur fjölda greina um menningar- strauma í Austur-Errópu.) Heimild: The New York Times Var áöur höfuðborg Noregs Bergen er meðal elstu borga í Noregi en Ólafur konungur kyrri, lagði grunninn að henni árið 1070. Á 12. og 13. öld var Bergen höfuð- borg Noregs og nú er hún önnur stærsta borg landsins með um 208.000. íbúa. Á miðöldum, á tím- um hansakaupmannanna, var Bergen jafnframt ein mikilvæg- asta verslunarborg landsins. Höfnin í Bergen hefur alla tíð verið „lífæð" borgarinnar og í aldaraðir hefur hún laðað að fólk frá öllum heimshlutum. Þykir Bergen hafa á sér meiri heims- borgarblæ en aðrar borgir Noregs. Hún nýtur nú sívaxandi vinsælda sem ferðamannaborg, enda rómuð fyrir fegurð, í faðmi tilkomumik- illa fjalla og umlukin himinháum trjám. Sjón er sögu ríkari Sigurður Helgason yngri, for- . stjóri Flugleiða, fór með í fyrstu Á nugvellinum 1 Bergen að loknu fyrsta fluginu þangað. F.h. Skarphéðinn Árnason, forstöðumaður Flugleiða í Noregi, Runólfur Sigurðsson, flugvélstjóri, Kjartan Guðmundsson, flugmaður, Jón R. Steindórsson, yfirflugstjóri, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, og flugfreyjurnar Sólveig Þórarinsdóttir, Sigrún B. Baldursdóttir, Sigríður Árnadóttir, Halldóra Finnbjörnsdóttir, Ragnheiður Brynjólfsdóttir og Margrét Borgþórsdóttir. flugferðina til Bergen, laugardag- inn 1. júní sl. Ásamt honum í för- inni voru Sigfús Erlingsson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs, Sæmundur Guðvinsson, blaða- fulltrúi, Hans Indriðason, for- stöðumaður markaðssviðs, ólafur Steinn Valdimarsson, ráðuneytis- stjóri, Kjartan Lárusson, formað- ur Ferðamálaráðs, Birgir Guð- jónsson, deildarstjóri. Einnig voru með í förinni nokkrir norskir emb- ættismenn, blaðamenn og ferða- málastjórar í Vestur-Noregi, sem komu til íslands í tengslum við nýju flugleiðina. Nokkrum ís- lenskum frétta- og blaðamönnum var boðið með í þessa fyrstu flug- ferð. Þó að ekki hafi verið staldrað nema stutt við í Bergen, urðu menn margs vísari um þessa fögru borg. Höfðu margir á orði, að Bergen yrðu þeir að heimsækja aftur og skoða í góðu tómi, enda ótalmargt ókannað í þessari for- vitnilegu „fjallaborg". BF. í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.