Morgunblaðið - 09.06.1985, Side 5
—-
^ mér, ég streittist á móti, skrúfaði
V, niður í prímusnum og skildi heitt
m vatnið eftir og svo hófst leikurinn
£> úti, ekki dægilegur leikur — og sól
skein í heiði, mjög nærgangandi
leikur. Hann barst yfir á, þá hvarf
mér öll hræðsla og ég lagðist og lá
lengi og hundurinn sleikti sig.
Hvernig ég kom landvættinum af
mér það segi ég ekki. Ég sagði ekki
frá þessu í mörg ár. Ég hafði verið
þarna lengi í kolamyrkri við ann-
an mann og einskis orðið var og
eins hef ég komið þarna síðan og
ekkert gerst.“
Orgelspil að handan
nÉg hef oft séð huldufólk en það
eldist af mönnum eins og „skyggn-
in“ svonefnda, ekki síst ef menn
standa á móti þessu eins og ég
geri. Ég vil ekki standa í neinni
andatrú, það er nóg af slíku á
Skarðsströnd. Menn voru hér svo
miklir miðlar að það heyrðist leik-
ið á orgel upp úr þeim.“
Ráð sem dugði
„Brynjólfur Haraldsson, sem
kenndi mér í farskóla, var stór-
kostlega merkilegur miðill. Hann
var á sálnaflakki og það sóttu aö
honum illir andar. Hann talaði
upp úr svefni og þá breyttist mál-
rómurinn svo úr varð heilt samtal.
Stundum var varla hægt að
merkja að hann andaði. Brynjólf-
ur var kennari á heimsmæli-
kvarða. Þeir sem fóru frá honum í
mennta- og háskóla gátu ekki
bætt við sig miklu. Hann kunni
ráð við að nemendur nöguðu blý-
anta. Hann stakk blýöntunum í
eyrun á sér og ef það dugði ekki þá
annars staðar á líkamann."
Lélegur drykkjumaður
„Brynjólfur hélt einu sinni yfir
okkur nemendum sínum góða
bindindisræðu. Við dýrkuðum all-
ir Gretti Ásmundarson. Brynjólf-
ur sagði að eftir að Grettir glímdi
við drauginn Glám hefði hann
ekki haft nema helming þess afls
sem honum var ætlað. Ef við
glímdum við áfengis- og tóbaks-
drauginn þá færi eins fyrir okkur.
Þetta sat í mér fyrst framan af
meðan ég var með kraftadellu. Ég
náði því nú aldrei að verða
drykkjumaður þó ég gerði dálítið
til þess, ég held að það hafi verið
mikið fyrir það að ég tímdi því
ekki.“
Stimpilklukkur
í kirkjur
Þegar talið berst að trúmálum
fer Steinólfur undan í flæmingi,
segir það einkamál sitt hvað hann
trúi á. Eftir nokkurt hlé segir
Steinólfur: „Mér finnst kenning
Krists stórkostleg og sjálfsagt ráð
við öllu en ég fer ekki í kirkju
nema neyddur til þess. Ég vil ekki
fara í kirkju fyrir það að ég var
píndur til að fermast, ég vildi ekki
gangast undir útlenda trú og trú-
arjátningunni trúði ég ekki og var
búinn að ákveða að fara ekki með
hana en presturinn gleymdi henni
þá. Ég veit heldur ekki til að And-
skotinn hafi gert mér neitt, án
þess að ég sé sérstakur málsvari
hans. Hann er hins vegar til fyrir-
myndar í því að hann gengur aldr-
ei á bak orða sinna. Hvað kirkjur
snertir þá vil ég endilega koma
upp í þeim stimpilklukkum svo
prestarnir fái það kaup sem þeim
ber.“
Þegar við stöndum upp til að
þakka fyrir okkur og kveðja segir
Steinólfur að skilnaði frá því
hvernig hann kynntist sinni
ágætu konu: „Mig dreymdi hana
Hrefnu löngu áður en ég sá hana,“
segir hann einlægur á svip. „Svo
mætti ég henni á Laugaveginum
og þá fór ég yfir götuna til að sjá
hana betur, síðan hljóp ég á undan
henni nokkrum sinnum til þess að
geta mætt henni á ný, þrisvar
sinnum held ég, þar til ég var orð-
inn öruggur um að þetta væri
stúlkan sem mig hafði dreymt. Þá
fór ég á Hrefnuveiðar."
Texti: GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
Ljósm.: BENEDIKT JÓNSSON
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
B 5
- .
Ailtof margír Isíendingar:ti0iföí litf
eöa ekki feröastum ’éigíÖ laftd:
Óbyggöaferö meö Utfari er
ævintýri sem opnaö gétur ís-
lendingum nýjan beirp.
Starfsfólk í eldhúsbílum okkar
sér farþegunum fyrir góöu og
ríkulegu fæöi. ^
Viö bjóðum ykkur velkomin í 6,
12 og •KMaga feröir újfi hálendi
islands í sumar. Brottfarir eru á
mánudögum.
Verö
6 daga ferö kr. 7.800,-
12 daga ferö kr. 15.600,-
19 daga ferð kr. 24.700,-
Börn yngri en 12 ára fá 50% afslátt.
Fullt fæði, tjald og leiösögn er innifaliö
verði.
skrifstofunni
Feröaskrifstofa
9 - 101 REYK JAVIK - SÍMAR 13491 OG 13499
«: *
—
I
Magnþru
á tveim s
Myndaflokki
kemur á my
Myndaftokki
framhald af
LACE er nú
hefst þegar kvÍKW|^iastjarnan Lili hefuríMstQ,sfunciiö m
samvista í stuttan tima, þegar móöurinni er rænL*®ÉÍj|jj|
yji gengur illa af afla fjár fyrir lausnargjaidinu og ákveOTÍ
Jjfe't veróur hun aöMma hann Ejjjragftnist þrautin þyn;
frokar her. K ^
aö leita aöstoöar föður síns, en
Söqubráöurinn veröur ekki rakinn
Mis
Dreifing
—