Morgunblaðið - 09.06.1985, Side 6

Morgunblaðið - 09.06.1985, Side 6
6 fi MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUPAGUR 9. JÚNl 1985 | Rykhali BRAUTJARDAR •tjömu yy STEFNUMÚT Planel A 8. marz 1986 Vega 8. marz 1986 Giotto 13. marz 1986 Planat A skotið 14 águst 1985 BRAUT VEGA 1 Fram hjá Venuai 14.-22. júni 1985 Október 1985 braut planet a . • • • • giotto Nóvember 1985 Febrúar 1986 Vega skotiö 22.-28. desember 1984 Næst sólu: 9. februar 1986 ■ ■ VEGA Sovétríkin l.'Ve.'É.ii.'i.'. Sólar rafhloóur Loftnet Stýribúnadur skermanna Ljós myndavél lo,*ne' Solar rafhloóur * Gasský Sólvindar Ryk og frosin gasc GIOTTO (Geimvisindastofnun Evrópu) PLANETA Japan Giotto skotiö 10. júlí 1985. IRisahalastjarnan, sem kennd er viÖ Halley, nálgast nú jörðina á ný. SíÖast þegar hún nálgaðist greip um sig ofsahræösla. Nú fær hún allt aörar og betri viðtökur. Um jólin lögðu tvær sovézkar geimflaugar af staö áleiðis til halastjörnunnar. Síöan hafa evr- ópskar og japanskar fylgt í kjölfarið. Halastjörnukapphlaupið er hafið. Halleyhalastjarnan Edmund Halley Halastjörnur eru fágæt og til- komumikil sjón og hafa alltaf vak- ið athygli og fyllt menn lotningu. Oft hafa þær skotið mannkyninu skelk í bringu, þegar þær hafa birzt eins og sverð á himinhvolf- inu, eða líkastar ógnþrunginni vofu. Fyrr á tímum, áður en menn skildu eðli halastjarna, voru þess- ir óútreiknanlegu gestir utan úr geimnum taldir boða styrjaldir, hungur, sjúkdóma og aðrar hörm- ungar. Calixtus páfi bannfærði halastjörnur árið 111 e.Kr. Þegar halastjörnur sáust töldu margir að dómsdagur væri í nánd. Einnig var talið að þær væru eldhnettir, sem Guð kastaði um I' himinhvolfið, mannfólkinu til við- vörunar. Svo fágætt var að hala- stjörnur sæjust að fyrir kom að herforingjar túlkuðu komu þeirra sér í hag. Stundum höfðu hala- Ístjörnur jafnvel áhrif á gang sög- unnar. Árið 1456 sat tyrkneskur her um Belgrad. íbúar Vesturlanda fylltust skelfingu, því ef þetta mikilvæga virki félli gætu Tyrkir haldið áfram sókn sinni næstum pví óhindrað. En þá birtist hala- stjarna á kvöldhimninum og stefndi í átt að hálfmánanum — tákni Tyrkjaveldis. í herjum kristinna manna var þetta túlkað sem merki um að þeir yrðu að gera gagnárás. Tyrkir fylgdust einnig með þessu tákni á himni og baráttu- hugur hermanna þeirra bilaði, því að halastjarnan ógnaði hálfmán- anum. Tyrkir biðu ósigur og þann- ig átti halastjarnan drjúgan þátt í því að Evrópu var bjargað. f ijóðabálknum „Aenida" eftir Virgil segir að halastjarna hafi birzt hetjunni Aeneas þegar Trója féll. Kínverskir stjörnufræðingar munu fyrstir hafa séð Halleyhala- stjörnuna 240 f.Kr. Sögur herma að halastjörnur hafi sézt um svipað leyti og marg- ir sögulegir atburðir aðrir en um- sátrið um Belgrad og íall Tróju- borgar hafa gerzt. SÁL CÆSARS Rétt áður en Rómverjar tóku Jerúsalem 70 e.Kr. lýsti hala- stjarna upp himininn. Við útför Júlíusar Cæsars sást stór og skær halastjarna yfir Rómaborg. Róm- verjar, sem voru hjátrúarfullir, töldu að hún væri stríðsvagn úr skíra gulli og komin til að flytja sál Cæsars til bústaðar guðanna. Halastjörnur voru einnig taldar boða dauða fursta og konunga. Logandi halastjarna sást daginn þegar Neró fyrirfór sér. Karl mikli var einnig sagður hafa látizt áður en halastjarna birtist. Árið 1000 birtist risastór hala- stjarna. Heimsendi hafði verið spáð og þegar halastjarnan lýsti upp himininn taldi almenningur í Evrópu að öllu væri lokið og bjó sig undir hræðilegan refsidóm. En árið kom og fór, lífið gekk sinn vanagang og flestir róuðust. Önnur nafnkennd halastjarna birtist 1066 rétt eftir fa.ll Haralds Englandskonungs í orrustunni við Hastings þegar Normannar lögðu undir sig England. Hún er sýnd á Bayeuxreflinum fræga. Sjá má hvernig halastjörnur ýttu við hugmyndafluginu á lýs- ingu fransks læknis, Ambroise Parés, 1528: „Hún var svo hræðileg ásýndum að margir dóu úr hræðslu og aðrir veiktust. í henni miðri sást krepptur hnefi, sem reiddi sverð til höggs." Um svipað leyti skrifaði vís- indamaður nokkur: „Báðum megin við halastjörn- una gaf að líta hnifa, axir og blóði drifin sverð og þar voru líka mörg mannshöfuð með hár og sítt skegg.“ „ÓHREINN SNJÓBOLTI" f raun og veru er halastjarna, sem Grikkir til forna kölluðu „loðnu stjörnuna", eins og „óhreinn snjóbolti". Hún getur orðið nokkrir kílómetrar í þver- mál og samanstendur af ís, frosn- um gasefnum og ryki. Samkvæmt þessari lýsingu kunna halastjörnur að virðast heldur lítið spennandi, en þar sem frægasta halastjarnan, sem er kennd við Halley, nálgast nú jörð- ina óðfluga er hafin mikil kepnni vísindamanna um hver verður fyrstur til að senda geimskip til móts við hana og þar með er hið mikla halastjörnukapphlaup haf- ið. Halleyhalastjarnan er kennd við enska stjörnufræðinginn Edmund Halley (1656-1742), að- stoðarmann sir Isaacs Newton. Halley tók eftir því 1682 þegar hann sá risastóra og skæra hala- stjörnu að hún var nauðalík stór- um halastjörnum, sem sagt var frá árin 1607 og 1531 eftir lýsing- um á þeim að dæma og að brautir þeirra voru einnig keimlikar. Þessi stóra halastjarna skaut fáfróðu fólki hvarvetna skelk í bringu eins og fyrri risahala- stjörnur, ekki sízt í Vín. Tyrkir voru að búa sig undir hið mikla og sögulega umsátur um Vin ári síð- ar (1683), en Tyrkir afléttu um- sátrinu og sóttu ekki lengra inn í Evrópu. Alls kynnti Halley sér sagnir um 24 halastjörnur, sem höfðu birzt síðan 1337. Niðurstaða hans var sú að stóra halastjarnan, sem birtist 1682, hefði birzt nokkrum sinnum áður á um 75 ára fresti. Þegar hér var komið hræddust vísindamenn ekki halastjörnur, því að nú vissu þeir að þær voru ekki yfirnáttúrlegir fyrirboðar, aðeins venjulegir himinhnettir og eins eðlileg fyrirbæri og plánet- urnar, sólin og stjörnurnar. Halley reiknaði út braut hala- stjörnunnar frá 1682 og spáði því 1704 að hún kæmi aftur síðla árs 1758 eða snemma árs 1759. Stjörnufræðingar um allan heim biðu endurkomu halastjörn- unnar fullir eftirvæntingar og hún kom á tilsettum tíma snemma árs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.