Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JfJNÍ 1985
B 9
að senda geimfar, sem kæmi aftur
til jarðar með sýnishorn úr kjarna
halastjörnu. Svo flókna tilraun
verður ekki hægt að gera á þessari
öld, en auðveldara yrði að ná sýn-
ishornum af gasefnum og ryki úr
umhverfi halastjörnu.
Verkfræðingar og vísindamenn
NASA og ESA kanna möguleika á
því að nota svipað geimskip og fer
til Halleyhalastjörnunnar ef til
vill eftir nokkur ár. f þeirri ferð
yrði e.t.v. farið til halastjörnunn-
ar Brorsen-Metcalf, sem er í nánd
við jörðu á 70 ára fresti.
Ef geimfarinu yrði skotið í des-
ember 1987 mundi það hitta fyrir
þessa halastjörnu í ágúst 1989 og
lenda á jörðu niðri fjórum mánuð-
um síðar.
Þessi ferð yrði freistandi, því að
hún mundi bera góðan vísinda-
legan árangur og kostnaðurinn
yrði minni vegna þess að menn
munu njóta góðs af ýmiss konar
undirbúningsvinnu, sem verður
unnin við Giotto-geimfarið.
ISEE-3 Bandarikjamanna hefur
verið endurskírð og heitir nú ICE
(International Cometary Explorer
= Halastjörnukönnuður). Árið
1987, þegar Halleyhalastjarnan
verður lögð af stað til hinna köldu,
ytri laga sólkerfisins, verður ICE
120 milljónir km frá jörðu.
í þeirri fjarlægð, sem er 75 sinn-
um meiri en drægni talstöðva
geimfarsins, nær NASA ekki kall-
merkjum ICE, þrátt fyrir nýjan og
fullkominn tækjabúnað.
ICE snýr aftur til jarðar um
2015. Eins og einn af vísinda-
mönnum NASA komst nýlega að
orði: „Athuganir á halastjörnunni
er góðar út af fyrir sig, en það
verður miklu skemmtilegra að
komast til hennar." Maðurinn hef-
ur sigrazt á aldagömlum ótta sin-
um við halastjörnur og nú má sjá
fyrir að menn verði sendir út í
geiminn til þess að rannsaka þær í
návigi.
(GH skv. Tbe Times, Svenxka Digblmdel o.fL)
Samband íslenskra
sveitarfélaga:
Afmælisfund-
ur verður hald-
inn á Þingvöllum
FULLTRÚARÁÐ Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga heldur fund á
Þingvöllum næstkomandi mánudag
og þriðjudag 10. og 11. júní, en síðari
fundardaginn verða fjörutíu ár síðan
stofnþingi sambandsins lauk á Þing-
völlum.
Formaður sambandsins, Björn
Friðriksson, hefur framsögu á
fundinum um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga, Alexander Stef-
ánson félagsmálaráðherra ræðir
frumvarp til nýrra sveitarstjórn-
arlaga, Húnbogi Þorsteinsson,
skrifstofustjóri í félagsmálaráðu-
neytinu fjallar um endurskoðun
tekjustofnalaga, sem nú er hafin,
og Þorsteinn Guðnason viðskipta-
fræðingur flytur erindi um fjár-
mögnun framkvæmda með
skuldabréfaútboð. Séra Heimir
Steinsson þjóðgarðsvörður flytur
erindi á fundinum er hann nefnir
Þingvellir í nútíð og framtíð. Sýnd
verður kvikmynd, sem Vigfús Sig-
urgeirsson tók á stofnþingi sam-
bandsins á Þingvöllum hinn 11.
júní árið 1945.
Fulltrúaráðsfundinn sitja 34
fulltrúar landshlutanna, 3—4 frá
hverjum þeirra, svo og formenn og
framkvæmdastjórar landshluta-
samtakanna.
Til sölu
Dixie Flyer
Til sölu er einn athyglisveröasti fornbíll landsins,
Dixie Flyer árgerö 1919.
Lysthafendur vinsamlega sendi inn nöfn og síma-
númer á augl.deild Mbl. merkt: „Dixie Flyer — 10“
fyrir 20. þ.m.
FÉLAGIÐ SVÖLURNAR
POSTHÓLF 627 121 - REYK.JAVIK.
Félagiö Svölurnar auglýsir lausa til umsóknar
styrki til framhaldsnáms erlendis í kennslu
og/eöa þjálfun fjölfatlaöra barna.
Umsóknir, ásamt upþlýsingum um námsferil og
fyrirhuguö námslok, skulu hafa borist félaginu
fyrir 1. ágúst 1985.
Svölurnar
Pósthólf 627
101 Reykjavík
Evrópskan eða japanskan?
Mitsubishi, Suzuki, Daihatsu, Isuzu,
Mazda, Nissan, Honda, Toyota . . .
Þessi nöfn hafa valdið evrópskum
bílaframleiðendum ótal andvökunótt-
um. Hvernig eiga þeirað bregðastvið
stöðugum tækninýjungum og
útsjónarsemi Japananna? Hvernig
geta Evrópumenn haldið sínum hlut,
eða bætt um
“ C '"''ML betur?
Eina leiðin til að standast þá
feiknarlega hörðu samkeppni sem
ríkir á bílamarkaðinum er að
framleiða betri bíla en keppinautarnir.
Það vita þeir hjá OPEL.
Höfuðkostir evrópskra bíla eru góð
hönnun, traustur öryggisbúnaður,
mikil ending - auk góðra aksturseigin-
leika. Hér eru evrópskir bílar taldir
standa betur að vígi en aðrir.
Þess vegna hafa þeir hjá OPEL lagt
mikla rækt við þessa þætti. Þeir hafa
einnig gert sér grein fyrir því að eitt
veigamesta svarið við framgangi
japönsku bílanna er að vanda ÖLL stig
framleiðslunnar.
Það hefurskilað sér. OPEL KADETT var
kosinn bíll ársins 1985 af evrópskum
blaðamönnum (og skaut þar mörgum
„japönum" aftur fyrir sig) og salan um
aílan heim hefur gengið frábærlega.
Svarið við upphafsspurningunni er því
ekki evrópskur, heldur OPEL!
BILL ÁRSINS 1985
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300