Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985 ENDALOK LUCONA Var skipinu sökkt eða varð slys? Tryggingabætur eru enn ekki greiddar og áhrifamikill Austurríkismaður situr inni Sex menn fórust með flutningaskiptinu Luc- ona, sem sökk á lygnum sjó á sólbjörtum degi 23. janúar 1977 skammt frá Malediven-eyjum í Indlandshafi. Afdrif skipsins hefðu ekki vakið sérstaka athygli ef farmur þess hefði ekki verið tryggður óvenju hátt. Það sigldi undir fána Pan- ama og var á leið með farm sem eitt póstkassafyrirtæki var að selja öðru þegar sprenging varð um borð, allt nötraði og skalf „eins og bíll hefði keyrt á vegginn", eins og einn af sex sjómönnum, sem komust af, lýsti atburðinum í vitnaleiðslum, og skipið sökk á ör- skömmum tíma. Það liggur nú á 4000 metra dýpi. Þar felst farmur- inn sem áhrifamikill Austurríkis- maður tryggði hjá tryggingafélag- inu Bundeslánder fyrir um tæpar 500 milljónir íslenskra króna eða rúma 31 milljón svissneskra franka. Skipið var tryggt hjá Lloyds- tryggingafélaginu í London og það borgaði strax skaðabæturnar. En austurríska tryggingafélagið Bundeslánder var ekki nægilega baktryggt til að geta borgað skaðabætumar fyrir farminn og lét kanna málið. Svissneska póstkassafyrirtækið Zapata hafði selt póstkassafyrir- tækinu North Pacific Trading í Hong Kong úraníumvinnuvélar sem svissneska fyrirtækið Decob- ul hafði séð um að panta hluti í en ekki sett saman. ftalska skipafé- lagið Coco del Mar Pacifico sá um flutningana frá ítölsku hafnar- borginni Chioggia, skammt frá Feneyjum, og Udo Proksch, for- stjóri hins þekkta Demel-köku- húss í Vín, lét tryggja farminn. Hann er umbosðmaður Zapata í Austurríki. Ekki er vitað hvar nota átti vinnuvélarnar. Bundeslánder neitaði að borga skaðabæturnar fyrr en fram- leiðslureikningar yrðu lagðir fram. Zapata vísaði á Décobul sem sagðist ekki hafa framleitt tækin heldur aðeins pantað þau en neit- aði að segja hvaðan og Erwin Egg- er, forstjóri fyrirtækisins, faldi sig bak við svissnesk lög um við- skiptaleyndarmál í yfirheyrslum. Zapata kærði Bundeslánder fyrir að greiða ekki skaðabætumar og málið lá fyrir dómstólunum í fimm ár. Dómur var loks felldur árið 1982. Bundeslánder þurfti ekki að greiða skaðabætumar, að- allega vegna þess að vélarnar voru taldar tryggðar fyrir sex til níu sinnum of háa upphæð. Zapata greip til þess ráðs að kæra Décobul í Sviss fyrir að leggja ekki fram framleiðslupapp- írana en dómstólar vísuðu málinu frá. Þetta varð til þess að dómstól- ar í Vín tóku málið upp aftur í lok febrúar 1983 og hætta var á að Bundeslánder myndi tapa málinu eftir að hafa þegar safnað 40 kiló- um af gögnum og eytt nokkrum milljónum í málið. Dr. Werner Masser, lögfræðingur tryggingafé- lagsins, sneri sér til svissneska einkaspæjarans Dietmar K. Gugg- enbichler og bað hann um að kom- ast að því sem hann gæti í sam- bandi við Lucona-slysið. Lucona, sem nú liggur á hafsbotni með umdeilda farminn. Spæjarinn leggur spilin á borðið Guggenheimer hefur komist í kast við lögin fyrir aðferðirnar sem hann beitir stundum i starfi sínu og hann er nokkuð umdeildur leynilögreglumaður. En hann tók málið að sér og hefur viðurkennt að loforð um 600 þúsund sv. franka, um 3 milljónir ísl. kr., í viðbótargreiðslu ef Bundeslánder vinnur málið hafi ekki dregið úr áhuga sínum á rannsókninni. Hann ferðaðist um þvera og endi- langa Evrópu og lagði loks fram kærur bæði í Sviss og Austurríki á hendur fimm manns eftir að hann hafði unnið sleitulaust að málinu í fimm mánuði. Hann kærði Udo Proksch og svissneska kaupmanninn Leo Tannaz fyrir morð á mönnunum sex sem fórust með Lucona og fyrir meiriháttar svindl ásamt Hans Peter Daimler, vini Proksch, Erwin Egger, forstjóra Décohul, og Gretu Fischer, stjórnarfor- manni Zapata. Guggenheimer fullyrðir að Lucona hafi ekki sokk- ið af því að hún stímdi á sokkið skipsflak, eins og niðurstöður sjó- réttar voru, heldur hafi tíma- sprengju eða fjarstýrðri sprengju verið komið fyir í lestinni. Álits- gerðir frá sjórettinum benda til að sprenging kunni að hafa orðið um borð. Hann fullyrðir einnig að engar uraníumvinnuvélar hafi verið um borð heldur gamlir kola- námustaurar frá Austurríki. Viðskiptin milli Zapata og Decob- ul hefðu bara átt sér stað á papp- írunum og allar kvittanir væru falsaðar. Guggenheimer benti á að Proksch hefði eitt sinn átt kola- vinnuvélar, ritari hjá Zapata hefði viðurkennt að hafa skrifað falskar kvittanir og hjá austurríska toll- inum fundust engin skjöl sem bentu til þess að Décobul hefði flutt úraníumvinnuvélar inn til Austurríkis, en þaðan áttu þær að hafa verið fluttar um borð í Luc- ona í Chioggia. Guggenheimer skrifaði grein um niðurstöður rannsóknar sinn- ar og fékk hana birta í Kurier í Austurríki. Hún var birt í sex hlutum og fékk mikinn uppslátt þangað til í lokin þegar blaðið skipti allt í einu um tón og gaf í skyn að ekkert væri að marka full- yrðingar spæjarans. Guggenheim- er telur að Proksch hafi gripið í taumana á blaðinu. Hann hefur einstaklega góð sambönd í Aust- urríki, er formaður Club 45 sem Lúðrasveit Laugarnes- skóla á hljóm- leikaferð LÚÐRASVEIT Laugarnesskóla er nýlega komin heim úr tón- leikaferðalagi til Englands, Frakklands og Lúxemborgar. Að sögn Guðrúnar Kristjánsdóttur, sem kennir við Laugarnesskól- ann og fylgdist með sveitinni út, var hvarvetna gerður góður róm- ur að blæstrinum, og heppnaðist ferðin í alla staði vel. Lúðrasveit Laugarnesskóla ásamt stjórnanda á torgi í Paimpol. Yves Le Troux í bópi lúðrasveitarmanna. Lúðrasveit Laugarnesskóla var stofnuð fyrir níu árum, og hefur stjórnandi hennar verið sá sami frá byrjun, Stefán Þ. Stephensen. Hljóðfæraleikar- arnir eru 35, á aldrinum 10—17 ára. Sveitin hefur haldið tón- leika við ýmis tækifæri í Reykjavík og jafnframt því hefur árlega verið farið í hljómleikaferðir innanlands. Einu sinni áður hefur verið far- ið út fyrir landsteinana, það var 1982 að farið var til Lúx- emborgar og Þýskalands. Laugarnesskóli á fimmtíu ára afmæli nú í ár og þótti því við hæfi að lúðrasveitin gerði eitthvað til hátíðabrigða. Með ötulu starfi bæði foreldra og barna tókst að afla nægilegs fjár til þess að af utanför mætti verða. Áuk þess kom til styrkur frá Reykjavikurborg sem end- anlega varð til þess að gera ferðina mögulega. Fyrst var haldið til Lundúna og þaðan samdægurs til Jersey. Þar voru haldnir tvennir tón- leikar og fékk sveitin hinar bestu móttökur, eins og fyrr segir. I Frakklandi var farið í borg sem heitir Paimpol, og ætti að vera íslendingum að góðu kunn, því þaðan var sótt á Islandsmið fyrrum og má segja að bæjar- búum sé hlýtt til landsins. Þarna var lúðrasveitinni tekið með kostum og kynjum eins og nærri má geta. íslandsvinurinn Yves Le Roux sem er eini eftir- lifandi franski sjómaðurinn af þeim sem stunduðu sjósókn hér við land, 91 árs að aldri, var heiðursgestur á tónleikum sveitarinnar. Hann gerði sér svo lítið fyrir á eftir og bauð allri sveitinni og fylgdarliði, 48 manns, heim til sín, og sló upp gríðarmikilli veislu i garðinum fyrir utan hús sitt. Frá Paimpol var haldið til Lúxemborgar leikið fyrir þar- lenda og þvínæst snúið heim á leið. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.